Morgunblaðið - 15.03.1996, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
ERLEIMT
Heræfingar Kínveija á Tævansundi
Morgunblaðið/Sigurgeir
GUÐMUNDUR VE að loðnuveiðum rétt við Eyjar. Hann er búinn að fá um 20.000 tonn á vertíðinni.
Guðmundur YE fékk 50
tonn af hrygndu síli
Vestmannaeyjura. Morgunblaðið.
BRÆLA var á loðnumiðunum í
Faxaflóa og við Snæfellsnes fyrri
hluta vikunnar og því engin veiði
en Guðmundur VE sem var að fara
frá Eyjum eftir löndun fann torfur
rétt innan við Eyjar og kastaði.
Grímur Jón Grímsson, skipstjóri,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi að þeir hefðu kastað einu
sinni inn af Eyjum og fengið um
50 til 60 tonn af hrygndu síli.
„Það var svolítið að sjá þama en
við erum að eltast við að ná í
óhrygnt síli því það á að reyna að
ná hrognum í frystingu frá okkur
eins og í undanförnum túrum og
því köstuðum við ekki aftur og erum
á leið vestur í flóa,“ sagði Grímur.
Hann sagði að trúlega hefðu þeir
náð að fylla við Eyjar ef þeir hefðu
ekki verið að leita að hrygndu síli.
„Ég var að vona þegar ég sá þetta
að það væri eitthvað nýtt á ferðinni
en greinilegt var að þessi loðna sem
var við Eyjar er úr sömu göngunni
og loðnan sem komin er vestur fyr-
ir.“
Hann sagði að þeir hefðu landað
um 900 tonnum í Eyjum og hafi
hrogn verið kreist úr farminum.
Guðmundur er búinn að fá um
20.000-tonn á vertíðinni en Grímur
sagðist hræddur um að stutt væri
Skipstjórinn
telur mjög stutt 1
vertíðarlok
orðið til vertíðarloka. „Þetta er far-
ið að verða ansi lokalegt, mikið af
loðnunni er hrygnt og svo er ferlegt
að fá svona brælu í lok vertíðarinn-
ar því þá tvístrast þetta og fer allt
í bölvaða vitleysu. Maður er bara
að vona að það komi einhver vestan-
ganga sem gæti lengt þetta um 10
daga eða svo, því ef hún kemur
ekki þá held ég að sé stutt þar til
þessari vertíð lýkur,“ sagði Grímur.
Hrognin ekki nógu þroskuð
„Víkingur landaði 1.100 tonnum á
Akranesi í fýrrakvöld. Það er helst
veðrið sem hefur sett strik í reikn-
inginn undanfarið á loðnuvertíð-
inni, en það er nóg af loðnu þegar
hún fínnst, að sögn Haraldar Stur-
laugssonar, framkvæmdastjóra
Haraldar Böðvarssonar hf.
„Það hefur ekki verið hægt að
kasta í Faxaflóanum vegna veðurs,
en það er ágætt núna.“ Þegar náð-
ist tal af honum í gær voru þrjú
skip á veiðum frá Akranesi eða
Víkingur, Höfrungur og Bjami Ól-
afsson. Þau vom ýmist á veiðum
við Snæfellsjökul eða úti í Faxa-
flóa. Haraldur segir að þetta sé
orðin mikil dagveiði. Það veiðist
aðeins í björtu.
Vonar að það teygist úr
veiðunum út mánuðinn
„Menn eru að vona að það teyg-
ist úr veiðunum fram eftir þessum
mánuði," segir hann. „Aðalveiðin
var búin fyrir mánaðamótin í fyrra,
en þá var verið að skrapa viku af
apríl. Ég skrifaði í dagbókina mína
að 7. apríl hefði Helga II landað
1.100 tonnum, sem hún hefði feng-
ið út af Reykjanesi. Daginn eftir
skrifaði ég hjá mér að allir loðnusjó-
menn væru í fagnaði á Hótel ís-
landi.“
Haraldur segir að hrognataka sé
ekki byijuð ennþá. „Þeir vom að
reyna hana fyrir tveimur dögun, en
þá voru hrognin ekki nógu þroskuð
fyrir hrognatöku," segir hann og
bætir við að það sé að detta á. Alls
hefur verið landað 24 þúsund tonn-
um af loðnu á Akranesi á vetrarver-
tíðinni, sem er aðeins meira en í
fyrra. í frystingu hefur farið eitt-
hvað á sjötta hundrað tonn, að sögn
Haraldar.
Lee segir lands-
menn óhrædda
Taipei. Reuter.
LEE Teng-hui, forseti Tævans,
fylgdist með heræfingum Kínveija
í gær frá lítilli eyju og lýsti því jafn-
framt yfir, að þær hræddu engan.
Æðsti hershöfðingi Kínveija sagði
í gær, að heræfingarnar væm ekki
ógnun við neinn og er litið svo á,
að með yfirlýsingunni vilji Peking-
stjórnin nokkuð draga í
land gagnvart Bandaríkj-
unum og öðrum ríkjum.
Lee forseti hélt í gær
kosningafund á Pescad-
ores-eyjum, sem em að-
eins í 72 km íjarlægð frá
Kína og skammt frá æf-
ingasvæði kínverska
hersins á Tævansundi.
Sagði hann þar, að Tæ-
vanar hræddust ekki æf-
ingarnar, þeir myndu
halda ró sinni á hveiju
sem gengi. Lee er langsigurstrang-
legastur frambjóðenda í fyrstu
beinu forsetakosningunum á Tæ-
van, sem verða 23. þ.m., og hafa
ögranir Kínveija haft þau áhrif ein
að auka honum fýlgi.
