Morgunblaðið - 14.04.1996, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.04.1996, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1996 29 Ennfremur verður að hafa í huga að mikil háhitaorka fer til spillis ef eingöngu er unnin raforka úr háhit- anum. í grófum dráttum er nýtni háhita til raforkuvinnslu um 10% og til varmaorkuvinnslu 60-70%. Nýtni til varmavinnslu er miðuð við það sem orkuverið lætur frá sér, en af því nýtist aðeins um helmingur til húshitunar (30-40%). Raforka skilar hins vegar 100% nýtni í hús- hitun. í seinasta fréttabréfí Sam- orku, sem eru samtök raforku-, hita og vatnsveitna, ritar Jóhannes Zoega grein þar sem hann ræðir um mikilvægi þess að fara vel með þau háhitasvæði sem liggja næst megin þéttbýlinu. Ennfremur bendir hann á að með því að nota hringrás- arkerfi fyrir hitaveituvatn í stað þess að hita sífelld upp nýtt kalt grunnvatn megi auka nýtni háhita- svæða til varmavinnslu fyrir hita- veitur um fjórðung. Til mótvægis við litla nýtni í raf- orkuframleiðslu er hægt að skila jarðhitageyminum aftur nokkru af þeim varma sem ekki nýtist, mis- munandi eftir aðstæðum. Sú aðgerð er ennfremur virkasta mótvægisað- gerðin gagnvart mengun af efna- samsetningu jarðhitavökvans. Þótt mengun vegna háhitaorkuvera sé lítil samanborið við samsvarandi orkuver sem nýta jarðefnaeldsneyti, þá er hún talsverð einkum ef borið er saman við vatnsorku, en vinnslu henni fylgir engin mengun. Það er alkunna að mannvirki vatnasaflsvirkjunar endast mun lengur en sem nemur afskriftartíma fjárfestingarinnar. Það er einnig alkunna að mannvirki og tæki há- hitavirkjana endast mun skemur en mannvirki vatnsaflsvirkjana. Fjár- festing í vatnsorkuveri gefur því arð mun lengur en samsvarandi fjárfest- ing í jarðhitaorkuveri. Þetta eru allt saman þættir sem þarf að taka mið af í umræðum um nýtingu orkuauð- linda landsins. Samantekt Þær heildstæðu áætlanir sem gerðar eru um nýtingu íslenskra auðlinda verða að taka tillit til eigin- leika þeirra og sjálfbærrar nýtingar. Við mat á ávinningi verður að nota sambærilegar aðferðir, sem endur- spegla þetta hvort tveggja, og taka auk þess mið af viðurkenndum nið- urstöðum í auðlindahagfræði. Ef við stefnum að sjálfbærri þróun, sem hefur í för með sér að stefna skuli að hámarksnýtni orkulindanna, þá stenst ekki að einstakir handhafar orkuvinnsluréttinda geti nýtt þáu að vild óháð heildarhagsmunum þjóðarinnar þegar til lengri tíma er litið. Það liggur t.d. í augum uppi að ef val stendur milli tveggja að því er virðist sambærilegra kosta til að uppfylla þörf fyrir raforku, þar sem annar er endurnýjanlegur (vatns- orka) en hinn er námavinnsla (há- hiti), þá er náman geymd til síðari nota. Annað væri óskynsamlegt af sjónarhóli sjálfbærrar þróunar. Spurningin er hvenær þessir kostir eru sambærilegir. Er það þegar framleiðslukostnaður orku er sá sami, eða þarf að taka tillit til ann- arra þátta, og þá hverra? Þau viðhorf til nýtinga orkuauð- linda sem hér eru til umræðu kalla á meiri áherslu á nýtingarrannsókn- ir, svo sem þróun aðferða til að meta stærð og vinnslueiginleika háhitasvæða og allt sem lýtur að því að bæta nýtni í orkuvinnslu. Eins og glöggt má sjá af meðfylgj- andi línuritum er nákvæmni í mati á vatnsorku háð vitneskju um vatns- rennsli og langtímabreytileika þess. Kanna þarf gaumgæfilega kosti þess að samnýta háhita- og vatns- orku þannig að heildarnýtni orkunn- ar verði sem best á hveijum tíma. Þar sem framburður jökulánna er líklegur til að geta takmarkað þann eiginleika vatnsorkunnar að vera endurnýjanleg, þ.e. það tíma- bil sem hægt er að ná hámarks- nýtni úr vatnsorku er augljóst að rannsóknir á aurburði eru mikilvæg- ur liður í mati á vatnsorku. Höfundar cru sérfrœðingar hjá Orkustofnun. GERÐUR