Morgunblaðið - 21.03.1996, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Grásleppunetin
gerð klár
GYLFI Gunnarsson í Grímsey
var ásamt félögum sínum að
gera grásleppunetin klár á
þriðjudag, en vertíðin hófst í
gær. Fjórir bátar í Grímsey eru
á grásleppu, þrír lögðu netin
strax á fyrsta degi og verður
vitjað um þau í dag. Ekki var
Gylfi sannfærður um að mikið
væri um grásleppu og þótti grát-
legt að þurfa að hætta á þorska-
netum, en góður afli hefur verið
í net við Grímsey undanfarið.
Kvótinn er hins vegar búinn á
bátnum og því ekki um annað
að ræða en skipta yfir.
Margt jákvætt í rekstri AKVA USA þrátt fyrir þungan rekstur
Salan að aukast og dreif-
ingaraðilum að fjölga
Vatnið selt á hæsta verði
REKSTUR vatnsútflutningsfyrir-
tækisins AKVA USA, dótturfyrir-
tækis KEA, hefur verið þungur
og á síðasta ári var enn mikið tap
á rekstrinufn þótt það hafi minnk-
að frá árinu áður. Á síðasta ári
var rætt um innan KEA að árið
1995 yrði úrslitaár fyrir framtíð
AKVA. Magnús Gauti Gautason,
kaupfélagsstjóri KEA, segir að
þrátt fyrir söluaukningu sé enn
taprekstur en hann segir að fyrir-
tækið verði rekið áfram á þessu
ári, þótt líklega verði ekki sett
aukið hlutafé í reksturinn af hálfu
KEA.
Þórarinn E. Sveinsson, mjólk-
ursamlagsstjóri, segir að margt
jákvætt sé að gerast í rekstri
AKVA USA, salan að aukast,
dreifíngaraðilum að fjölga og fjár-
festing hvers árs, sem er gjald-
færð og gerð upp sem tap, að
minnka. „Þetta gengur hins vegar
hægar en áætlanir gerðu ráð fyrir
og því koma peningar hægar inn
í fyrirtækið. Þar af leiðandi er
spurning um hvort við höfum út-
hald til að halda áfram,“ segir
Þórarinn.
Búið að flylja út
5-6 milljónir lítra
Fyrirtækið hóf að selja vatn á
plastflöskum árið 1993 og það ár
voru seldir tæplega 50.000 kassar
og þá eingöngu í Boston. Árið eft-
ir jókst salan um 100% en þá voru
seldir rúmlega 100.000 kassar í
gegnum 19 dreifíngaraðila. Á síð-
asta ári var salan um 140.000
kassar í gegnum 29 dreifíngarað-
ila. Frá árinu 1993 er því að búið
að flytja út á milli 5 og 6 milljónir
lítra. Markaðssvæðið hefur einnig
stækkað gífurlega á þessum tíma.
Þórarinn segir að næsta verk
sé að koma vörunni vel fyrir í
búðunum á markaðssvæðinu. Sá
slagur sé ekkert frábrugðinn þeim
slag sem tíðkast í verslunum hér-
lendis, nema að hann sé kannski
heldur harðari í Bandaríkjunum.
Morgunblaðið/Kristján
ÞÓRARINN E. Sveinsson mjólkursamlagsstjóri og Logi Ottars-
son starfsmaður AKVA við framleiðslulínu fyrirtækisins í kjall-
ara Mjólkursamlags KEA á Akureyri.
„Við erum að selja vatnið á
hæsta verði og á sama verði og
stóru frönsku fyrirtækin, sem hafa
tugmilljónir dollara í markaðssetn-
ingu á sínu vatni.“
Árið 1994 keyptu bandarískir
aðilar 30% í AKVA USA fyrir 3
milljónir dollara og segir Þórarinn
að þeir aðilar hafi því metið fyrir-
tækið á 10-12 milljónir dollara.
Hann segir að nú vanti hins vegar
meira fjármagn inn í reksturinn,
þar sem söluaukningin sé minni
en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Námskeið
um líknar-
meðferð,
samskipti
og siðferði
NÁMSKEIÐ um samskipti á vegum
Endurmenntunarnefndar Háskólans
á Akureyri í samvinnu við Heima-
hlynningu á Akureyri verður haldið
dagana 29. og 30. mars næstkom-
andi.
Þar munu heimspekingar ræða
m.a. um hvað sé líknardráp og hvort
beint líknardráp sé alltaf siðferðilega
rangt. Rætt verður um dauðann út
frá heimspekilegu sjónarmiði í
tengslum við hjartadauða og heila-
dauða. Prestur fjallar um meginhlut-
verk prestsins gagnvart sjúklingum
og aðstandendum og hvort óskað sé
eftir stuðningi prests of seint. Hjúkr-
unarfræðingar halda fyrirlestra um
samskipti hjúkrunarfræðinga við
mikið veika og deyjandi krabba-
meinssjúklinga og fjölskyldur þeirra.
