Morgunblaðið - 08.06.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.06.1996, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Geisladiskur með íslandskortum Morgunblaðið/Kristinn KRISTJÁN Gíslason, framkvæmdastjóri Radiómiðunar, gerir grein fyrir notkunarmöguleikum nýja geisladisksins með ís- landskortum Landmælinga íslands. Útvarpsréttarnefnd Utvarpsleyfi Sýnar endurnýjað Endurnýjunin gildir í sjö ár FYRIRTÆKIÐ Radíómiðun hf. hefur í samvinnu við Landmæling- ar Islands sett Islandskort Land- mælinga á geisladisk. Kortin hafa verið skönnuð saman þannig að notandinn getur skoðað þau óháð blaðskiptingu. Á geisladiskinum er yfirlitskort í mælikvarðanum 1:500.000, 9 kort í mælikvarðanum 1:250.000 og 102 kort í mælikvarðanum 1:50.000. Hvert kort er stækkanlegt um einn mælikvarða. Kortin eru not- uð með hugbúnaðinum MaxSea eða MaxLand og velur tölvan ætíð besta fáanlega kortið þegar ákveðið svæði er skoðað. Geisla- diskurinn er bæði fyrir PC Windows og Power Macintosh. Samkvæmt upplýsingum frá Radíómiðun opnar geisladiskur- inn notendum ýmsa nýja mögu- leika, m.a. þann að hægt er að fylgjast með ferli hlutar á hreyf- ingu á tölvuskjánum með því að tengja tölvuna GPS-staðsetning- artæki. Dæmi um slíkt er að Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði notar hugbúnaðinn til leiðaut- reikninga. Með því að nota Is- landskortin i leiðsögutölvunni geta félagar hennar ferðast af meira öryggi í vályndum veðrum. Þá fylgist Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík með ferðum ferða- manna á íslandskorti Landmæl- inga á skjá stjórnstöðva sinna en staðsetningarupplýsingar berast á einnar kiukkustundar fresti um Argos-gervihnattaeftirlitskerfið frá þeim sem bera Argos-sendi- búnað. ÚTVARPRÉTTARNEFND hefur endurnýjað útvarpsleyfi Sýnar hf. til næstu 7 ára. Sýn hefur VHF-rás til afnota ótímabundið. Samgöngu- ráðuneytið úthlutaði Sýn rásinni á sínum tíma. Kjartan Gunnarsson, formaður Úvarpsréttarnefndar, tók fram að útvarpsleyfum fylgdi ekki sjalfkrafa senditíðni af neinu tagi. Úthlutun og ráðstöfun senditíðni væri alfarið í höndum Fjarskiptaeftirlits ríkisins og yfirvalda fjarskiptamála í sam- ræmi við gildandi lög. Útvarpsleyfi væri því hvorki ávísun á senditíðni né væri fjarskiptayfirvöldum skylt að tryggja handhafa útvarpsleyfis senditíðni. Hins vegar væri sameig- inlegur skilningur Útvarpsréttar- nefndar og yfirvalda fjarskiptamála að senditíðni til útvarps, hljóðvarps og sjónvarps, til annarra en Ríkisút- varpsins og útvarps varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli verði aðeins út- hlutað til þeirra sem hafa fengið úthlutað fullgildu útvarpsleyfi frá Útvarpsréttarnefnd. Framgangsmáti með venjulegum hætti Kjartan sagði að framgangsmáti endumýjunar útvarpsleyfis Sýnar hefði verið með ofur venjulegum hætti. Sýn hefði sótt um endurnýjun Ieyfisins með góðum fyrirvara snemma í vor. Eftir að tryggt hefði verið að sjónvarpsstöðin uppfyllti öll skilyrði hefði leyfið svo verið end- urnýjað. Leyfíð væri endurnýjað til 7 ára. Áburðarverksmiðjan í viðræðum um samstarf við