Morgunblaðið - 02.07.1996, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Úr Stj órnar-
ráðinu á Sól-
eyjargötu
*
Akveðið hefur verið að skrifstofa forseta
*
Islands flytji á næstunni úr Stjómarráðinu
í Lækjargötu í Sóleyjargötu 1. Kristín
Gunnarsdóttir kynnti sér aðdraganda kaup-
anna og húsaskipan og leitaði álits þing-
fiokksformanna á kaupunum.
ÞAÐ er ríkisstjómin sem kaupir hús-
ið og er kaupverðið 36 milljónir
króna. Að sögn Ólafs Davíðssonar,
ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneyt-
inu, hefur Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands, ávallt verið með í
ráðum þegar húsnæðismál skrifstof-
unnar hafa verið rædd og svo hafi
einnig verið nú þegar þessi ákvörðun
var tekin. Sagði hann að ekki hafi
verið tekin endanleg ákvörðun um
hvenær flutt yrði í húsið en að það
yrði fljótlega.
Rögnvaldur Ólafsson arkitekt
teiknaði Sóleyjargötu 1 fyrir Björn
Jónsson, ritstjóra og ráðherra, og var
húsið reist árið 1912. Sveinn, sonur
Bjöms og síðar forseti Islands, bjó í
húsinu um skeið en um tíma átti
Magnús Guðmundsson ráðherra hús-
ið og síðar Þorsteinn Scheving Thor-
steinsson lyfsali. Seinna eignaðist
Kristján Eldjám, forseti íslands, hús-
ið.
Hugmyndir um önnur hús
Ólafur sagði að á undanfömum
árum hafi komið upp hugmyndir um
kaup á öðrum húsum fyrir skrifstofu
forseta en engin hafí verið skoðuð
nákvæmlega. Um tíma hafí verið
talað um Landsbókasafnið við Hverf-
isgötu og Borgarbókasafnið við Þing-
holtsstræti auk annarra húsa en ekk-
ert hafí verið skoðað af nákvæmni.
„Sóleyjargata 1 er afskaplega fallega
staðsett hús á fallegum stað í bænum
og eins hentar það mjög vel,“ sagði
hann. Sagði hann að stærð hússins
væri mátuleg en samkvæmt upp-
drætti eru aðalhæðimar tvær um 250
fermetrar. Ólafur sagði að allt innra
skipulag hentaði vel fyrir skrifstofu
forseta íslands en þar vinna fjórir
til fimm starfsmenn.
Húsið er nánast í sinni uppruna-
legu mynd en byggður var inngangur
við húsið í tíð Þorsteins Scheving
Thorsteinssonar árið 1938. Að sögn
Ólafs munu minniháttar lagfæringar
fara fram áður en skrifstofa forseta
NÝKJÖRINN forseti íslands, Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, og kona hans,
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir,
gengu á fund Vigdísar Finnboga-
dóttur, fráfarandi forseta á Bessa-
stöðum síðdegis í gær.
Eftir fund þeirra var Vigdís
spurð hvaða heilræði hún hefði
gefið tilvonandi forsetahjónum.
„Við ræddum í rauninni ekki um
neina ráðgjöf. Við settumst niður
og fengum okkur kaffibolla, síðan
kynnti ég starfsfólkið fyrir þeim
og sagði frá kostum þess - vegna
þess að það hefur aðeins kosti,“
sagði Vigdís.
En hvernig skyldi henni hafa lið-
ið að standa í þessum sporum, nú
flytur inn og komið upp nauðsynleg-
um viðvörunar- og öryggiskerfum.
Síðar þyrfti að breyta aðkomu að
húsinu við Skothúsveg og Fjólugötu
sem væri þröng en mætti lagfæra
og gera aðgengilegri. „Ýmislegt
fleira þarf að skoða en það er ekk-
ert sem er aðkallandi og þarf að
gera strax,“ sagði Ólafur.
Sérkennileg tímasetning
Svavar Gestsson, þingflokksfor-
maður Alþýðubandalagsins, segir
eðlilegt að fundið hafí verið húsnæði
fyrir forseta íslands. „En mér fínnst
það sérkennilegt að tilkynna það
daginn sem nýr forseti er kjörinn,"
sagði hann. „Það hefði verið skyn-
samlegra að hinkra með það fram
yfír helgi.“ Svavar sagðist ekki vera
viss um að staðsetning hússins hent-
aði embættinu. Aðkoman væri þröng
o g efaðist hann um að nægilega rúmt
væri um þennan stað miðað við þarf-
ir embættisins. „Það er þrengri að-
koma að þessu húsi frá götunni en
er við stjómarráðið," sagði hann.
Svavar sagði að skrifstofa forseta
hafí verið flutt úr Alþingishúsinu í
stjómarráðið til bráðabirgða í tíð
Kristjáns Eldjáms. í stjómarráðinu
hafí verið þröngt um embættið og
ekki óeðlilegt að leitað væri eftir
öðra húsnæði. Það hafí hins vegar
haft vissa kosti bæði fyrir forsetann
og forsætisráðherra að vera í sama
húsi og gert samskipti embættanna
auðveldari.
