Morgunblaðið - 21.03.1996, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
t
GUÐRÚN ÞÓRÓLFSDÓTTIR
frá Eskifirði,
lést í Landspítalanum 14. mars.
Jarðarförin fer fram frá Eskifjarðarkirkju laugardaginn 23. mars
'kl. 14.00.
Börnin.
t
Elskuleg móðir okkar,
ÞURÍÐUR DALRÓS HALLBJÖRNSDÓTTIR,
andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, 19. mars sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðmundur Jóhannsson,
Ingvar Jóhannsson,
Ásthildur Jóhannsdóttir.
t
Ástkærfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
HILMAR SÆBERG BJÖRNSSON
skipstjóri,
Suðurgötu 75,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi, Hafnarfirði, 15. mars.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðar-
kirkju föstudaginn 22. mars kl. 13.30.
Björg Sæberg, Roberto Garza,
Júlían Hilmar Garza,
Victoria Gyða Garza,
Antonio Björn Garza,
Adrian Þór Garza, Elizabeth Garza
og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur
og bróðir,
BJÖRÚLFUR RÚNAR
ÓLAFSSON,
Grundarási 1,
sem lést þann 12. mars, verður jarð-
sunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn
22. mars kl. 15.00.
Marfa Jónsdóttir,
Halldóra Elínborg Björgúlfsdóttir.
Ólafur Rúnar Björgúlfsson,
Elisabet Ólafsdóttir,
Erna Björk Jónsdóttir,
Inga Helga Jónsdóttir,
Guðbjörg Maria Jónsdóttir,
Ingólfur Kári Ólafsson.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÁRNÝ SIGURLAUG
JÓH AN NSDÓTTIR,
- Hlíðarvegi 45,
Siglufirði,
verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 23. mars kl. 14.00.
Guðmundur Antonsson,
Gunnar Guðmundsson,
Skarphéðinn Guðmundsson,
Stefanía Guðmundsdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir til allra þeirra fjöl-
mörgu, sem sýndu okkur samúð, hlýhug
og vinsemd við andlát og útför ástkærs
bróður okkar og mágs,
MAGNÚSAR GÍSLASONAR
frá Hvanneyri,
Vestmannaeyjum.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg K. Gísladóttir, Erling A. Ágústsson,
Sveinn Gislason,
Guðbjörg Gísladóttir, Ragnar Jónsson,
Runólfur Gíslason, Margo J. Renner,
Gísli Gíslason.
BJÖRG
GUÐNADÓTTIR
+ Björg Guðna-
dóttir fæddist
að Ferjubakka í
Axarfirði 17. apríl
1903. Hún lést á
Sólvangi í Hafnar-
firði að kvöldi 4.
mars síðastliðins.
Foreldrar hennar
voru: Sigurveig
Vigfúsdóttir Hjör-
leifssonar, prests að
Ijörn og Völlum í
Svarfaðardal og á
Skinnastað í Axar-
firði. Faðir Bjargar
var Guðni Þor-
steinsson, kennari og múrari,
ættaður úr Árnessýslu. Þau
Sigurveig og Guðni fluttu síðar
til Reykjavíkur meðan Björg
var á æskualdri. Þar fæddist
bróðir hennar, Guttormur, er
lést 22. ágúst 1992.
Björg giftist Ásbirni Stefáns-
syni, lækni, 22. ágúst 1930, þau
skildu að lögum 1936. Þau eign-
uðust son, Stefán
Guðna. Hinn 26.
júlí 1941 giftist
Björg eftirlifandi
maka sinum, Eiríki
Pálssyni, lögfræð-
ingi. Þau bjuggu í
Reykjavík til ársins
1945 en þá var Ei-
ríkur ráðinn bæjar-
stjóri í Hafnarfirði
og frá þeim tíma
áttu þau heima þar
í bæ, lengst af á
Suðurgötu 51.
