Morgunblaðið - 15.03.1996, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
strákar sem mikill hörgull er á í
skólanum; nemendur eru þar um
120 talsins en af þeim eru aðeins
um 25 strákar.“
Dýrmæt reynsla
Sýning sem þessi er hluti af námi
við Söngskólann og er færð upp
annað hvert ár að jafnaði. Nemend-
ur velja verkið ekki sjálfir heldur
skólinn en hann sér einnig um að
skipa í hlutverk ásamt leikstjóra
sem í þetta skipti er Halldór E.
Laxness.
Tilgangurinn með því að láta
nemendur setja upp heilt verk á
sviði er að gefa þeim tækifæri tii
að afla sér reynslu í því að koma
fram. „Við öðlumst hér dýrmæta
reynslu af að vinna með leikstjóra
og að syngja á sviði sem við höfum
fengist mismikið við áður,“ segir
Kristjana.
Hrafnhildur segir að vanalega
séu sett upp óperuverk en það sé
mjög dýrmætt fyrir þau að setja
upp verk eins og Oklahoma. „Verk
af þessu tagi krefst nefnilega jafn-
mikils af okkur í leikrænni tjáningu
og í söngnum. Og þar sem kröfur
um leikræna hæfileika óperusöngv-
ara eru alltaf að verða meiri og
meiri er þetta mjög dýrmæt reynsla.
Það er líka ágætt að fá að takast
á við öðruvísi tónlist en við erum
vanalega að fást við í skólanum,
nú eru líka gerðar þær kröfur til
söngvara að þeir geti sungið hvað
sem er, ekki aðeins óperu.“
„Það er einnig mikið dansað í
þessu verki og það er ekki síður
mikilvæg reynsla," segir Hulda
Björk, „auk þess höfum við unnið
alla undirbúningsvinnu sjálf; við
hönnuðum og smíðuðum leikmynd-
ina og gerðum búninga undir hand-
leiðslu Huldu Kristínar Magnús-
dóttur og Þorgeirs Ólasonar, við
höfum líka séð um alla kynningu á
verkinu, fjölmiðlatengsl og annað
slíkt sem maður þarf víst ekki síst
að kunna skil á. Þetta hefur verið
gríðarleg vinna en reynslan er ör-
ugglega þess verð.“
Verkið er þýtt af Óskari Ingi-
marssyni og Guðmundi Jónssyni.
Tónlistarstjóri er Magnús Ingimars-
son og dansstjóri er David Green-
all. Lýsingu annast Halldór E. Lax-
ness og sýningarstjóri er Kristín
Kristjánsdóttir.
Ástarþríhyrningar, sljórnsamir
feður og ráðagóðir riddarar
AÐ ER engin djúp alvara eða
margræður boðskapur í
söngleiknum Oklahoma
sem verður frumsýndur af nemend-
um Söngskólans í Reykjavík í ís-
lensku óperunni í kvöld. Oklahoma
er þvert á móti hreinn og beinn
gleðileikur, fullur af ærslum ungra
og tápmikilla kúreka og glæsilegra
sveitapía, fullur af dans og söng
sem aldrei verður þungur og tor-
meltur. Þetta er einn af vinsælustu
söngleikjum allra tíma, saminn af
bandaríska tvíeykinu Rodgers og
Hammerstein árið 1943 en Okla-
homa færði þeim Pulitzer-verðlaun-
in eins og South Pacific gerði einn-
ig sjö árum síðar. Oklahoma var
sýnt 2.248 sinnum á Broadway og
var það met sem stendur enn og
verður sennilega seint slegið. Sam-
starf þeirra Rodgers og Hammer-
stein stóð í sautján ár og lauk með
The Sound of Music sem fræg kvik-
mynd var gerð eftir með Julie
Andrews í aðalhlutverki.
Ástarþríhyrningar
Söguþráður Oklahoma hverfist
um tvo hefðbundna ástarþríhyrn-
inga, með örlitlum tilbrigðum þó;
annars vegar er það Curly sem
hrífst af Laurey og' hún af honum
en þráast samt við því hann getur
ekki alveg litið framhjá öllum hinum
stúlkunum, hún gefur því vinnu-
manninum Jud eilítið undir fótinn
án þess að hafa nokkurn áhuga á
honum en Jud verður strax yfír sig
hrifinn sem flækir vitanlega málin
meira en fyrirséð var; hins vegar
er það Will sem hefur reynt að ná
í einföldu sveitapíuna Annie sem
skilur ekkert í öllum þeim áhuga
sem strákarnir sýna henni en auk
Wills er í þeim hópi farandsalinn,
Ali Hakim, sem vill allt nema kvæn-
ast henni, um tíma virðist þó stefna
í það en allt fer vel að lokum og
hin sanna ást sigrar. Inn í atburða-
rásina fléttast auðvitað stjórnsamir
feður, ráðagóðir riddarar og Ella
frænka sem öllu ræður hvernig sem
allt veltur.
