Morgunblaðið - 08.06.1996, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 08.06.1996, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÖSTHÓLF 3040, NETFANG MBUtXENTRUM.lS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Fundur fulltrúa Islands og Noregs í Osló í dag Lausn Smugndeil- unnar í sjónmáli Mótmæli gegn „inn- flutningi“ á brauði Hellu. Morgunblaðið. HELLUBÚAR efndu í gær til þög- ulla mótmæla við verslun Kjarvals á Hellu, en það heitir matvöruverslunin á staðnum núna. Hún var áður rekin undir nafni Hafnar-Þríhyrnings hf. Með nýja nafninu voru ýmis tilboð í gangi, m.a. brauð frá bakaríi í Þor- lákshöfn. Heimamenn voru ekki al- veg sáttir við innrásina „að vestan", þar sem bakaríið á Hellu þykir fram- leiða afbragðs brauð og kökur, auk þess sem þetta þótti vera atlaga að rangæsku atvinnulífi. Brugðu Hellubúar því á það ráð að stilla bif- reiðum sínum upp með auglýsingum og áskorunum til viðskiptavina um að kaupa ekki „innflutt" brauð. Gestur Hjaltason, framkvæmda- stjóri Hafnar-Þríhyrnings, sagði Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir HELLUBÚAR settu mót- mælaspjöld í glugga bifreiða. þetta óþarflega harkaleg viðbrögð. „Viðskiptavinir okkar eiga að hafa frelsi til að velja. Ef þeir vilja ekki brauðin frá Þorlákshöfn þá hættum við að bjóða þau, það verður bara að koma í ljós. Þetta er eins og svo margt annað, við erum t.d. með margar kryddtegundir, enginn segir neitt við því. Fólk velur það sem því líkar best við, “ sagði Gestur. FUNDUR fulltrúa íslands, Noregs og Rússlands verður í dag í Ósló um skiptingu veiðiheimilda í Bar- entshafi. Halldór Asgrímsson utan- ríkisráðherra segir að í drögum að samkomulagi milli þjóðanna sé gert ráð fyrir að veiðiheimildir ísienskra skipa í Barentshafi verði ekki bundnar við Smuguna. „Ég tel að það sé möguleiki á að ná samkomulagi á fundinum. Ég tfeysti mér hins vegar ekki til að fullyrða um hvort það gerist. Það eru ýmsir endar lausir,“ sagði Halldór. Af hálfu íslands sitja samninga- fundinn Guðmundur Eiríksson þjóð- réttarfræðingur, Árni Kolbeinsson ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðu- neytinu og Álbert Jónsson frá for- sætisráðuneytinu. Þetta er fyrsti formlegi samn- ingafundur þjóðanna frá því að upp úr viðræðum slitnaði í október sl. Ráðherra og embættismenn í lönd- unum þremur hafa rætt óformlega saman undanfarna daga og vikur og í gær var það mat manna að grundvöllur væri kominn fyrir formlegar viðræður. Halldór sagði að það vantaði talsvert upp á að samningur lægi á borðinu, en það lægi fyrir samkomulag um grund- vallaratriði málsins, sem ætti að verða til þess að hægt væri að klára aðra þætti þess. Fyrir fundinn í Ósló var ræddur sá mö'guleiki að ráðherrar þjóðanna hittust um helgina til að undirrita samning um skiptingu veiðiheimilda í Barentshafi. Ráðherrarnir áttu hins vegar ekki allir möguleika á að koma á slíkan fund. Vladimir Korelski, sjávarútvegs- ráðherra Rússlands, hefur opinber- lega sagt að Noregur og Rússland hafi boðið íslandi 12.000 tonna kvóta í Barentshafi. Ekki er talið að íslensk stjórnvöld samþykki þá tölu óbreytta, en nefndar hafa verið tölur á bilinu 16.000 til 18.000 tonn. Stjórnsýslu ísafjarð- arbæjar dreift Hluti bók- halds á Þingeyri MEIRIHLUTI nýkjörinnar bæjar- stjórnar ísafjarðarbæjar hefur áform um að hafa hluta af skrif- stofuhaldi sveitarfélagsins á Þing- eyri og Flateyri. Samanlagðar skuldir sveitarfélaganna sem sam- einuðust í ísafjarðarbæ nema um 1,6 milljarði kr. Fyrstu verkefni bæjarstjórnar verða að samhæfa stjórnsýsluna í sveitarfélaginu og endurskipu- leggja fjármálin, að sögn Þorsteins