Morgunblaðið - 21.03.1996, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.03.1996, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Svavar Gestsson um vinnulöggjöf Friði sagt í sundur FRUMVARP félagsmálaráðherra um stéttarfélög og vinnudeilur hefur sagt í s.undur friðinn á Alþingi að mati Svavars Gestssonar, þingmanns Alþýðubandalagsins. Svavar sagðist óttast að ríkisstjórnin hefði einnig sagt í sundur friðinn í landinu með því að leggja frumvarpið fram. Svavar sagði að frumvarpið mark- aði kaflaskil í samskiptum ríkisvalds- ins og verkalýðshreyfingarinnar. Innri málum félagssamtaka væri skipað með lögum sem væru í and- stöðu við anda stjómarskrárinnar. Páll Pétursson félagsmálaráðherra sagði að þvert á móti stefndi frum- varpið í átt til aukins lýðræðis og ekki væri verið að umtuma vinnu- umhverfí verkalýðssamtaka. Þá væri alrangt, sem haldið hefði verið fram, að verkfallsréttur væri skertur. Margft jákvætt Þessi orðaskipti voru í umræðu um störf þingsins í gær. Þeir Svavar og Steingrímur J. Sigfússon, Alþýðu- bandalagi, gagnrýndu frumvarpið einnig harðlega á þriðjudag, líktu því við sprengju og sögðu að stefndi í víðtækari átök við verkalýðshreyf- inguna en verið hefði um árabil ef breytingamar yrðu þvingaðar fram. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að þingmenn ættu að varast að tala ógætilega um stríðsyfirlýsingar og styijaldar- ástand í tengslum við frumvörp um vinnudeilur og stéttarfélög og rétt- indi og skyldur opinberra starfs- manna, enda hefði komið fram í umræðum um síðara málið á þriðju- dagskvöld að stjórnarandstæðingar hefðu fundið ýmislegt jákvætt við það. Eins væri um frumvarpið um stéttarfélög og vinnudeilur en þar væri verið að afnema þrælalögin ógurlegu, sem svo vom kölluð. _____________FRÉTTIR ____________________. I Ríkisstjórnin samþykkir breytingar á fiskveiðislj órnunarkerfi fyrir krókabáta í §] Samkomulag um krókabáta1 lagt fram á þingi fyrir helgi * SAMKOMULAG sjávarútvegs- ráðuneytisins og Landssambands smábátaeigenda um breytingar á fískveiðistjómunarkerfi fyrir krókabáta var lagt fyrir þingflokka ríkisstjómarinnar í gær eftir að ríkisstjómin hafði samþykkt málið á þriðjudag. Þingflokkarnir féllust á samkomulagið og er stefnt að því að leggja það fram á þinginu fyrir helgi, að sögn Þorsteins Páls- sonar sjávarútvegsráðherra. Hann segist telja það mjög mikilvægt atriði að samkomulag hafi tekist við viðræðunefnd Landssambands smábátaeigenda. Það hafí ekki gerst fyrr að slíkt samkomulag hafi tekist við smá- bátaeigendur um málefni sem lúta að veiðum krókabáta. „Þetta markar ákveðin tímamót og á líka að auðvelda mönnum að takast á við viðfangsefni í framtíð- inni þegar búið er að leggja grunn Risnukostnaður einstakra ráðuneyta 1992 Upphæðir í þús. kr. á verðlagi hvers árs. Utanríkisráðuneyti 12.635 7.243 16.899 21.730 58.507 Menntamálaráðuneyti 9.006 10.386 8.442 7.935 35.769 Forsætisráðuneyti 4.000 8.031 3.930 8.666 24.627 Heilbrigðis- og tiyggingar. 3.683 6.745 6.864 6.280 23.572 Fjármálaráðuneyti 5.095 4.615 3.374 4.429 17.513 Samgönguráðuneyti 4.834 1.896 5.697 4.353 16.780 Sjávarútvegsráðuneyti 4.303 3.809 3.032 4.840 15.984 Landbúnaðarráðuneyti 2.962 3.736 4.327 4.628 15.653 Dóms- og kirkjumálar. 