Morgunblaðið - 14.04.1996, Qupperneq 1
88 SÍÐUR B/C/D
85. TBL. 84. ARG.
SUNNUDAGUR 14. APRIL 1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Starf tesmakk-
ara lagt niður
ROBERT Dick, æðsti opinberi tesmakk-
arinn i Bandaríkjunum, hefur orðið
fyrir barðinu á baráttu ráðamanna í
Washington gegn fjárlagahallanum og
misst starfið eftir að hafa gegnt því í
tæpa hálfa öld. Samkvæmt lögum, sem
Bandaríkjaþing setti fyrir 99 árum,
þurfti sérstök nefnd tesérfræðinga að
leggja biessun sína yfir allan teinnflutn-
ing til Bandaríkjanna og bragða á vör-
unni til að ganga úr skugga um að hún
uppfyllti gæðakröfur. Meirihluti repú-
blikana setti ákvæði um afnám nefnd-
arinnar í Iög, sem Bill Ciinton forseti
staðfesti í vikunni sem Ieið.
Robert Dick, sem er áttræður, var
formaður nefndarinnar og mátti sín
því mikils í teiðnaðinum. Hann hafði
vald til að hafna innflutningi á tei sem
hann taldi bragðast illa, en hann viður-
kenndi að hann hefði ef til viil mátt
vera kröfuharðari í starfinu. „Við
leyfðum margoft innflutning á tei sem
Englendingar myndu aldrei drekka.“
Brunalið roðnar
í viðurvist konu
59 slökkviliðsmönnum í Worcester í
Englandi er nú heitt í hamsi vegna
ákvörðunar yfirmanna þeirra um að
Ieyfa fyrstu konu slökkviliðsins að nota
sama búningsherbergi og þeir. Menn-
irnir segjast ánægðir með að starfa við
hlið konunnar, en þeir fari hjá sér þeg-
ar hún sé í búningsherberginu meðan
þeir skipta um föt og afklæðast áður
en þeir fara í sturtu. „Þetta gengur í
berhögg við alla heilbrigða skynsemi
og velsæmi," sagði einn slökkviliðs-
mannanna. „Mennirnir hafa þurft að
skýla sér á bak við hurðir skápanna
og sumum eiginkvennanna er illa við
þetta. Við erum engar teprur en ætlum
ekki að vera með nektarsýningar."
Indverskar ekkj-
ur í hefndarhug
EKKJUR 23 landeigenda í Indlandi,
sem talið er að indverska konan Phool-
an Devi hafi myrt, hafa ákveðið að
beita sér gegn henni í þingkosningun-
um i landinu 27. apríl. Konurnar eru
frá Uttar Pradesh, þar sem menn
þeirra voru myrtir fyrir 15 árum, og
ætla að ferðast um kjördæmi Devi í
rútu, sem þær nefna „Hefnd ekkn-
anna“. Devi er þar í framboði og hefur
verið nefnd „Blómagyðjan". Um hana
hafa verið skrifaðar nokkrar bækur,
auk þess sem kvikmyndin „Drottning
stigamannanna" fjallar um líf hennar.
Hún er talin hafa myrt landeigendurna
í hefndarskyni eftir að henni var
nauðgað og ástmaður hennar myrtur.
ísraelar halda áfram hernaðaraðgerðum í suðurhluta Líbanons
200.000 manns flýja
mannskæðar árásir
Beirút, Jerúsaiem. Reuter, The Daily Telegraph.
ÍSRAELAR héldu í gær áfram loft- og stór-
skotaliðsárásum á suðurhluta Líbanons til
að hefna flugskeytaárása Hizbollah-samtak-
anna á norðurhluta ísraels. Að minnsta
kosti 25 manns höfðu fallið í gær og 53
særst í árásum ísraela og talið var að um
200.000 manns hefðu flúið heimili sín. Með-
al fórnarlambanna voru fjögur börn og tvær
konur, sem biðu bana þegar ísraelskar her-
þyrlur skutu flugskeyti á sjúkrabíl nálægt
hafnarborginni Týros í gær.
