Morgunblaðið - 21.03.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996 19
Harðir bardagar rússneskra hermanna við uppreisnarmenn í Tsjetsjníju
ERLENT
Þúsundir flýja
frá Samashkí
DEMPARAR
Bílavörubúöin
FJÖDRIN.
Skeifunni 2 — Sími 588 2550
Moskvu. Reuter.
BLAÐAFULLTRÚI stjórnarinnar
í Grosní, Rúslan Martagov, full-
yrti á þriðjudag að rússneskar
hersveitir hefðu náð smábænum
Samashkí í Tsjetsjníju á sitt vald
eftir fjögurra daga bardaga við
sveitir uppreisnarmanna.
Svo virðist hins vegar sem
Martagov hafi tekið full djúpt í
árinni í samtali við Ítar-Tass
fréttastofuna og útvarpsstöðina
Echo Moskví sem hafði eftir hon-
um að „afvopnun ólöglegra vop-
naðra sveita í Samashkí“ væri
lokið.
Fréttastofan Interfax skýrði
síðar um daginn frá því og bar
fyrir sig ónafngreindan heim-
ildarmann úr röðum háttsettra
embættismanna í Grosní, að upp-
reisnarmenn hefðu Samashkí enn
á valdi sínu, ennfremur að rúss-
neskar sveitir héldu enn uppi stór-
skotaliðshríð á bæinn. Samashkí
er í vesturhluta Tsjetsjníju, 30 km
vestur af höfuðborginni Grosní.
Vegna átakanna hafa flestallir
íbúanna 16.000 flúið borgina.
Rússneskar hersveitir gerðu
áhlaup á Samashkí í fyrra og
voru sakaðar um að hafa brytjað
niður óbreytta borgara. Stjórn-
völd í Moskvu vísuðu ásökunum
um að fjöldamorð hafi verið fram-
ið þar á bug.
Að sögn Tass-fréttastofunnar á
þriðjudag börðust rússneskar
sveitir við uppreisnarmenn víða í
Tsjetsjníju, m.a. við Bamút. Inter-
fax sagði að tveir rússneskir her-
menn hefðu fallið og 22 særst í
bardögum í sjálfsstjórnarhéraðinu
á mánudag.
GÆÐAFIMRÁGÓDUVEHH
:í
V 5 É rti.kJ1**
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
Helmut Kohl kansl-
ari Þýskalands
Mikill nið-
urskurður
á næsta ári
Bonn. Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
lands, sagði á þriðjudag að „mikill"
niðurskurður í ríkisútgjöldum væri
óhjákvæmilegur á næsta ári ef
koma ætti í veg fýrir, að íjárlaga-
hallinn færi úr böndunum.
„Við komumst
ekki hjá miklum
niðurskurði á ár-
inu 1997. Það
verður að gera
allt, sem unnt er,
til að draga úr
aukningu fjárlaga-
hallans," sagði
Kohl á frétta-
mannafundi. Lítill
hagvöxtur í Þýskalandi hefur valdið
því, að skatttekjur ríkisins hafa
minnkað en útgjöld vegna atvinnu-
leysisins aukist. Vegna þess er
hætta á, að fjárlagahallinn á þessu
ári verði meiri en þeir 2.700 millj-
arðar ísl. kr., sem áætlað hafði ver-
ið.
Erfið umræða
Theo Waigel, fjármálaráðherra
Þýskalands, setti þak á ýmsa stóra
útgjaldaliði sl. föstudag en Kohl
sagði, að umræðan um það hvar
ætti að skera yrði „mjög erfið“.
Hann virtist hins vegar útiloka
skattahækkanir og sagði, að þær
myndu aðeins gera illt verra.
Kohl lagði áherslu á, að baráttan
gegn atvinnuleysinu væri forgangs-
mál hjá stjórninni en í Þýskalandi
nær það nú til 4,3 milljóna manna.
Sagði hann, að þótt búist væri við
auknum hagvexti í landinu síðar á
árinu, myndi það ekki lækka þessa
tölu mikið.
Panasonic
Ferðatæki RXDS1S
Ferðatæki með
geislaspilara, 40W
magnara, kassettutæki,
og útvarpi.
Unglingar vilja
gott START út í
lífið
því að þeirra er
framtíðin.
76 r.kr.
A íþróttaleikjum
Grikkja í Olympiu
Var úrstitaatriði að
ná góðu STARTI.
w
WIB
Henry Ford fekk gott START þegar
hann kynnti Ford T-módelið.
1969
Geimferðir fengu
fljúgandi START þegar
Neil Armstrong steig
fyrstur manna fæti á
tunglið.
0- £
Internettilboð
START er kröftug
fjármátaþjónusta fyrir 12-16 ára
unglinga. Fétagar í START fá
START-kort sem gildir í alla
hraðbanka og er um Leið
persónuskitriki. Þeir fá
jafnframt 5,2% vexti á sparifé
sitt - gerið vaxtasamanburð!
Félögum í START byðst
Internettenging hjá
Margmiðlun fyrir aðeins
1.350 kr. á mánuði
- ótakmörkuð notkun.
Nýir felagar eiga von á góðu!
n
SPARISJÓÐURINN
-fyrir þig og þína