Morgunblaðið - 02.07.1996, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Talsmenn stjórnmálaflokkanna um niðurstöðu forsetakosninga
Mikilvægt að
snúa bökum saman
Morgunblaðið leitaði álits talsmanna
stjómmálaflokkanna á úrslitum nýafstaðinna
forsetakosninga í gær.
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, tók fram að
nýr forseti hefði hlotið glæsilega
kosningu. „Ég tel mjög gott hvað
úrslitin eru afgerandi. Ekki síst af
því að hér á í hlut maður sem hef-
ur verið allumdeildur í stjórnmálum.
Við hljótum öll að óska honum vel-
farnaðar í starfi," sagði Halldór.
Hann sagðist hafa trú á því að
Ólafi Ragnari tækist að vera sam-
einingartákn þjóðarinnar. „Ólafur
hefur mikla reynslu og hann virðist
gera sér mjög góða grein fyrir því
hvað það er mikilvægt á þessari
stundu,“ tók hann fram og minnti
á að Ólafur hefði sagt skilið við
stjórnmálin. „Maður með jafn mikla
þekkingu og reynslu hefur alla
burði til þess að söðla um með þeim
hætti,“ bætti hann við.
Hann sagðist telja að margir
samverkandi þættir réðu því hversu
kosning Ólafs Ragnars hefði verið
afgerandi. „Hann kemur af vinstri
miðju stjórnmálanna og það hefur
nú verið líklegra til árangurs í for-
setakosningum en þeir sem kenndir
eru við hægri arm stjómmálanna
með réttu eða röngu. Nú, Ólafur
er þekktur og hefur háð góða kosn-
ingabaráttu án teljandi mistaka sem
að skiptir að sjálfsögðu miklu máli.“
Halldór sagðist hafa starfað í
ríkisstjóm með Ólafi Ragnari. „Þar
tókst okkur að starfa ágætíega
saman. Ég hef enga ástæðu til þess
að ætla annað en að það geti orðið
í framtíðinni."
Forseti fái tækifæri
Geir H. Haarde, formaður þing-
flokks Sjálfstæðismanna, tók fram
að úrslit forsetakosninganna væra
afgerandi og skýr. „Núna er mikil-
vægt að allir reyni að snúa bökum
saman um nýkjörinn forseta og
hann fái tækifæri til að vinna sín
störf í þágu þjóðarinnar. Þrátt fyrir
að Ólafur Ragnar hafi verið um-
deildur stjórnmálamaður tel ég allar
forsendur fyrir því ef hann vinnur
í þeim anda sem hann hefur sjálfur
lýst að hann nái að sameina þjóðina
á bak við sig,“ sagði Geir.
Hann tók fram að einstaklingar
hefðu reynt að túlka úrslit kosning-
anna sem pólitísk skilaboð. „Ég tel
þess konar túlkun afar várhuga-
verða. Á sama hátt er mjög var-
hugavert ef nýi forsetinn reynir að
túlka niðurstöðuna með þeim hætti.
Ef farið verður út á einhveijar póli-
tískar ævintýrabrautir sér maður
ekki fyrir hvað gæti gerst. En ég
vona í lengstu lög að það verði
ekki,“ sagði hann.
Að lokum óskaði Geir Ólafi
Ragnari og eiginkonu hans til ham-
ingju með glæsilega kosningu,
gæfu og velgengni í embættinu.
Nauðsynleg sátt náist
Rannveig Guðmundsdóttir þing-
flokksformaður Alþýðuflokks telur
mikilvægt hversu úrslit kosning-
anna voru ótvíræð. „Með hliðsjón
af því hversu mikil áhersla var lögð
á hvað Ólafur væri umdeildur er
mikilvægt hversu kosning hans var
góð. Þrátt fyrir að ég hafi sjálf lýst
yfir stuðningi við annan frambjóð-
anda, talið sterkt fyrir land og þjóð
að velja aftur konu í embættið, tel
ég að Ólafur Ragnar og Guðrún
hafi staðið sig vel í kosningabarátt-
unni og brugðist við úrslitunum
með glæsibrag. Þeim á án efa eftir
að takast að ná nauðsynlegri sátt
um embættið. Ég er sannfærð um
að Ólafur eigi eftir að reynast þjóð-
inni vel og framlag Guðrúnar Þor-
bergsdóttur eigi eftir að verða þjóð-
inni til sóma,“ sagði Rannveig.
