Morgunblaðið - 20.06.1996, Síða 56
<G>
^g^ AS/400 er
...þar sem grafísk
notendaskil eru
í fyrirrúmi
MORGUNBLABID, KRJNGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTllÆTl 85
FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Hafrannsóknastofnun mælir brottkast
afla í samvinnu við sjómenn
Álíta vandann
orðum aukinn
HAFRANNSÓKNASTOFNUN
hefur frá því á seinasta ári reynt
að meta brottkast afla úr fiskiskip-
um í samstarfi við sjómenn. Hefur
skipstjórum sem taka eftirlitsmenn
um borð verið heitið fullum trún-
aði og leynd svo unnt sé að mæla
hversu miklum fiski er kastað fyr-
ir borð.
Jóhann Siguijónsson, aðstoðar-
forstjóri Hafrannsóknastofnunar,
segir að þessar athuganir bendi til
þess að vandamálið hafí verið orð-
um aukið. Hann segir að hér sé
um tilraun að ræða á vegum Haf-
rannsóknastofnunar sem hafi ekki
verið mjög víðtæk og eðli máls
samkvæmt ekki auðveld í fram-
kvæmd.
Jóhann sagði að fullur vilji væri
fyrir því að halda þessu verkefni
áfram í samstarfi við sjómenn.
„Auðvitað er þetta erfitt og það
þarf alltaf að hafa svolítinn fyrir-
vara á gögnum af þessu tagi, en
við höfum ekki nokkra ástæðu til
að ætla að þau gögn sem við höfum
fengið séu skekkt.“
Almenn viðhorfsbreyting
meðal sjómanna
Jóhann sagðist telja að ný lög
um umgengni um nytjastofna sjáv-
ar muni draga úr því að sjómenn
kasti fiski fyrir borð. En mestu
skipti þó sú almenna viðhorfsbreyt-
ing sem gæti hjá sjómönnum, sem
hann telji að séu að verða meiri
umhverfisverndarsinnar er vilji
vernda auðlind sína.
Morgunblaðið/Ásdís
DAVID Bowie var glaðhlakkalegur við komuna til landsins og kvaðst í stuttu spjalli við frétta-
menn hlakka til tónleikahalds hérlendis.
Bowie lofar góðum
tónleikum
Guðrún Pétursdóttir dregur framboð sitt til baka
Telur óraunhæft
að halda áfram
GUÐRÚN Pétursdóttir tilkynnti í
gær að hún drægi til baka framboð
sitt til embættis forseta Islands. Hún
segist telja óraunhæft eins og málum
sé komið að halda baráttunni áfram
og leggja þá miklu vinnu sem því
mundi fylgja á stuðningsmenn sína.
Hún segist ekki ætla að lýsa yfir
stuðningi við aðra frambjóðendur.
Ekki er fordæmi fyrir því að fram-
bjóðandi í forsetakosningum á ís-
landi taki ákvörðun sem þessa. Guð-
rún sagðist gera sér grein fyrir að
ákvörðun væri óvenjuleg, en hún
hlyti að draga ályktanir af þeirri
stöðu sem blasti við.
Guðrún sagði að kosningabarátt-
an hefði tekið þá stefnu, að í megin-
dráttum hefði þjóðin skipað sér í tvær
fylkingar. Hún sagði að baráttan
væri pólitískari en hún átti von á við
upphaf hennar.í framboði væri sterk-
ur stjórnmálamaður og það hefði
ráðið þróun kosningabaráttunnar.
„í þessum kosningum hljóta menn
að keppa að sigri, og sigurvegarinn
verður aðeins einn. Ég tel óraun-
hæft eins og málum er komið að
halda baráttunni áfram og leggja
þá miklu vinnu sem því mundi fylgja
á mína góðu stuðningsmenn um land
allt. Ég legg áherslu á að enginn
hefur þrýst á mig að draga framboð
mitt til baka. Þvert á móti hafa
margir hvatt mig til þess að halda
ótrauð áfram,“ segir í yfirlýsingu
sem Guðrún sendi frá sér.
Fylgi Guðrúnar í skoðanakönn-
unum hefur farið minnkandi. í könn-
un Félagsvísindastofnunar Háskóla
Islands, sem birtist í Morgunblaðinu
í gær, lýsa 8,3% svarenda yfir stuðn-
ingi við hana.
Kjósendur sem hafa kosið utan
kjörstaða hafa rétt til að kjósa aftur.
Þeir sem þegar hafa greitt Guðrúnu
atkvæði sitt geta því kosið einhvem
annan frambjóðanda.
■ Dregur framboð/6
ROKKSTJARNAN David Bowie
kom til Iandsins um klukkan 16
í gær ásamt 24 manna föru-
neyti. Bowie kom hingað frá
Moskvu með millilendingu í
Frankfurt, en tónleikar hans
verða í Laugardalshöll í kvöld.
