Morgunblaðið - 02.07.1996, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996 51
+ Sæunn Árna-
dóttir var fædd
á Akranesi hinn 10.
júní 1940. Hún lést
í Sjúkrahúsi Akra-
ness hinn 25. júní
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Arni B.
Gíslason, f. 18.8.
1913 og Þórey
Hannesdóttir, f.
24.12. 1918, d.
23.11. 1991. Sæunn
bjó á Akranesi alla
sína tíð og var gift
Sigmundi Ingi-
mundarsyni, f. 11.2. 1929, d.
22.11. 1994. Börn þeirra eru
Árni Þór, f. 3.10. 1956, Ágústa,
f. 11.8. 1958 og Ingimundur, f.
17.6. 1970.
Útför Sæunnar verður gerð
frá Akraneskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Þetta var þá þinn tími. Það var
komið að brottför. Ég skildi er ég
heimsótti þig hinsta sinni að þú
meira en varst við brottfarardyr,
þú varst tilbúin. Tilbúin til að hitta
fyrir þann sem vísar til sætis á
himnum. Sæti sem skipað er í eft-
ir verkum og hugarfari
þess sem það fær. Nú
ert þú í bezta sæti.
Þeir eru öfundsverðir
sem nálægt þér fá að
sitja. Þeir fá mikið lært
og mikils notið. Þeir fá
að njóta glaðlegrar vit-
undar sem nær að
draga fram birtu og
hlýleik frá sérhverjum
nálægum. Þeir njóta
umburðarlyndis og ör-
lætis á kærleika. Sá
gefur mest er gefur af
sjálfum sér. Þannig
varst þú. Þú varst búin
að skila þínu verki með reisn, á
lífsleið sem var ekki auðfarin. En
við hverja þraut óx þér styrkur.
Ég dáðist að þreki þínu, en skildi
um leið að vegurinn til þroska er
vegurinn sem þú fórst. Sá vegur
er ekki öllum fær. En hver sá sem
nær leiðarenda er sigurvegari. Það
er sama hvað við söfnum að okkur
af veraldlegum gæðum í tilver-
unni, varanlegur auður okkar eða
fátækt verður aldrei meiri en
breytni okkar í lífinu segir til um.
Breytni okkar er sá eini farangur
er við tökum með okkur til nýrra
heimkynna. Það verður ánægjuleg
stund hjá þér er þú tekur upp úr
töskunum þína breytni og verkin
þín og afhendir til skoðunar. Ég
veit að af þínum verkum mátt þú
vera stolt. Ég hef alla tíð verið
stoltur af þér sem frænku. Þú hef-
ur þann eiginleika að geta um-
gengist alla sem jafningja. Sá sem
hefur þann hæfileika ásamt þínu
hjartalagi gleymist ekki. Ég á
skemmtilegar minningar um þig
frá fyrstu tíð og hafði gaman af
því seinni árin hversu vel þú hélst
upp á ýmis skemmtileg atvik og
orðatiltæki okkar sem barna, en
líkast til hefur það verið þér auð-
veldara vegna þess, hversu vel þú
varðveittir barnið í þér. Ég minnist
góðra gjörða þinna, til dæmis er
ég lá á sjúkrahúsi aleinn úti í hin-
um stóra heimi og fékk frá þér
stóra sendingu íslenskra blaða og
tímarita. Ég minnist þess hversu
mikla þýðingu sú sending hafði
fyrir mig. Aldrei hefur Mogginn
verið mér jafnkærkominn.
Ég veit að margir og þá sérstak-
lega barnabörnin þín eiga eftir að
sakna þín mikið, því í þér áttu þau
ekki bara ömmu og góðan félaga.
Hjá þér áttu þau ómetanlegt skjól
sem verður þeim bæði skjöldur og
styrkur í framtíðinni. Ég bið guð
að gefa þeim er nú syrgja styrk og
blessun.
Megin þitt og mildi
í minninganna safn
skráð í heiðursskildi
skýrt mun þar þitt nafn.
Eyþór Eðvarðsson.
