Morgunblaðið - 08.06.1996, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
u m
AÐSENDAR GREINAR • FORSETAKJOR
Er ekki kominn tími til
að gera eitthvað nýtt?
Skíðaskálinn býður
einstaklingum sem
hópum glœsilegan kvöldverð,
lifandi tónlist og fjölmarga
afþreyingarmöguleika.
Rútuferðir fyrir hópa til og
frá Reykjavík, Selfoss eða
Keflavík.
Ógleymanleg kvöldstund á
aðeins 2.980,-* / 3.500.- kr, * *
* _____
Olafur Ragnar er
brautryðjandinn
Fordrykkur "Kir Royal"
Karrýtónuð sjávarréttasúpa að hœtti
Skíðaskálans
Innbakaður grísahryggur
"Grand Mariner" með Carlottusósu
Óvœntur yndisauki
*Midað vi'ð að komið sé á eigin vegum
• *M/ðað vi'ð 30 manns og fleiri í rútu
utan Reykjavikur
Borðapantanir
S. 567 202(y
Fax. 587 2337
um
Hestaleiea Gönguferðir Heilir pottar Hveraeufubað
EÐLILEGT og nauð-
synlegt hlýtur að teljast
að persónur frambjóð-
enda séu mjög til um-
fjöllunar vegna kom-
andi forsetakosninga.
Kemur þar margt til.
Kosningin er í eðli sínu
persónukjör en ekki val
á milli framboðslista
stjómmáiaflokka.
Eiginleikar forsetans
eru einnig mótandi fyrir
framgöngu hans í emb-
ætti. Þannig hefur sér-
hver forseti íslands
gegnt starfinu með sín-
um hætti, innan þess
ramma sem stjórnskipan landsins
setur.
Við kjósendur beinum gónum að
fortíð frambjöðenda í leit að upplýs-
ingum um hvernig líklegt sé að við-
komandi farnist í æðsta embætti lýð-
veldisins. Mikilvægt er að umfjöllun-
in um feril frambjóðenda sé eins
vönduð og kostur er.
Höfundur þessarar gteinar var
kosningarstjóri fyrir framboð Gunn-
ars Thoroddsens á ísafirði í forseta-
kosningunum 1968, en þær þóttu
mér einkennast mjög af illmælgi,
rógi og kjaftasögum um frambjóð-
Svanur Krisljánsson
Sjálfshjáp
meé Relki
i Bergur Björnsson \
reikimeistari
Upplýsingasími:
562-3677
Þróun í kennslu á reiki-námskeiðum gerir nú öllum kleift að læra
að nota óg beita reiki til andlegrar uppbyggingar og betri líðan.
Lægra gjald þýðir að reiki-námskeið er nú á allra færi.
Reiki I (fyrir byrjendur) kr. 5.000. Reiki II (framhaldsnámskeið)
kr. 7.000. Reikimeistara-námskeið kr. 20.000.
Námskeið Akureyri Egiisstaðir ísafjörður Reykjavík
Relki l 5. júlí 12. júlí 19. júlf 26. júlí
Reiki II 6. júli 13. júlí 20. júlí 27. júlí
Reikimeistari 7. júlí 14. júlí 21. júlí 28. júlí
REIKIMIÐSTÖÐIN
Skúlagötu 26. Reykjavík.
í versl. BETRA LÍF í Borgarkringlunni, Rvík, færðu bæklinginn, „Reiki fyrir alla“
(póstsendur út á land, sími 581-1380) með 35 spurningum og svörum um reiki.
Dæmi: „Hvað hefur reiki umfram yoga?“ „Hvað getur reiki gert fyrir mig?“
„Hvernig er reiki kennt?“ o.fl.
ÞAÐ
ER UM HELGINA
SEM ER OPIÐ HÚS HJÁ INNYAL
Á NÝJUM STAÐ í HAMRABORG I
KOMIÐ OG SKOÐIÐ FJÖLBREYTT ÚRYAL INNRÉTTINGA í ELDHÚS
OG BÖÐ, AUK FATASKÁPA OG TRÉSTIGA í MIKLU ÚRVALI. LEITIÐ
TILBOÐA. INNVAL BÝÐUR VANDAÐA VÖRU Á GÓÐU VERÐI.
