Morgunblaðið - 11.02.1996, Side 48
48 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
KORFUKNATTLEIKUR
Stjörnuleikur bandarísku NBA-deildarinnarverður háður í Alamo Dome í San Antonio í kvöld
Þriggja daga stanslaus hátíð
NBA stjömuleikurinn fer fram
í 46. skipti í Alamo Dome
höllinni í San Antonio í kvöld.
ggmg Reyndar hefur NBA
Gunnar deildin sífellt aukið
Valgeirsson við atburði tengda
skrifarfrá leiknum á síðustu
Bandankjunum , . , ,
árum, og í ar verður
full dagskrá í þijá daga.
Opnunarhátíðin var á föstudag-
inn og munu þá meðal annars
Ólympíulið kvenna og úrvalslið nýl-
iða taka þátt í æfingum. í gær var
síðan æfing hjá stjörnuliðum aust-
ur- og vesturdeildar og voru þær
opnar öllum sem áhuga höfu á að
beija goðin augum. Seinna um dag-
inn var stjömuleikur nýliða og dag-
skránni lauk síðan með þriggja-
stiga skotkeppni og troðslukeppn-
inni. Stjörnuleikurinn sjálfur verður
síðan í kvöld.
Leiknum verður nú sjónvarpað
til 170 landa til um 200 milljón
heimila. Um 15 til 20 þessara landá
senda sérstaka þuli og tæknilið fyr-
ir eigin útsendingar frá leiknum.
Stjömuleikur nýliða
Þessi leikur fór nú fram í þriðja
sinn, en hann tók við af stjörnuleik
leikmanna sem þegar höfðu lagt
skóna á hilluna. I liði austurdeildar
ber hæst þeir Jerry Stackhouse hjá
Philadelphia 76ers og Damon Sto-
udamire hjá Toronto Raptors, en
þeir hafa báðir staðið_ upp úr hjá
liðum sínum í vetur. I liði vestur-
deildar hefur Joe Smith hjá Golden
State Warriors sjálfsagt staðið sig
best. Einnig verður gaman að fylgj-
ast með hinum 19 ára Kevin Garn-
ett frá Minnesota Timberwolves, en
hann fór í NBA-deildina beint úr
gagnfræðaskóla (high school). Elsti
nýliðinn í leiknum verður hinsvegar
hinn 31 árs gamli Lithái Arvydas
Sabonis hjá Portland Trail Blaizers.
Portland valdi Sabonis í NMA val-
inu 1986, en hann kaus heldur að
leika í Evrópu þar til í vetur.
Þriggja stiga skotkeppnin
Þessi keppni er nú haldin í 11.
skipti. Tveir leikmenn hafa unnið
þessa keppni þijú ár í röð. Larry
Bird hjá Boston vann 1986-1988
og Craig Hodges frá Chicago vann
Reuter
Tveir góðir
ÞESSIR kappar hafa oft eldað grátt silfur saman I stjörnuleikjum, en í kvöld verður það að-
eins Michael Jordan í búningi. Earvin „Magic“ Johnson mun hins vegar eflaust vera meðal
áhorfenda, enda láta körufknattleiksunnendur sig ekki vanta á leikinn þar sem helstu stjörn-
ur NBA-deildarinnar sýna sig. Jordan fékk næst flest stig í valinu á liðunum.
1990-1992. Glen Rice hjá Miami
vann í fyrra. Líklegustu sigurvegar-
ar í ár eru Steve Kerr hjá Chicago,
Dana Barros hjá Boston, Glen Rice,
sem nú leikur með Charlotte, og
Dennis Scott hjá Orlando. Sigur-
launin eru 20.000 dollarar, eða
rúmlega 1,3 milljónir króna.
Troðslukeppnin
Margir af skemmtilegustu leik-
mönnum í deildinni taka þátt í þess-
ari keppni, sem fer nú fram í 13.
skipti. Aðeins Michael Jordan, sem
sigraði 1987 og 1988, og Harold
Miner hjá Miami (oft kallaður „Litli
Jordan"), sem vann 1993 og 1995,
hafa unnið þessa keppni oftar en
einu sinni. Grant Hill hjá Detroit
og Jerry Stackhouse hjá Philadelph-
ia eru sigurstranglegir í þessari
keppni, en allt getur samt gerst.
