Morgunblaðið - 15.03.1996, Side 23

Morgunblaðið - 15.03.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1996 23 LISTIR Myndir úr þýskum dánarbúum Morgunblaðið/Asdís ÓSK Vilhjálmsdóttir við verk sitt í Ráðhúsinu. Skyggnst inn í einkalíf TVÆR tengdar sýningar Óskar Vilhjálmsdóttur standa nú yfir í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og á Mokka. Síðarnefnda sýningin er samvinnuverkefni Óskar og Hjálmars Sveinssonar og ber hún yfirskriftina „Fiskar drekka ekki vatn“. „Mér fannst mikilvægt að sýna þessi verk á stöðum eins og þessum þar sem fólk býst ekki endilega við að sjá myndlist heldur verður hún meira á vegi þess,“ sagði Ósk. Myndir úr þýskum dánarbúum eru innihald sýninganna. í Tjarn- arsalnum hefur 9.500 ljósmyndum, skyggnum, verið komið fyrir þann- ig að þær þekja hluta af suð- urglugganum. Úr fjarlægð séð er verkið eins og litskrúðugur steind- ur gluggi en þegar nánar er að gáð sjást myndir úr ferðalögum, úr stórborgum, fjöllum, myndir af rokktónleikum og berum stúlkum á Tahiti, Tutankh amoun í Egypta- landi o.s.frv. Þegar sólin fellur á verkið kastar hún myndum inn í salinn, en á kvöldin eru kastarar sem sjá um að varpa þeim út á yfirborð tjarnarinnar. A Mokka kaffi eru myndir í römmum með texta undir en hann er framlag Hjálmars. Þær myndir eru orðnar daufar, litir og útlínur eru farnir að mást út enda kemur það í ljós þegar listafólkið er tekið tali að þessar myndir eru útprent- anir á skyggnum sem héngu í glugga í Þýskalandi í um hálft ár og sólin upplitaði. „Sólin bæði gef- ur og tekur - eins og Guð,“ segir í sýningarskrá. Textinn er skrifaður í dagbókar- formi. Hann er stundum skáldlegur og stundum hversdagslegur og er ekki skrifaður út frá myndunum, að sögn Hjálmars, heldur eru myndirnar valdar af handahófi við textann. „Hér á Mokka vildum við forð- ast að hengja okkur í eitthvað ákveðið tímabil þegar við völdum myndirnar, heldur höfum við þær meira tímalausar. Það er ótrúlegt hve mikið magn er til af svona myndum hjá skransölum og þetta svo persónulegt að enginn kaupir það og því er þessu hent. Mörgum sem sjá þessi verk mín finnast þau óhugguleg því þau eru svo tengd dauðanum. Eg persónulega skammast mín alltaf dálítið þegar ég er að fara svona inní einkalíf ókunnugs fólks þótt í raun hafi ég keypt mér aðgang,“ sagði Ósk. Fá nýtt líf „Mér fannst það mikilvægt þeg- ar ég var að skrifa textann að láta þetta ekki líta út fyrir að vera grín á millistéttartúrista, sem taka mikið af svona myndum, heldur reyni ég að sýna myndunum virð- ingu með því að vera ekki of mik- ið að setja mig inn í líf ókunnra persóna. Með þessu gefum við myndunum nýtt líf og þær lifna við í hugum áhorfenda sem byggja sér sínar eigin sögur í tengslum við þær. Ég er ekki að reyna að vera eitthvað sérstaklega skáldleg- ur og nota athyglisverðar og hnyttnar setningar héðan og þaðan ásamt öðru,“ sagði Hjálmar. Þau sögðu aðspurð að gerð svona verks með islenskum mynd- um yrði örugglega allt öðruvísi. „Hér eru svo góð tengsl milli kyn- slóða þannig að ég get ekki ímynd- að mér að myndir séu eitthvað ruslahaugavandamál hér eins og úti.“ „Ferðalangar“ í Fold SÝNING á olíumyndum Soffíu Sæmundsdóttur verður opnuð í Gallerí Fold við Rauðarárstíg laug- ardaginn 16. mars kl. 15. Sýninguna nefnir hún Ferðalangar. Soffía stundaði nám við Myndlista- og handíða- skóla íslands og lauk þaðan prófi úr grafíkdeild árið 1991. Hún hefur haldið nokkrar einkasýning- ar og tekið þátt í samsýningum. „I verkum sinum eru henni ferðalangar og fram- andi slóðir hugleiknar, en jafnframt leitar hún í fornar íslenskar ,“ segir í kynningu. Sýningin stendur til 31. mars og er opin virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-17 og sunnudaga frákl. 14-17. SOFFÍA við eitt verka sinna. P5TEVE DIANE MARTIN MARTIN KEATON SHORT ii.m STKVE 'l uKlN 'v :vAi.AN sr !!v ALHF í ' GR 1400 • H: 85 B: 51 D: 56 cm • Kælir: 140 I. Verð stgr. 44.500,-J GR 1860 • H:117 B: 50 D: 60 cm • Kælir: 140 Itr. • Frystir: 45 Itr. GR 2260 • H:140 B: 50 D: 60 cm • Kælir:l 80 Itr. • Frystir: 45 Itr. GR 2600 •H:152 B: 55 D:60cm • Kælir: 187 Itr. • Frystir: 67 Itr. GR 3300 • H:170 B: 60 D: 60 cm • Kælir: 225 Itr. • Frystir: 75 Itr. <^índesít ../ eldhúsið og sumarbústaðiim. _BRÆÐURNIR CflORMSSON tágmúla 8 • Sími 553 8820 Umbobsmenn um land ailt Vcsturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúö.Búöardal Vestfirðlr: Geirseyrarbúöin, Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvík.StraumurjsafirÖi. Norðurland: Kf.Steingrímsfjaröar.Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga.'Blönduósi. Skagfiröingabúð.Sauöárkróki. KEA byggingavðrur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Siglufiröi.Ólafsfiröi og Dalvík. Kf. Pingeyinga, Húsavík. Urö, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstööum. Kf.Vopnfiröinga.Vopnafiröi. Stál, Seyöisflröi. Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kf.Fáskrúösfiröinga, Fáskrúðsfiröi. KASK, Höfn Suðurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell.Keflavík. Rafborg, Grindavlk. ^

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.