Þar verður m.a. stuðst við niðurstöð-
ur úr rannsókn á reynslu íslenskra
hjúkrunarfræðinga af slíkum sam-
skiptum og varpað Ijósi á ýmsa
áhrifaþætti. Einnig verður fjallað um
samanburð á hjúkrun þessara sjúkl-
inga á sjúkrahúsi og í heimahúsi.
Elísabet Hjörleifsdóttir, annar
umsjónarmaður námskeiðsins og
starfsmaður Heimahlynningar á Ak-
ureyri, fagnar samvinnu við endur-
menntunardeild Háskólans á Akur-
eyri og telur það kjörið tækifæri fyr-
ir hjúkrunarfræðinga sem áhuga
hafa á líknarhjúkrun. Nefndi hún
sem dæmi hjúkrunarfræðinga sem
stuðla vildu að heimahlynningu mik-
ið veikra og deyjandi sjúklinga í sinni
heimabyggð.
Skráning á námskeiðið stendur
yfir á aðalskrifstofu Háskólans á
Akureyri.
Morgunblaðið/Ásgrímur
SIGURVEGARAR í eldri flokki, frá vinstri, ÞÆR kepptu í yngri flokki, Inga Eanney,
Rakel, Berglind Rós og Auður Dögg. Halla Dögg og Jósdís Eva.
Listhlaup á skautum
AKUREYRARMÓT í listhlaupi
var haldið á skautasvellinu á
Akureyri í vikunni og var
keppt í tveimur flokkum, eldri
og yngri. Inga Fanney Gunn-
arsdóttir fór með sigur af
hólmi í yngri flokknum,
i öðru sæti varð Halla Dc-gg
Jónsdóttir og Jódís Eva Eiríks-
dóttir varð í þriðja sæti. í eldri
flokki varð Berglind Rós Ein-
arsdóttir í fyrsta sæti, Auður -
Dögg Pálsdóttir í öðru sæti og
Rakel Þorsteinsdóttir í því
þriðja.
Finnskur þjálfari
Auk þeirra tóku þátt í mót-
inu, Sigrún María Magnúsdótt-
ir og Kristín Hrönn Arnadótt-
ir, Ingólfur Þorsteinsdóttir og
Hulda Dröfn Jónsdóttir.
Áhugi fyrir listhlaupi hefur
aukist og hefur Skautafélag
Akureyrar haft finnskan þjálf-
ara í vetur, Terhi Forsblom
og hefur árangur vaxið í kjöl-
farið.
Krakkarnir eru á leið suður
til Reylqavíkur um næstu helgi
þar sem þeir taka þátt í ís-
landsmóti í listhlaupi á skauta-
svellinu í Laugardal.
Takmörkuð
umferð um
göngugötu
TILLÖGU Guðmundar Stefánssonar,
Framsóknarflokki, um að leyfa tak-
markaða umferð um göngugötuna í
Hafnarstræti var vísað til skoðunar
f skipulagsnefnd. Þrír fulltrúar
Framsóknarflokksins voru samþykk-
ir tillögunni, þeir Þórarinn E. Sveins-
son og Jakob Björnsson bæjarstjóri
auk flutningsmanns.
Verslunareigendur við götuna ósk-
uðu eftir því að takmörkuð umferð
yrði leyfð um götuna. Starfsfólk
Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri
hefur mótmælt því að umferð verði
að nýju hleypt á götuna.
Fram hefur komið í máli formanns
skipulagsnefndar, Gísla Braga Hjart-
arsonar, að kostnaður við að hleypa
umferð á götuna gæti numið um 8
til 10 milljónum króna því gera þurfí
viðeigandi ráðstafanir. Framsóknar-
fulltrúarnir þrír vilja hins vegar að
tilraunin verði gerð á sem ódýrastan
hátt, takist hún ekki sem skyldi verði
henni hætt.
-----♦ ♦ ♦-----
Harmonikkur
og lúðrablástur
TÓNLEIKAR verða haldnir í Glerár-
kirkju næstkomandi laugardag, 23.
mars kl. 17.
Flytjendur eru hljómsveit og sext-
ett Félags harmonikkuunnenda við
Eyjafjörð, Lúðrasveit Akureyrar og
léttsveit Lúðrasveitar Akureyrar auk
einsöngvaranna Bjargar Þórhallsdótt-
ur og Oskars Péturssonar. Einleikarar
með lúðrasveitinni eru Björn Leifsson
á klarinett, Heimir Ingimarsson á
túbu, Jón Halldór Finnsson á básúnu
og Atli Guðlaugsson, Lárus Zophan-
íasson og Vilhjálmur Ingi Sigurðsson
á trompett. Stjórnendur eru Atli Guð-
laugsson og Ingvi Vaclac Alfreðsson.