Morgunblaðið - 22.02.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. F’EBRÚAR 1996 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
Umhverfisráðherrar funda
UMHVERFISRÁÐHERRAR ríkja
Efnahags- og framfarastofnunar-
innar (OECD) birtu í gær að loknum
fundi sínum yfirlýsingu, þar sem
m.a. er hvatt til þess að ríkisstjórnir
OECD-landanna gangi á undan með
góðu fordæmi í umhverfismálum,
m.a. í innkaupastefnu sinni og með
því að taka tillit til umhverfissjón-
armiða í ákvarðanatöku stjórnsýsl-
unnar. Guðmundur Bjarnason um-
hverfisráðherra sótti fundinn fyrir
íslands hönd, en hann var haldinn
í París í tilefni aldarfjórðungsafmæl-
is Umhverfisnefndar OECD.
í fréttatilkynningu segir: „í yfir-
lýsingunni er bent á nýlegar athug-
anir OECD á samspili atvinnustigs
og umhverfisreglna, en þær benda
til þess að strangari umhverfislög-
gjöf hafi ekki hindrað atvinnusköp-
un, en hafi á hinn bóginn hugsan-
lega leitt til örlítið hærra atvinnu-
stigs en ella hefði orðið og er í því
samhengi bent á hinn ört vaxandi
„umhverfisiðnað", t.d. á sviði endur-
vinnslu og mengunarvarna. Þá
benda athuganir stofnunarinnar
einnig til þess að lög og reglur á
sviði umhverfismála hafi ekki haft
sjáanieg áhrif á samkeppnisstöðu og
millilandaverslun, né til þess að fyr-
irtæki hafi flutt sig til landa sem
gera minni umhverfisverndarkröfur.
Orðrétt segir í yfirlýsingunni:
„Ráðherrarnir leggja enn áherslu á
að umhverfisvernd þurfi að vera for-
gangsmál á alþjóðavettvangi. Hún
er fjárfesting í framtíð mannkyns.
Skynsamlegar aðgerðir í umhverfis-
málum eru mikilsverður þáttur í lífs-
gæðum, velferð og öryggi heims-
byggðarinnar."
I yfirliti yfir helstu umhverfis-
vandamál sem blasa við í nánustu
framtíð er m.a. minnst á baráttumál
íslendinga í sambandi við mengun
hafsins. Ráðherrarnir fagna Fram-
kvæmdaáætlun til að vernda um-
hverfi sjávar frá mengun frá land-
stöðvum, sem samþykkt var á al-
þjóðlegri ráðstefnu um það málefni
í Washington í Bandaríkjunum í
nóvember sl.
Foktjón
við álverið
„VIÐ VORUM nýbúnir að koma
grindunum upp. Núna hafa all-
ar nema ein kastast til í óveðr-
inu og skemmst. Þessi eina fauk
ekki því veðrið rauf gat á plast-
ið og blés í gegn,“ sagði Ragnar
Einarsson, smiður hjá Alftárós,
við álverið í Straumsvík í gær-
morgun. Hann var ásamt vinnu-
félögum sínum að rétta við og
laga fimm einfaldar trégrindur
með vinnuplasti til að verja
steypuvinnu við nýjan kerskála
ísal.
Þegar Ragnar var spurður
að því hversu veðrið myndi tefja
vinnuna lengi spurði hann hvort
rétt væri að öskudagurinn ætti
sér átján bræður. Sú alþýðutrú
hefur lengi verið til að viðra
muni svipað um lengri eða
skemmri tíma og á öskudaginn.
Algengasta spáin hefur verið
að öskudaguiinn ætti sér 18
bræður. Annars sagði Ragnar
ólíklegt að meiri töf yrði vegna
skemmdanna en einn til tveir
dagar.
♦ ♦ ♦---
Tískan á Hótel
Islandi
Keppt í14
greinum og
um tískuskart-
grip ársins
TÍSKAN 1996 er heiti keppni og
sýningar sem verður á Hótel ís-
landi sunnudaginn 3. mars næst-
komandi. Þar verður keppt í þrem-
ur greinum hárgreiðslu, tveimur
greinum í snyrtifræði, þremur
greinum í förðun, tveimur greinum
í nöglum, fjórum greinum í tísku
og fatagerð og í ár verður í fyrsta
sinn keppt um tískuskartgrip árs-
ins.
Sýningarbásar verða settir upp
og þar verða ýmis fyrirtæki með
kynningu á vörum sem snerta
tísku og útlit og fatahönnuðir
verða með sýningarbás þar sem
þeir kynna sína vinnu. Þá verður
fatagerðarfólk með tískusýningu
á þeim fátnaði sem verður í keppn-
inni.
Endurvinnum jörðina
Keppnin er haldin á vegum
tímaritsins Hárs og fegurðar, í
samvinnu við þau fagfélög sem
taka þátt í keppnum undir yfir-
skriftinni Endurvinnum jörðina.
Réiknað er með um 150 kepp-
endum og jafn mörgum módelum.
Dagskráin stendur í rúma 12 tíma,
hefst kl. 10.30 að morgni og lýkur
kl. 23 að kvöldi með verðlaunaaf-
hendingu.