Morgunblaðið - 30.06.1996, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
þökkum þeim góða viðkynningu og
hversu vel þau reyndust móður sinni.
Þeirra starf var fórnfúst en unnið
af alúð, vinsemd og virðingu. Sést
það best á því að hún fékk að halda
sitt heimili fram á síðasta dag.
Blessuð sé minning hennar.
Kveðja frá MS-heimilinu.
Mig langar að minnast vinkonu
minnar og skjólstæðings sem eg lít
á sem aðdáunarverða hetju. 1 þau
fjögur ár sem mér lánaðist að þekkja
Jónu Öllu minnkaði það álit ekki -
fyrir hennar jákvæðu viðorf og geisl-
andi persónuleika gat hún alltaf
slegið á létta strengi og samferða-
fólk hennar hér á MS-heimilinu
hlakkaði alltaf til samveru við hana.
Hún vissi mæta vel að það tæki
ákveðin ár að draga úr hennar lík-
amsorku, en það hafði svo sann-
arlega engin áhrif á hennar hugar-
orku. Ég geri mér grein fyrir því
að það er ekkert sjálfsagt að vera
hetja, og fólk falli saman og verði
jafnvel biturt þegar það finnur að
það eigi aldrei eftir að lifa aftur
eðlilegu lífi, vera upp á aðra komið,
þiggja ölmusu þjóðfélagsins sem er
núna að skera niður í bitum þá hjálp
sem þetta fólk þarf til að halda sinni
sjálfsvirðingu, missir jafnvel maka
sína og þau fjölskyldutengsl sem eru
forsenda fyrir andlegri vellíðan. Fólk
er misjafnlega í stakk búið til að
kyngja slíku. Við megum alveg virða
þetta fólk meir og setja okkur í þess
spor. Jóna Alla barðist fyrir að halda
velli, þrátt fyrir erfið og ömurleg
höft og henni tókst það því hún var
þessi hetja. Hún var líka lánsöm,
hún átti frábær börn, íjölskyldu og
vini. Jafnvel þær sem unnu í heimil-
ishjálpinni urðu hennar góðvinir.
Þeim öllum og þeim sem elskuðu
Jónu Öllu sendi ég mínar samúðar-
kveðjur.
Far þú vel, vina.
Agnes.
Á bjartasta tíma ársins á Jóns-
messunni kvaddi æskuvinkona mín,
Jóna Alla. Hún fékk að fara eins
og hún sjálf hafði óskað sér, á heim-
ili sínu á meðal barna sinna.
Það var bjart í kringum hana og
yfir henni hvíldi friðsæld og fegurð.
Hún barðist hetjulega við alvar-
legan sjúkdóm sem greindist fyrir
rúmum 8 árum og sýndi ótrúlegan
styrk og æðruleysi.
Minningarnar streyma fram í
hugann frá æskuárum okkar á Akra-
nesi. Þá voru margar ferðirnar farn-
ar þegar við fylgdum hvor annarri
fram og til baka milli heimila okkar
í Merkigerði og á Heiðarbraut, því
alltaf þurftum við að tala ofurlítið
meira saman.
Við Jóna Alla fórum saman í
fyrstu utanlandsferðina okkar 17
ára gamlar, sigldum með Heklu til
Kaupmannahafnar. Á þeim tímum
var það ekki algengt að ungar stúlk-
ur færu í slíkar „reisur" en ferðin
varð okkur ævintýri sem við rifjuð-
um oft upp síðar.
Vináttuböndin sem við bundumst
í æsku voru sterk, Jóna Alla var
tryggur og sannur vinur sem alltaf
var til staðar. Áhugi hennar fyrir
öllu því sem varðaði vini hennar i
stóru og smáu og umhyggja var svo
einkennandi fyrir hana.
