Morgunblaðið - 15.03.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1996 21
Svante seldist í hvelli
Morgunblaðið/Sverrir
Á DÖNSKUM bókadögum gefst tækifæri til að kynnast danskri
skáldsagnagerð.
Á ferðalagi og
í eldhúsi
DANSKAR bækur eru enn lesnar
hér á landi og virðast eiga sér
trygga aðdáendur og kaupendur.
í tilefni Danskrar viku hefur Ey-
mundsson í Austurstræti danskar
bækur á boðstólum. Eftir því sem
afgreiðslufólk sagði er töluverð
eftirspurn eftir dönskum bókum,
einkum skáldsögum. ■
Benny Andersen
vinsæll
Við opnun sölusýningarinnar á
þriðjudaginn áritaði skáldið
Benny Andersen bækur sínar.
Andersen er eitt þeirra skálda
sem gera húmor ekki útlægan úr
skáldskap sínum. Mér var tjáð að
á innan við klukkutíma hefði bók
hans með vísum Svantes selst í
40-50 eintökum. Á miðvikudag-
inn þegar ég leit inn hjá Ey-
mundsson var töluvert af fólki í
búðinni og meðal þeirra sem þar
glugguðu í bækur voru rithöfund-
ar, bókasafnari og fleira áhuga-
samt fólk.
Þó nokkurt úrval danskra
skáldsagna er á þessum markaði.
Fyrst rak ég augun í minninga-
bókina Jörð í Afríku, Den afrik-
anske Farm eftir Karen Blixen
sem kostar í kilju 995 kr. Rétt
hjá lá önnur kunn bók, Himmer-
landshistorier eftir Johannes V.
Danskir bókadagar með
upplestri danskra
rithöfunda og annað
danskt efni stendur nú
til boða. Jóhann
Hjálmarsson leit inn á
danskan bókamarkað
hjá Eymundsson í
Austurstræti.
Jensen á 1.870 kr. Vitanlega voru
einnig á boðstólum skáldsögur
eftir Klaus Rifbjerg sem sendir
aldrei frá sér færri en nokkrar
bækur á ári og höfunda á borð
við Thorkild Hansen og Deu Trier
Morch. Suzanne Brogger er annar
frægðarhöfundur, djörf og op-
inská að dönskum hætti. Skáld-
sögurnar kosta yfirleitt í kiljum
um eða yfir 1.000 kr.
Sérstakt Benny Andersen-borð
er í Eymundsson og einhveijar
bækur skáldsins enn fáanlegar.
Annar metsöluhöfundur í hópi
ljóðskálda er Piet Hein, enda nóg
af Gruki eftir hann. Nýjasta ljóða-
bók Henriks Nordbrandts er fáan-
leg á 1.750 kr. og heitir Omveje
med Himlens Part. Hjemfalden
eftir Soren Ulrik Thomsen kostar
1.850 kr., en hann gistir nú ísland
ásamt Benny Andersen og fleiri
rithöfundum.
Svo vikið sé að öðrum bókum
má fá góðan Gyldendals Atlas fyr-
ir 4.650 kr.; Russiske billeder 1894-
1994 fyrir 4.065; Store tenorer á
1.490 kr. og Dansk kunst 2.445
kr. Danir eru mjög framarlega í
handbókum, ekki síst um lönd og
þjóðir og má fá eina slíka splunku-
nýa, Turen gár til Spanien fyrir
1.155 kr. Meðal ljölbrejdtra mat-
reiðslubóka er I kokkenet med Dan-
marks bedste kokker fyrir 1.740
kr. Þessar síðastnefndu bækur eru
veglega og smekklega útgefnar.
Eins og til að minna á að Dan-
ir eru sælkerar og vilja vera það
á fleiri sviðum en í bókmenntum
leynist meðal bókanna marsipan
frá Anthon Berg og konfekt frá
hinum sama.
