Morgunblaðið - 15.03.1996, Síða 42
42 FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Stuttar og síðar sumarkápur
Einnig stakir blazerjakkar
Léttir sumaijakkar í úrvali.
Gott verð.
Verið velkomin.
Mörkin 6 - sími 588 5518 ^%í.
LÍV' .
(við hliðina á Teppalandi) ^'os
— Bílastœði við búðarvegginn — ^
Opið alla laugardaga frá kl. 10 - 16
Vöxtur - frjósemi - langlífi
Drottningarhunang, ferskt og óunnið er
undursamlegt náttúruefni sem hentar öllum
fjölskyldumeðlimum, ekki síst börnunum.
Drottningarhunang er orkugjafi, sem eykur
orku, viöheldur heilbrigði í sál og likama og
er án efa fullkomnasta fjölvítamín og stein-
efnaforði sem maðurinn hefur aðgang að.
HallgrímurP. Magnússon læknir, heldur
fyrirlestur og svarar spurningu um hreint
óunnið Drottningarhunang, áhrif þess á
líkámann, Candida sveppasýkingu, við
GRÆNA VAGNINN í Borgarkringlunni, 2. hæð,
laugardaginn 16. þ.m. k1.14.00-15.00.
Áhugafólk hjartanlega velkomið.
Útsölustaðir:
Blómaval, Sigtúni, Reykjavik og Akureyri.
Kornmarkaðurinn, Laugavegi 27, Reykjavik.
Heilsuhornið, Akureyri,
Kaupfélag Árnesinga, Selfossi.
Hollt og Gott, Skagaströnd.
Heilsukofinn, Akranesi.
Heilsubúðin, Hafnarfirði,
Studio Dan, Isafirði.
Sendum í póstkröfu um land allt.
Borgarkringlunni, 2 hæð,
símar 85 42 117 & 566 8593.
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í
4. flokki 1992 og
4. flokki 1994
Innlausnardagur 15. mars 1996.
4. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.452.881 kr. 1.290.576 kr. 129.058 kr. 12.906 kr.
4. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.497.121 kr.
1.00Œ.000 kr. 1.099.424 kr.
100.000 kr. 109.942 kr.
10.000 kr. 10.994 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka Islands
Suðurlandsbraut 24.
KSG HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADtlLD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900
I DAG
Carlos Manuel Lopez
(2.370). ___
33. Hxe7+! - Rxe7 34.
Rxd6+ - Kg8 35. Re6+
og svartur gafst upp, því
hann getur ekki tafið
óumflýjanlegt mát nema
með því að gefa báða
riddara sína.
Skáklíf á Kúbu hefur
dalað mjög í kjölfar
hruns Sovétríkjanna, en
það var áður með því
blómlegasta sem þekkt-
ist. Skáksamband Kúbu
hefur varla efni á að
senda fullskipað landslið
á Ólympíumót.
Atskákmót Kópa-
vogs hefst í kvöld kl.
19.30 og lýkur á morgun,
en þá hefst taflmennskan
kl. 14. Tefldar verða 7
umferðir eftir Monrad kerfi
og mótið fer fram í félags-
heimili Taflfélags Kópa-
vogs, Hamraborg 5.
Farsi
/tþettcujagbi, eg þér'U/áérúm húergr.
o/rttóc -fyrir trypgioga^sötumónrujm."
SKAK
IJmsjón Margcir
Pctursson
Hvítur mátar
í sjötta leík
STAÐAN kom upp á móti
á Kúbu í ár í viðureign Julio
Espinosa (2.335), sem
hafði hvítt og átti leik, gegn
Ást er...
stundum allt sem
eftirer.
TM R#g U.S. P«t OH — all nght* rasarved
(c) 1996 Lcs Angeies Timat Syndicata
EN elsku Magnús minn.
Ég er bara að skoða . . .
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Ábending til
sjónvarpsstöðva
KENNARI hafði sam-
band við Velvakanda og
vildi vekja athygli á því
að misbrestur er á því
að auglýstir dagskrárlið-
ir í Sjónvarpinu séu á
réttum tíma. Til dæmis
var Kontrapunktur sl.
sunnudag sýndur 20
mínútum eftir auglýstan
tíma. Einnig vill kennar-
inn vekja athygli á því
að ofbeldismyndir eru
sýndar á Stöð 2 yfir dag-
inn, þegar börn og ung-
lingar geta oft komist í
sjónvarp án umsjónar
foreldra.
Tapað/fundiö
Gulur hanskí
tapaðist í bíóferð
Á sunnudagskvöldið sl.
gekk ég frá Bjamarstíg
að kvikmyndahúsinu
Regnboganum og þaðan
eftir Hverfísgötu niður á
Smiðjustíg. Eg var með
gula leðurhanska. Á
göngunni var ég eitthvað
annarshugar og í bíóinu
var ég ekkert að hugsa
um hvort ég væri með
báða hanskana. Nú hálfri
viku seinna sit ég uppi
með stakan hanska og
sakna hins óumræðilega,
enda ennþá hanskaveður.
