Morgunblaðið - 08.06.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 17
ÚRVERINU
*
Akvörðun um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárínu 1996-1997
Þorskafli til kvóta
verður 186.000 tonn
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA hef-
ur tekið ákvörðun um leyfilegan
heildarafla fyrir einstakar fiskteg-
undir á næsta fiskveiðiári. Þá hefur
ráðherra ákveðið, að á því fiskveiði-
ári verði heildaraflamark sett á veið-
ar á steinbít og langlúru. Verður
leyfilegur heildarafli í einstökum
tegundum á næsta fiskveiðiári eins
og hér fer á eftir og einnig tillögur
Hafrannsóknastofnunarinnar um
leyfilegan heildarafla. Aflaheimildir
aukast lítillega alls og áætlað út-
flutningsverðmæti sjávarafurða
einnig að mati Þjóðhagsstofnunar,
en þá er miðað við heimilaðan aflá
á núverandi fiskveiðiári.
Tillaga Leyfil.
HAFRÓ heildarafli
Tegund lestir lestir
Þorskur 186.000186.000
Ýsa 40.000 45.000
Ufsi 50.000 50.000
Karfi 65.000 65.000
Grálúða 5.000 15.000
Skarkoli 10.000 12.000
Úthafsrækja 55.000 60.000
Innfjarðarrækja 7.600* 7.600*
Humar 1.500 1.500
Hörpuskel 9.300 9.300
Síld 100.000110.000
Langlúra 1.200 1.200
Steinbítur 13.000 13.000
* Tillögur um upphafskvóta til
bráðabirgða.
Ákvörðun heildarafla af loðnu
verður tekin síðar, en upphafskvóti
fyrir íslenska flotann hefur verið
ákveðinn 737.000 lestir og miðað
við þær forsendur sem sú ákvörðun
byggir á, verður leyfður heildarafli
íslenskra skipa á öllu árinu
1.278.000 lestir.
Leyfilegur heildarafli í þorski er
aukinn um 31 þús. lestir frá yfir-
standandi fiskveiðiári í samræmi
við gildandi aflareglu.
Leyfilegur heildarafli í ýsu lækkar
um 15 þús. lestir og í ufsa um 20
þús. lestir milli fiskveiðiára, en rétt
er þó að benda á, að undanfarin ár
hefur leyfilegur heildarafli í þessum
tegundum ekki náðst. Má búast við,
að afli á yfirstandandi fiskveiðiári í
þessum tegundum verði ekki fjarri
leyfilegum heildarafla næsta árs, að
teknu tilliti til heimildar til flutnings
milli fiskveiðiára.
Leyfilegur heildarafli í karfa er
óbreyttur milli fiskveiðiára en heild-
araflinn hefur undanfarin ár farið
talsvert yfir leyfilegan heildarafla,
bæði vegna heimildar til flutnings
milli tegunda og milli ára og má
búast við því einnig á yfirstandandi
fiskveiðiári.
Leyfilegur heildarafli í grálúðu
lækkar um 5 þús. lestir. Heildarafli
í þessari tegund hefur farið nokkuð
yfir leyfilegan heildarafla vegna
heimildar til flutnings milli ára og
má búast við að aflinn verði u.þ.b.
23 þús. lestir í ár.
Ley'filegur heildarafli af úthafs-
rækju minnkar um 3 þús. lestir milli
fiskveiðiára.
Steinbítur og grálúða í kvóta
Eins og áður er sagt, hefur verið
ákveðinn leyfilegur heildarafli fyrir
steinbít og langlúru. Vegna vinnu
og tæknilegrar útfærslu við útreikn-
ing aflamarks til einstakra báta,
verður endanlegt aflamark þeirra
skipa í þessum tegundum ekki til-
kynnt útgerðum þeirra fyrr en nokk-
uð verður liðið á næsta fiskveiðiár.
Bráðabirðgaúthlutun aflamarks í
þessum tegundum verður hins vegar
send út samhliða hinni almennu afla-
markskynningu, sem send verður
einstökum útgerðum um miðjan ág-
úst nk. Úthlutun aflamarks í stein-
bít og langlúru til einstakra báta
byggir á aflareynslu þeirra í þeim
tegundum á tímabilinu 1. júní 1993
til 31. maí 1996. Verður einstökum
útgerðum gefinn kostur á að koma
athugasemdum sínum á framfæri
við Fiskistofu eftir að bráðabirgðaút-
hlutun fer fram.
Útflutningsverðmæti
aukast um 6,5%
Að beiðni sjávarútvegsráðuneyt-
isins hefur Þjóðhagsstofnun lagt mat
á áhrif þessarar ákvörðunar um
hámarksafla fyrir næsta fiskveiðiár.
Telur Þjóðhagsstofnun, að þorsk-
ígildum talið feli ákvarðanir ráðu-
neytisins í sér aukningu um 1,9%
að loðnu meðtalinni. Séu þessar
ákvarðanir hins vegar metnar á
meðalverði útfluttra sjávarafurða
fela þær í sér aukningu um 6,5%.
Stefnt er að því að gefa út reglu-
gerð um stjórn fiskveiða á næsta
fiskveiðiári um næstu mánaðamót.
Vörubílar eru hannaSir til að fara frá einum stað til annars.
Renault ákvað að flytja þá frá fortíö til framtíðar.
Sýning í dag
í húsakynnum Hagvagna
að Melabraut 18, Hafnarfirði. Sími 565-4566.
Opið frá kl. 10 til 17.
RENAULT
RENMJLT
»■>.
ÁRMÚLA 13
SÍMI: 568 1200
BEINN SlMI: 553 1236
Markmið Renault var að hanna nýjan vörubíl til að
annast dreifingu á stuttum leiðum og við langflutninga.
Þetta var útgangspunkturinn við hönnun á tveimur línum
af Renault Premium. Gott útsýni ökumanns og lipurð í
akstri gerir Premium Distribution vel fallinn til aksturs á
þröngum götum. Öll umgengni við bílinn er þægileg því
auðvelt er að lækka ökumannssæti og losa um stillingu
á stýri. Renauit Road er ætlaður fyrir langflutninga, hann
er með rúmgóðu húsi með loftfjöðrun og miklum búnaði
til þæginda, lága hleðsluhæð, öflugri vél o.fl. Fyrirtæki og
einstaklingar sem sinna vörudreifingu eða langflutningum
finna bíl við hæfi í Premium.