Morgunblaðið - 21.03.1996, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐIÐ
44 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996
mmmmmmi
o
1
I
ö
!
&
‘DaCta
Dara Síómabúdj
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tækifæri
Opið til kl.10 öll kvöld
Persónuleg þjónusta
Fáfiafeni 11, sím/ 568 9120
MINIMINGAR
§
I
5
1
I
I
S
ANNA
ÁRNADÓTTIR
+ Anna Árnadóttir var fædd
á Ytri-Rauðamel í Hnappa-
dalssýslu 26. júlí 1901. Hún
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
29. febrúar síðastliðinn og fór
útförin fram frá Fossvogs-
kirlgu 8. mars.
Þar sem Norðurmýrin var svakki
og svað svona rétt fyrir þá stór-
styrjöld, sem við munum eftir og
Scetir sófar
á óviðjafnanlegu verði
HÚSGAGNALAGERINN
Smiðjuvegi 9 (gul gata) - Kópavogi - simi 564 1475 Opið mán.-fös. 13-18, lau. 11-14.
stendur okkur í ljósu loga minni,
þar komu feður okkar niður og
reistu sér hús. Þar voru hús svo-
kallaðra millistétta, bjargálna
fólks, sem gat kojnið yfir sig þaki,
iðnaðarmenn og iðnaðarfólk, skip-
stjórar og stýrimenn, háskólamenn
og haldnir höfðingjar, kennarar og
kristnir menn að öðru jöfnu.
Þar stunduðu menn sín störf án
umbrota, og þar uxum við krakk-
arnir úr grasi í foreldraskjóli,
strákarnir og stelpurnar og radíus-
inn ekki mjög stór.
Síðan líður langur tími, allt er
afstætt, og allt flýtur með straumi
tímans, fólk flytur og fólk deyr,
fólk giftist út og suður og allt fer
flakk. Nema frú Anna, sem alltaf
situr í sama húsi á Mánagötu 16
og heldur þannig öllu saman, að
tengslin við Norðurmýrina slitna
aldrei. Trén, sem foreldrar okkar
gróðursettu þá sprota eru orðin
að villigróðri, þeim sem ekki að
gæta en unaðsreit hinum og húsin
nær horfin í heimi sem var.
Og sofnuð er nú vor orms arms
tróða. Hún var orðlögð fyrir kven-
kosti, fríðleik og forstand. Af þessu
þrennu var forstandið best, hún
hélt jafnaðargeði öll sín ár á tíunda
tug, gat glaðbeitt rætt alla hluti,
flestum velviljuð, sá kómikina í
öllum hlutum, vildi þó drága sterk-
ar línur hins betra og hins verra.
En það var ekki öllum gefið að
vita, hvar þær skárust.
Eg reyndi hin síðari árin, þegar
ég var heima yfir hásumarið, að
rækja þessa móður mína. Hljóðlega
gekk ég upp teppalagða efri hæð-
ina, sem ég hafði troðið síðan á
unglingsaldri. Allar dyr voru opnar
að venju, og ég stóð við hlið henn-
ar, hvar hún var að glugga í Mogg-
ann. En svo verður hún mín vör.
Hva, ég hélt þú værir dauður.
Nei, ekki alveg, svara ég, kannske
bráðum. Æ, hvað allt er orðið gam-
alt, þú og Árni minn líka. Ætli við
förum bara ekki öll á elliheimilið
saman. Það er svo einkennilegt að
vera svona gömul, sagði ég við
'Sigurbjörn biskup, sem kom á ní-
ræðisafmæli mínu. Þetta er svo
einkennilegt, mér finnst þið sem
eruð áttræð bara börn - og svo
er þetta alltaf að deyja kringum
mann eða orðnir aumingjar á elli-
heimilum.
Og ævin líður sem allra í glöðum
og íjölmennum systkinahópi frá
Stóra Hrauni vestra,
En það er stutt í sorgina og
sorgin hlífir hvergi, hún mátti
horfa á eftir góðri dóttur og dóttur-
barni langt fyrir aldur fram og
síðan þeim ágæta maka, sem brosti
við henni, en var hvellur við okkur
strákana, Páli sem var svo ólík-
indalegur en aðlaðandi, að enginn
vissi hvaðan kom.
Nú kveðjum við þetta góða fólk
og nú erum við næstu kandidatar.
Guð gefi oss ráð og rænu að vera
þar alltaf heima.
Hreggviður Stefánsson.
RADA UGL YSINGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Flakarar
Óskum eftir að ráða fólk í steinbítsflökun.
Upplýsingar í síma 456 2553.
Slökkvilið Hafnarfjarðar
Sumarafleysingar
Okkur vantar starfsmenn til að leysa af vegna
sumarfría í Slökkviliði Hafnarfjarðar sumar-
leyfistímabilið 1996.