2.282 2.712 4.111 4.467 13.572 Viðskiptaráðuneyti 3.568 2.564 3.072 2.326 11.530 Félagsmálaráðuneyti 1.129 1.604 4.747 3.073 10.553 Iðnaðarráðuneyti 2.218 2.407 1.623 2.460 8.708 Umhverfisráðuneyti 950 1.765 2.460 2.583 7.758 Hagstofa íslands 466 289 1.080 401 2.236 Samtals 57.131 57.802 69.658 78.171 262.762 að samskiptum af þessu tagi,“ seg- ir hann. „Í niðurstöðunni felst ákveðin málamiðlun. Hún felur í sér rýmri aflaheimildir með því að aflamark er núna hlutfallstengt við heildarafla. Veiðireglurnar eru gerðar einfaldari og skýrari í fram- kvæmd. Það eru síðan settar við- bótartakmarkanir varðandi af- kastamestu bátana að því er róðr- ardagafjölda snertir.“ Þorsteinn segir að kerfið eigi Risna ráðu- neyta 7 8 millj. 1995 RISNUKOSTNAÐUR ráðuneyta var samtals 78,2 miHjónir króna á síðasta ári og hækkaði um 8,5 millj- ónir frá fyrra ári. Mestur risnukostnaður var hjá utanríkisráðuneyti, 21,7 milljónir en var 16,9 milljónir árið 1994. Lægstur var kostnaðurinn hjá Hagstofu íslands, 401 þúsund krónur. Þetta kemur fram í svari forsæt- isráðherra á Alþingi við fyrirspum Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur þingmanns Þjóðvaka. Samkvæmt svarinu var risnukostnaður ráðu- neytanna 57,1 milljón árið 1992, 57,8 miHjónir árið 1993, 69,7 millj- ónir árið 1994 og 78,2 milljónir á síðasta ári. Þessar tölur eru á verð- lagi hvers árs. ekki að geta sprangið eftir breyt- ingamar því gert sé ráð fyrir því að dagafjöldinn ráðist af veiðinni. Fari veiðin yfír ákveðin mörk fækki dögunum. Einnig sé róðrardaga- kerfinu skipt upp í tvo hluta. Þeir - sem séu á handfærum séu reiknað- ir sérstaklega, þannig að það bitni ekki á þeim ef línubátar veiði meira. Hann segist vera bjartsýnn á að ná breýtingunum í gegn á þing- inu: „Nú getur maður ekki sagt neitt um það fyrirfram, en ég vænti þess að þegar að fyrir liggur samkomulag milli viðræðunefndar Landssambands smábátaeigenda og sjávarútvegsráðuneytisins eigi að geta tekist um það sæmileg sátt í þinginu." Tímabundið úreldingarátak Það er hluti af þessum tillögum að gert er ráð fyrir að borguð verði allt að 80% í úreldingarstyrki til þeirra sem vilja úrelda smábáta. Hlutfallið er 60% fyrir þá smábáta J sem era með þorskaflahámark. „Þetta er í samræmi við að við teljum nauðsynlegt að bátunum fækkiý' segir Þorsteinn. „Það verður að gefa mönnum| kost á að fara út úr þessum veiðum j með skaplegum hætti þannig að meira svigrúm skapist fyrir þá sem eftir eru. Það er mikilvæg forsenda - fyrir því að það svigrúm verði fyr- ir hendi að umtalsverð fækkun verði í flotanum.“ Hann segir að þetta sé sérstakt tímabundið átak sem gildi fram á haust. Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, um frumvarp um stéttarfélög og vinnudeilur Málið er allt komið í uppnám Það verður bitið á móti, segir formaður VMSÍ Morgunblaðið/Kristinn FORYSTA Alþýðusambandsins bregst hart við frumvarpi félagsmálaráðherra um breytingar á vinnulöggjöfinni. Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, Ari Skúlason, framkvæmdastjóri ASI, Ragna Bergmann formaður Framsóknar og Björn Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, við upphaf miðstjórnarfundar ASÍ í gær. BENEDIKT Davíðsson, forseti ASÍ, og Björn Grétar Sveinsson, formaður Verka- mannasambandsins, gagnrýna harðlega málatilbúnað félagsmálaráðherra og efni frumvarps ráðherrans um breytingar á vinnulöggjöfinni. Benedikt segir að ráðherra hafi slitið viðræðum sem voru í gangi milli aðila vinnumarkaðarins um samskiptareglur á vinnumarkaði. „Þegar þessi vinna var sett í gang var það meginatriðið að reynt yrði að koma saman einhveiju regluverki sem leiddi