Morgunblaðið - 11.02.1996, Síða 52

Morgunblaðið - 11.02.1996, Síða 52
 <B> AS/400 er... ...med PowerPC 64 bita örgjörva og stýrikerfi CQ> NÝHERJI MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SlMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Javier Solana, framkvæmdastjóri NATO, í viðtali við Morgunblaðið StefnubreytingF rakka jákvæð fyrir Island JAVIER Solana, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), segir í viðtali við Morg- unblaðið að breytt afstaða Frakk- lands til Atlantshafsbandalagsins sé jákvæð fyrir ísland. Solana kemur í opinbera heimsókn til íslands síðar í vikunni. Sjálfstæði Evrópu í varnar- málum þróist innan NATO Frakkar, sem ekki hafa tekið þátt í hernaðarsamstarfi NATO frá árinu 1966, ákváðu nýlega að gerast þátttakendur í því að nýju vegna friðargæzlu banda- lagsins í Bosníu. Jafnframt hefur Jacques Chirac, forseti Frakk- lands, lýst því yfir að aukið sjálf- stæði Evrópu í varnarmálum eigi að þróast innan Atlantshafs- bandalagsins, í samstarfi við Bandaríkin, „Að mínu áliti hefur sú mikil- væga breyting átt sér stað á undanfömum mánuðum að með breyttri afstöðu Frakklands hefur skapazt samkomulag um að þessi þróun eigi sér ekki stað utan NATO, heldur eigi hún heima inn- an NATO,“ segir Solana í viðtal- inu. „Þetta er mikilvæg afleiðing af afstöðu Frakka.“ Framkvæmdastjórinn segir að þessi hugmynd sé sú mikilvæg- asta, sem fram hafi komið í um- ræðum um aukið öryggissamstarf Evrópuríkja á seinustu mánuðum. Aðspurður hvort Island geti orðið fullgildur félagi í Evrópustoð NATO segir Solana: „Það er skilj- anlegt að íslendingar hafi velt þessum hlutum fyrir sér. Sem fullgilt aðildarríki NATO hefur ísland hins vegar enn ríkari ástæðu en áður til að hafa ekki áhyggjur af þróun tengsla og sam- skipta Evrópusambandsins og NATO. Eins og ég sagði áður, hefur orðið breyting, að mínu mati í mjög jákvæða átt. Ég tel að íslenzka þjóðin ætti að líta þá breytingu jákvæðum augum.“ Aðstaðan á íslandi ómissandi Solana telur að Vestur-Evrópu- sambandið, þar sem ísland á auka- aðild, muni á næstu árum tengjast Evrópusambandinu æ nánar. Hann segir að jafnframt þurfi að samræma starf ESB og Atlants- hafsbandalagsins. Framkvæmdastjóri NATO segir að ísland haldi áfram að gegna mjög mikilvægu hlutverki innan bandalagsins. „Það er ekki hægt að ímynda sér að NATO gæti virk- að sem skyldi, án þeirra möguleika sem staða íslands býður upp á hvað varðar uppbyggingu innra varnarskipulags þess. Ég tel því að mikilvægi Islands hafi langt frá því minnkað, heldur hefur það aukizt ef eitthvað er,“ segir Sol- ana. „Sú aðstaða, sem ísland get- ur boðið upp á, er ómissandi fyrir öryggi Evrópu.“ ■ Aðstaðan á íslandi/10 * IS kaupa hlut Lands- bankans í Borgey ÍSLENSKAR sjávarafurðir hf. hafa keypt eignarhlut Landsbank- ans í Borgey hf. á Höfn i Horna- firði. Nafnverð hlutabréfa bankans var 78 milljónir kr. og er það 21% af heildarhlutafé fyrirtækisins. Söluverð fæst ekki uppgefið. Borgey átti í alvarlegum fjár- hagserfiðleikum fyrir fáeinum árum og breytti Landsbankinn þá hluta af kröfum sínum í hlutafé og hefur það verið í eigu eignar- haldsfélags bankans. Jakob Bjarnason, framkvæmdastjóri Hamla hf., dótturfyrirtækis Landsbankans, staðfestir að bank- inn hafi selt Útvegsfélagi sam- vinnumanna, dótturfyrirtæki ís- lenskra sjávarafurða hf., hlut sinn. Vill hann ekki gefa