Stjörnuleikurinn
Flestir bestu leikmenn körfu-
knattleiks í heiminum verða á park-
etgólfinu í San Antonio á sunnu-
dag. Helst hefur ákvörðun þjálfara
um að velja ekki Dennis Rodman
hjá Chicago verið gagnrýnd. Ahorf-
endur á leikjum deildarinnar velja
þá fimm sem byija inná hjá liðun-
um, en þjálfarar liðanna velja síðan
hina sjö leikmennina, oft í samvinnu
við hæstráðendur á deildarskrifstof-
unni í New York. Þjálfarar þeirra
liða sem bestan árangur hafa tvær
vikur fyrir leikinn í báðum deildum
fá þann heiður að þjálfa í stjörnu-
leiknum. í ár eru það Phil Jackson
hjá Chicago og George Karl hjá
Seattle. Báðir eru þeir að þjálfa í
annað sinn í stjörnuleik.
Liðin sem leika á sunnudag verða
skipuð eftirtöldum leikmönnum
(fimm fyrstu nöfnin helja leikinn
hjá liðunum).
Austurdeildin
Anfernee Hardaway, Orlando
Grant Hill, Detroit
Michael Jordan, Chicago
Shaquille O’Neal, Orlando
Scottie Pippen, Chicago
Vin Baker, Milwaukee
Terrell Brandon, Cleveland
Patrick Ewing, New York
Juwan Howard, Washington
Reggie Miller, Indiana
Alonzo Mourning, Miami
Glen Rice, Charlotte
Vesturdeild
Charles Barkley, Phoenix
Clyde Drexler, Houston
Shawn Kemp, Seattle
Jason Kidd, Dallas
Hakeem Olajuwon, Houston
Sean Elliott, San Antonio
Karl Malone, Utah
Dikembe Mutombo, Denver
Gary Payton, Seattle
Mitch Richmond, Sacramento
David Robinson, San Antonio
John Stockton, Utah
Þetta gæti verið í síðasta skipti
sem við sjáum Patrick Ewing og
Charles Barkley í stjörnuleik, en
endurkoma Michael Jordan í leikinn
mun eflaust auka áhuga fólks á
leiknum. Jason Kidd leikur sinn
fyrsta leik, en hann er mjög
skemmtilegur bakvörður. Mitch
Richmond var kosinn leikmaður
leiksins í fyrra. Karl Malone er einn
af þessum leikmönnum sem hefur
unnið þann titil tvisvar.
Kareem Abdul-Jabbar á flest met
í samanlögðum árangri í stjörnu-
leikjum. Hann hefur leikið flesta leiki
(18, næsti er með 13). Hann hefur
leikið lengst allra, eða í 449 mínút-
ur, gert flest stig (251), skorað flest-
ar körfur (105), varið flest skot (31),
og loks hefur hann fengið flestar
villur villur (57). Michael Jordan
hefur skorað að flest stig að meðal-
tali í stjömuleik, en kappinn sá er
með 22,1 stig að meðaltali.
Þess má að lokum geta að leikur-
inn verður sýndur í beinni útsend-
ingu á Stöð 2 í kvöld og hefst sýning-
in kl. 23.30 og mun Valtýr Björn
Valtýsson lýsa leiknum beint frá San
Antonio ásamt Einari Bollasyni.
FIFAvarar
UEFAvið
EKKI virðast allir vera sáttir við þá ákvörðun
Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA) að koma
á fót úrvalsdeild sfaerstu og frægustu liðanna í
Evrópu. Joao Havelange, forseti Alþjóðaknatt-
spyrnusambandins (FIFA), varaði forráðamenn
UEFA við í gær og sagði ekki ráðlegt að hampa
þannig fáum auðugum féiögum. „FIFA er tals-
maður allra félaga, ekki bara þeirra stóru og
ríku og við vi(jum hafa reglur sem höfða jafnt
til a!lra,“ sagði Havelange. Sepp Blatter, fram-
kvæmdastjóri FIFA, sagði að ef svo héldi fram
sem horfði gæti hugsast að á þingi FIFA í júlí
yrðu gerðar ráðstafanir þannig að allir ættu
sama rétt. „Knattspyrnan er byggð eins og pír-
amíti. Grunnurinn er æskan og skólarnir og síð-
an er byggt ofan á og á toppnum er FIFA. Ein-
stök félög eiga ekki að ráðskast með hluti og
slíkt getur haft ófyrirséðar afleiðingar. Það
gætu orðið tvennskonar lög, annars vegar fyrir
þá ríku og hins vegar fyrir þá fátæku,“ sagði
hann og bætti því við að ein af grunnreglum
FIFA væri að breiða knattspyrnuna út um allan
heim en ekki að hafa eins mikla peninga út úr
krafsinu og kostur væri. I fréttaskeytum er lát-
ið að því liggja að þetta sé aðeins enn eitt deilu-
efnið á milli Havelange og Svíans Lennart Jo-
hansson, en mikið hefur verið um slíkt á milli
forráðamanna sambandanna eftir að Johansson
ákvað að bjóða sig fram sem forseta FIFA, á
móti Haveíange.