MvAL
■fWElSB
VERIÐ VELKOMIN.
SERVERSLUN MEÐ INNRETTINGAR OG STIGA
endurna tvo, Kristján
Eldjárn og Gunnar
Thoroddsen. Kosninga-
baráttan nú virðist vera
að síga í sama farið.
Einn frambjóðenda
virðist sérstaklega vera
skotspónn skipulagðrar
ófrægingarherferðar.
Svo háttar til, að ég var
samstarfsmaður Olafs
Ragnars í Háskóla ís-
lands um margra ára
skeið og þekki því vel
til starfs hans sem vís-
indamanns, kennara og
fræðimanns. Ég tel mig
því hafa nokkru _að
miðla til annarra um mannkosti 01-
afs. Ólafur Ragnar Grímsson er, í
stuttu máli sagt, afburðamaður á
sínu vísindasviði. Hann lagði traust-
an grunn að rannsóknum á íslenskum
nútímastjórnmálum með doktorsrit-
gerð sinni og ýmsum veigamiklum
ritgerðum sem birtust á áttunda ára-
tugnum í erlendum típaritum. I rit-
verkum sínum er Ólafur Ragnar
þjóðlegur og alþjóðlegur í senn; þjóð-
legur í vali á viðfangsefnum og vegna
vandaðrar úrvinnslu á íslenskum
heimildum, og heimsborgap með því
að tileinka sér alþjóðlegar kröfur vís-
inda um hlutlægni. Ölafur Ragnar
skipaði sér skjótt i fremstu röð
stjórnmálafræðinga og tók m.a. þátt
í margvíslegu rannsóknarsamstarfi
stjórnmálafræðinga vestan hafs og
austan. Samstarf við Norðurlöndin
var honum sérlega hugleikið. ísland
gerðist þátttakandi í fræða- og út-
gáfustarfi á Norðurlöndum, svo og
í samtökum stjórnmálafræðinga í
Evrópu fyrir hans tilstilli. Við sem á
eftir honum komum höfum notið
góðs af alla tíð síðan.
Ólafur Ragnar nýtur virðingar
meðal stjórnmálafræðinga, þrátt fyr-
ir að talsvert sé um Iiðið frá því
hann var sem virkastur á þeim vett-
vangi. Sem dæmi má nefna að þing
norrænna stjórnmálafræðinga var
haldið hér á landi árið 1990. Undir-
búningsnefnd þingsins, sem skipuð
var fulltrúum allra Norðurlanda, sótti
fast að fá Ólaf Ragnar sem aðal-
ræðumann þingsins, og varð hann
ljúflega við þeirri ósk þótt ekki væri
honum það skylt. Áheyrendur minn-
ast þessarar ræðu enn, því hún var
í senn ögrandi og fræðandi - og
sköruglega flutt á sænsku.
Fræðilegur metnaður ásamt hæfni
og trúmennsku í starfi einkenndi
kennslu Ólafs Ragnars, fyrst við
námsbraut í þjóðfélagsfræðum og
síðar við Félagsvísindadeild Háskóla
íslands. Takmarkið var að byggja
upp B.A.-nám í stjórnmálafræði, þar
sem áhersla væri á rannsóknir og
kennslu um íslensk stjórnmál; jafn-
framt stæðist B.A.-prófið alþjóðlegar
kröfur og útskrifaðir nemendur væru
gjaldgengir til framhaldsnáms við
erlenda háskóla. Þessi markmið náð-
ust fljótt, og þar á enginn stærri
hlut en Ólafur Ragnar. Hann er
brautryðjandinn, hann setti markmið
og hæfniskröfur sem höfð hafa verið
að leiðarljósi.
Ólafur Ragnar Grímsson er ekki
gallalaus maður og ýmis verk hans
sem stjórnmálamanns eru umdeild.
Illa er hins vegar komið fyrir þess-
ari þjóð, ef rógstungum verður mikið
ágengt í þessum forsetakosningum.
Vegum og metum kosti og galla
hvers frambjóðanda fyrir sig og kom-
umst að yfirvegaðri og sanngjarnri
niðurstöðu.