upp söluverðið en segir að það hafi verið gott. Smáhlutir í fleiri félögum „Við erum að kaupa hlut í einum af okkar öflugustu framleiðendum og viljum taka þátt í að byggja upp fyrirtækið. Við teljum að þetta sé góð fjárfesting," segir Benedikt Sveinsson, framkvæmdastjóri Is- lenskra sjávarafurða hf. Bendir hann á að félagið eigi í nokkrum sjávarútvegsfyrirtækjum víða um landið. Benedikt segir að jafn- framt kaupi félagið smærri hluti sem Landsbankinn hafi eignast með ýmsu móti í nokkrum fyrir- tækjum tengdum ÍS, meðal annars sölufyrirtækjum þess í Bandaríkj- unum og Bretlandi. Benedikt segir samið um það við bankann hvernig kaupverðið greiðist og vill ekki fara nánar út í það. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga er stærsti hluthafinn í Borgey, með 37-38% eignarhlut. Homa- fjarðarbær er einnig stór hluthafi. Fuglafjöld við tjömina GÆSIRNAR, sem halda til á Reykjavíkurtjörn, hafa und- anfarna daga flykkzt upp á tjarnarbakkann við Fríkirkju- veg. Líf og fjör hefur verið í vökinni við Iðnó og vængjaslátt- urinn svo mikill að ýmsum hefur þótt nóg um atganginn. Ungi maðurinn veit ekki alveg hvort hann á að kætast eða skelfast, en í öruggum höndum er öllu óhætt og hægt að bera sig karl- mannlega. Morgunblaðið/Sverrir Líffæraþegar fá ráðgerða þjónustu TRYGGINGASTOFNUN ríkisins barst á föstudag nokkur fjöldi sím- hringinga og fyrirspuma frá fólki sem bíður líffæraflutninga í framhaldi af fréttum um að heilbrigðisráðherra og Tryggingastofnun hafi óskað eftir endurskoðun á samningi við Sahl- grenska sjúkrahúsið í Gautaborg. Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofnunar, sagði að fólk hefði hringt, sem ýmist biði hérlend- is eða í Svíþjóð eftir líffæraflutningi. Hjá þessu fólki hefði gætt ótta og kvíða um hvort endurskoðun samn- ingsins gæti orðið til þess að tefla væntanlegri meðferð þess í tvísýnu. Þann ótta sagði Karl Steinar ástæðu- lausan. „Það verður séð til þess að sjúkl- ingar fái þá þjónustu sem er ráðgerð og nauðsynleg," sagði Karl Steinar og sagði að þetta mál sneri að við- skiptalegum en ekki læknisfræðileg- um þáttum samstarfsins við Svía. Tugir. Japana fylla hótel eystra TUGIR Japana eru í verstöðv- unum á austan- og sunnan- verðu landinu til að fylgjast með frystingu loðnu fyrir Jap- ansmarkað. Á Austurlandi eru mörg hótel fullbókuð, meðal annars í Neskaupstað og á Eskifirði og á Seyðisfirði hefur þurft að koma fulltrúum jap- önsku kaupendanna fyrir í heimahúsum vegna þess að hótelið er lokað. „Hér er nýtt ferðamannatímabil,“ sagði einn viðmælandi Morgun- blaðsins fyrir austan. Mikill spenningur er í fólki í sjávarplássunum eystra. Einn frystihússtjórinn sagði í samtali við blaðið að margir fylgdust með stöðu mála, spáðu og spekúleruðu um veiði, hrognafyllingu og stærð Ioðnunnar. Mikið er undir á þessum stöðum því frysting loðnunnar hefur verið góð búbót fyrir fólk og fyrirtæki undanfarin tvö ár og menn eru vongóðir um góða vertíð nú. Hins vegar gera menn sér grein fyrir því að markaður fyrir frosna loðnu getur breyst fljótt og að erfítt er að reikna fiskinn út. Unnið er við loðnufrysting- una á vöktum allan sólar- hringinn. Starfsfólkið hefur fengið góð laun eftir þessa törn með mikilli vinnu. Ekki er vandamál að manna vinnsluna á þeim stöðum sem haft var samband við. ■ Menn hugsa ekki/8

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.