Þröngt í stjórnarráðinu
Rannveig Guðmundsdóttir, þing-
flokksformaður Alþýðuflokksins,
sagðist hafa kynnst því að hluta til
i gegnum sitt starf að gífurleg
þrengsli væra í stjórnarráðshúsinu.
„Ég hafði ekki gert það upp við mig
hvort mér fyndist að forsætisráðu-
neytið ætti að vera þar eða forseti
íslands," sagði hún. „Ég varð fyrst
og fremst undrandi að heyra að þetta
væri allt frágengið og að búið væri
sextán árum eftir að hún kom sjálf
að Bessastöðum og Kristján Eld-
járn tók á móti henni, þá nýkjörn-
um forseta?
„Mér fannst það mjög eðlilegt.
Ég hef mikið hugsað til Kristjáns
og Halldóru Eldjárn þessa daga.
Þetta voru þau að upplifa fyrir
sextán árum og ég vona að ég
hafi komið til þeirra á þann veg
þá sem ég óska að nú sé komið til
mín. Ég skil auðvitað við staðinn
með trega, ég er búin að vera hér
það lengi og kann orðið öll smáat-
riði á þessum stað. Ég er mjög vel
kunnug jörðinni og náttúrunni
hérna í kring, vegna þess að ég hef
gengið svo mikið um nesið og notið
að ganga frá þessum kaupum. En
ef niðurstaðan er sú og um það er
full sátt að embætti forseta flytji úr
stjórnarráðshúsinu sýnist mér að
þama hafí verið valið ásættanlegt
hús. Mér hefði fundist smekklegra
að hafa nýkjörinn forseta með í ráð-
um og þess vegna er ég mjög fegin
að heyra að honum líst mjög vel á
ráðstöfunina. Mér finnst það skipta
máli að hann er sáttur.“
náttúrunnar. Ég er mjög vel kunn-
ug fuglalífinu hér og auðvitað öllum
staðarháttum. Ég hef lagt mig sér-
staklega eftir sögu staðarins og
Forseta samboðið
Kristín Ástgeirsdóttir, þingkona
Kvennalista, segir að það hafi verið
þörf á að búa betur að forsetaemb-
ættinu. Það hafí verið þröngt í stjórn-
arráðinu og ekkert óeðlilegt við að
forsetinn hafi sér skrifstofu og hús-
næði fyrir sig. „Það er sérkennilegt
að þetta skuli koma upp núna,“ sagði
hún. „Ég tek undir það sjónarmið
að það hefði verið eðlilegt að gefa
allt þetta á ég auðvitað í farteski
minninganna,“ segir Vigdís Finn-
bogadóttir, sem enn á eftir mánuð
í forsetaembætti.
verðandi forseta tækifæri til að segja
sitt álit, hver sem hann nú væri.
Hins vegar er þetta glæsilegt hús
og forsetanum fyllilega samboðið."
Glæsilegt hús
Valgerður Sverrisdóttir, þing-
flokksformaður Framsóknarflokks-
ins, sagðist engar athugasemdir gera
við kaup á húsinu. Það væri glæsi-
legt. „Ég hafði heyrt að þarna gætu
orðið á breytingar en vissi ekki
hversu langt það var komið,“ sagði
hún. „Ég hef enga sérstakar athuga-
semdir við þessa málalyktan. Það
hefur verið talað um að þessi breyt-
ing væri í aðsigi innan stjórnarflokk-
anna en ég vissi ekki nánar um hvaða
hús væri að ræða fyrr en núna.“
Kom á óvart
Svanfríður Jónasdóttir, þingflokks-
formaður Þjóðvaka, sagði að kaup
ríkisins á Sóleyjargötu 1 hafi komið
á óvart og að hún sé undrandi á með
hvaða hætti greint var frá kaupunum.
„Ég hafði ekki heyrt um þessar ráða-
gerðir fyrr,“ sagði hún. „í gegnum
tíðina hef ég vitað að þröngt er í
stjórnarráðinu. En það kemur þannig
fyrir sjónir að þessi ákvörðun hafi
verið tekin nýverið. Mér fínnst þetta
hús vera vel við hæfí.“ Svanfríður
sagðist ekki setja út á staðsetninguna
og skiljanlegt væri að embættið þyrfti
að flytja úr stjómarráðinu. „Ég hef
verið að fara á fundi hjá forsætisráð-
herra og hitt á sama tíma og forseti
íslands er með viðtalstíma. Það á
ekki saman,“ sagði hún.
Boðin velkomin
á Bessastaði
Morgunblaðið/Sverrir
VIGDÍS Finnbogadóttir býður Ólaf Ragnar Grímsson og Guð-
rúnu Katrínu Þorbergsdóttur velkomin á Bessastaði.