Einu sinni voru stórar danskar
bókasýningar haldnar í Reykjavík
og bókabúðir voru með danskar
bækur í fjölbreyttu úrvali. Þessir
tímar eru ekki alveg liðnir og ljóst
að áhugi á dönskum bókum er
fyrir hendi og að hann byggist á
gamalli hefð. Bókmenntalega séð
er vegur Dana með ágætum og
sjálfir leggja þeir áherslu á að
vera evrópskir og líka nýstárlegir,
með öðrum orðum heimsborgara-
legir í skáldskap.
Danski bókamarkaðurinn hjá
Eymundsson stendur til 1. apríl,
en þá tekur við bandarískur bóka-
markaður í versluninni.
Málverka-
sýning og
fyrirlestur
SÝNING á málverum eftir Tuma
Magnússon verður opnuð í
Slunkaríki á Isafirði laugardag-
inn 16. mars klukkan 16.
Verkin eru unnin beint inn í
sýningarsalinn með málningu
og glerlitum og mynda þar eina
heild.
Slunkaríki er opið frá kl.
16-18 og stendur sýningin til 7.
apríl.
Myndlistin á ári
endurmenntunar
Menningarmiðstöðin Edin-
borg í samvinnu við Hótel ísa-
fjörð hafa fengið Halldór Björn
REYRSYKUR, tekk, ametyst.
Unnið í tölvu 1995.
Runólfsson listfræðing til að
halda fyrirlestur um „Myndlist-
ina á ári endurmenntunar“ og
fleira á laugardag á hótelinu kl.
17.
Hvað sér apinn?
NANA Petzet og Ólafur S. Gísla-
son opna myndlistarsýningu í Ný-
listasafninu, Vatnsstíg 3b, laugar-
daginn 16. mars kl. 16. Yfirskrift
sýningarinnar, „Hvað sér apinn“,
er spurningin um sköpunarhæfni
einstaklingsins í upplýsingasamfé-
lagi nútímans.
Nana Petzet er fædd í Mtinchen
1962 og Ólafur S. Gíslason í
Reykjavík sama ár. Þau eru búsett
í Hamborg í Þýskalandi og eiga að
baki langan sýningarferil. Þetta er
fyrsta sameiginlega sýning þeirra.
Ólafur sýnir verkefni þar sem
hann hefur sett upp aðstöðu fyrir
almenning á mismunandi stöðum
til að tjá sig í formi skrifa, teikn-
inga og málverka.
Nana sýnir verk sem gerð eru
á tímabilinu 1972-1996. Síðan
1988 hefur viðfangsefni hennar
verið eðlisfræði, náttúruvísindi og
í síðustu verkum umhverfismál.
Gestur í setustofu safnsins er
finnski myndlistarmaðurinn
Pekka Tapio Pyykönen. Sýning
hans ber heitið „Útsýnisturnar".
Pekka Tapio útkskrifaðist frá
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1994 en áður hafði hann
lokið námi frá Kuopio Academy
for handicraft and Ápplied Art í
Finnlandi. Hann býr og starfar á
íslandi.
Sýningarnar eru opnar daglega
frá kl. 14-18 og þeim lýkur sunnu-
daginn 31. mars.
Orrustan um
Stalingrad í MÍR
HEIMILDARKVIKMYNDIN
„Orrustan um Stalingrad" verður
sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10,
á sunnudag kl. 16.
Myndin er að mestu sett saman
úr fréttamyndum sem teknar voru
á vigstöðvunum við Volgu vetur-
inn 1942-1943, þegar orrustan
mikla um borgina Stalingrad var
háð, en sigur Sovéthersins í þeirri
orrustu olli straumhvörfum í styrj-
öldinni.
Fréttamyndir þessar voru tekn-
ar beggja vegna víglínunnar, bæði
af Sovétmönnum og Þjóðverjum.
Skýringar með myndinni eru á
ensku. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.