SÆUNN
ÁRNADÓTTIR
GUÐRÚN LÁRA
BRIEMHILT
+ Guðrún Lára Briem Hilt
fæddist á Hrafnagili í Eyja-
firði 22. apríl 1918. Hún lést á
sjúkrahúsi í Ósló 15. júní síðast-
liðinn og fór útför hennar fram
frá Vestre krematorium í Ósló
24. júni. Minningarathöfn um
Guðrúnu fór fram í Fossvogs-
kapeilu sama dag.
Um miðjan júní lézt í Ósló Guð-
rún Lára uppeldisfræðingur frá
Akranesi á 79. aldursári. Banamein
hennar var hjartaslag. Hafði Guð-
rún verið búsett í Noregi frá ungum
aldri, en hún fór utan og til fóstru-
og uppeldisfræðináms og ílentist
þar til starfa og varð úr ævivera,
enda giftist hún norskum manni,
Odd Hilt myndhöggvara frá
Drammen. Áttu þau þijú börn:
Ragnhild, leikkonu í Ósló, Björn,
lækni í Niðarósi, og Torstein, sem
er rithöfundur og bókaútgefandi í
Ósló. Bjó hann í húsum móður sinn-
ar á Jarlsborgveien 44, en þar eru
skemmtileg timburhús í lista-
mannahverfi, reist skömmu eftir
stríð, og hlaut Odd Hilt þar innivist
og íbúð fyrir sig og sína listrænu
fjölskyldu, er þau hjónin voru að
nýju setzt að í Ósló eftir nokkra
dvöl á hinum foma hefðarstað í
Niðarósi, þar sem Odd vann að
endurbótum og lagfæringum á hin-
um aldna helgidómi Niðarósdóm-
kirkju. Til þess vanda þurfti bæði
listamenn og hina færustu fag-
menn. Var Odd þjóðkunnur mynd-
höggvari í heimalandi sínu og átti
bjarta og stóra vinnustofu í húsinu
á Jarlsborgveien. Hann lézt við lít-
inn sjúkdómsfrest á aðventu jóla
1986, fékk hjartaáfall hinn 4. des-
ember og dó á fárra daga bið.
Kona hans og yngri sonurinn
þjuggu áfram í listamannshúsinu og
héldu fallegu heimilinu við alla hefð
og virkt. Var þar gestkvæmt jafnan
og íslendingum vel fagnað. Eigum
við kona mín og böm margra ljúfra
samverustunda að minnast þar og
þakka, en þær nöfnur náfrænkur,
en Torstein Hilt gamalgróinn vinur
okkar frá Ólafsvík og Mælifelli.
Guðrún Lára var fædd á prests-
setrinu að Hrafnagili í Eyjafirði
mánudaginn síðastan í vetri 1918,
fjórða dóttir síra Þorsteins Ólafs-
sonar Briems, síðar prófasts, þing-
manns og ráðherra á Akranesi, og
frú Valgerðar Lárusdóttur, prests
Halldórssonar. Voru þær Guðrún
og Lára Sigurbjörnsdóttir tengda-
móðir mín systradætur. Yngsta
systir Guðrúnar dó í frumbernsku
og móðir þeirra ári síðar, um sumar-
komuna 1924. Systrunum gekk í
móðurstað frænka Valgerðar, Emil-
ía Octavía Guðjohnsen frá Vopna-
firði, og varð hún síðari kona síra
Þorsteins. Kristín og Valgerður
myndlistarmaður settust að í
Reykjavík, og lifir nú aðeins Val-
gerður þeirra Þorsteinsdætra Bri-
em, en Halldóra búsett langa og
merka ævi í Svíþjóð, ríkisarkitekt.
Halldóra lézt í Stokkhólmi hinn
21. nóvember 1993 og komu minn-
ingar hennar út á bók eftir Stein-
unni Jóhannesdóttur frá Akranesi
nokkru fyrr. Segir þar ítarlega frá
ættum og æsku þeirra systranna,
sem allar voru búnar miklum
mannkostum. Skal það ekki rakið
að sinni, en Guðrún Lára var ekki
afskipt um listfengi og góðar gáf-
ur. Hún var og virt og vinsæl af
menntun sinni og ábyrgðarstarfi
langan starfsdag í Noregi. Með
afbrigðum skemmtileg kona, glað-
lynd og gamansöm, en rík af friðar-
hugsjón og mannbótastefnu. Var
hún víðförul, kannaði lönd og
kynntist við fólk. Eru minningarn-
ar áleitnar frá komu hennar að
Mælifelli, í heimasveit og hérað afa
hennar, Ólafs Briems alþingis-
manns á Álfgeirsvöllum. Hve hún
skoðaði bæi og stöðvar föðurfólks
síns af mikilli ættfræði- og sögu-
þekkingu ásamt aðdáun á fegurð
fjallanna og hins víða undirlendis.
