Morgunblaðið - 15.03.1996, Síða 9

Morgunblaðið - 15.03.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1996 9 FRETTIR Hagsmunaráð Orators Prófið gott að forminu til Jóhanna Sigurðar- dóttir á Alþingi Skuldir heimila jukust í þjóðarsátt JÓHANNA Sigurðardóttir þingmaður Þjóðvaka sagði á Alþingi á þriðjudag, að á þjóð- arsáttartímanum árin 1990 til 1995 hafi skuldir heimilanna aukist um 120 milljarða króna að raungildi, eða um 440 þús- und krónur á hvert manns- barn, á sama tíma og fyrir- tæki greiddu niður skuldir sín- ar um 24 milljarða króna. Jóhanna sagði að á síðustu sjö árum hefðu launþegar tek- ið á sig verulegar byrðar á sama tíma og byrðum var létt af fyrirtækjum. Af skulda- aukningu heimilanna mætti rekja um 30 milljarða skulda- aukningu til neyslu. Þetta væri augljóslega hluti af her- kostnaði launafólks við þjóðar- sáttina. Fram kom hjá Jóhönnu að af svari ljármálaráðherra við fyrirspurn hennar á Alþingi, mætti ráða að til ríkið hafi skattlagt skuldir fólks um 17-18 milljarða á þjóðarsáttar- tímanum, einkum með stimpil- gjöldum. Til viðbótar kæmi þóknun innheimtuaðila og lánastofnana. Jóhanna mælti fyrir þings- ályktunartillögu um aðgerðir til að bæta stöðu skuldara en samkvæmt tillögunni á ríkis- stjórnin m.a. að undirbúa til- lögur um að draga úr gjald- töku og skattlagningu hins opinbera vegna skulda ein- staklinga, setja þak á inn- heimtuþóknun og gjaldtöku lögmanna og fjármálastofnana vegna vanskila skuldara. Islenskt vatn verði aðgengilegt GERUM íslenskt vatn aðgengilegt á almannafæri og boðum til sam- keppni um útlit drykkjarvatnshana og slagorð, segir í tillögu Sylviu Briem, sem borgarráð hefur vísað til stjórnar veitustofnana. í erindi Sylviu til borgarráðs kem- ur fram að hún hafi starfað að ferða- málum á einn eða annan hátt síð- ustu 22 ár. Bendir hún á að land- kynning hafi framar öllu beinst að íslensku vatni, hreinu og tæru. Víst sé það hollt og gott en óaðgengilegt fyrir vegfarendur, sem leið eiga um borgina. Utlendingar spyrji um og leiti eftir vatnshönum, sem hvergi er að finna. Bendir hún á að æskilegt væri að staðsetja drykkjarvatnshanana, sem víðast um borgina og nefnir útivistarsvæðið í Laugardal, í Öskju- hlíð, við göngustíga og í opinberum byggingum. HUGBÚNAÐUR FYRIR WINDOWS FRÁBÆR ÞJÓNUSTA gn KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 HAGSMUNARÁÐ Orators, félag laganema, hefur komist að þeirri niðurstöðu að próf í almennri iög- fræði 20. janúar sl. hafi að forminu til verið gott próf þó það hafi bæði haft kosti og galla. Ekki sé hins vegar ástæða til að kvarta yfir því frekar en orðið er. „Kröfurnar, sem gerðar voru á prófinu, eru miklar en erfitt er að meta hvort þær hafi verið meiri en venjulega. Óháður prófdómari fór yfir prófúrlausnirnar og skv. regl- um lagadeildar, hefur hann jafn mikið að segja um endanlega ein- kunn nemenda og kennarinn. Að þessu athuguðu telur hagsmunaráð ekki þörf frekari aðgerða í sam- bandi við þetta tiltekna próf,“ seg- ir í bréfi Orators til kennara í laga- deild. Hvað kostina varðar, segir að prófið hafi verið mjög víðtækt, byggt á átta spurningum sem höfðu 10-20% vægi. Með því hafi náðst meiri heildarsýn yfir kunnáttu nemenda en með fáum spurningum og miklu vægi þeirra. „Þetta er mjög í takt við það sem laganemar hafa verið að fara fram á. Þá er það almennt mat þeirra, sem tóku prófið, að flestar spurningarnar hafi verið skýrar. En þótt prófíð hafi verið gott að þessu leyti, hefur komið fram gagnrýni stúdenta á skýrleika einstakra spurninga og að gerðar hafi verið of miklar kröf- ur til hverrar spurningar miðað við þann tíma, sem þeim var ætlað. Erfitt er fyrir hagsmunaráð að meta þennan þátt. Það er ljóst að endanlega er það mat kennara hvaða kröfur eru gerðar til prófúr- lausna. Þá var sett út á að hluti námsefnis barst nemendum seint frá kennurum. Þegar það gerist, er ljóst að erfiðara er fyrir nemend- ur að skipuleggja nám sitt og er því mikilvægt að koma í veg fyrir að slíkt gerist. Á þessum vanda er tekið í drögum að verklagsreglum fyrir lagadeild sem samþykkt voru á kennslumálaráðstefnu Orators í nóvember 1994.“ Gólf listar yf ir rör Vinna - efni - ráðgjöf Einar Guðmundsson pípulagningameistani LAUFBREKKU 20 / DALBREKKU MEGIN - KÚP. SÍMI 554 5633 - BRÉFSÍMI 554 0356 Kjólar - Kjólar á kr. 4.490. Stærðir: S-M-L-XL. Margir litir. Takmarkað magn. Nýkomnar vörur JtlUlUj" AntikMtiaúr, KUpfKxrítúj 40, súuÍ5S2 7977. Bókina dÉBpf* FÆRÐU í wWp- B0KABUÐUM Bókaútgáfan HIMBRIMI ..blahih ■ - kjarni niálsins! NÝ SENDING FRA DANIEL D. T 1^1 96 98 V neðst við DUNHAGA , " SÍMI 562 2230 Kvenlegt • Vandað • Glæsilegt fyrir þig! Fólk er alltaf að vinna f Gullnámunni: 80 milljónir Vikuna 7. til 13. mars voru samtals 80.671.393 kr. greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þetta voru bæöi veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öörum vinningum. Silfurpottar í vikunni: Dags. Staöur Upphæökr. 7. mars Mónakó..................... 148.605 7. mars Háspenna, Hafnarstræti.. 53.801 8. mars Keisarinn.................. 194.253 8. mars Háspenna, Laugavegi..... 151.419 8. mars Mamma Rósa, Kópavogi... 74.211 9. mars Hard Rock Café............. 106.860 9. mars Ölver....................... 56.888 10. mars Háspenna, Laugavegi..... 137.216 12. mars Háspenna, Laugavegi..... 357.100 13. mars Háspenna, Hafnarstræti.. 113.309 13. mars Spilast. Geislag., Akureyri.. 112.630 13. mars Mónakó....................... 81.554 Staöa Gullpottsins 14. mars, kl. 11.00 var 4.781.326 krónur. Siifurpottamir byrja alltaf i 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr. og hækka síöan jafnt og þétt þar til þeir detta. YDDA F53.170/SÍA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.