Morgunblaðið - 02.07.1996, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ1996
Nýjar bækur
NÝTT tímarit á frönsku um norræn
fræði hefur hafið göngu sína. Að
útgáfu tímaritsins stendur Félag
norænna fræða í
Frakklandi í París.
Tímaritið nefnist
Proxima Thuie og
kom annað bindi út
nú í vor. Er hér um
að ræða eina tíma-
ritið á frönsku sem
helgað er þessum
fræðum. í Proxima
Thule fer fram vís-
indaleg umfjöllun
um forna menningu
og sögu, s.s. bókmenntir, rúnafræði,
trú og goðafræði og alla aðra helstu
þætti á sviði bókmenntafræði, texta-
fræði, sagnfræði, og fornleifafræði
er varða þetta efni.
Ritstjóri tímaritsins er Francois-
Xavier Dillmann en honum til ráð-
gjafar er fjölmenn ritstjórn sérfræð-
inga frá ýmsum löndum, m.a. Jónas
Kristjánsson og Hörður Ágústsson.
---------»-■» ♦--
Gerður og
Hjálmar í Þrast-
arlundi
GERÐUR Berndsen og Hjálmar
Hafliðason opnuðu sýningu á verk-
um sínum í Þrastarlundi 30. júní
síðastliðinn og verður hún opin alla
daga til 15. júlí. Gerður sýnir vatns-
lita- og akrýlmyndir en Hjálmar
olíumálverk. Allar myndirnar eru
til sölu.
l’ifvlí**
.* i» !»w fnWM-
/)»:;; >«« tf n'ti.
PROXIMA
THULÉ
Samsýning-
ar á Suður-
nesjum
TVÆR samsýningar listamanna í
tengslum við sumar á Suðumesj-
um opnuðu í Kjarna (göngugötu
og bókasafni) og á veitingahúsinu
Ránni, Keflavík, síðastliðinn laug-
ardag.
Munu þær standa yfir í þrjár
vikur. Á fyrmefnda staðnum sýna
Ásta Árna, Karl Olsen, Sigríður
Rósinkars og Soffía Þorkels en á
Ránni eru Fríða Rögnvalds, Ásta
Áma og Sigríður Rósinkars á ferð.
Sýningarnar eru opnar á opnun-
artíma veitingahúsanna.
Nýjar bækur
Ljóð á landi og sjó
ÚT er komin bókin Ljóð á landi
og sjó eftir álenska skáldið og sjó-
manninn Karl-Erik Bergman. Ljóð
á landi og sjó er úrval lj'óða úr sjö
bókum sem út komu á tímabilinu
1957-1993. Aðalsteinn Ásberg
Sigurðsson valdi ljóðin og íslensk-
aði þau.
Karl-Erik Bergman _er meðal
þekktustu rithöfunda á Álandseyj-
um. Auk ljóða hefur hann skrifað
'smásögur og frásagnir, efni fyrir
útvarp og sjónvarp og er eftirsótt-
ur upplesari. í skáldskap hans birt-
ast hugleiðingar um lífið og tilver-
una á sjó og landi - og margt á
þar eflaust erindi-
við íslenska les-
endur.
Útgáfufélagið
Dimma gefur
bókina út. Bókin
er 63 bls. og -
kostar 1.620 kr.
Hlynur Helgason
Hannaði kápu,
Karl-Erik en bókin er
Bergman prentuð f
Prisma/
Prentbæ. Norræni þýðingasjóður-
inn styrkti útgáfuna.
Búðir á Snæfellsnesi
BÓKMENNTIR
Sagnfræði
SAGA BÚÐA OG
HRAUNHAFNAR
eftir Guðlaug Jónsson. Búðir hf.
Bókaútgáfa Victors Sveinssonar
1995,162 bls.
MARGIR sækja heim Búðir á
Snæfellsnesi. Þar er góður og vin-
sæll gisti- og dvalarstaður, umhverfi
tilkomumikið og undrafagurt og
býður því ferðamanni margt. Sé
hann fróðleiksfús og söguhnýsinn
mun hann skynja mikla sögu að
baki nútímans. Hver er hún? Hvar
er hennar að leita? Engan stað eign-
ast maður án þess að vita eitthvað
um sögu hans. Á sama hátt og varla
er hægt að segja að maður þekki
einhvern án þess að kunna einhver
skil á fortíð hans.
Þetta hefur hótelstjóri Búða og
Búðabóndi, Victor Sveinsson, skilið
mætavel. Hann byijar formáia þess-
arar bókar svo: „Þegar ég hóf störf
á Búðum, haustið 1993, vaknaði
þegar áhugi minn á sögu staðarins.
I raun varð ekki hjá því komist.
Hvert sem litið er ber merki liðins
tíma fyrir augu, bæði leynt og ljóst.“
Hann hóf því að tína saman þau
sögubrot sem finnanleg voru, en
fann enga samfellda sögu fyrr en í
leitinar kom „handrit áð sögu
Hraunhafnar og Búða“ eftir Guð-
laug Jónsson. Þetta handrit var
skrifað fyrir mörgum árum, enda
lést Guðlaugur fyrir fimmtán árum.
