Morgunblaðið - 15.03.1996, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1996 39
I --------------------------
I Opinberir
starfsmenn
mótmæla
MÓTMÆLI við frumvörpum ríkis-
Istjórnarinnar um réttindi, skyldur og
lífeyrissjóð opinberra starfsmanna
og um samskipti á vinnumarkaðinum
■ halda áfram að berast.
’ Til viðbótar þeim, sem getið hefur
verið um í Morgunblaðinu, hafa eftir-
talin félög mótmælt frumvörpunum:
Útgarður - félag háskólamanna,
opinberir starfsmenn Húsavíkur og
nágrennis, opinberir starfsmenn í
Vestmannaeyjum, á Akureyri, Suð-
urlandi og í Mosfellsbæ, Austur-
landsdeild Félags ísl. ieikskólakenn-
ara, kennarar Tónlistarskóla Reyðar-
ijarðar, starfsmenn Gagnfræðaskóla
IAkureyrar, starfsmenn á Landakots-
spítala, starfsmenn Sjúkrahúss
Reykjavíkur, starfsmannafélag
Kvennaskólans í Reykjavík, kennarar
Kleppjárnsreykjaskóla, Grunnskóla
Siglufjarðar, Grunnskólans í Skóg-
um, sameiginlegur fundur heildar-
samtaka opinberra starfsmanna
BSRB, BHMR og KÍ haldinn á Vest-
urlandi, Borgarnesi og Kópavogi,
Félag íslenskra leikskólakennara,
Félag tækniskólakennara og Starfs-
* mannafélag Reykjavíkurborgar.
-------------» ♦ ♦-----
Síðdegisfund-
ur um stjórn-
mál í Noregi
| í ERINDI sem flutt verður á vegum
á „Stjórnmála á laugardegi" næstkom-
- andi laugardag klukkan 15.30 í setu-
I ‘ stofu veitingahússins Skólabrúar
mun sendiherra Noregs á íslandi,
Nils Oskar Dietz, ræða um stjórnmál
og stefnur í Noregi. Norðurlanda-
samstarf er meðal þeirra málefna
sem sendiherrann mun fjalla um.
Stjórnmál á laugardegi er félag
áhugamanna um erlend stjórnmál
sem heldur fundi fyrsta og þriðja
4 laugardag hvers mánaðar yfir vetrar-
mánuðina kl 15.00 í setustofu veit-
" ingahússins Skólabrúar. Á fundun-
| um gefst almenningi kostur á að
hlusta á erindi og taka þátt í umræð-
um um fyrirkomuiag og áhugaverða
þróun í erlendum stjórnmálum.
FRÉTTIR
Grænlenskir dagar í Nor-
ræna húsinu og Naustinu
KALAK, Grænlensk-íslenska félagið,
efnir til grænlenskra daga í Norræna
húsinu um helgina. I tengslum við
hátíðina verður ferðagetraun, ferða-
kynningar, myndasýningarog hand-
verk.
Þá verður Veitingahúsið Naustið
með grænlenskt villibráðarkvöld 15.,
16. og 17. mars í tengslum við græn-
lensku dagana. Þar verður m.a. boð-
ið uppá sauðnautskjöt, sel, hvalhúð,
hreindýrakjöt og fleiri grænlenska
rétti.
Dagskrá þessara daga er eftirfar-
andi:
Dagskrá í aðalsal Norræna húss-
ins laugardaginn 16. mars. 13.00
hátíðin sett. Grétar Guðni Guð-
mundsson, formaður KALAK. 13.05
Guðmundur Eyjólfsson sýnir lit-
skyggnur frá Paradísar- og Klaust-
urdal, S-Grænlandi. 13.30 Jón Böð-
varsson, ritstjóri: Sitthvað um sögu
norrænna manna á Grænlandi. 14.00
Helena Dejak: Mynd frá Scoresby-
sund. 15.00 Jón Viðar Sigurðsson,
jarðfræðingur: Myndasýning frá
gönguferð um Nuussuaq-skagann.
