Morgunblaðið - 21.03.1996, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Uókosmjöi y
möndlur
möndtur
ajhyddar
möndlur
hakkaöar
ia»inetukjamar
i Gleðilega
\ páska!
>
^_________
VELJUM Í8LENSKT!
LAIMDIÐ
Félag um jarðgöng milli
Siglufjarðar og Olafsfjarðar
Morgunblaðið/Egill Egilsson
íþróttahúsið
til sýnis
Flateyri - íbúum Flateyrarhrepps
hefur verið boðið að kynna sér
nýja íþróttahúsið, en þess er
skammt að bíða að húsið verði
tekið í notkun. Það var mikið líf
og fjör í nýja íþróttasalnum þegar
háir sem lágir annaðhvort léku
badminton, tróðu í körfur, eða
svifu sem verðandi fimleika-
stjörnur.
------♦ ♦ ♦
Nýráðinn bæj-
arverkfræð-
ingur á Húsavík
Húsavík - Hreinn Hjartarson, verk-
fræðingur, hefur nú tekið við starfi
bæjarverkfræðings á Húsavík en um
síðustu áramót voru
gerðar miklar breyt-
ingar á skipulagi
bæjarfyrirtækja til
hagræðis að talið er.
Rafveita, vatn-
sveita og hitaveita
voru sameinaðar í
eitt orkufyrirtæki
sem Hreinn á að stjóma auk þess
að hafa yfirstjórn verklegra fram-
kvæmda hjá bænum.
Hreinn lauk rafvirkjaprófi 1979,
raungreinadeildarprófi frá Tækni-
skóla íslands 1983 og meistaraprófi
í rafmagnsverkfræði frá AUC í Dan-
mörku 1988. Að loknu námi réðst
hann sem rafmagnsverkfræðingur til
Hitaveitu Reykjavíkur en sl. tvö ár
hefur hann verið staðarverkfræðing-
ur Nesjavallavirkjunar.
Siglufirði - Á aðalfundi Sam-
gangs, félags áhugafólks um
bættar samgöngur á Tröllaskaga,
var samþykkt að óska eftir því
við Byggðastofnun á Akureyri og
Sauðárkróki að gerð verði félags-
fræðileg úttekt á áhrifum veg-
tengingar milli Sigiufjarðar og
Ólafsfjarðar með jarðgöngum um
Héðinsfjörð. Einnig samþykkti
fundurinn að óska eftir því við
bæjarstjórnir Siglufjarðar og Ól-
afsfjarðar að þær beiti sér fyrir
því við endurskoðun vegaáætl-
unar á vorþingi 1996 að veitt.
verði fé til frekari rannsókna á
vegtengingu milli kaupstaðanna
með jarðgöngum um Héðinsfjörð.
Félagið Samgangur var form-
lega stofnað sl. helgi og skipa
þrír Siglfirðingar og tveir Ólafs-
firðingar stjórn félagsins. Mark-
mið þess er að vera vettvangur
umræðna um samgöngur á
Tröllaskaga. Samgangur er nýbú-
inn að gefa út blað sem dreift var
í hvert hús á Siglufirði og Ólafs-
firði. í leiðara sem Kjartan Heið-
berg ábyrgðarmaður blaðsins
skrifar segir m.a.: „Það er ótti
okkar áhugafólks um bættar sam-
göngur á Tröllaskaga að komist
Siglufjörður ekki í tryggt veg-
samband við Eyjafjarðarsvæðið
muni atvinnufyrirtækjum þar lítt
fjölga og fólksflótti þaðan fara
vaxandi. Vegur um Lágheiði verði
ekki til að snúa þeirri þróun við.
Hann verði ótraustur á vetrum
og stytti vegalengdina ekki nóg
til að hafa afgerandi áhrif. Það
eitt getur orðið Siglufirði til fram-
dráttar að umrædd jarðgöng verði
að veruleika sem um leið mundi
verða mikil lyftistöng fyrir Ólafs-
fjörð og reyndar alla byggð á
Tröllaskaga."
Vegurinn milli Siglufjarðar og
Ólafsfjarðar liggur um Lágheiði
í um 400 metra hæð yfir sjávar-
máli og sökum snjóþunga á þessu
svæði er hann ekki ruddur á vet-
urna. Þessi vegur er um 62 km
langur. Yfir veturinn þarf þá oft-
ast að aka um Öxnadalsheiði er
fara á milli þessara bæja og þarf
þá að aka um 234 km langan
veg, en með tilkomu jarðganga
og vegar gegnum Héðinsfjörð er
leiðin ekki nema um 18 km löng.