endurvinnslu smurolíu Kostnaður vegna verk- smiðju yrði 2 milljarðar ÁBURÐARVERKSMIÐJAN hf. í Gufunesi stendur í viðræðum við bandarískt fyrirtæki um hugsan- legt samstarf um endurvinnslu smurolíu hér á landi. Hákon Bjömsson, framkvæmdastjóri, gerir ráð fyrir að ákvörðun um hvort af verði liggi fyrir eftir um ár. Hann segir að fyrirliggjandi gögn geri ráð fyrir að 30 milljónir dollara eða tvo milljarða króna kosti að reisa verksmiðju fyrir endurvinnsluna. Veltan yrði um 1,5 milljarðar á ári. Nú er velta Áburðarverksmiðjunnar um einn milljarður á ári. Hákon sagði að forsvarsmenn Áburðarverksmiðjunnar hefðu verið að leita fyrir sér á ýmsum sviðum að undanförnu. „Núna er verið að skoða hugsanlega sam- vinnu við bandaríska fyrirtækið Pura Lube um endurvinnslu á smurolíu. Fyrirtækið er að reisa vérksmiðju í Frakklandi. Við yfir- ferð um Norðurlöndin var svo borið niður hjá okkur enda hefur Áburðarverksmiðjan ýmsa kosti umfram önnur fyrirtæki. Hér er t.a.m. framleitt töluvert vetni vegna áburðarframleiðslunnar. Vetnið og ýmis aðstaða hér yrði notuð við endurvinnsluna,“ sagði Hákon. Hann sagði að starfsemin myndi byggja á því að safna sam- an notaðri smuroliu í Evrópu. „Smurolían yrði flutt hingað og endurunnin. Annars vegar yrði unnin úr henni hrein smurolíu og hins vegar efni til að nota í mal- bik. Hvort tveggja yrði svo flutt út til Evrópu og Bandaríkjanna," sagði hann. Hann sagði að eins og sakir stæðu væri miðað við að endurvinna um 70.000 tonn af smurolíu á ári. Að sögn Hákons gefa fyrirliggj- andi gögn til kynna að hagkvæmt yrði að reisa verksmiðjuna í tengsl- um við Áburðarverksmiðjuna. Kostnaður við að reisa verksmiðj- una er áætlaður um 30 milljónir dala eða 2 milljarðar íslenskra króna. Velta yrði 1,5 milljarðar á ári. Starfsmenn yrðu væntanlega um 30 talsins. Umhverfismat er í vinnslu og verður væntanlega skil- að inn til Skipulags ríkisins fljót- lega. Hákon gerir ráð fyrir að ákvörð- un um hvort af verður muni liggja fyrir eftir um ár. Fljótlega verði hægt að hefja framkvæmdir og endurvinnslan gæti hafist um ári eftir að ákvörun hefði verið tekin. Aðspurður sagði Hákon að banda- ríska fyrirtækið hefði áhuga á því að eignast meirihluta í verksmiðj- unni. Af hálfu Áburðarverksmiðj- unnar kæmi slík skipting til greina. Helmingur með beltin spennt Í TENGSLUM við átaksviku Umferðarráðs og bifreiða- tryggingafélaganna könnuðu deildir SVFÍ á 29 stöðum á landinu notkun bílbelta í um 19.000 bílum. Aðeins rúm- lega helmingur ökumanna og farþega nota bílbelti og er það mun minna en talið hefur verið hingað til. 52,8% öku- manna og 55,3% farþega í framsæti voru með beltin spennt og 53,5% farþega í framsæti. Spenntastir á Akureyri og Selfossi Ástandið var best á Selfossi og Akureyri þar sem um 72% ökumanna voru með beltin spennt og í Mosfellsbæ var 71% beltanotkun. Minnst var beltanotkunina á Djúpavogi eða 21% og hún var innan við 30% á sex stöðum. Skipulagsstjóri um Hágöngumiðlun Gera ekki nægilega grein fyrir verkinu SKIPULAGSSTJÓRI ríkisins hefur sögnum var málið athugað og lagt SSANGYONG Musso er nýjasti