16.00 Kirsten Thisted, rithöfundur
kynnir grænlenskar bókmenntir.
17.00 Ole Korneiiussen, rithöfundur,
kynnir og les upp úr verkum sínum.
Sunnudagur 17. mars í Nor-
ræna húsinu: 13.00 Lars Emil Jo-
hansen formaður grænlensku lands-
stjórnarinnar. 13.30 Rasmus Lybert,
trubador, spilar og syngur. 14.00
Tukuma. Mynd frá Grænlandi fyrir
alla fjölskylduna. 16.00 Rasmus Ly-
bert, trúbador, spilar og syngur.
16.30 Haraldur Ingi Haraldsson, for-
stöðumaður Listasafns Akureyrar,
flytur erindi um grænlenska mynd-
list. 17.30 Bjarni Olesen: Myndir frá
stangveiði á S-Grænlandi. 18.00
Dagskrá slitið í Norræna húsinu.
20.00 Lokahóf í Naustinu, græn-
lenskt villibráðarkvöld.
Dagskrá í aukasal Norræna
hússins sömu daga: 13.30 Græn-
lenskar kynningarmyndir. 16.00
Bjarni Olesen: Myndir frá stangveiði
á S-Grænlandi. 16.30 Guðmundur
Eyjólfsson sýnir litskyggnur frá
Paradísar- og Klausturdal, S-Græn-
landi. 17.00 Haraldur Örn Ólafsson:
Mynd af gönguför yfir Grænland-
sjökul.
Sunnudagur 17. mars: 13.00
Grænlenskar kynningarmyndir.
14.00 Jón Viðar Sigurðsson, jarð-
fræðingur: Myndasýning frá göngu-
ferð um Nuussuaq-skagann. 15.00
Grænlenskar kynningarmyndir.
16.00 Helena Dejak: Mynd frá Scor-
esbysund. 16.30 Haraldur Örn Ólafs-
son: Mynd af gönguför yfir Græn-
landsjökul. 18.00 Dagskrá slitið í
Norræna húsinu.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
GUÐMUNDUR S. Guðmundsson og Guðmundur L. Þórsson matreiðslumenn ásamt Elisabet
Burmeister, sem búið hefur í Grænlandi í fjölda ára og aðstoðar við undirbúninginn.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
<
Uppeldismálaþing
haldin í Reykjavík
og á Akureyri
KENNARAMENNTUN, símenntun,
uppeldisháskóli er yfirskrift uppeld-
ismálaþinga sem Kennarasamband
Islands, Hið íslenska kennarafélag
og Félag íslenskra leikskólakennara
halda nú í fyrsta sinn sameiginlega.
Uppeldismálaþingin verða haldin kl.
9-17, 23. mars á Scandic Hótel
Loftleiðum í Reykavík og 13. apríl
í Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Þar verður fjallað um kennara-
menntun í nútíð og framtíð á Is-
landi og í Evrópu, framhalds- og
endurmenntun kennara og skóla-
stjóra og rök með og á móti þeim
hugmyndum sem fram hafa komið
um Uppeldisháskóla.
Fyrirlesarar á þinginu í Reykjavík
verða dr. Friedrich Buchberger, pró-
fessor við Padagogische Akademie
í Linz, Austurríki og Sidsel Germet-
en frá Hogskolen í Osló, Noregi.
Dr. Jón Torfi Jónasson, prófessor
við Háskóla íslands, dr. Ólafur
Proppé, prófessor við Kennarahá-
skóla íslands, dr. Rannveig Trausta-
dóttir, lektor við Háskóla íslands,
Jóhanna Einarsdóttir, endurmennt-
unarstjóri við Fósturskóla íslands,
Margrét Björnsdóttir, endurmennt-
unarstjóri við Háskóla íslands, Ólaf-
ur Jóhannsson, endurmenntunar-
stjóri við Kennaraháskóla íslands,
Gyða Jóhannsdóttir, skólastjóri við
Fósturskóla íslands og Halldór Har-
aldsson, skólastjóri Tónlistarskóla
Reykjavíkur.
