Morgunblaðið - 08.06.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 25
HAFDIS keypti sér fótasalt fyrir ferðina.
HAFDÍS segist vera hrifin af rósóttum fötum.
Ferðataskan tilbúin fyrir för ina til Páfagarðs.
garðs þurftu að samþykkja öll þau
lög sem sungin verða við messuna
í Péturskirkjunni," segir hún
hugsi. „Fyrir hálfu ári voru afrit
af þeim lögum sem við hugsanlega
gátum sungið send til Rómar og
þau sem þóttu við hæfi voru valin
út.
Textarnir sem sungnir verða í
Páfagarði þurfa að vera beint upp
úr ritningunni, en mega ekki vera
úr skáldverkum. Þá má bara
syftgja sum lög á ákveðnum árs-
tímum. Auk þess mega einsöngv-
arar ekki syngja þar; því ekki má
ein rödd yfirgnæfa rödd páfans og
Guðs," segir hún ennfremur og
gengur inn í stofu.
„Við rnunum einnig syngja á
fleiri stöðum, til dæmis munum við
halda tónleika á torgi í Subiaco
sem er skammt frá Róm og syngja
fyrir hefðarfólk í hertogahöll í
Massa í Toscanahéraði," segir
hún.
Kama kársins
vekur athggli______
Hafdís tekur upp svartan stutt-
ermakjól með ljósum rósum og ber
hann upp að sér. „Ég er að hugsa
um að vera í þessum kjól á sön-
gæfingum í Páfagarði. Þar má
ekki vera með berar axlir eða láta
sjást í hnén, svo þessi kjóll hentar
mjög vel. Hann er passlega hátíð-
legur og ekki mjög fleginn. Hins
vegar verðum við í sérstökum kór-
búningum á tónleikunum sjálfum,"
segir hún og teygir sig í barðastór-
an stráhatt ofan á sófanum og set-
ur hann á sig. „Það er örugglega
mjög þægilegt að vera með þenn-
an á meðan við erum að ferðast, til
dæmis í skoðunarferðunum," segir
hún og vottar óneitanlega fyrir til-
hlökkun í röddinni.
Hafdís segist hafa frétt af því að
koma Kvennakórsins til ítalíu hafi
vakið þó nokkra athygli þar í landi.
„Hótelstjóri á Marina di Massa-
ströndinni kom meira að segja til
Islands fyrir skörnmu til að „skoða
okkur", en hópurinn mun gista á
hóteli hans í nokkrar nætur," segir
hún og skellihlær. „Honum var
reyndar boðið hingað í tilefni. af
komu okkar til ítalíu og notaði
hann meðal annars tækifærið til að
skipuleggja sérstakan matseðil
fyrir hópinn á meðan á dvöl okkar
stendur."
Skipulagð
dagskrá____________
Hafdís tekur upp dökka fallega
leðurskó og stingur ofaní heima-
saumaðan skópoka. „Við syngjum
alltaf í svörtum skóm og er afar
mikilvægt að þeir séu þægilegir,"
segir hún. „Þá verður dagskráin
hjá okkur mjög stíf frá morgni til
kvölds og því ekki verra að vera í
góðum gönguskóm," segir hún
ennfremur. Hún setur skópokann
ofan í ferðatöskuna, nokkra kjóla í
viðbót, stuttbuxur, snyrtitösku og
fleiri nauðsynlega hluti. Að því
búnu lokar hún töskunni sælleg á
svip.
Ferðataskan er tilbúin í förina
til Páfagarðs. Blaðamanni er ekki
til setunnar boðið, þakkar fyrir
sig, kveður og óskar Hafdísi góðr-
ar ferðar.
1
Þrefaldur
vinningur!
Nú er að
nota
tÆkifœrið!
-vertu viðbúinav vinningi
Fáðu þér niiða fyrir kl. 20.2^ í kvöld.