Bowie kvaðst einkar ánægð-
ur með að samningar tókust um
komu hans hingað til lands og
að hann væri spenntur fyrir
tónleikahaldinu.
„Eg geri engar kröfur til ís-
lenskra áheyrenda en veit að
við munum bjóða frábæra tón-
leika,“ sagði hann og lofaði um
það bil tveggja stunda langri
skemmtun með blöndu nýrri og
eldri laga sinna. Aðspurður bar
hann rússneskum áheyrendum
vel söguna en öðru máli gegndi
hins vegar um skrifræðið þar í
landi. Hann væri orðinn lúinn
eftir langferð og hvíldinni feg-
inn.
Stoppar stutt við
Forsvarsmenn Tin, sem
stendur að tónleikunum fyrir
Listahátíð í Reykjavík, tóku á
móti Bowie og fylgdarliði við
útgönguhlið vélarinnar og
fylgdu hópnum í gegnum vega-
bréfsskoðun. Eftir að hafa
svarað örfáum spurningum
fréttamanna fór Bowie í fylgd
lögreglu og aðstoðarfólks rak-
leiðis út í bifreið sem beið þar
og ók honum til Reykjavíkur,
en aðrir meðlimir hópsins ráku
lestina.
I gærkvöldi var haldið kvöld-
verðarboð til heiðurs Bowie en
hann yfirgefur landið snemma
í fyrramálið og leikur í Þýska-
landi á laugardag.
Landsvirkjun kannar möguleika á stækkun Kröflu
Myndi auka getu kerf-
isins um 100-120 GWst
Morgunblaðið/Ásdís
Annir í
- heyskap
ANNIR hafa verið í heyskap sunn-
anlands i veðurblíðunni und-
anfarna daga,_ en þar fór hitinn í
25 stig í gær. Ogmundur Hrafn
Magnússon var við slátt í Stóru-
Sandvík í Árnessýslu þegar Ijós-
myndara Morgunblaðsins bar þar
að garði.
LANDSVIRKJUN hefur til athug-
unar stækkun Kröfluvirkjunar um
15 megawött. Vélasamstæða sem
fyrir er í virkjuninni getur framleitt
30 megavött, en upphaflega var
ráðgert að afkastagetan yrði helm-
ingi meiri. Af því hefur þó ekki
orðið, þar sem önnur túrbína sem
keypt var á sínum tíma hefur ekki
verið sett niður.
Samkvæmt áætlunum sem nú
hafa verið gerðar er að því stefnt
að vélasamstæðan verði sett upp
og hún keyrð með hálfum afköstum,
og að eingöngu verði nýtt sú lág-
þrýstigufa sem er þegar til staðar.
Talið er að ljúka megi framkvæmd-
Framkvæmda-
kostnaður áætlað-
ur 700 millj.
um við stækkunina á hálfu öðru
ári, skv. upplýsingum sem fengust
hjá Landsvirkjun.
Talinn
hagkvæmur kostur
Við stækkunina eykst orkugeta
raforkukerfisins ura 100-120 gíga-
vattstundir á ári. Áætlaður fram-
kvæmdakostnaður er um 700 millj-
ónir króna, skv. upplýsingum
Landsvirkjunar.
„Það hefur farið fram tæknileg
athugun á þessu og virðist ýmislegt
benda til þess að þarna sé um að
ræða hagkvæman kost sem hægt
er að nýta hratt,“ segir Helga Jóns-
dóttir, stjórnarformaður Lands-
virkjunar.
Engar ákvarðanir hafa verið
teknar en málið verður að öllum
líkindum rætt á næsta stjórnarfundi
Landsvirkjunar ásamt öðrum virkj-
unarkostum sem til umræðu eru
innan Landsvirkjunar til að mæta
aukinni orkueftirspurn á næstu
árum.
Sextíu þús-
und hlýddu
ásöng
Kristjáns
„ÞAÐ VAR sérstæð og góð
tilfinning að syngja fyrir þetta
mikla mannhaf," sagði Krist-
ján Jóhannsson í samtali við
Morgunblaðið eftir að hafa
sungið i konsertuppfærslu
Metrópólitanóperunnar á Aidu
eftir Verdi í Central Park í
New York-borg síðastliðið
þriðjudagskvöld.
Sextíu þúsund áheyrendur
voru viðstaddir tónleikana sem
eru árlegur viðburður. Hafði
verið búist við fleiri gestum
en, að sögn Kristjáns, drógu
slæm veðurspá og tíð morð og
ofbeldisverk í garðinum und-
anfarið úr aðsókn.
■ Góð tilfinning/23