Morgunblaðið - 19.05.1996, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 19. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
TJHZKSMUK
Z\FEU>MAAÐUZ\
/wyuPA-
i/éL-
I UPP/I4SÐ HOFUÞ/H!
UER/D TÍ6UI-EG /
I þAÐEZGAMAU AÐ
j VEEA MYAJDAEFN/
~ ----i
Grettir
t/IÐ RÓJ2DMI \
SIR.KVS J
mÚE>UK WOKKOR'ASAKAÐy
MIG UM AE> t-lKJA EFTIR;
80NINÖMUM
Tommi og Jenni
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
Port-útsala!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavik • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Þess vegna var hætt
að selja 98 oktana
bensín á Islandi
Svar við spurning-
um Davids Butts
Frá Gunnari R. Kvaran:
9. maí síðastliðinn birtist grein í Morg-
unblaðinu eftir David Butt á Akranesi
undir fyrirsögninni „Hví var hætt að
selja 92 oktana bensín á íslandi?“. í
grein sinni beinir höfundur meðal ann-
ars tveimur spumingum til olíufélag-
anna þar á meðal til Skeljungs hf. og
er okkur ljúft að svara þeim.
Fyrri spurning Davids Butts hljóðar
svo: „Hver var raunverulega ástæðan
fyrir því að olíufélögin hér á íslandi
hætta sölu á 92 oktana bensíni og
flytja nú inn mun dýrara og hættu-
legra 98 oktana bensín í staðinn?"
Það er misskilningur hjá fyrirspyij-
anda að 98 oktana bensín hafi komið
í staðinn fyrir 92 oktana bensín. 95
oktana bensín hefur leyst 92 oktana
bensín af hólmi og í dag er svo kom-
ið að 90% af bensíni sem selt er á
íslandi er 95 oktana bensín. 98 okt-
ana bensín var fyrir á íslenska mark-
aðnum, hins vegar varð sú breyting
á að í stað 98 oktana blýbensíns er
nú flutt inn 98 oktana blýsnautt bens-
ín. Sú ákvörðun að hætta innflutningi
blýbensíns er í takt við þróun sem
verið hefur hér á landi og í nágranna-
löndunum og miðar að því að draga
úr mengun andrúmslofts. Það hefur
verið keppikefli stjómvalda og heil-
brigðisyfirvalda víða um lönd að
draga úr blýmengun. Hér á landi
hefur þetta meðal annars birst í sér-
stakri skattlagningu á blýbensín.
Ástæða þess að Skeljungur hf.
hætti innflutningi á 92 oktana bens-
íni er fyrst og fremst sú að Skeljung-
ur hf. kaupir allt bensín frá Noregi.
Þar í landi, eins og víða annars stað-
ar, hefur framleiðslu á 92 oktana
bensíni verið hætt. Því þurfti að sér-
blanda 92 oktana bensín fyrir íslands-
markað með æmum tilkostnaði. Þetta
þýddi að innkaupsverð á 92 oktana
bensíni var orðið nánast hið sama og
á 95 oktana bensíni og því var fyrir-
sjáanlegt að hækka þurfti verð á 92
oktana bensíni til íslenskra neytenda
ef halda átti áfram innflutningi á
því. Áður en sölu á 92 oktana bensíni
var hætt hér á landi hafði sala á 95
oktana bensíni verið að aukast jafnt
og þétt á kostnað 92 oktana bensíns,
enda mæla framleiðendur flestra bíla
nú orðið með því að notað sé 95 okt-
ana bensín á bílana.
með hliðsjón af ofangreindu og að
teknu tilliti til þess hagræðis sem leið-
ir af því að fækka bensíntegundum
í dreifíngu, úr þremur í tvær, lá beint
við að stíga þetta skref. Þessi ákvörð-
un hefur nú þegar komið íslenskum
neytendum til góða, því hún hefur
gert félaginu kleift að draga úr áhrif-
um þeirra miklu erlendu verðhækk-
ana sem orðið hafa á bensínmarkaði
að undanfömu.
Síðari spuming Davids Butts hljóð-
aði svo: „Hvers vegna getur Shell
selt 91/92 oktana bensín í Evrópu
og Nýja Sjálandi, en svo er það ekki
hægt á íslandi?"
Svarið við þessari spumingu er í
meginatriðum það sama og við fyrri
spumingunni. I dag kaupir Skeljung-
ur hf. allt bensín frá Noregi. Það er
styst og hagkvæmast að sækja bens-
ínið til Noregs auk þess sem Norður-
sjávarolían sem Norðmenn vinna
bensínið úr er annáluð fyrir gæði.
Sölu á 91/92 oktana bensíni hefur
verið hætt víðast hvar í Evrópu. Þó
má enn fínna það í Danmörku, Þýska-
landi, Lúxemborg og Austurríki. Ljóst
er að miðað við flutningskostnað
myndi það ekki vera íslenskum neyt-
endum til hagsbóta að hefja innflutn-
ing á 92 oktana bensíni frá þessum
löndum. Þaðan að síður kæmi til
greina að kaupa það frá Nýja Sjá-
landi, Singapore eða Ástralíu. Ætti
varla að þurfa að rökstyðja það.
GUNNAR R. KVARAN,
upplýsingafulltrúi Skeljungs.
Bréf til borgarsljóra
Reykjavíkur
Frá Guðmundi Bergssyni:
ÉG undirritaður vil benda borgar-
stjóra Reykjavíkur á leið til að spara,
þó í smáum stíl sé og sá spamaður
kemur ekki við neinn. Þannig er að
ég, ásamt örugglega þúsundum Reyk-
víkinga, fæ send tvö bréf með rukkun
um fasteignagjöld, annað af húsinu,
hitt af bílskúmum. Þetta tel ég helm-
ing of mikið. Það hlýtur að vera
hægt að koma þessu fyrir á einum
gíróseðli og spara um leið einn gíró-
seðil, eitt umslag og eitt póstburðar-
gjald. Það sýnist ekki mikið í fljótu
bragði, en þegar þúsundir Reykvík-
inga fá svona tvöfalda sendingu í
hverjum mánuði, hálft árið þá dregur
það sig saman. Svona kerfí hlýtur að
mega breyta, þetta eru hrein auka-
útgjöld sem best væri að afleggja hið
fyrsta.
Svona lagað, eins og að senda tvö
bréf, þykja svo miklir smámunir að
ekki taki að tala um þá, þó spara
megi milljónir með því að hætta því,
ásamt mörgu sem finna mætti í kerf-
inu ef leitað yrði, sem mér fyndist
að ætti að gera, því það er fólkið í
bænum sem borgar og ég sé ekki
þörf á að viðhalda einhveiju vitleysis
kerfi engum til góðs, bara aukin út-
gjöld. Þessvegna vil ég mælast til
þess við borgarstjórann í Reykjavík
að hann láti kanna ýmiss konar auka-
útgjöld hjá borginni sem hægt er
með góðu móti að leggja niður og
spara með því stórfé í stað þess að
bæta alltaf á auknum álögum. Margt
smátt gerir eitt stórt, segir gamalt
máltæki.
Borgarstjórinn er í vinnu hjá okkur
sem stöndum undir rekstri borgarinn-
ar, hugsum því hlýlega hvert til ann-
ars.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178, Reykjavík.
Allt efni sem birtist f Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.