Hizbollah (Flokkur guðs), sem nýtur
stuðnings stjórnvalda í Iran, hélt áfram að
skjóta flugskeytum á norðurhluta ísraels
og um 40 manns hafa særst í árásum sam-
takanna síðustu daga.
Faris Bouez, utanríkisráðherra Líbanons,
kvaðst ætla að mótmæla árásum ísraela á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Sýrlending-
ar hvöttu Bandaríkin og Evrópuríki til að
knýja ísraela sem fyrst til að hætta árásun-
um og hefja friðarviðræður að nýju. Sýrlend-
ingar eru með 35.000 hermenn í Líbanon,
og einn þeirra beið bana og sjö særðust
þegar ísraelskar herþyrlur gerðu árás á
herstöð í úthverfi í Beirút á föstudag.
Bandaríkjastjórn hvatti hins vegar Sýr-
lendinga og írani til að fá Hizbollah til að
láta af árásum sínum. Hún varði hefndarað-
gerðir Israela og sagði nauðsynlegt að refsa
samtökunum.
Herve de Charette, utanríkisráðherra
Frakklands, hvatti ísraela og stjórn Líban-
ons til að sýna stillingu og sagði að frekari
hernaðaraðgerðir myndu stofna friðarferlinu
í Miðausturlöndum í mikla hættu.
ísraelsher hafði varað við því að ráðist
yrði á 49 þorp og bæi í suðurhluta Líban-
ons og embættismenn í Beirút sögðu að
um 200.000 manns hefðu flúið heimili sín
á svæðinu.
Hermdarverkum
hótað utan Israels
Embættismenn í Jerúsalem sögðu að
hernaðaraðgerðir ísraela gætu staðið í tvær
vikur. Talið er að Shimon Peres, forsætisráð-
herra ísraels, vilji með aðgerðunum treysta
stöðu sína fyrir þingkosningarnar í landinu
eftir tvo mánuði og sýna kjósendum fram
á að þeir geti treyst honum til að tryggja
öryggi þeirra.
Hizbollah segist ætla að halda áfram að
ráðast á ísraelska bæi og svara hernaðarað-
gerðum ísraela með árásum utan Líbanons.
Ottast er að samtökin undirbúi hermdarverk
gegn ísraelum á Vesturlöndum.
Reuter
FLÓTTAMENN á vörubíl nálægt hafnarborginni Týros í suðurhluta Líbanons. Talið var að 200.000 manns hefðu flúið
heimili sín á svæðinu vegna árása ísraela á tugi þorpa og bæja.
Brusscl. Reuter.
TVEGGJA daga ráðstefnu 55 ríkja um
Bosníu lauk í gær eftir að náðst hafði það
takmark að safna 1,2 milljörðum dala, jafn-
virði tæpra 80 milljarða króna, til uppbygg-
ingarstarfsins í landinu á þessu ári.
Lawrence Summers, aðstoðarfjármála-
ráðherra Bandaríkjanna, staðfesti að ríkin
hefðu lofað alls 1,28 milljörðum dala til
uppbyggingarinnar. „Þessi ráðstefna var
mjög árangursrík og framlag okkar átti
m.
Arangnrsríkur
Bosníufundur
stóran þátt í því,“ sagði Summers.
Bandaríkjastjórn lofaði 219 milljónum
dala, sem svarar 14,5 milljörðum króna,
til viðbótar 62 milljónum dala sem hún
lofaði á samskonar ráðstefnu um aðstoð
við Bosníu í desember.
Alþjóðabankinn og framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins stóðu fyrir ráðstefn-
unni og áætla að safna þurfi 5,1 milljarði
dala, jafnvirði 336 milljarða króna, á næstu
fjórum árum til uppbyggingarinnar. Talið
er að tjónið af völdum stríðsins í Bosníu
nemi 50 milljörðum dala, sem svarar 3.300
milljörðum króna.
10
FORSEmmm ek
íEBLISÍH0 PÓLIMT
Tifandi
tímasprengja
20
VIDSKIPn AIVINNUIÍF
Á SUNNUDEGI
HUGVITIÐ
ÍASKANA
LÁTIÐ
11
B
s *
FRJALS I FJALLASAL