Morgunblaðið - 15.03.1996, Side 1
92 SÍÐUR B/C/D
63. TBL. 84. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Samkynhneigð
Klerkur
í vanda
áKýpur
Nikosiu. Reuter.
NOKKUR þúsund manns köst-
uðu gijóti í lögreglu í Nikosiu,
höfuðborg Kýpur, í gær til að
mótmæla réttarhöldum' á
prestastefnu yfir klerki sem
sakaður er um samkynhneigð.
Rúmlega 70 manns slösuð-
ust í átökunum sem urðu við
bústað Chrysostomos, erki-
biskups Kýpur, en lögreglan
hafði girt bústaðinn með
gaddavír. „Tommis [gælunafn
biskups], þú ert djöfullinn holdi
klæddur, þú ert hórkarl,“ æpti
fólkið.
Stuðningsmenn klerks, hins
39 ára gamla- Pangratios
Meraclis, hafa gagnrýnt harð-
lega þá ákvörðun biskups að
víkja Meraclis frá tímabundið
meðan mál hans verði kannað.
Klerkur missir hempuna verði
hann fundinn sekur.
*
Loforð Clintons Bandaríkjaforseta í stuttri heimsókn til Israels
Göran Persson tekur við af Ingvar Cárls-
son sem forsætisráðherra Svíþjóðar
• •
Oflugt samstarí' í baráttu
gegn hryðjuverkamönnum
Jerúsalem. Reuter.
BANDARÍKJAMENN hétu ísrael-
um í gær fullum stuðningi í barátt-
unni við hryðjuverkamenn úr öfga-
samtökum múslima sem andvígir eru
friðarsamningum milli arabaþjóða
og ísraels. Bill Clinton Bandaríkja-
forseti kom í sólarhrings heimsókn
til landsins í gær og sagði að ísrael
fengi 100 milljóna dollara aðstoð
(um 6,6 milljarða króna) í þessu
skyni og gerður yrði sérstakur tví-
hliða samningur um baráttu þjóð-
anna gegn hryðjuverkamönnum.
Bandarískir embættismenn segja
að fá verði samþykki þingsins fyrir
ijárveitingunni. „Það skiptir engu
hve mikið erfiði það kostar, engu
hve langan tíma það tekur, við verð-
um að segja við þá [hryðjuverka-
mennina]: Við munum leita ykkur
uppi. Þið verðið svældir út,“ sagði
Bandaríkjaforseti á fréttamanna-
fundi með Shimon Peres, forsætis-
ráðherra ísraels.
Clinton sagði að Bandaríkjamenn
myndu þegar í stað útvega ísraelum
margs konar hátæknibúnað til
sprengjuleitar og veita liðsmönnum
baráttunnar gegn hermdarverka-
mönnum sérþjálfun. Skipst yrði á
upplýsingum um starfsemi sjálfs-
morðssveita fylkinga á þorð við
Hamas og íslamska jihad. í fylgdar-
liði forsetans var John Deutch, for-
stjóri leyniþjónustunnar CIA, og
mun hann ráðgast við ísraelska
embættismenn næstu daga um áður-
nefnt samstarf.
Stjórn Peres sagðist í gær myndu
reka úr landi íslamska heittrúar-
Reuter
BILL Clinton Bandaríkjaforseti spjallar við Shimon Peres, forsætisráðherra Israels, á fundi ísraels-
stjórnar í Jerúsalem í gær en fátítt er að þjóðarleiðtogar fái að sitja fundi ríkissljórna í öðru landi.
Yst til vinstri er Ehud Barak, utanríkisráðherra ísraels, en Clinton á vinstri hönd situr bandaríski
utanríkisráðherrann, Warren Christopher.
menn sem tengdust hryðjuverka-
mönnum. Israelskir hermenn á Vest-
urbakkanum sprengdu í gær í loft
upp hús sprengjusérfræðingsins Ya-
hya Ayyash er starfaði fyrir Hamas.
Hann lét lífið í janúar í tilræði sem
talið er að ísraelska leyniþjónustan
hafi staðið fyrir. Hamas sagði í gær
að haldið yrði áfram að ráðast á
ísraela og sakaði Yasser Arafat,
forseta sjálfsstjórnarsvæða Palest-
ínumanna, um að hafa gengið í Iið
með óvinunum. Lögreglusveitir Ara-
fats hafa handtekið hundruð Hamas-
liða síðustu dagana. „Zíonistarnir
[Israelar] munu ekki fá að sofa í
friði eftir þennan fund,“ sagði í yfir-
lýsingu samtakanna.