FRJALSIÞROTTIR
Spenna er Ottey
vann PHvalovu
Merlene Ottey frá Jamaiku rétt
marði sigur í 60 metra
hlaupi er hún mætti rússnesku
stúlkunni Irinu Privalovu á innan-
hússmóti í Madrid á föstudags-
kvöldið.
Stúlkurnar fengu báðar tímann
7,10 sekúndur en Ottey var úr-
skurður sigurvegari eftir að dóm-
arar höfðu grandskoðað myndir af
hlaupinu. Þær tvær hafa oft háð
harða keppni á hlaupabrautinni í
Madrid og þar setti sú rússneska
einmitt heimsmetið árið 1993 er
hún hljóp á 6,92 sekúndum.
í 60 metra hlaupi karla sigraði
Terrence Bowen frá Bandaríkjum á
6,60 sekúndum, tveimur hundruð-
ustu úr sekúndu á undan Raymond
Stewartfrá Jamaiku. Landi Bowens
og heimsmethafinn í 60 metra
hlaupi innanhúss, Andre Cason,
varð þriðji á 6,65 sekúndum sem
er talsvert frá hans besta, 6,41.
Búist var við mikilli keppni í lang-
stökki karla enda voru þrír mjög
góðir mættir til leiks, Ivan Pedroso
frá Kúbu, James Beckford frá
Jamaiku og heimsmethafinn utan-
húss, Mike Powell frá Bandaríkjun-
um. Heimsmethafinn var ekki í
nægilega góðri æfingu og varð að
sætta sig við þriðja sætið með því
að stökkva 8,13 metra en þeir Ped-
roso og Beckford stukku báðir 8,43
metra og var Pedroso fyrri til þess
og telst því sigurvegari.
Heimsmethafinn í hástökki,
Kúbumaðurinn Javier Sotomayor
sigraði í hástökkinu í Madrid með
því að vippa sér yfir 2,36 metra og
er það besti árangur sem náðst
hefur í hástökki á árinu. Heims-
meistarinn Troy Kemp frá Bahamas
og Bandaríkjamaðurinn Charles
Austin urðu jafnir í örðu sæti,
stukku báðir 2,31.
Keppnin í hástökki kvenna var
einnig spennandi og þar urðu tvær
stúlkur jafnar og efstar, stukku
báðar 2,02 metra sem er besti
árangur ársins. Þetta voru þær
Alina Astafei frá Þýskalandi og
Stefka Kostadinova frá Búlgaríu.
Vestfjarðariðill í
keppni fjórðu deildar
SÉRSTAKUR Vestfjarðariðill verður í 4. deildinni í
knattspymu í sumar, en þaðan hafa sex lið skráð
sigtil keppni. Þau eru: BI, Bolungarvík, Ernir, Geisl-
inn, Hörður og Reynir, Hnífsdal. Þessi lið skipa
C-riðil, en alls eru riðlarnir í fjórðu deild fimm talsins.
í A-riðli leika: Framherjar, GG, Njarðvík, Léttir,
Afturelding, ÍH, HB og SKÁÁ.
í B-riðli leika: Smástund, Víkingur Ó., Bruni, Ár-
mann, TBR, Haukar og Skautafélag Reykjavíkur.
í D-riðli leika: Hvöt, Kormákur, Magni, SM, Tinda-
stóll, Neisti H og KS.
í E-riðli leika: Einheiji, Huginn, Leiknir F., Neisti
D., Sindri og KVA.
Ferð fýrir háforgjafar-
menn til Portúgal
NÚ gefst háforgjafárkylfingunum og byijendum í
íþróttinni tækifæri til að komast í golf til Portúgals
því Úrval-Útsýn hefur skipulagt ferð dagana 17. til
28. apríl. í tilkynningu frá ferðaskrifstofunni segir
að vellirnir sem leikið verði á séu sérstaklega þægi-
legir yfirferðar og ekki of erfiðir þannig að byijend-
ur og háforgjafarfólk eigi að kunna vel við sig.
Ennfremur segir í tilkynningunni að ekki verði skráð-
ir menn sem hafa undir 30 í forgjöf, en leikið verður
á þremur völlum, alls átta hringir. Fararstjóri verð-
ur íslandsmeistarinn Björgvin Sigurbergsson og:
kostar ferðin 78.100 krónur miðað við að tveir gisti
saman í íbúð með einu svefnherbergi.