Sá sem finnur sólgula
leðurhanskann minn er
vinsamlegast beðinn um
að koma honum á mína
hönd. Síminn minn er 515
3900. Takk fyrir, Eva.
Armband
tapaðist
TVÖFALT perluarm-
band tapaðist 19. janúar
sl. Farið var frá Möðru-
felli í leigubíl að Gerðu-
bergi (sennilega Bæjar-
leiðum), síðan að hjúkr-
unarheimilinu Eir í Graf-
arvogi. Ef einhver hefur
fundið armbandið, vin-
samlegast hringið í síma
567-2899 eða 557-9020.
Myndavél
tapaðist
OLYMPUS myndavél
gleymdist eftir tónleika
eldri borgara í Ráðhúsi
Reykjavíkur sunnudag-
inn 10. mars. Finnandi
vinsamlegast hafi sam-
band við Vigdísi í síma
567-6648 eða 557-3459.
Gæludýr
Kettlingur fæst
gefins
LÍTILL þriggja mánaða
kettlingur (fress) fæst
gefins. Uppl. í síma
557-5918.
HÖGNI IiREKKVÍSI
Yíkveiji skrifar...
A
AÁRSFUNDI Landsbankans í
síðustu viku fengu fundar-
menn harla óvenjuleg bókarmerki
með ársskýrslu bankans. Merkin
voru unnin úr sútuðu fiskroði af
þorski og laxi. Því var slegið fram
á fundinum til gamans að hér væri
um að ræða afurðir af helstu nytja-
fískum Landsbankans! Forráðamenn
bankans hafa þó líklega blendnar
tilfínningar í garð laxins. Bankinn
hefur orðið fyrir þungum búsifjum
vegna gjaldþrota í laxeldi, en menn
þar á bæ eru hins vegar sagðir hafa
mikið dálæti á laxveiðum.
XXX
VINUR Víkverja var fjúkandi
reiður þegar hann hitti hann
á förnum vegi í gær. Hann þurfti
að reka erindi hjá embætti Tollstjór-
ans í Reykjavík. Þangað kom hann
klukkan fimm mínútur í þijú. Dyrn-
ar voru þá læstar og ung stúlka
tjáði manninum að skrifstofan lok-
aði klukkan þrjú. Það var alveg
sama þótt vinurinn benti stúlkunni
á að klukkan væri ekki orðin þrjú,
hún gaf sig ekki og neitaði að
hleypa honum inn. Þegar vinur Vík-
veija kom út í bílinn sinn voru þijú
fréttir að hefjast í útvarpinu.
Svona framkoma hjá þjónustu-
stofnun er auðvitað fyrir neðan all-
ar hellur. Viðskiptavinir banka hafa
flestir upplifað það að koma einni
til tveimur mínútum eftir lokun en
samt verið hleypt inn.
- Hitt er svo líka spurning hvort
þjónustustofnun eins og Tollstjóra-
embættið geti leyft sér að loka al-
mennum afgreiðslum klukkan þijú
á daginn. Sama er að segja um
aðrar stofnanir eins og embætti
sýslumanna. Víst er að þettatíðkað-
ist ekki ef einhver samkeppni ríkti
á þessum markaði.
xxx
VlKVERJI flaug með Flugleið-
um frá London til Keflavíkur
á mánudaginn og varð eftirminni-
lega var við að kokkarnir sem elda
ofan í farþegana eru snjallir. Boðið
var upp á sérlega ljúffenga máltíð;
einhversTionar laxahræru í forrétt,
kjúkling með steiktum blaðlauk og
fleiru góðgæti í aðalrétt og með
fylgdi mjög bragðgóð terta í eftir-
rétt. Bandarísk hjón sem voru
sessunautar Víkveija voru á sama
máli og rómuðu matseldina. Flug-
freyja upplýsti að allur matur í vél-
unum sé nú eldaður heima á Fróni,
a.m.k. í Evrópuflugi, en kostur fyr-
ir heimferð ekki keyptur erlendis
eins og tíðkaðist - og Víkveiji get-
ur upplýst að stór munur er á gæð-
um þess sem boðið er upp á á heim-
leiðinni síðan sú breyting varð.
xxx
*
URSLITAKEPPNI íslandsmóts-
ins í handknattleik er nú í
algleymingi og lítið orðið um óvænt
úrslit ennþá. Litlu munaði þó að
deildar- og bikarmeistarar KA töp-
uðu fyrir Selfyssingum í fyrsta leik
liðanna á Akureyri á dögunum. Eft-
ir að hafa séð síðustu mínútu leiks-
ins í sjónvarpi getur Víkverji ekki
annað en furðað sig á því hvernig
dómararnir færðu KA-mönnum
jafntefli á silfurfati og þar með fram-
lengingu, en í henni náðu heima-
menn að knýja fram sigur. Skammt
var til leiksloka þegar dæmdur var
ruðningur á einn Selfyssinginn -
sem var fráleitur dómur að sjá,
KA-menn brunuðu fram og fengu
dæmt vítakast þegar aðeins ein sek-
únda var eftir, án þess þó að varnar-
maður gestaliðsins kæmi nálægt
leikmanni KA sem komst í skot-
færi! Víst er að stemmningin er
ætíð góð í KA-heimilinu, og talað
er um að áhorfendur þar hafí oft
áhrif á dómarana, en er þetta ekki
full langt gengið?