Handrit þetta var Búðabónda „sann-
kallaður hvalreki" og hófst hann nú
handa um útgáfu þess. Við undir-
búning til prentunar naut hann
dyggilegrar aðstoðar Helga Gríms-
sonar og Önnu Sigríðar Guðmunds-
dóttur.
Og nú kemur þessi saga fyrir sjón-
ir lesenda, einstaklega smekkleg að
öllum ytra búnaði. Ekki er hún stór.
Texti Guðlaugs losar eitt hundrað
blaðsíður, en við bætast myndir af
gömlum kortum, loftmynd og fleiri
fróðlegar myndir, skrár um heimild-
ir, nöfn manna og staða.
Textinn skiptist í átta kafla, en
sumir þeirra eru mjög stuttir. Þeir
bera heitin: Hraunhöfn-Búðir,
Hraunhafnarós, Ættarbúsetunni
lokið, Menn og málefni á 18. öld og
síðar, Nokkur orð um Bentsbæ, Frá
Hoffmannsætt, Einn Hraunhafnar-
bóndi o.fl., Skipstapar á Búðum og
fleiri slysfarir á 19. öld.
Höfundur rekur í þessum köflum
ýmsa þætti úr sögu Búða á liðnum
öldum, skýrir frá staðháttum, ör-
nefnum, búsetu manna og umsvifum
til lands og sjávar, eignarhaldi jarða
og ýmsu fleiru. Mikið hefur verið
þar um að vera um alllangt skeið.
Á tímabili hafa búið þarna á annað
hundrað manns í um sextán kotum
eða býlum. Verslun var mikil. Um
skeið voru Búðir aðal kaupstaðurinn
á Snæfellsnesi og náði Búðakaup-
svið frá Hvítá í Borgarfirði og vest-
ur að Búðahrauni.
Margs er getið í þessari frásögn.
Margir menn koma við sögu, mál-
efni þeirra, umsvif og atburðir. Höf-
undurinn hefur greinilega lagt mikla
vinnu í öflun heimilda. Honum hefur
tekist að raða þeim vel saman og
gera úr því skilmerkilega sögu. Lík-
legt er þó að ferðamanni sem vill
fá fljótlegt yfirlit og auðlesið þyki
hún stundum í þurrara lagi og ýmis-
legt fljóti með sem hann hefur lítinn
áhuga á. En auðvelt er að nota þessa
bók sem uppistöðu að handhægum
bæklingi. Þyrfti þá að fylgja honum
þægilegt kort með örnefnum yfir
suðurhluta Snæfellsness ásamt
merktum göngu- og reiðleiðum. Þyk-
ir mér ekki ósennilegt að hinn fram-
takssami Búðabóndi láti af því verða.
En hvað sem því líður ber að fagna
þeirri bók sem nú er komin á prent
svo smekkleg sem hún er og fallega
útgefin.
Sigurjón Björnsson
BOMRG
þjöppur og valtarar
BROT AF ÞVÍ BESTA..
BOMAG BP15/45 plötuþjappa, 92 kg, bensín kr. 159.000 án vsk.
BOMAG BPR30/38 plötuþjappa m/gír, 190 kg, bensín kr. 320.000 án vsk.
BOMAG BPR30/38D plötuþjappa m/gír, 210 kg dísel kr. 380.000 án vsk.
BOMAG BW 65S valtari m/gír 650 mm breidd, dísel kr- 799.000 án vsk.
Skútuvogi 12a, sími 581 2530.
Staðgreitt
600 tölvur á
45dögum!
Örgjörvi: PowcrPC 603 RISC með það og setja eigin myndir í
Tiftíðni: 75 megarið mismunandi skjöl.
Vinnsluminni: 8 Mb Composite og S-VHS inngangar.
Skjáminni: 1Mb DRAM Fjarstýring
Harðdiskur: 800 Mb Mótald með faxi og símsvara
Geisladrif: Appte CD600Í (fjórhraða) Hnappaborö: Apple Design Keyboard
Hátalarar: Innbyggðir tvíóma hátalarar Stýrikerfi: System 7.5.1 sem að sjálfsögöu
Skjár: Sambyggður Apple 15" MultiScan er alit á íslensku
Diskadrif: Les gögn af Pc disklingum llugbúnaður: Hið íjölhæfa ClarisVHorks 3.0
Fylgir með: Sjónvarpsspjald sem gerir kleift að horía á sjónvarpið í tölvunni auk þess sem hægt er aö tcngja við hana myndbandstæki eða upptökuvél, taka upp efni, vinna sem einnig er á íslensku. I forritinu er ritvinnsla, töflureiknir, tvö teikniforrit, gagnagrunnur og samskiptaforrit
Apple-umboðið
Skipholti 21 • Sími 511 5111 • Heimasíðan: http://www. apple. is