Að sögn Þorsteins Jóhannes-
sonar, verkfræðings á Siglufirði,
eru það oftast þrír þættir sem
ráðandi eru um niðurstöður við
samanburð á hagkvæmni val-
kosta við vegagerð, þ.e. mismun-
ur á stofnkostnaði, vegalengd og
umferð, og miðað við þær grófu
áætlanir sem til eru kostar vegur
yfir Lágheiði um 650 milljónir og
jarðgöng um þrisvar sinnum
meira eða um 1.950 milljónir. En
samkvæmt þei-m samanburði sem
Þorsteinn hefur gert virðist jarð-
gangagerðin vera mun álitlegri
kostur frá þjóðhagslegu sjónar-
miði en gerð vegar yfir Lágheiði.
Að sögn Sverris Sveinssonar,
sem er í stjórn Samgangs, hefur
verið gert lauslegt snjóflóðamat
í dölunum sem vegurinn frá jarð-
göngunum liggur um. Þá hafi
einnig verið gerð athugun á berg-
lögum í fjöllum og rannsókn
þeirra standi yfir. Skýrsla um nið-
urstöður muni liggja fyrir í næsta
mánuði. Þegar þau gögn liggi
fyrir verði gerðir nýir kostnaðar-
útreikningar á fyrirhugaðri jarð-
gangaleið um Héðinsfjörð og nýj-
um vegi um Lágheiði. Gert er ráð
fyrir að samstarfshópur um jarð-
gangaverkefnið innan Vegagerð-
arinnar muni síðan funda á Siglu-
firði í vor.
HÓTEL ISLAXD HYXXtR EIXA BESTU TÓXLISTARDAGSKRÁ ALLRA TÍMA
'BO
'70
EB KYIMSLÚÐIIM
SKEMMTIR SÉR
BESTU LÖB ÁRATUBARIXS I FRÁBÆRUM FLUTXIIMEI SÖXEVARA,
DAXSARA OG W MAXXA HUÓMSVFITAR BUXXARS ÞÓRBARSOXAR
ffte Searehers
Matseðill ^
Forrftlun
Kóng»yepp»úpi
Aflalréttur:
Eldsteiktut lambavöívi meí gljá&u gr*nmíti
ofnstelktum jarðeplum og sólberjasösu.
Eftinéttur: ,
, Fetsájuii i brauákötfu meí heitri^r
\ kíremellusóju.
Opið í Asbyrgi
öll kvöld.
Næstu sýningar:
mars: 23., 29. og 30.
apríl: 13., 20. og 27.
»11 kvöld
Söngvarinn og
hljómborðsleikarinn
Gabriel Garcia
San Salvador
HLJ0MSVEIT
CEIRMUNDAR
í syngjandi sveiflu
Verð krónur 4.800,
Sýningarverð kr. 2.200,-
Vinsamlegast hafið samband, sími: 568 7111
Sértilboð á hótelgistingu, sími 568 8999
Salir, með og án veilinga við öll tækifæri!
ATH: Enginn aðgangseyrir
a dansleik!
Morgunblaðið/Árni Helgason
AÐALKENNARI vélstjóranámsins í Stykkishólmi, Ólafur Eiríks-
son, fyrir framan kennslutækið í kælitækni sem fengið var að
láni frá Háskóla Islands, ásamt einum nemenda sinna.
Vélstjóranám í Stykkis-
hólmi í samvinnu við
Háskóla Islands
Stykkishólmi - Eins og áður hefur
komið fram er boðið upp á vélstjóra-
nám í Stykkishólmi á vegum Fjöl-
brautaskóla Vesturlands. Kennd er
eðlisfræði, rafmagnsfræði, renni-
smíði, kælitækni og áframhaldandi
vélgæsla og vélstjórn. Kennt er þrjú
kvöld í viku og á iaugar'dögum.
Þessa dagana er verið að kenna
kælitækni. Þá var leitað til verk-
fræðideildar Háskóla íslands og ósk-
að eftir að fá lánuð tæki til kennsl-
unnar. Var það auðsótt mál og tæk-
in send vestur. Margir telja að svo
mikið þurfí af tækjum og búnaði sem
aðeins eru til í stærri verkmennta-
skóium landsins að ekki sé mögulegt
að halda uppi kennslu á þessum
greinum á landsbyggðinni. Þetta
sýnir að svo er ekki. Hægt er að
koma með kennslu og tæki sem til
þarf til nemendanna út á land ef
vilji og áhugi er fyrir hendi. Gott
skipulag hefur einkennt þetta nám
og allir erfiðleikar sem upp hafa
komið verið yfirstignir og er ánægja
hjá nemendum með að geta stundað
þetta nám í heimabyggð.