Vill lægja öldurnar
Liu Huaqing, æðsti hershöfðingi
Kínveija og varaformaður hermála-
nefndar kommúnistaflokksins,
sagði í gær, að Kínveijar
myndu aldrei ráðast inn
í annað ríki né taka þátt
í vopnakapphlaupi. Þykir
þetta benda til, að Pek-
ingstjórnin vilji lægja þær
öldur, sem heræfingarnar
hafa valdið á alþjóðavett-
vangi.
Utanríkismálanefnd
bandarísku fulltrúadeild-
arinnar samþykkti í gær
ályktun þar sem segir, að
Bandaríkin skuli koma
Tævan til varnar verði á landið ráð-
ist en hún er ekki skuldbindandi
fyrir Bill Clinton forseta.
Lee Teng-hui
Reuter
JEVGENÍ Prímakov, utanríkisráðherra Rússlands, ásamt starfs-
bróður sínum pólskum, Dariusz Rosati. Þeir ræddu saman í gær
um mesta áhyggjuefni Rússa, sem er stækkun NATO i austur.
Utanríkisráðherra Rússlands í Varsjá
Varar Pólveija
við NATO-aðild
Sigling til
framtíðar
KYNNINGARDAGUR Stýri-
mannaskólans verður haldinn
næstkomandi laugardag undir
yfirskriftinni „Siglingtil framtíð-
ar“. Þá munu nemendur og kenn-
arar kynna gestum og gangandi
tæki og aðstöðu skólans.
Það verður með því sniði að
nemendur verða að vinna í
tækjastofum undir leiðsögn
kennara og er hægt að spyija
þá út úr náminu. Einnig verða
fyrirtæki og þjónustuaðilar
tengd sjávarútvegi með aðstöðu
til kynningar á ýmsum búnaði
og vörum í kennslustofum Stýri-
mannaskólans.
Þeir sem hafa áhuga munu
geta aflað sér upplýsinga um
endurmenntunarnámskeið skól-
ans og almennt skólahald.
Þyrla landhelgisgæslunnar,
TF-LÍF, mun verða til sýnis á
skólalóðinni. Einnig munu björg-
unarsveitarmenn verða hífðir
Morgunblaðið/Sverrir
NEMENDUR áf ööru stigi Stýrimannaskóla íslands viö siglinga-
samliki skólans ásamt Vilmundi Víði Sigurðssyni, kenuara.
upp í þyrluna ef veður leyfir.
Þá munu nemendur keppa í ví-
rasplæsningu, en keppnin felst í
því að splæsa auga á vír. Loks
mun Kvenfélagið Hrönn sjá um
veglegar kaffiveitingar i matsal
skólans.
Um kvöldið verður síðan árs-
hátíð nemenda á Hótel íslandi.
Þar verða flutt heimatilbúin
skemmtiatriði, m.a. gert grín að
kennurum, og svo mun hljóm-
sveit Geirmundar Valtýssonar
leika fyrir dansi fram á nótt.
Segir Rússa geta sætt sig við öryggis-
sáttmála milli Póllands og NATO
en ekki beina aðild
Varsjá. Reutcr.
JEVGENÍ Prímakov, utanríkisráð-
herra Rússlands, kom til Varsjár í
gær til viðræðna við pólsk stjórn-
völd um það áhyggjuefni Rússa, að
NATO, Atlántshafsbandalagið,
verði stækkað í austur.
Talið er, að Prímakov muni reyna
að fá pólsku stjórnina til að falla
frá umsókn um NATO-aðiid en
hann mun meðal annars ræða við
Dariusz Rosati utanríkisráðherra,
Wlodzimierz Cimoszewicz forsætis-
ráðherra og Aleksander Kwasni-
ewski forseta.
Moskvustjórnin lítur á hugsan-
lega NATO-aðild fyrrverandi Var-
sjárbandalagsríkja sem ógnun við
öryggi Rússiands og hefur hótað
að grípa til ótilgreindra gagnað-
gerða. Hefur Prímakov einnig rætt
þessi mál við stjórnvöld í Tékklandi
og Ungveijalandi.
í anda friðarsamstarfs
í viðtali, sem birtist í vikuritinu
Polítyka fyrir nokkrum dögum, seg-
ir Prímakov, að Rússar geti sætt
sig við, að Pólveijar geri einhvers
konar öryggissáttmála við NATO
en gangi ekki í bandalagið. Sagði
hann friðarsamstarf NATO og frið-
argæsluna í Bosníu geta verið fyrir-
mynd að því en ítrekaði, að Rússar
myndu beijast hart gegn stækkun
bandalagsins.
Pólveijar halda því fram, að að-
ild þeirra að NATO yrði engin ógn-
un við Rússa og gæti raunar gagn-
ast þeim vegna þess, að þeir gætu
stuðlað að auknum skilningi innan
bandalagsins á Rússum og hags-
munum þeirra.
Af öðrum málum, sem líklega
verða á dagskrá í Póllandsferð
Prímakovs, eru óskir Pólveija um
að vegabréfsáritanir á milli land-
anna verði afnumdar og ósk Rússa
um að fá að leggja veg um Norð-
austur-Pólland en hann á að tengja
saman Hvíta Rússland og Kalín-
íngrad-hérað, sem er einangrað frá
Rússlandi.