Björg og Eiríkur
áttu þrjú börn: Pál,
geðlækni, nú búsettan í Svíþjóð,
kvæntan Jónu Bjarkan; Sigur-
veigu Hönnu, lögfræðing; og
Önnu Margréti, kennara, gifta
Ólafi Eyjólfssyni, lækni. Barna-
börn og barnabarnabörn henn-
ar eru fjölmennur hópur.
Útför Bjargar fór fram í
kyrrþey í Fossvogskapellu 12.
mars.
Björg Guðnadóttir var af góðu
bergi brotin. Tónelskt fólk stóð að
henni í báðar ættir enda hóf hún
sjálf snemma nám í píanóleik og
söng og var fyrsti söngkennari
hennar Sigurður Birkis. Hún var
ekki orðin tvítug þegar hún fór til
Kaupmannahafnar og stundaði þar
nám við Frk. Zalhe skole sem var
þekktur húsmæðraskóli. Hún lærði
einnig hárgreiðslu og hélt áfram
söngnáminu. Björg dvaldist erlendis
í 5-6 ár en heimkomin til Reykjavík-
ur opnaði hún og rak hárgreiðslu-
stofu um skeið. Arið 1929 tók hún
sig þó aftur upp og hélt til Berlínar
til frekara söngnáms hjá kunnum
söngkennara. Vegna fjárskorts varð
hún að hverfa frá náminu og þótti
kennara hennar það mjög miður
farið.
Björg tók alla tíð mikinn þátt í
söng og söngstarfi og vakti söngur
hennar löngum athygli. Hún var í
kór Tónlistarfélagsins í Reykjavík,
sem flutti mörg stórverk á sviði
tónlistar, söng oft í ríkisútvarpinu
og var einsöngvari í ýmsum verkum
svo sem kantötunni „Friður á jörðu“
eftir Björgvin Guðmundsson. Einnig
lék hún m.a. og söng í óperettunni
„Nitouche" en síðast söng hún við
útför Guðmundar Ámasonar, hrepp-
stjóra í Múla í Landsveit, á árinu
1950. Eftir það lagði hún sönginn
á hilluna en fékkst nokkuð við söng-
+
RAGNHILDUR ÓSKARSDÓTTIR
RÓSKA,
er látin og verður kvödd í Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
22. mars kl. 15.00.
Manrico Pavolettoni,
Höskuldur Harri Gylfason,
Sigurbjörg Emilsdóttir, Óskar B. Bjarnason,
Borghildur og Guðrún Óskarsdætur.
+
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
EYRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hamrahlfð 27,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 22. mars
kl. 13.30.
Þeir, sem vilja minnast hinnar látnu, eru beðnir um að láta líknar-
stofnanir njóta þess. -
Guðmundur Jónsson, Fríða Halldórsdóttir,
Jón Guðmundsson, Kristfn Björk Gunnarsdóttir,
Halldór Guðmundsson, Valrós Sigurbjörnsdóttir,
Árni Guðmundsson, Guðrún Hannesardóttir,
Einar Rúnar Guðmundsson
og barnabarnabörn.
+
Elskulegur sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi,
TÓMAS BJARNASON,
áðurtil heimilis
í Breiðumörk 5,
Hveragerði,
er andaðist á Ljósheimum, Selfossi, miðvikudaginn 13. mars sl.,
verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 23. mars
kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Styrktarfélag van-
gefinna.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Guðmundur Bjarnason,
Steinunn Bjarnadóttir,
Hafsteinn Bjarnason,
Birgir Bjarnason,
Hildur Bjarnadóttir,
Guðrún Bjarnadóttir,
Björk Bjarnadóttir,
Kolbrún Ðjarnadóttir,
og frændsystkin.
Hallfríður Baldursdóttir,
Ingi Sæmundsson,
Valdís Steingrímsdóttir,
Jónas Helgason,
Sigurjón Björnsson,
Morten Ottesen,
kennslu og stjórnaði um tíma kór
Hraunprýði, Slysavamaféiags ís-
lands í Hafnarfirði. Björg fékkst
einnig smávegis við lagasmíði og
voru gefin út 12 smálög eftir hana
undir heitinu „Leikur að tónum“.