Undir ágjöf frá
vinstriarminum
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSKIR jafnaðarmenn koma
saman til sérstaks fundar í dag þar
sem Göran Persson, núverandi fjár-
málaráðherra, mun leysa Ingvar
Carlsson af hólmi sem leiðtogi
flokksins og forsætisráðherra. Samt
er búist við, að vinstriarmurinn í
flokknum muni gera að honum harða
hríð en hann lítur á Persson sem
ógnun við sig og ríkisafskiptastefnu
flokksins á umliðnum áratugum.
Til fundarins var sérstaklega boð-
að vegna leiðtogaskiptanna en í gær
var búið að skrá meira en 3.000 til-
lögur og ályktanir, sem óskað er
eftir að fundurinn afgreiði, og eru
þær langflestar komnar frá vinstri-
arminum. Dagblaðið ■ Expressen
sagði í gær, að meginefni þeirra
væri eftirfarandi:
Vinnuvikan verði stytt; meiri
áhersla verði lögð á að beijast gegn
atvinnuleysi en verðbólgu; hætt verði
við áætlanir um að loka kjarnorku-
verum og einnig við áætlanir um
aðild Sviþjóðar að evrópska mynt-
bandalaginu.
Persson nýtur virðingar á flár-
málamörkuðum og meðal erlendra
fjárfesta fyrir aðgerðir til að lækka
ríkisskuldirnar en búist er við, að á
fundinum í dag verði lagt hart að
honum að draga verulega úr niður-
skurðinum.
Áhyggjur
af velferðinni
Svíar hafa miklar áhyggjur af því
hvert stefnir í velferðarmálunum en
á síðustu árum hefur verið skorið
niður á flestum sviðum. Langir bið-
listar eru eftir ýmsum læknisaðgerð-
um og flestar bætur, til dæmis
barnabætur, námslán og atvinnu-
leysisbætur, hafa verið lækkaðar.
í janúar sl. lét Persson nokkuð
undan þrýstingnum innan flokksins
og lagði þá fram áætlun um að draga
úr atvinnuleysi um helming og
hækka sumar bætur örlítið.
I skugga sorgar
SKUGGI sorgarinnar lá í gær
yfir smábænum Dunblane á
Skotlandi, þar sem Thomas
Hamilton myrti 16 fimm og sex
ára börn og 45 ára kennslukonu
þeirra í kennslustund á miðviku-
dag. Elísabet Bretadrottning
lýsti í gær yfir því að hún myndi
fara til bæjarins og ríkisstjórnin
sagði að rannsókn yrði gerð á
málinu.
„Stundum geta okkar póli-
tísku deilur virst smásmuguleg-
ar við hlið hins mannlega og ég
held að þetta sé slík stund,“
sagði John Major, forsætisráð-
herra Bretlands, í umræðum á
þingi í gær.
„Hversu margir foreldrar
tóku utan um börnin sín í gær-
kvöldi, horfðu á þau með öðrum
hætti en venjulega og gerðu sér
í hugarlund sársaukann [sem
foreldrar fórnarlambanna urðu
fyrir]?“ sagði Tony Blair, leið-
togi Verkamannaflokksins, sem
er þriggja barna faðir og frá
Skotlandi. „í dag er þögn í
sljórnmálum. Við syrgjum. Við
vonum að með tímanum hverfi
þessi myrki skuggi.“
Verslanir voru lokaðar í Dun-
blane í gær og skólahald í
grunnskóla bæjarins liggur
niðri fram í næstu viku. A mynd-
inni sést lítil stúlka leggja blóm-
sveig á minningarreit um fórn-
arlömbin í gær.
■ Aðkomu lýst sem víti/20
Loforð Kínastjórnar
Engin árás
áTævan
Washington. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Peking hafa tjáð
Bandaríkjastjóm að Kína hyggist
ekki ráðast á Tævan, að sögn tals-
manns varnarmálaráðuneytisins i
Washington í gærkvöldi.
Talsmaðurinn, Mike Doubleday,
fullyrti þetta í gær og er þetta talið
fyrsta opinbera vísbendingin um að
Kínastjórn hafi beinlínis heitið
Bandaríkjamönnum að gera ekki
árás. Ekkert var sagt um það hve-
nær áðurnefnd loforð hefðu verið
gefin.
■ Lee segir Tævana/18