Morgunblaðið - 21.03.1996, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996 27
TÓNLIST
Safnaðarhcimili
Akurcyrarkirkju
VfÓLA OG PÍANÓ
Tónleikar á vegum Tónlistarfélags
Akureyrar í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju laugardaginn 9. mars
kl. 17.00. Flyljendur Guðrún Þórar-
insdóttir víóluleikari og Helga Bryn-
dís Magnúsdóttir píanóleikari. A efn-
isskránni voru verk eftir J.S. Bach,
R. Schumann og J. Brahms.
GUÐRÚN Þórarinsdóttir nam
víóluleik við Tónlistarskólann á
Akureyri og Tónlistarskólann í
Reykjavík, en þaðan útskrifaðist
hún sem einleikari árið 1984. Hún
stundaði síðan framhaldsnám við
Tónlistarháskólann í Aachen í
ÞÝSKI myndlistarmaðurinn
Nana Petzet heldur fyrirlestur
í Nýlistasafninu á fimmtudag.
„Gildi
hlutanna“
ÞÝSKI myndlistarmaðurinn Nana
Petzet heldur fyrirlestur í Nýlista-
safninu, Vatnsstíg 3b, fimmtudag-
inn 21. mars kl. 20.30.
Fyrirlesturinn kallar hún „Gildi
hlutanna/Vom Wert der Dinge“.
Viðfangsefni hennar eru vangavelt-
ur um gildi hlutanna, hvernig venju-
legir brúkshlutir hafa gildi, öðlast
gildi, ógildast og verða ónýtir og í
sumum tilfellum fá aftur varanlegra
gildi en fyrr.
Máli sínu til suðnings mun Nana
sýna skýringarmyndir, teikningar og
skissur. Fyrirlesturinn fer fram á
þýsku en Olafur S. Gíslason mynd-
listarmaður mun íslenska jöfnum
höndum.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og
aðgangur er ókeypis.
hljómtækjasamstæða MHC 801
Glæsileg samstæða með
geislaspilara, kassettutæki,
160W. surround magnara,
Karaoke, tónjafnara, útvarpi,
hátölurum og fjarstýringu.
JAPIS3
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI
VÍÓLA OG PÍANÓ
Þýskalandi. Frá námslokum árið
1987 hefur hún stundað kennslu
og tónlistarstörf á Akureyri og er
m.a. einn af máttarstólpum Sin-
fóníuhljómsveitar Norðurlands.
Guðrún hefur hins vegar ekki
fyrr komið fram í aðalhlutverki á
heilum tónleikum frá því að námi
lauk. An þess að orðlengja það
neitt frekar þá sýndi hún og sann-
aði að hún er góður hljóðfæraleik-
ari sem spennandi verður að fylgj-
ast með í framtíðinni. Samleikari
Guðrúnar á þessum tónleikum,
Helga Bryndís Magnúsdóttir, hef-
ur hins vegar verið dugleg við að
halda tónleika, ein og með öðrum,
og velþekkt að vönduðum vinnu-
brögðum.
Tónleikarnir hófust á „tríósón-
ötu“ nr. 2 (af þremur) í D-dúr, sem
Johann Sebastian Bach skrifaði
fyrir viola da gamba og sembal á
árunum 1717-1723, er hann
starfaði í Cöthen. Sónatan er
byggð upp eins og kirkjusónata, í
fjórum þáttum þar sem skiptast á
hægir og hraðir kaflar. Hún byijar
á yndislega fallegu adagjói sem
gefur sónötunni sterkan svip. Hér
var líka vel leikið, hægu kaflarnir
voru fluttir af ró og innileik og
þeir hröðu fullir snerpu og örygg-
is. Márchenbilder op. 113 eftir
Robert Schumann voru næstar á
dagskrá. Fjórar ævintýramyndir
frá árinu 1851, rómantískar og
fallegar tónsmíðar og vel skrifaðar
fyrir hljóðfærin. Hægu kaflarnir
voru fallega fluttir en í þá hröðu
vantaði meiri kraft og hita, var
eins og öryggið væri sett á oddinn
á kostnað ástríðunnar.
Meðal síðustu verka Johannesar
Brahms eru víðfrægar sónötur
fyrir klarinett og píanó sem hann
samdi fyrir Richard Múhlfeld, einn
mesta klarinettista síns tíma.
Brahms skrifaði sjálfur sónöturnar
fyrir víólu og píanó með lítilshátt-
ar breytingum.
Fyrri sónatan í f-moll er klass-
ísk í byggingu en þrunginn tilfinn-
ingu og sterkum andstæðum.
Leikur Guðrúnar og Helgu
Bryndísar var vel mótaður og unn-
inn, eins og í öðrum verkum þess-
ara tónleika, sérstaklega voru
fyrstu þrír þættirnir vel heppnað-
ir, en ekki var laust við að gætti
örlítillar þreytu í tóni víólunnar í
síðasta kaflanum.
í heild voru þetta góðir tónleik-
ar þar sem upp úr stóð sérstakiega
vandaður samleikur á öllum svið-
um og er vonandi að þetta sé að-
eins upphafið að farsælu sam-
starfi.
Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson
„Við gerðum miklar kröfur
- og Ármannsfell uppfyllti þær
íbúð afhent fullbúin
Einbýli í fjölbýli - sérinngangur
Þvottahús í íbúð
Fjölbreytt útfærsla eftir eigin höfði
STOFNAÐ 1965
Armannsfell ht.
Funahöfða 19 • simi 587 3599
http://nm.is/armfell
Opið sunnudaga frá kl. 12.00 til 15.00
Hörður Felix Harðarson, 26 ára lögfræðingur, Guðrún
Valdimarsdóttir, 25 ára skrifstofumaður og Daníel litli 4
ára, fluttu inn í Permaform íbúð frá Ármannsfelli þann 15.
desember 1995
„Við höfðum mjög ákveðnar hugmyndir um hvernig okkar
húsnæði ætti að vera. Við vorum orðin þreytt á fjölbýli og
vildum fá íbúð með sérinngangi. Fjárfestingin varð að vera
hagkvæm, húsið fallegt og frágangur snyrtilegur. Við
vildum ennfremur traustan og öruggan frágang sem
viðurkenndur væri af réttum aðilum. Ármannsfell stóðst
þessar kröfur og meira til.
Þótt við værum að kaupa tilbúið húsnæði gátum við ráðið
öllu sem okkur fannst skipta máli. Við völdum okkur
annað gólfefni, breyttum milliveggjum, völdum okkur
innréttingar á bað og í eldhús og fataskáparnir voru einnig
eftir okkar smekk en ekki annarra. Þegar við fluttum inn var
tilfinningin góð. Þetta var okkar íbúð í hólf og gólf með