Morgunblaðið - 14.04.1996, Side 31

Morgunblaðið - 14.04.1996, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1996 31 JÓNA BJÖRG * * SIG URJONSDOTTIR + Jóna Björg- Sig- urjónsdóttir fæddist í Reykjavík 24. febrúar 1913. Hún lést á Landa- kotsspítala 7. apríl síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Siguijón Jónsson, f. 29. október 1875, d. 28. nóvember 1932, og Ingiríður Jóhannesdóttir, f. 11. febrúar 1887, d. 1. júní 1960. Börn þeirra og systkin Jónu voru Oskar, f. 1916, d. 1918; Guðrún Ósk, f. 23. nóvember 1920, hennar maki er Ingólfur Ise- barn, f. 14. október 1915, þau eiga sex börn; Asgeir, f. 16. febrúar 1923, hans maki er Þórunn Ingvarsdóttir, f. 6. desember 1923, þau eiga þrjú börn; Jó- hannes, f. 1925, d. 1925; og Hanna Ás- laug, f. 25. október 1927, hún á sex börn, hennar maki var Gordon Vander Laan, þau slitu sam- vistum. Útför Jónu Bjarg- ar fer fram frá Fríkirkjunni á morgun og hefst athöfnin klukkan 13.30. Lát Jónu frænku minnar kom okk- ur sem með henni fylgdumst ekki á óvart. Hennar tími var kominn og hún var sátt við það. Siguijón faðir Jónu var frá Breið- holti við Reykjavík, en þar hafði fað- ir hans, Jón Jónsson, og móðir hans, Björg Magnúsdóttir, búið. Þau áttu ættir að rekja víða úr nágrenni borg- arinnar. Ingiríður móðir Jónu, eða Inga amma eins og við kölluðum hana, var fædd á Skáney í Reyk- holtsdal. Hún átti skyldfólk víða í Borgarfirði. Jóna var elst sinna systkina. Það mæddi því mjög á henni þegar þijú dauðsföll verða í íjölskyldunni á stuttum tíma. Oskar bróðir hennar deyr aðeins tveggja ára gamall úr mislingum, Jóhannes deyr við fæð- ingu og síðan deyr faðir hennar þeg- ar hún er nítján ára gömul. Þessi ótímabæru dauðsföll settu mark sitt á Jónu. Jóna var þekkt fyrir góða greind og gott minni, en skólaganga hennar var ekki löng, aðeins bamaskóli sem lokið var fyrir fermingu. Þrátt fyrir mikla samviskusemi og handlagni bjó Jóna ávallt við lægstu laun sem þekktust í þjóðfélaginu. Með stakri reglusemi og nýtni tókst henni þó að vera sjálfri sér nóg og reyndar aflögufær. Hún kom sér upp fallegu og góðu heimili í Bólstaðarhlíð í Reykjavík. Við fráfall eiginmanns og föður kom það sér vel hvað amma Inga og Jóna voru duglegar og samrýnd- ar. Það verður að teljast mikill sigur fyrir þær á erfiðum tímum að þeim tókst að koma í veg fyrir að heimilið sundraðist og saman bjuggu þær á meðan báðar lifðu. Jóna var sérstaklega ættrækin, þekkti vel skyldfólk sitt og fylgdist með því, heimsótti það og var ein- staklega minnug á nöfn og annað sem því við kom. Jóna frænka giftist ekki og átti ekki börn en umhyggja hennar kom vel fram við okkur börn systkina hennar og bamabörn. Þó að hópurinn væri stór þá kom hún alltaf færandi hendi með góðar gjaf- ir á afmælum og jólum, þegar þörf var á og tækifæri gáfust. Jóna hafði yndi af ferðalögum. Á sínum yngri árum fór hún gangandi eða hjólandi um nágrannasveitir borgarinnar. Hún lagði á minnið nöfn á fjöllum, dölum og bæjum og síðar þegar við ókum saman um þessi svæði þá gat hún miðlað af þekkingu sinni. Jóna var trúuð kona og oft