Ég þekki hæfni, dugnað og trú-
mennsku Ólafs Ragnars í vandasömu
starfi. Sá ferill er.glæsilegur og hon-
um til mikils sóma. Miðað við störf
Ólafs Ragnars í Háskóla íslands er
fullt tilefni til þess að ætla, að öguð
hugsun fræðimannsins og sam-'
skiptahæfni frábærs kennara muni
einkenna störf hans sem næsta for-
seta hins íslenska lýðveldis, nái hann
kjöri. Kjósendanna er valið.
SVANUR KRISTJÁNSSON,
Leirubakka 24, Reykjavík.
Höfundur er prófessor í
stjórnmálafræði við Hdskóla
Islands.
„ Að skreyta sig ann-
arra fjöðrum“
HAMRABORG 1, KÓPAVOGI
SlMI 554 4011
í SJÁLFU sér er það
ekki mikið mál hver
tildrögin voru að út-
nefningu Nand
Khemka sem aðal-
ræðismanns íslands í
Nýju Delhi á'Indlandi
- og skiptir ekki miklu
máli hver þar stóð að
verki.
Það álvarlega í mál-
inu er að Ólafur Ragn-
ar Grímsson vænir mig
um ósannsögli í frá-
sögn minni af atburða-
rásinni. Ólafur Ragnar
átti ekki frumkvæðið í
máli þessu, þótt hann
eigni sér það - stað-
reyndir málsins eru eftirgreindar:
(1) í frásögn Ólafs Ragnars í „Séð
og heyrt“ segir svo: „Að frumkvæði
Ólafs Ragnars og Sigurðar Helga-
sonar - var Khamka gerður að aðal-
ræðismanni Islands á Indlandi."
(2f Tillaga mín um útnefningu
ræðismannsins var rædd við ráðu-
neytisstjóra utanríkisráðuneytisins
eftir komu mína frá Nýju Dehli í
febrúar 1987. Khamka féllst á að
takast embættið á hendur á viðræðu-
fundi sem ég átti með honum á
meðan á dvöl minni þar stóð.
(3) Khamka sendi mér umbeðin
gögn vegna embættisins 19. mars
1987 og kem ég þeim áleiðis til utan-
ríkisráðuneytisins.
(4) Þann 26. maí 1987 tilkynnir
utanríkisráðuneytið mér að fallist
hafí verið á útnefningu Nand
Khemka, sem aðalræðismanns ís-
lands I Nýju Delhi og að viðhlítandi
1 gögn verði send til yfirvalda á Ind-
landi vegna málsins.
(5) Það lá því fyrir í utanríkisráðu-
neytinu frá 26. maí 1987 hver yrði
ræðismaður íslands í Nýju Delhi -
Sigurður
Helgason
og þeim sem hugðu á
ferð til Indlands var inn-
an handar að fá upplýs-
ingar þay um.
(6) Ólafur Ragnar
Grímsson var ekki í Nýju
Delhi fyrr en í nóvember
1987 - sex til sjö mán-
uðum eftir ákvörðun ut-
anríkisráðuneytisins um
útnefningu ræðismanns-
ins. í þeirri ferð mun
hann hafa hitt Khamka
í fyrsta sinn.
(7) Um ofangreind
atriði hefí ég gögn til
staðfestingar - einnig
er að finna upplýsingar
um þetta í dagbók minni
frá þessum tíma.
Ólafur Ragnar Grímsson er því
uppvís að því að skreyta sig annarra
fjöðrum, að eigna sér verk, sem af
öðrum er unnið - og í ofanílag að
væna þann sem verkið vann, um
ósannsögli. Slíkt er ekki sæmandi
frambjóðanda til embættis forseta
íslands.
Forseti íslands verður að vera
heiðarlegur, vammlaus og sannsög-
ull. Menn gera sér væntanlega grein
fyrir því siðferði og þeirri framkomu,
sem að baki býr eftir þessa frásögn.
Geta þá gert upp við sig hvort þessi
frambjóðandi sé hæfur til starfsins.
Persónulega efast ég stórlega um
að svo sé, ekki bara með tilliti til
þessa atviks, heldur miklu fremur
vegna ferils og fortíðar Ólafs Ragn-
ars Grímssonar. Pólitískur loddari á
ekkert erindi til Bessastaða.
SIGURÐUR HELGASON,
Skildinganesi 52, Reykjavík.
Höfundur er fyrrverundi stjórnar-
formaður Flugleiða hf.