Henni var það sérstakt ánægjuefni
að nokkur bamabarna hennar hafa
getið sér gott orð á vettvangi söngs-
ins.
Björg hafði alltaf mikinn áhuga
á félagsmálum og var virkur þátt-
takandi í ýmsum félögum. Var einn
af stofnendum Kvenfélags Alþýðu-
flokksins í Reykjavík, starfaði um
tíma í Góðtemplarareglunni og söng
oft á hennar vegum, vann að slysa-
varnamálum og var félagi í Guð-
spekifélagi íslands. Hún átti oft
frumkvæði að ýmsum málum svo
sem að reist var bijóstlíkneski af
Þórði Edílonssyni til minningar um
læknisstörf hans í Hafnarfirði.
Björgu var létt um að skrifa.
Bréf hennar til bama og vina
greindu frá atburðum líðandi stund-
ar. Dregin fram í fáum dráttum,
oftlega í gamantón, ásamt hollum
ráðleggingum um viðbrögð í að-
steðjandi vandamálum. Frásagnir
hennar um ferðir og sérstaka lífs-
reynslu birtust stundum í blöðum
og sumt lesið í útvarpinu af dóttur
hennar eða öðrum.
Björg var vel farin að yfírbragði
og vakti gjarnan athygli. Hún var
mikil húsmóðir og dugleg og hélt
heimili sínu vel til haga meðan orka
leyfði. Gestrisin, glaðvær og við-
ræðugóð. Til hennar var mikið leitað
um góð ráð og fyrirgreiðslu og var
slíkt fúslega í té látið.
Hún var umhyggjusöm móðir en
þar reyndi oft á í veikindum barna
og vissum erfiðum vandamálum sem
stundum voru henni lítt yfírstígandi
en þar naut hún góðs stuðnings
eftirlifandi maka síns.
Á sextugsaldri tók heilsu að
hnigna og þurfti hún því öðru hvoru
á hjúkrunarvist að halda. Frá árs-
byrjun 1984 var þróttur mjög þrot-
inn og hún þjáð af sykursýki. Dvaldi
hún á Elli- og hjúkrunarheimilinu
Sólvangi frá 19. jan. það ár til loka-
dags og naut þar góðrar umhyggju.
Átti þess þó kost að skreppa stund-
um heim til sín á Suðurgötu 51 og
um hver jól til dóttur sinnar að Öldu-
túni 3 og líka um jólin 1995. Síð-
ustu tvö árin var heilsa hennar í
góðu jafnvægi en orkan gekk til
þurrðar. Hún hélt andlegri reisn
sinni til síðustu stundar en skamm:
tímaminni hafði hrakað nokkuð. í
lok febrúar hallaði smátt og smátt
undan fæti og á ellefta tímanum
að kveldi 4. mars sofnaði hún rólega
' og hvarf á vit hins ókunna. Vanda-
mál og erfíðleikar mannlegs lífs
voru þar með að baki. Hún hefði
orðið 93 ára 17. apríl nk.
Hennar er sárt saknað af fjöl-
skyldu og vinum. Þeir hafa mikið
misst. Þeir þakka henni hjartanlega
góða samfylgd og árna henni farar-
heilla inn á svið nýrrar tilveru.
Fjölskyldan.
i
c
«
C
i
i
Elsku amma mín.
Það er á stundum sem þessari,
sem maður efast um að það sé þess
virði að láta ævintýramennsku og
útþrá ráða förinni. Ef ég hefði ekki |
flust af landi brott, hefðu samveru- 4
stundirnar getað orðið fleiri, elsku
Erfidrykkjur
Glæsileg kaífi-
hlaöborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
ísíma 5050 925
og 562 7575
FLUGLEIÐIR
nim tmmtiR