á pásk- um var gengið til kirkju. Ég man vel eftir einum páskadagsmorgni í glaða sólskini þar sem lagt var af stað um sjöleytið frá Miðtúni 20. Amma var í peysufötum með skott- húfu, Jóna í fallegri kápu með hatt og síðan var gengið niður Laugaveg- inn. í hópinn bættust vinkonur í sín- um fínustu fötum og þegar komið var í Fríkirkjuna fyrir klukkan átta samanstóð hópurinn af fimm eða sex konum og einum strák sjö eða átta ára gömlum. Jóna var þakklát fyrir þá góðu umönnun og aðhlynningu sem hún fékk í Seljahlíð og á Landakotsspítal- anum. í mínum huga var sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með störfum þessa fólks þar sem nærgætni og umhyggja voru í fyrirrúmi. Við aðstandendur Jónu þökkum fyrir það. « Blessuð sé minning Jónu Bjargar Siguijónsdóttur. Örn ísebarn. Nú að leiðarlokum langar okkur að minnast Jónu Siguijónsdóttur, sem lengi hefur átt samleið með okkur. Jóna var elst af sínum systkinum. Þau misstu snemma föður sinn sem hafði átt við löng veikindi að stríða. Inga móðir þeirra varð að bjarga sér ein með heimili sitt og börn. Jóna á því langan vinnudag að baki. Lengst af vann hún við saumaskap. Hún kom sér ávallt vel í vinnu enda dug- leg og samviskusöm. Jóna hélt heim- ili með móður sinni á meðan hún lifði, en bjó ein eftir það. Jóna var einstaklega ræktarsöm við skyldfólk sitt. Hún fylgdist með öllum sínum systkinabörnum og barnabömum af miklum áhuga. Hún vissi hvað allir voru að fást við, hrós- aði bömum og ungu fólki og var stolt af þeim eins og þau væm henn- ar eigin börn. Jóna var ótrúlega fróð og minnug. Það var lærdómsríkt að fara með henni í beijamó og ökuferðir. Ekki síst í Borgarfjörðinn þar sem hún var vel kunnug. Við kveðjum Jónu með söknuði og minnumst góðra stunda með henni. Þei, þei og ró. Þögn breiðist yfir allt. Hnigin er sól í sjó. Sof þú í blíðri ró. Við höfum vakað nóg. Værðar þú njóta skalt. Þei, þei og ró. Þögn breiðist yfir allt. (Jóh. Jónsson.) Margrét Eiríksdóttir, Eiríkur, Ingólfur, Örn, Sveinn, Hekla og Kristín Inga Arnarbörn. + Gísli Ragnars- son fæddist 8. júlí 1943 í Reykja- vík. Hann andað- ist að heimili sínu, Hverfisgötu 32 í Reykjavík, 30. mars sl. Foreldrar hans voru Esther Svanlaug Þor- steinsdóttir, f. 15. apríl 1926, d. 26. október 1993, og Ragnar Halldórs- son, f. 11. október 1922, d. 20. sept. 1993. Systkini hans voru: Þórunn Pétursdótt- ir, f. 29. ágúst 1946, d. 19. júlí 1992, Inga Ragnarsdóttir, f. 14. des. 1947, María Ragnarsdóttir, Systursonur minn, Gísli Ragnars- son, andaðist á heimili sínu hér í bæ 30. mars sl. aðeins 52 ára gamall. Mig langar til þess að minnast hans með nokkmm orðum. Líf hans var ekki dans á rósum og átti áfengi þar stóran þátt í, en það var mikill áhrifavaldur i lífi hans allt frá unglingsámm. Hann stundaði sjómennsku á fyrri árum og vann við jámabindingar í nokkur ár. Hann var hamhleypa til vinnu og vann í skorpum en það átti best við hann og þannig lifði hann líka. Hann ók eigin sendibíl um tíma og gat sér alls staðar gott orð sem duglegur og ósérhlífinn verkamaður. Sérstak- lega voru lofaðar járnabindingar