Morgunblaðið - 15.03.1996, Síða 43

Morgunblaðið - 15.03.1996, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1996 43 I l I I < < < i I I I I DAG BRIDS Umsjón Guðmundnr l’áll Arnarson REESE er látinn. Hann var umdeildui' maður. Hitt er óumdeilt að bestu ritverk Reese hafa mótað brids- heiminn í hálfa öld og sem spilari var hann í fremstu röð. Það sem fellir skugga á minningu Reese er hins vegar Buenos Aires-málið svonefnda, en á HM í Arg- entínu 1965 voru þeii'Reese og Boris Shapiro vændir um svindl og í framhaldi af þvi úthýst úr alþjóðamótum. Um þetta mál hafa verið ritaðar tvær bækur, önnur til að sýna fram á sekt þeirra (eftir Alan Truscott), hin er varnarræða, rituð af Reese sjálfum. Breska bridssambandið varði þá félaga, en Alþjóðasamband- ið var sannfært um sekt þeirra og tók aldrei í mál að leyfa Reese að keppa á þess vegum. Shapiro sóttist ekki eftir því ög sneri' sér að klúbbrekstri. Sem rithöfundur var Re- ese orðfár og beinskeyttur. Hann var á móti óþarfa blaðri og kom iðulega beint að kjarna málsins. Skap- gerð hans var jafnframt þannig háttað, hann þótti þurr á manninn og óvæg- inn. Reese var eitt sinn boð- ið til íslands. í bréfi sem forystumenn bridshreyfing- arinnar hérlendis rituðu Reese, sagði eitthvað á þá leið að þeim þætti heiður í því fólginn að fá hann til landsins til að keppa við íslenska spilara. Ekki væri þó svigrúm til að greiða þóknun fyrir heimsókn hans, en auðvitað yrði reynt að gera dvöl hans á landinu sem ánægjulegasta. Svar Reese var stutt: „Ég hef brids að atvinnu. Ef mig langar að lyfta mér upp, þá spila ég golf.“ Hann kom aldrei. Bretar unnu Bermuda- skálina 1955 með Reese innanborðs. Spilið að neðan er þaðan komið, úr leik Breta og Bandaríkjamanna. Til morguns geta lesendur íhugað bestu leiðina í sex laufum suðurs, en Reese vann spilið á öruggan hátt. Norður ♦ ÁG93 V KG8743 ♦ Á3 ♦ 4 Suður ♦ D542 V ÁIO ♦ - ♦ ÁKG10976 Vestur hafði hindrað kröftuglega í tígli og kom svo út með tígulníu, sem er nokkuð grunsamlegt spil. Arnað heilla Q pT ÁRA afmæli. í dag, Otlföstudaginn 15. mars, er áttatíu og fimm ára Hallur Þorsteinsson, vistmaður, hjúkrunar- heimilinu Garðvangi, Garði, áður til heimilis á Ásgötu 16, Raufarhöfn. Hann tekur á mótr gestum á heimili dóttur sinnar og tengdasonar á Garðbraut 83, Garði frá kl. 17-21. /?r|ÁRA afmæli. í dag, O vlföstudaginn 15. mars, er sextug Theodóra Sveinsdóttir, Hæðargarði 10, Reykjavik. Hún og maður hennar Sigurður Sveinsson Hálfdanarson eru að heiman. n /\ÁRA afmæli. Á I vfmorgun, laugardag- inn 16. mars, verður sjötug Magnþóra Þórarinsdótt- ir, Kirkjuvegi 1, Keflavík. Hún tekur ásamt börnum sínum á móti frændfólki og vinum í Golfskálanum í Leiru frá kl. 16-19 á af- mælisdaginn. Q/AÁRA afmæli. Mánu- ÖVrdaginn 18. mars nk. verður áttræður Ólafur Gíslason, fyrrverandi fulltrúi Pósts og síma, Skagfirðingabraut 33, Sauðárkróki. Kona hans er Guðrún Svanbergsdótt- ir. Þau hjónin hafa opið hús og taka á móti gestum nk. sunnudag eftir kl. 16 í veit- ingasalnum Kaffi Krók- Krókurinn. Þau eiga einn- ig 50 ára brúðkaupsafmæli. /?/\ÁRA afmæli. í dag, Ov/föstudaginn 15. mars, er sextug Anna Gísladóttir, stöðvarsljóri Pósts og síma, Búðardal. Hún dvelur erlendis á af- mælisdaginn ásamt eigin- manni sínum Flosa G. Valdimarssyni. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættar- mót o.fl. lesendum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningarnar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir helgar. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329 sent á netfangið: gusta@mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Dagbók Morguublaðsins, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Pennavinir SAUTJÁN ára Ghanapiltur með áhuga á íþróttum, tón- list og safnar peningaseðl- um: Alexander Kwapong, P.O. Box 1726, Koforidua, E/R, Gliana. ÁTJÁN ára Ghanapiltur með áhuga á bókmenntum og tónlist: Armah Atiemo, c/o Atiemo Addo, P.O. Box 637, Koforidua, E/R, Ghana. SEXTÁN ára Ghanapiltur með áhuga á fótbolta, tón- list og póstkortum: Agyei Ouah Clifford, P.O. Box 1534, Koporidua, E/R, Ghana. STJÖRNUSPÁ cftir Frances Drakc FISKAR Afmælisbarn dagsins: Þú átt auðVelt með að ávinna þér traust og afla góðra vina. Hrútur (21. mars- 19. apríl) Þú þarft að gefa þér tíma fyrir einkamálin í dag, og taka til hendi á heimilinu. Þegar kvöldar bíður þín vina- fundur. Naut (20. apríl - 20. maí) Þú hefur lagt hart að þér við vinnuna, og getur nú farið að' undirbúa verðskuldað sumarleyfi. Barn leitar ráða hjá þér. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Þér hefur ekki samið vel við náinn vin að undanförnu, og nú ættir að kynna þér hvað veldur, svo unnt verði að leysa málið. Krabbi (21. júní — 22. júlí) Þótt þú hafir margt á þinni könnu, ert þú yel fær um að leysa þau verkefni sem þér verða . faiin. Afkoman fer batnandi. Ljón (23. júlí — 22. ágúst) Gerðu þér ekki of háar hug- myndir um tryggð vinar þeg- ar á reynir. Vinurinn getur valdið vonbrigðum. Slakaðu á með ástvini. Meyja (23. ágúst - 22. september) <§£ Þú hefur vanrækt ástvin að undanförnu, og ættir að bæta þar úr í dag með góðri gjöf. Ný sambönd í vinnunni reyn- ast vel. Vog (23. sept. - 22. október) Þú færð spennandi verkefni í vinnunni, sem gaman verður að takast á við. Þetta er tæki- færið, sem þú hefur beðið eftir. Nýttu þér það. Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) ®)(j0 Þú ert með einhveijar efa- semdir varðandi tilboð um viðskipti, og ættir að kanna málið rækilega áður en þú tekur ákvörðun. Bogmaóur (22. nóv. - 21. desember) Fagnaðu ekki of fljótt, ef óvæntur gestur lætur sjá sig. Tilgangur hans er allt annað en góður, eins og þú kemst að raun um. Steingeit (22. des. - 19.janúar) Þeim, sem hafa beðið eftir kauphækkun eða bættri stöðu í vinnunni, verður að ósk sinni í dag. Ástvinir fagiia saman í kvöld. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) t&i Vinur er óvenju dulur í dag, en þú skalt ekki laka það til þín. Ástæðan er þér óviðkom- andi, og samband ykkar er áfram gott. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Taktu ekki á þig ijárhagsleg- ar skuldbindingar án þess að leita ráða lijá þeim, sem til þekkja. Ástvinur er að und- irbúa samkvæmi. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. SkaMþjóiiusíaii sf. - ltcrgur (.uðnason hdl. - Lögskipti Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík. Sími 568 2828 - Fax 568 2808. V)S"A VB„S SJAÐU Laugavegi 40, sími 561-0075. '% Andlit a- einsog listaveik... ... það verðskuldar fallegaumgjörð! Komdu og S.IÁÐU!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.