Á þinginu á Akureyri verða fyrir-
lesarár dr. Andrew Burke, prófessor
við St. Patrick’s Dublin City Uni-
versity, írlandi, og Ellen Wisloff við
Hogskolen í Westfall, Noregi, Guð-
mundur H. Frímannsson, forstöðu-
maður kennaradeildar við Háskól-
ann á Akureyri, dr. Ólafur Proppé,
prófessor við Kennaraháskóla ís-
lands, dr. Rannveig Traustadóttir,
lektor við Háskóla Islands, Hjörtur
Jónsson, lektor við Háskólann á
Akureyri, Ólafur Jóhannsson, end-
urmenntunarstjóri við Kennarahá-
skóla Islands, Gyða Jóhannsdóttir,
skólastjóri við Fósturskóla íslands
og Halldór Haraldsson, skólastjóri
Tónlistarskóla Reykjavíkur.
Á báðum þingunum munu leik-
skólakennarar, grunnskólakennarar
og framhaldsskólakennarar segja
frá því hvernig kennaramenntun
nýtist í starfi.
Öllum áhugamönnum um uppeld-
is- og skólamál er bent á að hafa
samband við skrifstofur kennarafé-
laganna og skrá sig á þingið. Skrán-
ingu fyrir uppeldismálaþingið í
Reykjavík lýkur 18. mars og fyrir
uppeldismálaþingið á Akureyri 29.
mars.
Athugasemdir við
skýringar AT VR
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Vín-
landi:
„Vöruval ÁTVR á vönduðum úr-
valsbjór er nánast ekkert. Viðleitni
Vínlands til að bæta úr því með fram-
boði á t.a.m. Jenlain bjór frá Brass-
erie Duyck, rekst á einhvetja furðu-
lega innanhússreglu ÁTVR sem
kveður á um að Islendingar megi
ekki kaupa minna magn af bjór en
1,5 lítra í senn. Innkaupastjóri
ÁTVR, Svava Bernhöft, ber því við
í Mbl. í gær (13. mars) að reglurnar
séu tilkomnar „af'þörf fyrir mörk
um þessi kaup“. Við erum engu nær
um hver sú „þörf“ er og grunar helst
að um heimatilbúna hentugleikaþörf
sé að ræða, líkt og ef apótekin fengju
einkasölurétt á tannburstum og neit-
uðu að selja fáerri en sex í einu. Inn-
kaupastóri ÁTVR segir: „...ég reikna
heldur ekki með því að bindindis-
menn væru ánægðir yfir því að við
færum að selja eina og eina dós“.
Nú eru bindindismenn auðvitað ólík-
legustu viðskiptavinir ÁTVR og væri
e.t.v. nær að spyija álits þau 90%
þjóðarinnar sem ekki eru bindindis-
menn. Auk þess virðist það heldur
illa ígrundað áfengisvarnarsjónarmið
sem skikkar þann sem ætlar að fá
sér einn bjór til að kaupa 1,5 iítra.
Loks teiur innkaupastjórinn líklegt
að „aðgengi barna og unglinga
rnyndi aukast í bjórinn11 ef hann
væri seldur í smærri sölueiningum.
Að „aðgengi" barna í bjórinn ykist
er ekki beint sannfærandi átylla því
varla fengju börn afgreiðslu í Ríkinu
þó Jenlain bjór væri seldur þar í 750
ml flöskum. Frá sjónarhóli Vínlands
snýst málið fyrst og fremst um það
hvort vandaðir úrvalsbjórar eins og
Jenlain eigi að geta fengist í Ríkinu
eða ekki. I löndum þar sem bjór-
menning á sér eldri hefð en hjá okk-
ur er Jenlain bjór almennt seldur í
annars vegar 750 ml flösku með
kampavínstappa og hinsvegar 4x250
ml kippu. Hvoru tveggja var hafnað
af ÁTVR og hefur Vínland nú staðið
í stappi við einkasöluna út af þéssu
máli í hartnær eitt ár án þess að
nokkur viðhlítandi skýring hafi feng-
ist á 1,5 lítra lágmarksskammti hins
íslenska bjórkaupanda. Ekki svo að
skilja að Vínland telji einn og hálfan
lítra af góðum bjór hættulegt magn.