Jóhannessonar, forseta bæjar- stjórnar. Tillögur eru um að dreifa stjórnsýslunni. Þannig er áhugi á að stjórna rekstri heilsugæslu og öldrunarheimila á Flateyri og Þingeyri frá gömlu hreppsskrif- stofunni á Þingeyri. Einnig kemur til greina að hafa hluta bókhalds- kerfisins þar, til dæmis innheimtu fasteignagjalda í öllu sveitarfélag- inu. ■ Stjórnsýslan dreifist/29 -----♦ ♦ ♦ Tveir á slysadeild HARÐUR árekstur varð á Selfossi síðdegis í gær og var tvennt flutt á slysadeild, farþegi og ökumaður. Ókumaður annars bílsins virti ekki stöðvunarskyldu með fyrr- greindum afleiðingum. Kalla þurfti út tækjabíl slökkviliðsins á Selfossi til að hreinsa slysstaðinn, en ekki kom til að klippa þyrfti fólk úr bílum. Bifreiðarnar báðar eru mikið skemmdar en meiðsli á fólki eru ekki talin meiriháttar að sögn lögreglu á Selfossi. einu blaði LESBÓK Morgunblaðsins og Menning/listir koma í dag út í einu blaði, sem ber nöfn beggja. Þetta er gert í tilefni af Listahá- tíð í Reykjavík 1996 og er efni blaðsins, sem er 20 síður, að mestu helgað hátíðinni. Lesbókin er elzta sérblað Morgunblaðsins, hóf göngu sína 1925. Þjóðin vill breyttar áherslur forseta 64% kjósenda vilja ekki auka völd forsetans TVEIR þriðju hlutar þjóðarinnar eru andvígir því að auka völd for- seta íslands. Þriðjungur kjósenda telur það hins vegar af hinu góða að forseta íslands verði veitt meiri pólitísk völd. 21,6% kjósenda eru algerlega andvíg því að forsetinn neiti að undirrita lög sem Alþingi hefur samþykkt, en 59,8% telja slíkt koma til greina, en aðeins í undantekningartilfellum. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun hefur gert fyrir Morgunblaðið. Meirihluti kjósenda allra fram- bjóðenda telur koma til greina að forsetinn neiti að undirrita lög sem Alþingi hefur samþykkt. Fjórðung- ur kjósenda Péturs Kr. Hafsteins er þessu algerlega andvígur. Þetta hlutfall er lægra hjá öðrum fram- bjóðendum og lægst hjá kjósendum Ástþórs Magnússonar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Kjósendur eru almennt þeirrar skoðunar að forseti íslands eigi að leggja meiri áherslu á að afla við- skiptatengsla erlendis en gert hefur verið. Helmingur stuðningsmanna Ólafs Ragnars leggur áherslu á þetta atriði, en 39,3% kjósenda Péturs Hafsteins leggja áherslu á það. Frumkvæði í þjóðmálum 58,7% kjósenda Ólafs Ragnars vilja að forsetinn leggi meiri áherslu á að veita Alþingi og ríkis- stjórn aðhald en gert hefur verið, en 48,8% kjósenda Péturs leggja áherslu á þetta. 45,5% kjósenda Péturs vilja hins vegar að forsetinn hafi meira frumkvæði á vettvangi þjóðmála og er það hærra hlutfall en hjá öðrum frambjóðendum. Kjósendur Ástþórs Magnússon- ar skera sig nokkuð úr í könnun- inni og vilja almennt að forsetinn hafi meiri afskipti af þjóðmálum, fái meiri völd og beiti neitunarvald- inu. ■ Forsetinn sinni/4 Morgunblaðið/Einar Falur Hitabeltisfiðrildi klekjast út í NÝLISTASAFNINU eru stór og litrík hitabeltisfiðrildi byrj- uð að klekjast út úr púpum sín- um sem fluttar voru hingað til lands í tilefni af sýningu mynd- listarmannsins Carstens Höll- ers. Fjórar tegundir af fiðr- ildápúpum voru settar í blóma- potta sem eru á víð og dreif um efstu hæð safnsins. Ljós- myndari Morgunblaðsins var viðstaddur þegar fyrstu fiðrild- in byrjuðu að breiða út vængina og var mikill viðbúnaður í safn- inu vegna þessa og vel þurfti að huga að rakastigi loftsins til að aðstæður væru ákjósanleg- ar. Fjórir erlendir listamenn sýna í Nýlistasafninu á Listahá- tíð og lýkur sýningunum um næstu helgi. IISHrtK MOIICU\BLADSINS - MGMNINC/IJSTIH Lesbók og Menning/ listir í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.