Morgunblaðið - 02.07.1996, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996 53
Ferð yfir
Vatnajökul
LAUGARDAGINN 6. júlí verða
Samvinnuferðir-Landsýn með hóp
erlendra ferðamanna á leið yfir
Vatnajökul. Nauðsynlegt er að fá
hóp á móti sem flytur vélsleðana
til baka yfir jökulinn og er þessi
ferð því seld á algjöru iágmarks-
verði. Með í ferðinni er fararstjóri
og á leið yfir jökulinn er einnig
sérþjálfaður fjallaleiðsögumaður
með allan öryggisbúnað.
Fiogið með FI-8040 frá Reykja-
vík til Húsavíkur kl. 11.30. Á Húsa-
vík bíður rúta eftir hópnum og ekið
verður sem leið liggur inn í Kverk-
fjöll og væntanlega komið þangað
um kl. 19.00. Gist í Sigurðarskála
í Kverkfjöllum.
Gengið af stað ki. 9.00 á sunnu-
dag upp á jökul til móts við hóp
útlendinga sem koma sunnan megin
yfir jökulinn. Þegar hóparnir hittast
er ekið áfram með leiðsögn Jökla-
ferða yfir Vatnajökul u.þ.b. 100 km
leið yfir að Jöklaseli á Skálafells-
jökli. Þaðan er farið með rútu niður
af jöklinum í flug kl. 19.35 frá
Höfn til Reykjavíkur. Komið til
Reykjavíkur kl. 20.30.
Verð á mann er kr. 21.000.
-----» »—♦---
Sumardag-
skrá Nor-
ræna hússins
Hrafn ræðir um
kvikmyndir
HRAFN GUNNLAUGSSON kvik-
myndaleikstjóri verður fyrirlesari
kvöldsins í opnu húsi í Norræna
húsinu fimmtudagskvöldið 4. júlí
kl. 20.
Hrafn ætlar að fjalla um kvik-
myndagerð á íslandi og segja frá
hugmyndum sínum um víkinga og
hvernig hann hefur túlkað þær í
kvikmyndum sínum. Hann flytur
mál sitt á sænsku.
Dagskráin í opnu húsi er einkum
ætluð ferðamönnum frá Norður-
löndum en íslendingum er að sjálf-
sögðu velkomið að hlýða á fyrirlest-
urinn.
Kaffistofan verður opin til kl. 22
og býður upp á íslenska sérrétti á
vægu verði.
Á sunnudögum kl. 17.30 er dag-
skrá einkum ætluð ferðamönnum
frá Norðurlöndum.
Borgþór Kjærnested fjallar um
íslenskt samfélag og það sem er
efst á baugi í þjóðfélaginu. Borgþór
mælir á sænsku og finnsku og gefst
fólki tækifæri til fyrirspurna. Kaffi-
stofan hefur á boðstólum ýmislegt
gott úr hafinu á sunnudögum.
----».+—4---
Sumarferðir
Digranes-
prestakalls
KIRKJUFÉLAG Digranespresta-
kalls í Kópavogi efnir sunnudaginn
7. júlí nk. til ferðalags um Borgar-
fjörð. Leiðsögumaður verður með í
för.
Áformað er að leggja af stað frá
Digraneskirkju kl. 9.00 um morg-
uninn og koma til baka um kvöld-
matarleytið.
Gengið út í
Grandahólma
Á STÓRSTRAUMSFJÖRU þriðju-
daginn 2. júli stendur Hafnagöngu-
hópurinn fyrir gönguferð út í
Grandahólma. Mæting kl. 12.30 við
hús Slysavarnafélagsins, Granda-
garði. Komið verður til baka um
kl. 14.00. Allir velkomnir.
FRÉTTIR
Sýnishorn af Magic-spili.
íslandsmót
í töfraspili
ÍSLANDSMEISTARAMÓT í svo-
kölluði Magic-spili verður haldið um
næstu helgi 6.-7. júli í Kiwanishús-
inu, Engjateigi 11. Búist er við
200-400 þátttakendum.
AíagíC-spilið er þess eðlis að þátt-
takendur ráða hvernig stokkar
þeirra eru samsettir; engir tveir
stokkar eru eins. Almenna reglan
er sú að því fleiri, margvíslegri og
sjaldgæfari spil sem keppandi á því
betur stendur þú að vígi. Til að
gera ekki þannig upp á milli þeirra
sem hafa safnað spilum lengi og
efniíegra leikmanna sem eru rétt
að byija, verður spilað með glænýja
og áður óséða spilastokka fyrri dag-
inn, þannig að enginn veit hver fær
hvaða spil. Seinni daginn nota
spilararnir hinsvegar eigin spil sem
þeir setja saman úr stokkunum sem
þeir eignuðust fyrri daginn og þeim
spilum sem þeir eiga fyrir, ef ein-
hver eru.