Umsækjendur um störf slökkviliðsmanna
skulu fullnægja eftirtöldum skilyrðum, sbr.
reglugerð um menntun, réttindi og skyldur
slökkviliðsmanna nr. 195/1994:
1. Vera á aldrinum 20-28 ára, reglusamir
og háttvísir.
2 Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og
líkamlegt heilbrigði, hafa góða sjón og
heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki
haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
3. Hafa aukin ökuréttindi til að stjórna
a) vörubifreið og b) leigubifreið.
4. Hafa iðnmenntun, sem nýtist í starfi
slökkviliðsmanna eða sambærilega
menntun og reynslu.
Upplýsingar eru gefnar á varðstofu slökkvi-
liðsins v/Flatahraun, þar sem liggja frammi
umsóknareyðublöð. Umsóknir berist undirrit-
uðum fyrir 15. apríl nk.
Slökkviliðsstjóri.
LIS TMUNAUPPBOÐ
Málverkauppboð
Vantar máiverk í sölu. Höfum hafið móttöku
á verkum fyrir næsta listmunauppboð.
Opið virka daga frá kl. 12 til 18.
BQRG
v/ingóifstorg,
sími 552 4211.
Bakarasveinafélag
íslands
Bakarasveinar
Félagsfundur verður haldinn hjá Bakara-
sveinafélagi íslands í Þarabakka 3, laugar-
daginn 23. mars nk. kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Lagabreytingar.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Aðalfundur
fimmtudaginn 28. mars 1996 kl. 17 í veitinga-
sal félagsins á Bárugötu 8-10, Akranesi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga um 10% hækkun hlutafjár með
útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Tillaga um heimild til að auka hlutafé um
allt að 150 milljónir kr. með útboði.
Heimildin gildi til tveggja ára.
4. Önnur mál.
Stjórnin.
Kvennaskólinn f Reykjavík
Opið hús
Laugardaginn 23. mars, milli kl. 13.00 og
15.00, verður skólinn opinn til kynningar fyr-
ir 10. bekkinga grunnskóla og aðra þá, sem
vildu kynna sér starfsemi skólans.
Skólameistari.
C
Landsvirkjun
Útboð
Einkasímstöðvar
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í
tvær ISDN-einkasímstöðvar í samræmi við
útboðsgögn RKS-01.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík,
frá og með fimmtudeginum 25. mars 1996,
gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 1.000
með vsk. fyrir hvert eintak.
Tekið verður á móti tilboðum á skrifstofu
Landsvirkjunar á Háaleitisbraut 68, Reykja-
vík, til opnunar mánudaginn 15. apríl 1996
kl. 14.00. Fulltrúum bjóðenda er heimilt að
vera viðstaddir opnunina.
I.O.O.F. 5 = 1773218 = Sk
I.O.O.F. 11 = 1770321872 =Kk
□ HLÍN 5996032119 VI - 1
KFUM
V
Aðaldeild KFUM,
Holtavegi
Aðalfundur KFUM og sumar-
starfsins í Vatnaskógi kl. 20.00.
Austurvegur^ ehf.
Námskeið í Reiki heilun
Næsta námskeið
í Reiki heilun I fer
fram helgina 23.
og 24. mars milli
kl. 10 til 17. Reiki
heilun 2 fer fram
að kvöldi 25., 26.
og 27. mars frá kl. 20. Kennsla
fer fram á Sjávargötu 28, Bessa-
staðahreppi, 10 mín. akstur frá
Reykjavík, í fallegu umhverfi við
sjóinn.
Kennari er Rafn Sigurbjörnsson,
viðurkenndur Reikimeistari af
Reikisamtökum íslands, The
Reiki Association, The Reiki
Outreach International.
Upplýsingar og skráning fer
fram í síma 565 2309 eftir kl.
13 alla daga.
singor
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Kl. 20.30 Tónlistarvaka:
„Kaffihús með lifandi tónlist".
Maríanna Másdóttir syngur.
Allir velkomnir.
Ath.: Munið útsöluna í Flóamark-
aðsbúðinni, Garðastræti 6. Opið
í dag og á morgun kl. 13-18.
Dagsferðir sunnud. 24. mars
kl. 10.30: Afmælisganga á Keili.
Telemarknámskeið 23. og 24.
mars. Auglýst nánar í föstu-
dagsblaðinu.
Jeppaferð 22.-23. mars
íshellirinn í Breiðamerkurjökli.
Farið til Kirkjubæjarklausturs á
föstudagskvöld. Gist þar i svefn-
pokaplássi á Hótel Eddu. Farið
að Breiðamerkurjökli um morg-
uninn. Ekið og gengið að ný-
fundna hellinum. Stórkostleg
náttúra undir leiðsögn fróðra
heimamanna. Verð kr. 2.200.
Aðalfundur Útivistar verður
haldinn í Fóstbræðraheimilinu
fimmtud. 21. mars kl. 20.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Útivist.