HÓLM + Gerður Hólm fæddist í Reykjavík 24. nóv- ember 1943. Hún lést á Landspítalan- um í Reykjavík 1. apríl síðastliðinn og fór útförin fram frá Fossvogskapellu 11. apríl. Gerður Hólm hefur kvatt þennan heim. Æðrulaust og með reisn tók hún þeim skapadómi fyrir rúmu ári, að hún væri haldin svo banvænni veiki, að hún ætti tæpast meira en eitt ár ólifað og nú er göngu hennar lokið og hún aðeins 52 ára. Frá okkar fyrstu kynnum hefur Gerður ávallt staðið mér fyrir hug- skotssjónum sem brosmild og kát stúlka. Hún var raunsæ og reynd- ist mesta myndarkona, hjartahlý og trygglynd. Það var fyrir nærri 44 árum að við auglýstum eftir stúlku til að- stoðar á heimilinu og að gæta tveggja sona okkar, sem voru á 1. og 3. ári. Nokkrum kvöldum síðar komu til okkar mæðgurnar Guðbjörg Einarsdóttir og Gerður, dóttir hennar á 8. ári. Guðbjörg vildi ráða sig. Nokkur augnablik var ég í vafa um hvort við ættum með ráðn- ingu hennar að taka þriðja barnið inn á heimilið. Guðbjörg horfði á okkur þessum góðlátlegu augum sín- um og stundi því upp, að hana hefði dreymt Guðrúnu á Ráðningar- stofu Reykjavíkur um nóttina og það hlyti að vera fyrir góðu, þannig hefði það reynst sér. Um leið og við heyrðum um drauminn, var ráðning hennar ákveðin og að sú litla fylgdi með. Hvílíkt lán. Það var sannarlega gæfuspor fyrir okkur öll. Guðbjörg reyndist okkur vel, þau þijú ár sem hún var hjá okkur. Hún giftist og þær mæðgur fluttust til Njarðvík- ur. Gerður varð litlu bræðrunum sem stóra systir og varð öllum, sem kynntust henni, til óblandinnar ánægju. Vináttuböndin sem ofist höfðu á milli okkar slitnuðu ekki og við fylgdumst með hvernig Gerði vegn- aði og hún fylgdist af áhuga með Minningargreinar og aðrar greinar FRÁ áramótum til 15. febrúar sl. birti Morgunblaðið 890 minn- ingargreinar um 235 einstaklinga. Ef miðað er við síðufjölda var hér um að ræða 155 síður í blaðinu á þessum tíma. í janúar sl. var papp- írskostnaður Morgunblaðsins rúmlega 50% hærri en á sama tíma á árinu 1995. Er þetta í sam- ræmi við gífurlega hækkun á dag- blaðapappír um allan heim á und- anfömum misserum. Dagblöð víða um lönd hafa brugðizt við miklum verðhækkunum á pappír með ýmsu móti, m.a. með því að stytta texta, minnka spássíur o.fl. Af þessum sökum og vegna mikillar fjölgunar aðsendra greina og minningargreina er óhjá- kvæmilegt fyrir Morgunblaðið að takmarka nokkuð það rými í blað- inu, sem gengur til birtingar bæði á minningargreinum og almenn- um aðsendum greinum. Ritstjórn Morgunblaðsins væntir þess, að lesendur sýni þessu skilning enda er um hófsama takmörkun á lengd greina að ræða. Framvegis verður við það mið- að, að um látinn einstakling birt- ist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd en lengd annarra greina um sama einstakling er miðuð við 2.200 tölvuslög eða um 25 dálks- entimetra í blaðinu. í mörgum tilvikum er samráð milli aðstandenda um skrif minn- ingargreina og væntir Morgun- blaðið þess, að þeir sjái sér fært að haga því samráði á þann veg, að blaðinu berist einungis ein megingrein um hinn látna. Jafnframt verður hámarks- lengd almennra aðsendra greina 6.000 tölvuslög en hingað til hefur verið miðað við 8.000 slög. t Hjartkær eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN BJÖRGVINSSON, Krókahrauni 12, sem andaöist að kvöldi 8. apríl, verður jarðsunginn frá GarðakirJcju þriðjudag- inn 16. apríl kl. 13.30. Guðbjörg Erlendsdóttir, Kristinn Sævar Kristinsson, Sigríður Hallgrímsdóttir, Erla Vigdis Kristinsdóttir, Þorgeir Þorbjörnsson, Guðfinna Björg Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona, móðir og systir, SIGURLAUG RAGNHEIÐUR KARLSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Garðakirkju, Álfta- nesi, miðvikudaginn 17. apríl, kl. 15.00. Bióm