Hörgull á strákum
Aðalhlutverkin fimm eru í hönd-
um þeirra Garðars Thórs Cortes
(Curly), Hrafnhildar Björnsdóttur
(Laurey), Davíðs Ólafssonar (Will),
Huldu Bjarkar Garðarsdóttur
(Annie) og Kristjönu Stefánsdóttur
(Ella frænka). Aðspurð hvort sagan
í Oklahoma sé ekki svolítið gamal-
dags segja þau að svo sé að vissu
leyti. „En það er hins vegar ýmis-
legt í honum sem á jafnvel við núna
og fyrir fimmtíu árum,“ segir Garð-
ar Thór og bætir við að það hefði
verið rætt innan hópsins að færa
söngleikinn fram í tíma en það hefði
verið mjög erfitt vegna ýmissa stað-
Söngleikur Rodgers og Hammerstein,
Oklahoma, verður frumsýndur af nemendum
í kvöld. Þröstur Helgason fylgdist með
æfíngu og ræddi við nemendur sem segja
það dýrmæta reynslu að setja upp verk af
þessu tagi.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GARÐAR Thór Cortes í hlutverki Curly sem vill gefa hvað sem
er til að eignast Laurey, jafnvel hnakkinn sinn.
reynda sem koma fram í textanum
og snúið hefði verið að breyta.
Öll eru þau í óperudeild Söng-
skólans, það er á 7., 8. eða 9. stigi.
„Það sama- er að segja um flesta
aðra sem taka þátt í uppfærsl-
unni,“ segir Davíð, „en þó eru
nokkrir af fyrri stigum, einkum
Söngskólans i Reykjavík í íslensku óperunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SIGURÐUR Flosason, saxófónleikari, á æfingu með Sinfóníuhljómsveit íslands.
A mörkum djass og klassíkur
SIGURÐUR Flosason, saxófón-
leikari, leikur einleik með Sinfón-
íuhljómsveit Islands við frum-
flutning á sænsku verki fyrir
saxófón og strengi í íþróttahúsi
Digranesskóla á morgun, laugar-
dag. Verkið heitir Zones og er
eftir Ulf Adáker sem samdi verk-
ið sérstaklega fyrir Sigurð.
„Verkið er á mörkum klassískrar
tónlistar og djass,“ sagði Sigurður
í samtali við Morgunblaðið, „en
það blandar saman þessum tveim-
ur tegundum tónlistar. Öll lilut-
verk strengjanna eru fullskrifuð
en hlutverk saxófónsins er skrifað
að hluta en byggist cinnig á
spuna. Þetta er rólegt og lýrískt
verk og mjög aðgengilegt fyrir
hlustendur."
Að sögn Sigurðar er Adáker
kunnur djassisti í heimalandi sínu,
bæði sem trompetleikari og sem
tónskáld. „Við höfum unnið tölu-
vert saman undanfarin ár,“ sagði
Sigurður, „og þessi hugmynd
varð til hjá okkur fyrir allnokkru.
Þetta er skemmtilegur viðburður
því það er ekki mjög algengt að
Sinfóníuhljómsveit Islands frum-
flj'tji erlend tónverk og það ger-
ist heldur ekki á hverjum degi
að verk sé sérstaklega samið fyr-
ir íslenskan hljóðfæraleikara."
Tónleikarnir eru hluti af tón-
leikaröðinni Tónlist fyrir alla og
verða einnig haldnir á Selfossi, í
Borgarnesi, Keflavík og Grinda-
vík.
Frátekið borð í
Borgarleikhúsinu
LEIKÞATTURINN
Frátekið borð, örlaga-
flétta í einum þætti
eftir Jónínu Leósdótt-
ur verður frumsýndur
í Höfundasmiðju Leik-
félags Reykjavíkur í
Borgarleikhúsinu á
morgun laugardag kl.
16.
Leikþátturinn tekur
um 45 mínútur í flutn-
ingi og fjallar um tvær
konur af landsbyggð-
inni sem setjast við
/ sama borð á veitinga-
Jónína Leósdóttir
stað í Reykjavík. Kon-
urnar þekkjast ekki en
í ljós kemur að það er
engin tilviljun að ein-
mitt þær tvær sitja við
þetta borð. Örlögin
hafa leitt þær saman
- með dyggri aðstoð
veraldlegra afla.
Leikarar eru
Bryndís Petra Braga-
dóttir, Saga Jónsdóttir
og Soffía Jakobsdótt-
ir. Fagleg aðstoð, Ás-
dís Skúladóttir.
Menningarmiðstöð
í Grindavík
ÁKVEÐIÐ hefur verið að gera
Kvenfélagið í Grindavík „Gamla
Kvennó“ að menningarmiðstöð
bæjarins. Unnið er að endurbótum
á húsinu, bæði utan og innan, og
er það nú þegar tilbúið til notkun-
ar fyrir ýmsa starfsemi.
Kvenfélagshúsið var byggt árið
1930 fyrir atorku og dugnað kven-
félagskvenna. Það gegndi lykil-
hlutverki í skemmtanalífi bæjarins
á árum áður og voru haldnir þar
dansleikir, tónleikar, sýnd leikrit
o.m.fl. Nú hefur menningarnefndin
fengið nýtt hús til umráða og er
því ætlað það hlutverk að vera
Menningarmiðstöð Grindavíkur-
bæjar.
Laugardaginn 16. mars mun
myndlistarmaðurinn Sigurður Þórir
opna málverkasýningu í húsinu.
Sýningin stendur yfir dagana
16.-24. mars og verður opin frá
kl. 16-19 alla dagana. Þar sýnir
han verk unnin með olíu, vatnslita-
og pastellitum, svo og pennateikn-
ingar. Sýninguna nefnir Sigurður
Þórir: Úr hugarheimi.
Allir eru velkomnir í Kvennó
laugardagin 16. mars kl. 16. Við
opnunina munu nemendur úr Tón-
listarskólanum leika nokkur lög.