hans sem báru af fyrir fagmennsku og gott handbragð. Nú síðustu ár átti hann við heilsuleysi að stríða, f. 14. des. 1950, og María Guðmunds- dóttir, f. 8. nóv. 1956. Gísli eignaðist átta börn og eru þau þessi: Þorsteinn, f. 27. júní 1961, Esther, f. 16. des. 1962, Guð- mundur, f. 9. sept. 1964, Gísli, f. 1. jan- úar 1966, Einar, f. 21. mars 1967, Jó- hann, f. 20. mars 1969, Sandra, f. 1. maí 1972 og Sævar, f. 5. okt. 1978. Barna- börnin eru tíu tals- ins. Útför hans var gerð í kyrr- þey frá Fossvogskapellu föstu- daginn 12. apríl. hann gat ekki unnið á sama hátt og áður og angraði það hann töluvert. María, systir hans, lýsir honum á eftirfarandi hátt, en þau ólust upp á heimili móður þeirra: „Bróðir minn var einfari á margan hátt og hann var ekki allra. Hann var bráðvel- greindur og víðlesinn. Hann hafði næmar tilfinningar, sem hann var dulur á. Ekki fengu allir að sjá þær tilfinningar, þær komu þó vel í ljós í þeirri umhyggju sem hann sýndi kisunni sinni, honum herra Tómasi. Hann var mikill dýravinur. Ég var litla systir hans, sem honum þótti ósköp vænt um. Hann vissi að ég átti erfitt með að þola drykkjuna hans og meðan ég var yngri vildi ég ekkert með hann hafa fullan. En samband okkar var þó á margan hátt sérstakt, tengsl okkar voru náin og þó aldrei nánari enn eftir andlát móður okkar fyrir rúmum 2 árum síðan. Ég var hætt að reyna að breyta honum og tók hann eins og hann var.“ Þessi orð lýsa Gísla mjög vel og þeirri staðreynd að bak við hijúfa framkomu bjó fögur sál, sem elskaði börn sín, þótt lífið leyfði honum ekki að sýna þeim hans innri mann eins og hann hefði helst kosið. Þótt Gísli væri ekki ríkur af ver- aldarauði átti hann arfleifð sem margir geta öfundað hann af. Hann eignaðist átta mannvænleg böm, sem öll fylgdu honum til grafar og munu sakna hans, hvert með sínu móti. Á himninum tekur á móti hon- um ástrík móðir, sem alla tíð stóð við hlið drengsins síns á hveiju sem gekk, og hann fær nú að fagna með henni á sjötíu ára fæðingardegi hennar. Ég þakka frænda mínum góð kynni og óska honum góðrar heim- komu í faðm elskulegrar móður og annarra ættmenna. Litla systir, sem kom yfir lönd og höf, til þess að vera við og sjá um útför hans á virðu- legan hátt þakkar honum samveruna og allar góðu stundirnar, sem aldrei gleymast, og hún mun segja ófæddu barni sínu frá þegar árin líða. Við öll, ættingjar hans og vinir, kveðjum hann með kvæði skáldsins Davíðs Stefánssonar: Gott er sjúkum að sofna, meðan sólin er aftanijóð, og mjallhvítir svanir syngja sorgblíð vögguljóð. Gott er sjúkum að sofa, meðan sólin í djúpinu er, og ef til vill dreymir þá eitthvað, sem enginn í vöku sér. Jörundur Þorsteinsson. GÍSLIRAGNARSSON GUÐMUNDUR SIGFÚSSON + Guðmundur Sigfússon fæddist í Egilsstaðakoti í Flóa 16. maí árið 1913. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 28. mars síðastliðinn og fór útförin fram frá Þorlákskirkju 6. apríl. Það er óðum að hverfa úr þessum heimi fullorðna fólkið sem markaði djúp spor í líf mitt á æskuárunum og skilur eftir sig minningar sem eru svo mikils virði. í þeim hópi er Guðmundur Sigfússon, pabbi henn- ar Lillu vinkonu minnar, sem lést 28. mars sl. Ég var fimm ára þegar við flutt- um að Fljótsdal í Fljótshlíð en þar vartvíbýli en í hinum bænum, Fljóti, bjuggu hjónin Guðmundur og Þor- björg ásamt 6 börnum sínum sem urðu síðar átta. Bæirnir voru á sama hlaðinu, mikill samgangur varð á milli og ekki síst hjá okkur krökkunum. Ég minnist þess hve léttur og kátur í skapi Guðmundur var. Oft kom hann í kaffisopa til okkar á morgnana og man ég hvað mér fannst það skemmtilegt. Hann gat alltaf sagt svo skemmtilega frá og hlegið dátt. Guðmundur var mjög barngóður og gleymi ég ekki er hann kom einu sinni af vertíð og gaf mér 50 þorsk- hausa sem átti að herða. Ég skildi það seinna að auðvitað var þetta gjöf til foreldra minna þar sem þau höfðu eitthvað litið til með fjölskyld- unni á meðan hann var í hurtu en þessi gjöf gladdi mig mikið enda var þetta betra en nokkurt sælgæti. Hann gaf sér líka tíma til að tala við okkur bömin og fylgjast með því sem við vorum að gera. Guðmundur var laglegur maður með mikið hrokkið hár sem var byijað að grána þegar ég fyrst man eftir honum. Hann var ákaflega góður og hjálpsamur nágranni og var alltaf tilbúinn að leggja fram krafta sína ef með þurfti. Hið létta skap Guðmundar hefur áreiðanlega komið sér vel í lífinu. Hann átti líka trausta konu sem alltaf hélt ró sinni og annaðist stóra barnahópinn sinn. Ég minnist hennar oft þar sem hún sat í horninu sínu við að pijóna eða gera við föt. Það var líka aðdáunar- vert hve snyrtileg og vel klædd börnin voru. Ég er þakklát fyrir að hafa feng- ið að njóta samvista við þetta fólk þessi ár í Fljótsdal sem voru bara fimm, en fimm ár hjá barni eru langur tími og þetta var hamingju- ríkur tími þó að lífsbaráttan hafi verið hörð. Eftir að Guðmundur og fjölskylda fluttu til Þorlákshafnar 1959 hitti ég þau sjaldnar. Guðmundur kom þó oft í sveitina sína og þá var gaman að hitta hann því alltaf var hann jafn léttur og skemmtilegur. Ég og fjölskylda mín vottum Þorbjörgu, systkinunum og fjöl- skyldum þeirra innilega samúð okk- ar. Frá foreldrum mínum flyt ég kveðju og þakklæti til góðs vinar og nágranna með innilegum samúð- arkveðjum til fjölskyldunnar. Hrefna Jónsdóttir. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR DANI'ELSDÓTTIR, Grundargerði 31, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 16. apríl kl 13.30. Ingibjörg Sigurðardóttir, Una Sigurðardóttir, Leifur Eiriksson, Margrét Sigurðardóttir, Gunnar Sigurðsson, HuldaVídal og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR SKARPHÉÐINSSON, Reynimel 54, Reykjavik, er lést 8. apríl sl., verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn 16. apríl kl. 13.30. Helga Jónsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Hans Þór Jensson, Gerður Sigurðardottir, Eyjólfur Sæmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð virðingu, samúð og hlýhug vegna fráfalls JÓHANNS ARNARBOGASONAR rafvirkjameistara, Einigrund 22, Akranesi. Vigdi's Guðbjarnadóttir, Vignir Jóhannsson, Brynja Jóhannsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.