Rannveig sagði að markaðssetn-
ing kosningabaráttu Ólafs Ragnars
hefði verið mjög sterk og hann hefði
frá upphafi hagað sér eins og for-
seti. Pétur hefði goldið fyrir að upp
hefði komið umræða um að at-
kvæði skyldi fremur nota til að af-
stýra því að einn frambjóðandi
kæmist að en að sannfæring kjós-
enda réði ferðinni. Hann hefði vax-
ið eftir því sem á hefði liðið kosn-
ingabaráttuna og flestir myndu
segja eftir kosningamar að þar
færi traustur maður. Rannveig
sagðist telja að umræða um að
kvóti kvenna væri búinn í bili og
rýma þyrfti fyrir frambærilegum
karli hefði skaðað Guðrúnu Agnars-
dóttur í upphafí. Hins vegar hefði
brotthvarf nöfnu hennar úr barátt-
unni, kvennadaginn 19. júní, ýtt við
almenningi og ótvírætt væri að
stuðningur við málflutning hennar
hefði vaxið dag frá degi. Væntan-
lega hefðu úrslitin orðið tvísýnni
ef lengra hefði verið til kosninga.
Meta reynsluhæfni
Margrét Frímannsdóttir, formaður
Alþýðubandalagsins, segist ánægð
með úrslit kosninganna og að þau
hafi ekki komið á óvart. „Skoðanak-
annanir höfðu sýnt þessa niður-
stöðu vikum saman og þetta er í
raun í fyrsta sinn sem mér finnst
ég skynja það sama úti í þjóðfélag-
inu og kannanir sýna.“
Margrét segir jafnframt að úr-
slitin beri það með sér að kjósendur
meti reynslu, þekkingu og hæfni
stjórnmálamanna þegar_þeir hygg-
ist velja sér forseta. „Ég held að
staðreyndin sé sú að þegar almenn-
ingur velur sér forseta er litið fram-
hjá því hvar menn standa í stjórn-
málum. Að vísu var pólitíkinni
blandað í bráttuna síðustu dagana
fyrir kosningu en ég tel að þeim
mótleik hafi síðan verið svarað ótví-
rætt á kjördag af kjósendum sjálf-
um,“ segir Margrét.
Hún segir jafnframt að kjósendur
ætlist til þess að sá sem kjöri nær
vinni með ríkisstjórn, þingi og al-
menningi og því sé ekki hægt að
draga þá ályktun að kjör Ólafs
Ragnars eigi að vera mótvægi við
ríkjandi valdhafa. „Ég hef engar
áhyggjur af því að þjóðin standi
ekki sameinuð að baki sínum for-
seta. Reynslan hefur sýnt að það
gerum við.“
Þá óskar Margrét væntanlegum
forsetahjónum til hamingju og
þakkar frambjóðendum öllum, að
Guðrúnu Pétursdóttur meðtalinni,
fyrir málefnalega og heiðarlega
kosningabaráttu.
Kosið eftir
fjögur ár?
Kristín Halldórsdóttir, þingkona
Kvennalistans, óskar nýkjörnum
forseta og fjölskyldu hans velfarn-
aðar í starfi. Hún segir að stuðning-
ur kjósenda hafi verið mjög eindreg-
inn en telur að margir hafi snúist
á sveif með honum síðustu dagana
fyrir kjördag vegna aukinnar hörku
í kosningabaráttunni. „Um Ólaf
Ragnar hefur staðið styr, sem
magnaðist upp nokkrum dögum
fyrir kjördag, og ég óttast að erfitt
muni reynast að sameina fólk að
baki honum, einkum ef marka má
viðbrögð forystumanna í Sjálfstæð-
isflokknum þegar úrslitin lágu fyrir.
Ég er hrædd um að reynst geti
Ólafi Ragnari um megn að lægja
öldurnar, sem leiða muni til annarra
kosninga að fjóram árum liðnum,
án þess að ég vilji vera með hrak-
spár. Óeining um forsetann er mjög
slæm og ég tel að Guðrún Agnars-
dóttir hafí verið eina forsetaefnið
sem hefði getað fylkt þjóðinni að
baki sér.“
Ekki náðist í talsmenn Þjóðvaka
í gær.
Staðastaðarprestakall
Guðjón
Skarphéð-
insson
vígður
GUÐJÓN Skarphéðinsson guðfræð-
ingur hefur verið vígður til Staða-
staðarprestakalls í Snæfellsnes- og
Hnappadalsprófastsdæmi.
