Morgunblaðið - 20.03.1996, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Hjartans þakkir sendi ég œttingjum og vinum,
sem glöddu mig meÖ heimsóknum, kveðjum
og gjöfum á áttrœöisafmœli mínu.
Kœr kveðja.
Sigrún Inga Magnúsdóttir,
Blúhömrum 2.
A MJOG HAGSTÆÐUVERÐI
Við kerfin má tengja fleiri skynjara, símhringingabúnað, reykskynjara og fleira.
KERFIN ERU ÞRÁÐLAUS
ÞJÓFAVARNARKERFI
fyrir heimili,fyrirtæki og stofnanir
og því mjög ódýr og auðveld í uppsetningu. Veitum tæknilega ráðgjöf.
Einar
Farestveít & Co. hf.
Borgartúni 28 S 562 2901 og 562 2900
Aðalfundur Olíufélagsins hf.
verður haldinn fimmtudaginn 21. mars 1996
á Hótel Loftleiðum, þingsal 1-3,
og hefst fundurinn kl. 14.00
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv.12. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins
munu liggja frammi á aðalskrifstofu félagsins,
hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent §
á aðalskrifstofu félagsins Suðurlandsbraut 18, §
3. hæð, frá og með 19. mars, g
fram að hádegi fundardags. |
Stjóm Olíufélagsins hf.
Olíufélagiðhf
ÍDAG
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Hvítur leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp á hrað-
skákmóti stofnana og fyr-
irtækja um daginn. Björg-
vin Jónsson (2.390), Is-
landsbanka, var með hvítt
og átti leik, en Margeir
Pétursson (2.585), Bún-
aðarbanka Islands, hafði
svart.
19. Hxg7!! - Kxg7 20.
Hgl+ - Kh7 21. Dd3+ -
Kh8 (Eða 21. - f5 22.
exf6+ framhjáhlaup —
Kh8 23. Dg6 og mátar)
22. De3 - Kh7 23.
De4+ —Kh8 24. Df4 -
Kh7 25. Be3! og svart-
ur gafst upp. Lagleg
tilþrif þetta í fimm mín-
útna hraðskák.
Það er nú heimilt að
nota einn lánsmann í
hveija sveit í keppninni
og þannig stóð á með
okkur báða sem tefld-
um þessa skák. Bún-
aðarbankinn sigraði í
aðalkeppninni, en varð að
sætta sig við annað sætið
í hraðskákinni á eftir sveit
VISA ísland. Sigursveit
VISA þar skipuðu þeir Jó-
hann Hjartarson, Þröstur
Þórhallsson, Agúst Sindri
Karlsson og Sæbjörn Guð-
fínnsson.
Með morgunkaffinu
ÞARNA sérðu. Ég var
ekki sú eina sem sá að þú
settir ekkert í safnað-
arbaukinn.
okkur heim og lúskrum
á nokkrum hundum,
Grettir," segir Haraldur.
„Góð hugmynd," hugsar
Grettir. Hann nær í
ijómaköku og undirbýr
árás ...
ÞETTA er frá manninum
þínum ... til mín.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Kær kveðja til
Hemma Gunn
ÉG vil þakka Hermanni
Gunnarssyni fyrir alla
hans góðu þætti sem
hann hefur staðið að í
gegnum tíðina. Þó er eitt
sem mér finnst athuga-
vert við þátt hans Happ
í hendi en það er að að-
stoðarstúlka hans vekur
of mikla athygli. Það
liggur við að hún skyggi
á Hermann í þættinum.
Þóranna Jónsdóttir.
Gæludýr
Páfagaukur í
óskilum
MJÖG ljósblár lítill páfa-
gaukur, næstum því hvít-
ur, settist á svalirnar í
húsi á Kleppsvegi á
sunnudagskvöldið var.
Ef einhver hefur týnt
páfagauk sem svarar til
þessarar lýsingar vin-
samlegast hringið í síma
568-6702.