HRAUNBERGS
APÓTEK
Hraunbergi 4
INGÓLFS
APÓTEK
Kringlunni 8-12
eru opin til kl. 22
Næturafgreiðslu
eftir kl. 22 annast
Ingólfs Apótek
MIIMNINGAR
Lífið var Jónu Öllu ekki áfalla-
laust, en stærsta áfallið var þegar
sjúkdómurinn MND greindist, þá
fannst okkur vinunum erfitt að
sætta okkur við hlutskipti hennar.
Það hefur verið sárt en dýrmæt
reynsla að upplifa á hvern hátt þessi
hugrakka og sterka kona brást við
veikindumim. Jóna Alla var falleg
og glæsileg kona sem hafði þessa
sterku útgeislun og persónutörfa.
Með glaðlyndi sínu, félagslyndi og
brennandi áhuga fyrir öllu því sem
varðaði þá sem voru umhverfis hana
eignaðist hún alls staðar vini. Starfs-
menn í heimahjúkrun og heimaþjón-
ustu sem komu á heimilið til að
annast um Jónu Öllu urðu allir vinir
hen'nar. Hún hafði svo mikið að gefa
okkur öllum. Ég minnist ungrar
stúlku sem kom á heimili Jónu Óllu
til aðstoðar. Ég keyrði hana heim
einn dag og ég sagði henni hvað ég
væri þakklát að vita af henni hjá
Jónu Öllu. Svar hennar var: „Þú
veist ekki hvað hún Jóna Alla er
búin að gera mikið fyrir mig, hún
hefur bjargað sambúð minni“. Þann-
ig var Jóna Alla. Þegar ég kom í
heimsókn til hennar urðu mín eigin
vandamál svo léttvæg og hversdags-
leg frammi fyrir öllu hennar æðru-
leysi.
Það var einlæg ósk Jónu Öllu að
geta áfram búið á heimili sínu með
börnum sínum, þrátt fyrir hrakandi
heilsu. Einnig var það vilj og ósk
barna hennar, íjölskyldu og vina.
Góðir starfsmenn heimaþjónustu og
heimahjúkrunar veittu ríkulegan
stuðning.
Fyrir ári veiktist Jóna Alla alvar-
lega, en lífsviljinn var sterkur, hún
fékk eitt ár til viðbótar. Hún fékk
tækifæri til að fylgjast með litlu
dótturdótturunni Álexöndru og það
fæddist nýtt barnabarn, sonur Áx-
els, Halldór Axel. Þessi tími veitti
okkur tækifæri tii að sættast við það
sem framundan var og skilja þegar
þú, Jóna Alla, varst tilbúin. Nú ertu
gengin á móts við birtuna og sólskin-
ið sem þú þráðir. Elsku vinkona,
þakka þér fyrir allt sem þú varst
mér, allar þína tryggð og umhyggju
fyrir okkur Ástu.
Elsku íris, Jón, Einar, Axel og
Kristín, systurnar Gunnur og Lovísa,
orð eru svo fátækleg en ég veit að
tómið er stórt, en minningin lifir um
einstaka ástríka móður, tengdamóð-
ur og systur.
Sigrún Karlsdóttir.
SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ1996 35
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík * Sími 553 1099
Opið öll kvöld
til kl. 22 - cinnig um hclgar.
Skreytingar fyrír öll tílefni.
Gjafavörui :
KIA jeppi á frábæru verði, plús aukabúnaður!
- Hverjum kia jeppa fylgir plúspakki að verðmæti 171.900.
Staðalbúnaður KIA er m.a.:^ Hátt og lágl drif^ Rafmagnsrúður^Aflstýri ► Veltistýri
► Samlæsingar ► Útvarp með segulbandi ► Rafstýrðir útispeglar ► Litað gler
KIA ! Kemiir út í plús !
KIA Sportage 5 dyra handskiptur m/ plúspakka:
1.998.000
KIA Sportage 5 dyra sjálfskiptur m/ plúspakka:
2.141.000
IHI
HEKLA
SÍMI 569 5500
Hönnun: Rúna • Ljósmynd: Magnús Hjörleifsson