Það var biskup íslands, herra
Ólafur Skúlason, sem vígði Guðjón
í Dómkirkjunni í Reykjavík síðast-
liðinn sunnudag.
Meðfylgjandi mynd var tekin við
vígsluna og má þar sjá vígsluvott-
ana auk biskups og séra Guðjóns.
Morgunbiaðið/Sverrir
SR. INGIBERG J. Hannesson prófastur, sr. Guðjón Skarphéðins-
son, sóknarprestur á Staðastað, sr. Jón Bjarman sjúkrahúsprest-
ur, biskup Islands, herra Ólafur Skúlason, sr. Jakob Agúst Hjálm-
arsson dómkirlyuprestur, sr. Gísli Kolbeins, fyrrum sóknarprest-
ur, og sr. Lárus Þ. Guðmundsson sendiráðsprestur.
Morgunblaðið/Þorkell
ENGILBERT Engilbertsson, skipstjóri á Brúarfossi.
Nýr Brúarfoss
kominn í höfn
NÝTT skip Eimskips, Brúarfoss,
lagði að bryggju í Sundahöfn í
gærmorgun í blíðskaparveðri.
Fjöldi fólks var mættur niður á
höfn til að taka á móti skipinu
og áhöfn þess.
Skipstjóri á hinum nýja Brú-
arfossi er Engilbert Engilberts-
son, en hann hefur starfað hjá
Eimskip í 39 ár. Við komuna var
hann spurður hvernig siglingin
heim hefði gengið. „Hún gekk
alveg ljómandi vel. Við lögðum
af stað frá Immingham á fimmtu-
dagskvöld og höfum tekið það
rólega. Það tekur sinn tíma að
kynnast skipinu og hreyfingum
þess,“ segir skipstjórinn.
Aðspurður hvort hann sé búinn
að ná tökum á fleyinu segir Engil-
bert - og brosir út í annað: „Nei,
það tekur langan tíma að læra á
ný skip. Skip eru alveg eins og
konur - duttlungafull."
Stærsta gámaskip Eimskips
Fyrst um sinn verður Brúarfoss
í siglingum milli Reykjavíkur og
meginlands Evrópu, en frá og
með ágústbyijun mun hann sigla
á nýrri siglingaleið frá Reykjavík
til Skandinaviu með viðkomu í
Færeyjum. Brúarfoss er stærsta
gámaskip í eigu Eimskips og get-
ur flutt allt að 1.012 gámaeining-
ar. Um borð er auk þess farrými
fyrir tóif farþega. í áhöfn eru 15
manns.
Kaupverð skipsins var liðlega
1,5 milljarður króna.
Morgunblaðið/Golli
BRÚARFOSS hinn nýi siglir inn Viðeyjarsund.
Andlát
SIGURÐUR R.
BJARNASON
SIGURÐUR Ragnar
Bjarnason, /yrrver-
andi hafnarstjóri, for-
seti bæjarstjórnar í
Sandgerði og frétta-
ritari Morgunblaðsins,
er látinn á 65. aldurs-
ári. Hann lést á
sjúkrahúsi Keflavíkur
30. júní sl.
Sigurður var fædd-
ur 28. mars árið 1932
í Sandgerði. Hann
lauk vélstjóraprófi frá
Vélskólanum í Vest-
mannaeyjum árið
1950 og fiskimanna-
prófi frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík árið 1961. Hann var sjó-
maður og vélstjóri á ýmsum skip-
um og skipstjóri hjá Guðmundi
Jónssyni árið 1960 til 1963. Skip-
stjóri á eigin bátum var Sigurður
á árunum 1963 til 1977. Hann
gerðist hafnarvörður í
Miðneshreppi árið
1978 og varð hafnar-
stjóri í Miðneshreppi
árið 1988.
Sigurður starfaði að
félagsmálum sjómanna
Og fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Hann var
varamaður 1 hrGpps-
nefnd Miðneshrepps á
árunum 1982 tll 1986
og hreppsnefndarfull-
trúi D-listans á árunum
1986 til 1990.
Hann var bæjarfull-
trúi í Sandgerði og
fyrsti forseti bæjarstjórnar er
sveitarfélagið fékk kaupstaðarrétt-
indi árið 1990. Hann var um nokk-
urt skeið fréttaritari Morgunblaðs-
ins í Sandgerði.
Eftirlifandi eiginkona Sigurðar
er Rósa D. Björnsdóttir,