fjórhjóladrifsbíllinn á markaði á íslandi. Bílabúð Benna fær SsangYong-umboðið úrskurðað að frekari rannsókna sé þörf á áhrifum fyrirhugaðra fram- kvæmda Landsvirkjunar við Há- göngumiðlun. Landsvirkjun hefur kært úrskurðinn til umhverfisráð- herra. „Landsvirkjun lagði fram sína skýrslu um mat umhverfisáhrifa Hágöngumiðlunar," sagði Stefán Thors skipulagsstjóri ríkisins. „Það er hlutverk skipulagsstjóra að aug- lýsa eftir athugasemdum og óska eftir umsögnum um skýrsluna. Að fengnum athugasemdum og um- mat á það hvort í skýrslu Lands- virkjunar væri nægjanlega vel gerð grein fyrir framkvæmdinni, áhrif- um hennar á umhverfið og hugsan- legum mótvægisaðgerðum. Okkar mat var að svo væri ekki og var sú niðurstaða rökstudd með að frek- ari rannsóknir skorti. Þá niðurstöðu kærði Landsvirkjun til umhverfis- ráðherra og hef ég sent ráðherra umsögn rníha um þá kæru. Ráð- herra mun væntanlega á næstu vik- um úrskurða í málinu." BÍLABÚÐ Benna hefur fengið einkaumboð á íslandi fyrir suður- kóreska bílaframleiðandann SsangYong. SsangYong framleið- ir jeppann Musso og er markaðs- setning á honum hafin í Evrópu. Musso-jeppinn er með 2,9 lítra dísilvél frá Mercedes-Benz en þýski bílarisinn á stóran hlut í SsangYong og átti þátt í hönnun bílsins. Drifbúnaður í bílnum er frá bandarísku framleiðendunum Borg-Warner og Dana Spicer en bílinn hannaði Bretinn Ken Gre- enley. Musso er fimm manna jeppi í svipuðum stærðarflokki og Mitsubishi Pajero og Nissan Terrano II. Verðið á Musso á 31“ hjólbörðum og álfelgum er frá 2.795.000 krónur. Bílabúð Benna frumsýnir bílinn um helgina á Vagnhöfða 23. Lettnesk list við Túngötuna TILLÓGU um að staðsetja útilista- verk frá lettnesku ríkisstjórninni á horni Túngötu og Garðastrætis, hefur verið frestað í borgarráði. Hefur borgarskipulagi verið falið að kynna tillöguna fyrir næstu nágrönnum. I tillögu borgarskipulags kemur fram að verkið er eftir Paul Jaunz- ens og að lettneska ríkisstjórnin hyggst gefa það íslensku þjóðinni. Verkið heitir Support, 'og er úr granít. Það er 180 cm að hæð, 2 metrar á breidd og 3,5 metrar að dýpt. Höfundur kom til landsins og fór hann ásamt fulltrúa forsætis- ráðuneytisins og ræðismanni Lett- lands á ýmsa staði sem til greina komu og er lagt til að verkinu verði valinn staður á horni Tún- götu og Garðastrætis. Umhverfismálaráð hefur sam- þykkt tillöguna en bendir á að um mjög viðkvæman stað sé að ræða í borginni og því þurfi að vanda vel hönnun á svæðinu, þannig að vel spili saman, lista- verkið, umhverfið og notagildi svæðisins. Landsfundur Þjóð- vaka haldinn í Viðey ÞJÓÐVAKI heldur landsfund sinn í Viðey í dag. Fundurinn hefst kl. 11 og stendur hann til kl. 17. Jóhanna Sigurðardóttir, for- maður Þjóðvaka, setur fundinn. Farið verður yfir þingstörfin í vetur, stjórnmálaályktun verð- ur kynnt og lagabreytingar lagðar fram. Svanur Kristjáns- son heldur erindi í hádeginu. Reikningar verða afgreiddir kl. 14, farið verður yfir lagabreyt- ingar og stjórnmálaályktun samþykkt. Kosning stjórnar fer fram kl. 16. | i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.