Hinsvegar finnst okkur að fólk eigi
sjálft að ráða hvaða magn það kaup-
ir en ekki t.d. innkaupastjóri ÁTVR
sem virðist haldinn þeim óheppilega
inisskilningi að miða þjónustu ATVR
við þarfir bindindismanna frekar en
bjórmanna.
Nú hefur Brasserie Duyck fallist
á að selja .Jenlain bjór í 6 x 250 ml
kippum til ÁTVR og væntir Vínland
þess að hann verði fáanlegur í versl-
unum ÁTVR ekki síðar en 1. maí
n.k.“
Þorbjörn Magnússon,
framkvæmdastjóri Vínlands.
Tónleikar
The Prod-
igy annað
kvöld
TÓNLEIKAR hljómsveitar-
innar The Prodigy verða
haldnir í Laugardalshöll ann-
að kvöld, laugardagskvöldið
16. mars. Dagskráin hefst
stundvíslega kl. 20 með
hafnfirsku teknósveitinni
Súrefni síðan tekur við Glide
og þá rokkhljómsveitin Botn-
leðja. Svala Björgvinsdóttir
ásamt breska dj. Femi B. eru
næst á svið og því næst Thor
Inc., Þórhallur Skúlason. Gus
Gus er síðust upphitunar-
hljómsveita en strax á eftir
kemur The Prodigy fram á
svið.
Hljóðkerfið, sem notað er,
er langstærsta kerfi sem sett
hefur verið upp hér á landi
og það sama á við um ljósa-
búnaðinn. Nokkur fjöldi er-
lendra blaðamanna og út-
sendara frá hljómplötufyrir-
tækjum hafa boðað komu
sína. Húsgæsla er í höndum
ÍTR og öryggisgæsla er í
höndum Væringja en auk
þessa verður brunagæsla og
Útideild RKÍ verður með eftir-
lit. SVR verður með ferðir í
helstu hverfi Reykjavíkur og
nágrennis að tónleikum lokn-
um. Algjört áfengisbann verð-
ur á tónleikunum.
Stórtónleikar
í Smáranum
16. mars
STÓRTÓNLEIKAR í
Smáranum í Kópavogi hefjast
laugardaginn 16. mars kl. 17.
Það er knattspyrnudeild
Breiðabliks sem gefur íbúum
á Stór-Reykjavíkursvæðinu
tækifæri til að koma á tón-
leika með íslenskum stjörnum
á borð við Bubba Morthens,
Emilíönu Torrini, KK, Pöpum,
Brasssveitinni Karnivala og
stórsveitinni Maðurinn sem
aldrei sefur. Kynnar verða
íþróttafréttamennirnir Samú-
el Örn Erlingsson og Valtýr
Björn Valtýsson. Sérstakur
heiðursgestur á tónleikunum
verður Sigfús Halldórsson.
• Miðaverð er 1.000 kr.
Styrktaraðilar tónleikanna
eru Ölgerð Egils Skallagríms-
sonar, Visa Island, Sparisjóð-
ur Kópavogs, Samskip hf.,
Prentsmiðja G. Ben/Edda,
Hans Petersen hf. og Domin-
o’s pizzur.
Skiltabrú
stórskemmd
EKIÐ var á skiltabrú á
Vesturlandsvegi og hún stór-
skemmd. Lögreglan í Reykja-
vík biður þann sem það gerði,
eða vitni að óhappinu, að hafa
- samband við slysarannsókna-
deild lögreglunnar.
Skiltabrúin er vestan
brúarinnar á Höfðabakka, við
afrennsli upp á brúna og upp
í Árbæjarhverfi. Bíl með há-
fermi hefur verið ekið undir
brúna, svo hún skemmdist.
Óhappið hefur orðið á tímabil-
inu frá kl. 17 á miðvikudag
og fram á fimmtudagsmorg-
un.