Morgunblaðið - 11.02.1996, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 43-
FÓLK í FRÉTTUN
Morgunblaðið/Atli Rúnarsson
PÉTUR Pétursson, Björk Jónsdóttir og Jón Bachmann.
GAMLIR veiðifélagar í Grímsá hittust á blótinu í Orlando.
Það voru þeir Friðrik Eiriksson og Valur Egilsson.
SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR
STÚRLÆKKAB VERB!
Dæmi um verð:
Úlpur stærðir 32-52 = 50% afsláttur.
Kápur stærðir 34-52 = 30-50% afsláttur.
Síðbuxur stærðir 38-40 & 48-50-52 kr. 1.000.
Pils Úrval í stærð 38. kr. 1.000-1.900.
Kjólar kr. 900-1.900-2.900.
Blússur kr. 1.900.
Verðlistinn v/Laugalæk,sími 553-3755.
Þorri
blótaður í
Orlando
RÚMLEGA 180 íslendingar
lögðu leið sína á Þorrablót í Or-
lando laugardaginn 3. febrúar í
Langford Resort Hótelinu í Wint-
er Park.
Gestir komu víða að m.a. frá
Minneapolis, Norfolk, Sarasota,
Port Richey og Clearwater. Anna
Bjarnason, formaður íslendinga-
félagsins á Orlandosvæðinu, setti
hófið með ræðu og sá um veislu-
stjórn.
Eiríkur Friðriksson, mat-
reiðslumaður, reiddi fram þorra-
matinn með aðstoð föður síns
Friðriks Eiríkssonar, bryta. Þótti
þeim takast vel upp, enda voru
á borðum allar tegundir þorra-
matar. Gylfi Þ. Gíslason stjórnaði
fjöldasöng eftir borðhaldið, en
síðan lék Bill Freistadt einleik á
ELÍSABET Sveinbjörns-
dóttir mætti í peysufötum
á blótið með manni sínum
Þorsteini Steingrímssyni.
munnhörpu. Hann er kvæntur
Birnu Þórarinsdóttur.
Leynigestir voru Sigríður
Beinteinsdóttir og Grétar Örvars-
son, sem skemmtu gestum og
léku fyrir dansi.
Morgunblaðið/Atli Steinarsson
ÍSLENSKU ræðismannshjónin í Suður-Flórída, Þórir S. Gröndal
og Erla Ólafsson, með heiðursgestum kvöldsins, Sue og Charles
Cobb, fyrrum sendiherrahjónum á Islandi.
Islensk menning og
þorramatur í Flórída
VEL Á annað hundrað manns
mættu á þorrablót í Fort Lauder-
dale um mánaðamótin. Birna
Smalzer, formaður íslendingafé-
lagsins á svæðinu, bauð gesti vel-
komna og þakkaði þeim sem lagt
höfðu hönd á plóg við undirbúning
blótsins. Ekki síst Margréti Karls-
dóttur, sem bar hita og þunga af
matseldinni. Boðið var upp á full-
komið þorraborð og var maturinn
fenginn frá íslandi.
Þórir S. Gröndal ræðismaður
ávarpaði gesti og vitnaði í sígilda
visku Hávamála. Hann kynnti síðan
heiðursgest kvöldsins, Charles E.
Cobb Jr., fyrrum sendiherra Banda-
ríkjanna á íslandi. Cobb kvað ís-
lenskra menningaráhrifa gæta í
Flórída. Málverkasýningu Lovísu
Matthíasdóttur væri nýlokið og von
væri á SinfóníuhljómSveit íslands.
Eftir borðlialdið dunaði söngur
og dans. Hljómsveitin Stjórnin, með
söngkonuna Sigríði Beinteinsdóttur
í fararbroddi, lék fyrir dansi fram
á nótt. Veislustjóri var Jón Gerald
Sullenberger.
* —
Valgerður Einarsdóttir:
Ég hef stundað æfingabekkina í 2 ár og
líkað mjög vel. Ég var slæm af vöðva-
bólgum og er nú allt önnur. Ég mæli því
eindregið með æfingabekkjunum.
Margrét Ámundadóttir:
Ég hef stundað æfingabekkina í tvö ár
og finn stórkostlegan mun á vextinum.
Og ekki hvað síst hafa vöðvabólgur og
höfuðverkur algjörlega horfið. Þetta er
það besta sem ég hef reynt og vil ekki
missa úr einn einasta tíma.
Vilhelmína Biering:
Ég er eldri borgari og hef verið hjá
Sigrúnu í æfingabekkjunum í 5 ár og
hlakka til í hvert sinn. Mér finnst þetta
ómetanleg hreyfing fyrir alla vöðva og
finnst mér ég ekki mega missa úr einn
tíma enda finnst mér að eldri borgarar
eigi að njóta þess að vera í æfingum til
að halda góðri heilsu og um leið hafa
eigin tíma.
Stefanía Davíðsdóttir:
ÆíingabekMr Hreylingar, Áimúia 24, sMi 568 0677
Opið frá kl. 9-12 og 15-20 - Frír kynningartími
• Ert þú með lærapoka?
• Ert þú búin að reyna allt, án árangurs.
• Hjá okkur nærðu árangri.
• Prófaðu og þú kemst að því að senti-
metrunum fækka ótrúlega fljótt.
• Eru vöðvabólgur að hrjá þig í baki,
öxlum eða handleggjum?
• Stirðleiki í mjöðmum og þreyta í fótum?
• Vantar þig aukið blóðstreymi, þol og
slökun?
• Þá hentar æfingakerfið okkar vel.
Undirrituð hefur stundað æfingabekki-
na reglulega í 5 ár og líkað mjög vel.
Ég þjáðist verulega af liðagikt og
vöðvabólgum og þoldi þess vegna ekki
venjulega leikfimi. Með hjálp
æfingabekkja hefur vöðvabólgan smá
saman horfið og líðan í liðamótum allt
önnur. Þetta er eitthvað það besta
æfingabekkjakerfi fyrir allan líka-
mann sem flestir ættu að þola.
Reynslan hefur sýnt að þetta æfingakerfi hentar
sérlega vel fólki á öllum aldri, sem ekki hefur
stundað einhverja líkamsþjálfun í langan tíma.
Æfingakerfið er einnig gott fyrir fólk, sem ekki
stundar almenna leikfimi vegna stífra vöðva
o.fl. 7 bekkja æfingakerfið liðkar, styrkir og
eykur blóðstreymi til vöðva þannig að ummál
þeirra minnkar. Einnig gefur það gott nudd og
slökun.