Morgunblaðið - 14.04.1996, Page 17

Morgunblaðið - 14.04.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1996 17 MIKIÐ uppnám varð í bók- menntaheiminum vestan hafs fyrir skömmu þegar það spurðist út, að forlagið St. Martin’s Press hefði ákveðið að gefa út ævisögu Josephs Goebbels, áróðursmálaráðherra Hitlers, eftir enska sagnfræðinginn David Irv- ing. Irving er kunnur víða um lönd fyrir að vera einna fremstur í flokki þeirra, sem segja helförina gegn gyðingum vera tómt bull og vit- leysu, en Thomas Dunne, forstjóri forlagsins, kvaðst ekkert hafa um það vitað. Hélt hann því einnig fram, að einkaskoðanir höfundar- ins skiptu engu máli, heldur aðeins bókin sjálf sem sagnfræðirit. Dunne hafði þó ekki fyrr lýst þessu yfir en hann lét undan há- værri gagnrýninni og tilkynnti, að hætt hefði verið við útgáfu bókar- innar. Forlagið verður þó eftir sem áður að standa við samninginn við Irving, sem mun fá sín höfundar- laun með skilum. Sumir sagnfræðingar og aðrir útgefendur segjast leggja lítinn trúnað á, að bókmenntafræðing- arnir hjá St. Martin’s, sem gefur árlega út 650 bækur um margvís- leg efni, hafi ekkert vitað um póli- tískar skoðanir David Irvings. Hann er stóra hetjan í augum nýnasista víða um heim og ræður hans hrinda ósjaldan af stað fjöl- mennum mótmælafundum. Dæmdur í Þýskalandi Irving hefur verið úthýst í Þýskalandi, Ástralíu og Kanada og í Þýskalandi hefur hann auk þess verið dæmdur fyrir að hvetja til kynþáttahaturs og fyrir að óvirða minningu hinna látnu. Er það samkvæmt lögum, sem banna mönnum að afneita Helförinni. í Bretlandi hefur hann formælt þátttöku svartra manna í krikket- Tekist á um ævisögu Goebbels St. Martin’s-forlagið boðaði fyrir skömmu útgáfu á ævisögu Jos- ephs Goebbels, áróðursmálaráðherra Hitlers, en eftir mjög harða gagnrýni á bókina og höfund hennar, hinn „hófsama fasista“ David Irving, var ákveðið að hætta við allt saman keppni og hvatt til „eyðingar ísra- elsríkis". Irving, sem lýsir sjálfum sér sem „hófsömum fasista“, er litinn hornauga af öðrum sagnfræðing- um en eins og áður segir er hann uppáhald þeirra, sem afneita Hel- förinni. Við þau tækifæri fer hann hamförum gegn gyðingum, kallar helförina „blóðuga lygi“ og heldur því fram, að í Auschwitz hafi aldr- ei verið neinir gasklefar. Segir hann fullum fetum, að Pólveijar hafi komið þeim upp eftir stríð til að draga að ferðamenn. Harðir dómar Um þetta allt saman vissu þeir hjá St. Martin’s Press ekki neitt að sögn og það virðist líka hafa farið framhjá þeim hvaða dóma ævisagan hans Goebbels fékk hjá gagnrýnendum, sem voru sérstak- lega fengnir til að meta hana fyr- ir forlagið. Yfirleitt eru þessir fyr- irframdómar fremur vinsamlegir en í Kirkus Reviews sagði, að bók- in væri „svívirðilega villandi“ og Publishers Weekiy sagði hana „viðbjóðs- lega“. Samtök gyðinga í Bandaríkjunum brugðust að sjálf- sögðu hart við fyrir- hugaðri útgáfu á „Goebbels“ og sök- uðu Irving um að sverta minningu allra þeirra, sem látið hefðu lífið fyrir hendi harðstjóra. Ed Novak, um- boðsmaður Irvings, segir, að St. Martin’s hafi ákveðið að gefa „Goebbels" út eftir að mörg önnur forlög höfðu hafn- að bókinni og yfirleitt án þess hún væri lesin. „Þeir sögðust bara ekki hafa neinn áhuga á einhveiju eftir þennan mann en hjá St. Martin’s sáu þeir, að hér var um að ræða góða bók, sem þeir gætu hagnast á,“ sagði Novak en vildi ekki upp- lýsa hvað forlagið hefði greitt. Ir- ving. Sagði aðeins, að hann fengi meira fyrir sínar bækur en flestir sagnfræðingar. Þegar Thomas Dunne útskýrði þá ákvörðun sína að gefa ævisögu Goebbels út sagði hann, að útgef- endur ættu ekki að velta fyrir sér einkaskoðunum rithöfunda og sagði, að það væri líka rétt mátu- legt á Goebbels sjálfan, sem hefði ekki haft unun af neinu meir en bókabrennum og skoðanakúgun. Um þetta eru þó margir sagn- fræðingar á öðru máli og segja, að vissulega skipti höfundurinn máli. Halda þeir því fram, að eng- inn ærlegur maður geti tekið rit- verk Irvings alvarlega. Samúð með nasistum Dunne segir, að það sé langt í frá, að Irving hefji Goebbels upp til skýjanna í bók sinni, þvert á móti lýsi hann honum sem „skrímsli í mannsmynd“. Undir það hafa raunar aðrir gagnrýnend- ur tekið en segja, að samt leyni sér ekki samúð höfundarins með málstað nasista. í bókinni sé hatur Goebbels á gyðingum og grimmd notuð til að leggja áherslu á þá skoðun Irvings á Hitler, að hann hafi verið duglaus leiðtogi, sem hafi verið dreginn nauðugur vilj- ugur út í blóðbað og grimmdar- verk síðari heimsstyijaldar. „Hvorki þýska þjóðin né Foringi hennar voru haldin hinu djöfullega gyðingahatri Goebbels,“ segir Irv- ing í bókinni og þann boðskap hefur hann verið að flytja síðustu tvo áratugina. Bók Irvings byggir mikið á dag- bókum Goebbels sjálfs, 75.000 blaðsíðum, sem lágu flestum gleymdar í skjalasafni Rauða hers- ins í Moskvu þar til kommúnisminn hrundi. Var Irving fyrsti rithöfund- urinn, sem fékk aðgang að þeim. Eins og áður segir gafst St. Martin’s upp fyrir gagnrýninni og hætti við að gefa út bókina um Goebbels. Ekki eru þó allir á einu máli um þá ákvörðun frekar en þá fyrri og finnst sem lítið hafi lagst fyrir forlagið eftir öll hreysti- yrðin. Sendist til: GÖTEBORGS-KEX, Pósthólf 4132, 124 Reykjavík Ég sendi hér með 6 strikamerki og 399 krónur. Innan 3ja vikna fæ ég sent kort frá Casa þar sem mér verður boðið að koma í verslunina og velja mér glas, eða að láta senda mér, að kostnaðarlausu. Nafn: -------------------------------------------Sími: -------------- Hcimilisfang:____________________________________ Pósthólf: --------- iystaukandi glös íyrir lítið? Þú kaupir uppáhaldstegundirnar þínar afljúfFengu Göteborgs-kexi, sendir Q strikamerki af þeim ásamt 399 krónum - og glasið er þitt. Þú getur valið úr íjölmörgum gerðum af Ritzenhoff glösum með myndskreytingum eftir heimsfræga listamenn þ.á.m. Erró. Fáðu þér bækling í næstu matvöruverslun. Njóttu vell

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.