til samkomulags á milli aðila um framvindu mála við lausn kjaradeilna. Við í Alþýðusambandinu töldum að miklar lík- ur væru á að það mætti koma á einhverju samkomulagi og ekki væri útiiokað að eitt- hvað af því sem við næðum samkomulagi um yrði fest í lög. Nú þegar búið er að kippa okkur út úr málinu og setja fram frumvarp á allt öðrum grunni er málið allt komið i uppnám,“ segir Benedikt. Óskiljanleg árás samvinnumanns Björn Grétar segir að hér sé um stílbrot á áratugalangri hefð um samkomulag milli aðila að ræða. Hann segir að félagsmála- ráðherra hafi kosið að keyra málið fram með offorsi. Efni frumvarpsins gangi ein- göngu út á að gera launþegum erfiðara fyrir að sækja rétt sinn og það bindi hend- ur verkalýðsfélaga. Björn Grétar gagnrýnir alla þætti frum- varpsins og segir það óskiljanlega árás samvinnumanns á verkalýðshreyfinguna. „Það er alveg fullvíst að það verður bitið þarna á móti,“ segir Björn Grétar. Myndi tefja verulega næstu samningsgerð Aðspurður hver yrðu viðbrögð verkalýðs- hreyfingarinnar ef frumvarpið yrði óbreytt áð lögum á vorþinginu, sagði Benedikt: „Áhrifin verða fyrst og fremst þegar kemur að næstu samningalotu. Ef þetta fer fram eins og það er í dag er mjög líklegt að verulegur hluti vinnunnar við kjarasamn- ingsgerðina fari í að beija í brestina og ná einhveiju til baka. Það er líklegt að þetta tefji verulega fyrir næstu samningsgerð,“ segir hann. Frumvarp félagsmálaráðherra var rætt á löngum fundi miðstjórnar ASI í gær. I ályktun sem miðstjórnin sendi frá sér er fordæmt að stjórnvöld skuli einhliða hafa lagt fram frumvarp til breytinga á vinnu- löggjöfinni. „Fyrirliggjandi frumvarp er árás á verkalýðshreyfinguna," segir í ályktuninni. Hefur verið ákveðið að kalla saman for- menn allra aðildarfélaga sambandsins til fundar á föstudag til að fjalla um frekari viðbrögð við frumvarpinu. í ályktun miðstjórnar ASÍ er ríkisstjórn- in sökuð um að hafa rofið grið á verkalýðs- hreyfingunni þar sem frumvarpið hafi ver- ið lagt fram á sama tíma og aðilar vinnu- markaðarins voru í samningaviðræðum um samskiptamál sín á milli. „I þeina viðræðum lágu hugmyndir og tillögur ASÍ að nauð- synlegum breytingum fyrir. Með kynningu á væntanlegu lagafrumvarpi sleit félags- málaráðherra þeim viðræðum. Með framlagningu frumvarpsins hafa stjórnvöld gefið yfirlýsingu um að þau óski ekki lengur eftir hefðbundnu þríhliða samstarfi um þróun vinnulöggjafarinnar. Ríkisstjórnin hefur tekið undir málflutning atvinnurekenda um breytingar á sam- skiptareglum á vinnumarkaði í stað þess að hlusta á sjónarmið beggja aðila,“ segir í ályktuninni. Eykur ekki réttindi launafólks Miðstjórn ASÍ staðhæfir að flestar hug- myndir í frumvarpinu séu til þess fallnar að rýra sjálfstæði stéttarfélaga. Tillögurnar minnki völd einstaklinga í verkalýðsfélög- unum, þvert á það sem tillöguhöfundar þykist stefna að. „Ekkert í frumvarpinu er til þess fallið að auka á nokkurn hátt réttindi launafólks eða bæta réttarstöðu þess, fyrir þá hliðina er einungis um hertar reglur og skerðingar að ræða. Að sama skapi er ekkert í frum- varpinu sem hefur í för með sér þrenging- ar á heimildum atvinnureknda, þrátt fyrir að því sé haldið fram að breytingarnar eigi að gilda jafnt fyrir alla. í frumvarpinu er heldur ekkert sem líklegt er til þess að liðka til eða flýta fyrir vinnu við gerð kjara- samninga,“ segir í ályktun miðstjórnar ASI.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.