Morgunblaðið - 21.03.1996, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996 39
Músíktilraunir
Sódavatn
► DÚETTINN Sódavatn úr Reykjavík leik-
ur poppaða ambienttónlist. Aðalsteinn Guð-
mundsson sér um hljómborðsleik en Þóranna
Dögg Björnsdóttir syngur. Þau eru bæði á
tuttugasta aldursári.
Hi Fly
► DÚETTINN Hi Fly úr Reykjavík er skip-
aður Garðari Kenneth og Krisljáni Erni sem
báðir leika á hljómborð. Þeir félagar eru á
23. árinu og leika teehno-tónlist.
Bee Spiders
► BEE Spiders úr Mosfellsbæ tekur nú
þátt í Músíktilraunum öðru sinni. Hljómsveit-
ina skipa sem forðum Adrian Smooth sem
leikur á bassa, Jonee Bee sem leikur á gítar
og Jimmy Spider sem leikur á trommup.
Talsmaður sveitarinnar sagði hana leika p o
p, en meðalaldur liðsmanna er 21 ár.
Stelpur
og strákar
Panorama
► REYKJAVÍKURSVEITINA Panorama
skipa Birgir Hilmarsson gítarleikari og
söngvari, Haraldur Þorsteinsson bassaleikari
og Nói Steinn Einarsson trommuleikari. Sveit-
in leikur hrátt nýbylgjurokk og meðalaldur
liðsmanna er tæp sautján ár.
Síðastliðinn fimmtudag hófst í
Tónabæ hljómsveitakeppni bíl-
skúrssveita sem kallast Mús-
íktilraunir. í kvöld heldur
------------------t-----------
keppnin áfram og Ami Matthí-
asson segir frá hljómsveitunum
sjö sem etja kapp saman í kvöld.
Á túr
►Á TÚR ER stúlknasveit úr Hafnarfirði og
Kópavogi sem leikur óskilgreinda tónlist.
Hljómsveitina skipa Elísabet Olafsdóttir söng-
kona, Fríða Valdimarsdóttir píanóleikari og
Kristbjörg Kristjánsdóttir sellóleikari. Þær
stöllur eru allar á nítjánda árinu.
MÚSÍKTILRAUNIR hófust fyrir viku, en þá
kepptu fyrstu sjö hljómsveitirnar af þrjátíu og í
kvöld keppa aðrar sjö um sæti í úrslitúm. Ovenju
margar stúlkur stíga á svið í kvöld, sem er vel
því þær hafa of fáar tekið þátt í tilraununum til
þessa.
Áheyrendur velja sigursveitir hvers kvölds, en
ef sérstakri dómnefnd líst sem svo á hún mögu-
leika að hleypa hljómsveit áfram sem ekki hefur
hlotið náð fyrir eyrum áheyrenda. Úrslitakvöldið
gilda atkvæði dómnefndar síðan 70% á móti at-
kvæðum áheyrenda til að tryggja að það sé ekki
bara vinafjöld sem ráði úrslitum.
Sigurlaun Músíktilrauna eru 25 hljóðverstímar
í Stúdíó Sýrlandi, 2. verðlaun eru 25 tímar í Gijót-
námunni og 3. verðlaun eru 20 tímar í Stúdíó
Hljóðhamri. Athyglisverðasta hljómsveitin að mati
dómnefndar fær svo 20 hljóðverstíma í Stúdíó
Hellinum. Sigursveit hvers kvölds fær að auki tíu
tíma frá Stúdíói Hellinum. Til viðbótar við þetta
fær besti gítarleikari tilraunanna að mati dóm-
nefndar gítar frá Hljóðfærabúð Steina, besti söngv-
arinn Shure hljóðnema frá Tónabúðinni á Akur-
eyri, besti bassaleikarinn úttekt frá Skífunni í
Hljóðfærahúsi Reykjavíkur og besti trommuleikar-
inn úttekt frá Samspili. Önnur verðlaun gefa Hard
Rock Café, Pizzahúsið, Paul Bernburg, Rín og
Japís. Fjömargir aðrir leggja tilraununum lið og
má nefna að Flugleiðir veita afslátt af fargjöldum.
í kvöld leikur sigursveit Músíktilrauna 1994,
Maus, sem gestasveit áður en tilraunasveitirnar
hefja leik sinn og á meðan atkvæði eru talin og
hyggst leika ný lög í bland við eldri.
Ormétinn
► KEFLAVÍKURSVEITIN Ormétinn er
skipuð Arnari Má Frímannssyni bassaleikara,
Inga Þór Ingibergssyni gítarleikara, Þórarni
Karlssyni söngvara og Jóhanni D. Albertssyni
trommuleikara. Þeir leika rokkaða tónlist og
eru allir á fimmtánda árinu.
Skvaldur
► ► ÚR NJARÐVÍKUNUM kemur hljóm-
sveitin Skvaldur skipuð Björgvin E. Guð-
mundssyni og Valgeir Sigurðssyni gítarlei-
kurum, Ólafi Ingólfssyni trommuleikara,
Kristjáni Guðmundssyni bassaleikara og
Magna Frey Guðmundssyni söngvara. Sveitin
leikur rokk í þyngri kantinum og nýbylgju,
en meðalaldur piltanna er rúm átján ár.
ÁBYR GÐAR
| Á STÖÐ 3 í KVÖLD |
Án ábyrgðar heitir nýr, íslenskur þáttur sem hefst
á Stöð 3 í kvöld. Þar verða tekin fyrir þau mál sem
eru í brennidepli í íslensku samfélagi og þau verða
ekki tekin neinum vettlingatökum. Málalengjur og
þvælingur er nokkuð sem engum líðst í Án ábyrgðar.
Stjórnendur þáttarins verða ýmsir fjölmiðlamenn
sem þekktir eru fyrir að tala tæpitungulaust og ganga
hreint til verks. Þeir eru m.a:
Gunnar Smári Egilsson
Blaðamaður
Andrés Magnússon
Blaðamaður og dálkahöfundur
Hrafn Jökulsson
Ritstjóri Alþýðublaösins
Fjalar Siguröarson
Dagskrárgerðarmaður
í kvöld er það Fjalar Sigurðarson sem tekur fyrir íslenskan
sjávarútveg. Fjalar fær til sín þrjá valinkunna menn sem
allir eru hagvanir og þekkja vel til í íslenskum sjávarútvegi.
Þeir tala ákveðið og án ábyrgðar um
siðlaust kvótakerfi, sóun á afla,
hagsmunapot í fiskveiðistjórnun
og láta vaða á súðum um allt þ
sem betur má fara í íslenskum
sjávarútvegi og einnig það
sem vel er gert.
I FIIVIIVITUDAGSKVÖLD KL. 22:45
I ÁN ABYRGÐAR_______________