Utanferð í verðlaun
Aðalkeppnin mun standa um
fjögur sæti á heimsmeistaramótinu
í Seattle í Washington, sem fram
fer dagana 15.-18. ágúst n.k. Önn-
ur verðlan á íslandsmeistaramótinu
eru 20 kassar af Mag/c-stokkum
sem innihalda samtals yfir 10.000
spil, 20 eintök af spunaspilinu Aski
Sambyggðar
trésmíðavélar
Hjólsagir,
bandsagir,
sponsugur,
Yggdrasils, 80 eintök af spunaspil-
inu Dungeons & Dragons og 25
eintök af nýjasta geisladiski Sól-
strandargæjanna, Kú-Tíví. Heild-
arverðmæti verðlaunanna er rúm-
lega ein milljón króna.
Það verða 97 stigahæstu þátttak-
endurnir, þar af tveir fyrri daginn,
tveir stigahæstu undir 15 ára og
stigahæsti kvenmaðurinn sem
skipta þessum verðlaunum sín á
milli, samtals 100 þátttakendur.
Spuna- og leikjaverslunin Míþríl,
Bankastræti 4, tekur við skráning-
um á mótið og veitir áhugasömum
allar frekari upplýsingai\_
Dagbók lögreglunnar
Helgin með rólegasta
móti í Reykjavík
28. júní til 1. júlí
ALLS voru 318 mál færð til
bókar þessa helgi hjá lögregl-
unni og verður helgin að teljast
mjög róleg.
Ails voru átta ökumenn stöðv-
aðir, grunaðir um að aka bifreið-
um sínum undir áhrifum áfeng-
is. Fjórtán ökumenn sættu kæru
fyrir að virða ekki lögbundin
hraðamörk og fjórir ökumenn
fyrir að aka ökutækjum sínum
á nagladekkjum þótt fátt í veð-
urfari sunnanlands gefi tilefni
til slíks dekkjabúnaðar. Minnt
skal á að einungis er heimilt að
aka á nagladekkjum til 15. apríl.
Tilkynnt var um 37 umferðaró-
höpp en minniháttar meðsli á
fólki urðu í nokkrum þeirra.
Alls var tilkynnt um 15 inn-
brot og innbrotstilraunir þessa
helgi. Gerðar voru þijár inn-
brotstilraunir, farið inn á sex
heimili, þijú fyrirtæki og þijá
bíla. Umtalsverðum verðmætum
var stolið. Athyglisvert er að
nokkuð virðist bera á að brotist
sé inn í bifreiðar og stolið úr
þeim geislaspilurum.
Innbrotsþjófur hlaupinn
uppi
Karlmaður sem oft áður hefur
komið við sögu í innbrotum var
handtekinn af húsráðanda í
austurborginni. Húsráðandi
hljóp innbrotsþjófinn uppi er
hann reyndi að forða sér af vett-
vangi. Þá hafði innbrotsþjófur-
inn tínt til mikið af rafmagns-
tækjum sem hann hafði greini-
lega ætlað sér að fjarlægja.
Tvær konur sem handteknar
voru fyrir þjófnað í verslun í
austurborginni reyndust hafa
verri samvisku en talið var. Er
bifreið þeirra var skoðuð kom í
ljós mikið magn af verðmætum
sem þær stöllur gátu ekki gert
viðeigandi skil á. Málið sætir
rannsókn hjá RLR.
Karlmaður var handtekinn í
miðbænum og fannst amfetam-
ín við leit á honum. Málið sætir
nú frekari rannsókn hjá lög-
reglu.
Graðhestur handsamaður
Lögreglumenn verða oft að
hafa afskipti af dýrum og urðu
t.d. í síðustu viku að fá aðstoð
vörslumanns hesta við að hand-
sama graðhest sem gert hafi sig
til við fjórar hryssur án heimild-
ar. Auk þess hafði graðhestur-
inn slasað hest sem reynt hafði
að koma hryssunum til aðstoð-
ar. Graðhesturinn hafði sloppið
úr girðingu en var settur í ör-
ugga geymslu.
LAUGAVEGI 29
símar 552 4320 • 552 4321 ■ 552 4322
go
barnafatnaði
ana
2. til 5. júlí
ar
Utsölustaðir:
Versl. Rollingar, Kringlunni
Versl. Bangsi, Bankastræti
Versl. Embla, Hafnarfirði
Versl. Grallarar, Selfossi
Versl. Leggur og skel, ísafirði
Versl. Amaró, Akureyri
Versl. Sentrum, Egilsstöðum
Versl. Blómsturvellir,
Hellissandi