og kransar eru vinsamlegast af- þakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Samtök um byggingu tónlistarhúss í síma 562 9277. Páll B. Helgason, Arna Hrönn Pálsdóttir, Snorri Karlsson, Gunnlaug Dröfn Pálsdóttir, Hörður Karlsson, Ragnheiður Líney Pálsdóttir, Rósa Björg Karlsdóttir Snorri Karl Pálsson. uppvexti „upeldisbræðra“ sinna og tveggja dætra okkar, er seinna komu til. Ég minnist þess sérstak- lega hve ánægjulegt það var að samgleðjast Gerði í brúðkaup- sveislu hennar og eftirlifandi eigin- manns hennar, Valgeirs Rögn- valdssonar, hjónaband þeirra var farsælt. Gerður missti móður sína úr sama banvæna sjúkdómnum fyrir nokkrum árum. Þær mæðgur, eða Gerður ein, komu stundum í heimsókn til okk- ar í bæjarferðum. Það voru fagn- aðarfundir þar sem lífsgleðin geisl- aði. Nú er þessi sólargeisli, sem Gerður var, horfinn úr húsinu, sem þau Valgeir reistu saman og mik- ill hlýtur söknuður hans að vera. Huggunin er að eiga góðar minn- ingar um yndislega manneskju, sem við deilum með honum. Megi þetta innra ljós, sem einkenndi Gerði, umvefja hana á nýjum slóð- um. Herdís Þorvaldsdóttir. Svo örstutt er bil milli blíðu og sólar og brugðist getur lánið frá morpi til kvölds. Þessar ljóðlínur koma upp í huga okkar þegar einn af okkar sam- starfsfélögum, Gerður Hólm, lést um aldur fram, aðeins 52 ára að aldri. Við vildum ekki trúa þessu, hún sem var svo ákveðin í að vinna þetta stríð. Það er svo stutt síðan við stóðum í sömu sporum, þegar önnur vin- kona okkar var tekin frá okkur allt- of fljótt, en við getum víst ekki sagt við hinn óvelkomna gesfc,-^ bíddu, ég er ekki tilbúin. Vonandi eru þið vinkonurnar búnar að hittast á fögrum stað og yljið ykkur við minningarnar sem við öll áttum saman. Á lífsvegi okkar allra eru vega- mót, líka á stórum vinnustað. Stundum eru á veginum steinar sem þarf að sneiða hjá. Þá er gott að eiga vini sem hægt er að treysta. Þú varst ein af þeim. Við sem unnum með þér vorum þínir vinir og ef eitthvað bjátaði á stóðum við öll saman sem einn maður, og þær minningar verða okkur kannski þær dýrmætustu að leiðarlokum. Við kveðjum þig nú og kannski hittumst við öll aftur um síðir. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi og gæfa var það öllum er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Eiginmanni hennar sendum við innilegar samúðarkveðjur og biðjum Guð að gefa honum styrk í sorg sinni. Starfsfólk Samkaupa. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN EGGERTSSON, Hamraborg 18, áður Álfhólsvegi 45, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þann 8. apríl, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 16. apríl kl. 15.00. Guðrún Sveinsdóttir, Sævar Björnsson, Sigriður V. Guðmundsdóttir, Eggert P. Björnsson, Ingigerður Björnsdóttir, Eysteinn Jónsson, Svandís Þóroddsdóttir, Ómar Ellertsson, Gunnar Þ. Þórisson, barnabörn og barnabarnabörn. t Systir okkar, JÓNA BJÖRG SIGURJÓNSDÓTTIR, vistheimilinu Seljahlíð, áður Bólstaðarhlíð 40, er lést í Landakotsspítala að morgni páskadags, verður jarðsungin frá Frí- kirkjunni mánudaginn 15. aprfl kl. 13.30. Guðrún Ósk Sigurjónsdóttir, Hanna Áslaug Vander Laan, Ásgeir Sigurjónsson og aðrir ástvinir. t Elsku bróðir minn, GÍSLI RAGNARSSON, Hverfisgötu 32, Reykjavík, lést á heimili sínu þann 30. mars sl. Jarðarförin hefur farið fram. María Guðmundsdóttir. t Móðir okkar, KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, Mánabraut 6a, Akranesi, sem lést í sjúkrahúsi Akraness 8. apríl, verður jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudaginn 16. apríl kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Sjúkrahús Akraness. Soffía Karlsdóttir, Ólína Björnsdóttir, Þórhallur Björnsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.