Mjallhvít týndist
HVÍTUR páfagaukur
týndist frá Aflagranda
23 sunnudaginn var. Ef
einhver hefur orðið var
við Mjallhvíti eða getur
gefíð einhvetjar upplýs-
ingar vinsamlegast
hringið í síma 551-6479.
Páfagaukur
týndist
GULUR og grænn páfa-
gaukur flaug út um
glugga í Gljúfraseli á
föstudaginn var um
fimmleytið. Ef einhver
hefur fundið páfagauk-
inn vinsamlegast hringið
í síma 567-0443.
Tapað/fundið
Úr tapaðist
FÍNLEGT kvenmannsúr,
silfurlitt og gyllt að lit,
með öryggiskeðju tapað-
ist að morgni 15. mars
sl. í Hraunsási eða í leið
110. Finnandi vinsam-
legast hafí samband í
síma 557-9391.
Farsi
Víkverji skrifar...
SÚ ákvörðun lögreglunnar í
Reykjavík að láta til skarar
skríða gegn búðarhnupli barna og
unglinga er skynsamleg fyrirbyggj-
andi ráðstöfun. Athygli vakti í frétt
hér í blaðinu í síðustu viku að þriðj-
ungur barna, sem tekin eru við
búðarhnupl, er 14 ára eða yngri og
þar af leiðandi undir sakhæfisaldri.
Auðvitað er það besta lexían fyrir
þessi böm að vera svo heppin að
vera gómuð við þá iðju að stela úr
búðum. Sé tekið á slíku af ákveðni,
jafnvel hörku, þegar brot uppgötv-
ast, eru allgóðar líkur á því, að
ungmennin reyni ekki fyrir sér á
sama hátt á ný. Alla vega eru lík-
urnar meiri en ef brotum af þessu
tagi er mætt af linkind og áhuga-
leysi. Því fannst Víkveija það
ánægjulegt, er hann las þessi orð
Ómars Smára Ármannssonar, að-
stoðaryfirlögregluþjóns í Morgun-
blaðinu í síðustu viku: „Lögreglan
er að kanna þessa dagana hvernig
hægt er að taka á málum þessa
hóps (þ.e. búðarhnuplara undir sak-
hæfisaldri - innskot Víkverja) af
meiri festu og í samráði barna-
vemdaryfirvöld og foreldra."
xxx
AÐ gerist ekki oft nú til dags
að Víkveiji hafi tóm til þess
að stunda kvikmyndahús borgar-
innar, sem hann gerði óspart á áram
áður: Því er það, að þegar Víkveiji
dagsins bregður sér í bíó nú, þá
reynir hann að vanda val sitt á bíó-
myndinni. Nú um daginn brá Vík-
veiji sér í Sambíó í Mjódd og sá
tryllinn Heat með snillingunum A1
Pacino cg Robert DeNiro og varð
hann síður en svo fyrir vonbrigðum
með val sitt. Yfir öðru vill Víkveiji
þó kvarta, sem tengist þessari bíó-
ferð hans og reyndar öðrum á und-
anförnum misserum, en það er hinn
yfirgengilegi hávaði, sem stjórnend-
ur útsendingar láta dynja á hljóð-
himnum kvikmyndahússgestanna.
Það er eins og gengið sé út frá því
sem gefnu að allir gestir húsanna
séu meira og minna, aðallega meira,
heyrnarskertir. Þegar auglýsingar
hefjast, áður en eiginleg kvik-
myndasýning hefst, skellur hávað-
inn af slíkum ofurkrafti á eyrum,
að það er eins og allt ætli um koll
að keyra. Síðan eru sýndar kynn-
ingar úr nokkram kvikmyndum sem
húsin ætla að taka til sýninga á
næstunni og hljóðstyrkurinn er hinn
sami.
xxx
LOKS þegar sýning myndarinn-
ar hefst, þá hafa eyrun vanist
hávaðanum að nokkru leyti, þannig
að gestir eru færir um að njóta
myndarinnar að vissu marki. En
að sýningu lokinni dunar hávaðinn
enn inni í höfði gesta og þeir þurfa
að jafna sig eftir bíóförina. Er þetta
virkilega nauðsynlegt?!