— Síðar kom hún til okkar í Húsi
Jóns Sigurðssonar í Kaupmanna-
höfn. Ekkja og ein á ferð. Þar vildi
hún koma á Kommúnuspítalann,
þar sem móðir hennar lá banaleg-
una, meir en 60 árum fyrr, og
skoða allt sem gerst, er áhrærði
veikindi móðurinnar og lækninga-
tilraunir, er þá voru helzt bundnar
vonir við í baráttunni við hinn hvíta
dauða. — Farangur ferðakonunnar
frá Ósló var aðeins einn lítill bak-
poki. Hún ætlaði til Róms og hafði
með sér mikla bókþekkingu á Lat-
veijum og fornri sem nýrri sögu
listamannalandsins suður við Mið-
jarðarhaf. Þótt ferðapokanum væri
ruplað, var gnægð eftir hins, sem
meira var. Italíuferðin var mikill
lista- og náttúruskoðunarleiðang-
ur. Og í heimleiðinni þurfti hún að
grennslast fyrir um hvaðeina, sem
viðvék skagfirzka myndhöggv-
aranum Albert Thorvaldsen, sem
gerði 38 ára stanz á Ítalíu á fyrri
hluta aldarinnar, sem leið.
Bréf Guðrúnar Láru voru snjöll,
hugmyndir frumlegar og boðskapur
í máli og teikningu á kortunum
athyglisverður í einfaldleika, en
skýrum dráttum. — Hinu skal ekki
gleymt, að hún var manni sínum
mikill félagi og ástúðarvinur, um-
hyggjusöm móðir barnanna og
prýddi heimilið af smekkvísi og sér-
kennilegu næmi, sem vakti aðdáun
og glaðan hug. Þann léttleika hug-
arfarsins sem hreif gest og gang-
andi með í listskynjun og ljúf-
mennsku.
Börnum og fjölskyldu Guðrúnar
Láru Briem og Odds Hilt sendum
við einlægar samúðar- og saknaðar-
kveðjur með þökkum fyrir allar
glöðu og góðu stundirnar í Ósló og
á gamla heimalandinu hennar. I
stað íslandsferðar í næsta mánuði
fór hún í nokkru lengri flugferð.
Og ekki með lítinn mal um vinstri
vænginn, en mikinn fjársjóð andans
— listar, gleði og mannræktar.
Ágúst Sigurðsson,
Prestbakka.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR RAGNAR BJARNASON,
Sandgerði,
andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur þann
30. júní.
Jarðarförin fer fram frá Hvalsneskirkju
föstudaginn 5. júlí kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Rósa D. Björnsdóttir.
t
Innilegar þakkir færum við öllum, sem
sýndu okkur samúð og hlýjug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
FRIÐRIKKU PÁLSDÓTTUR,
frá Sandgerði.
Anna Sofffa Jóhannsdóttir, Konráð Fjeldsted,
og börn.
t
Okkar kæri,
INGÓLFUR ARNARSON,
sem lést í Danmörku þann 24. júní sl.,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 3. júlí kl. 15.00.
Sigriður Jónsdóttir,
Gunnar Örn Ingólfsson,
Anna Ingólfsdóttir,
Sigríður Jakobsdóttir
og systkini.
ouglýsingor
KENNSIA
Sumarnámskeið
Handmenntaskólans
er í bréfaskólaformi.
Lærið að auka vöxt garðjurtanna
og stofublómanna með hljóm-
blóma-aðferöinni. Kennari er
Hafsteinn Hafliðason.
Sími 562 7644 eða
í pósthólf 1464,
121 Reykjavík.
Litaljósritun
- myndgæði
Opið frá kl. 13.30-18.00.
Ljósfell,
Laugavegi 168,
Brautarholtsmegin.
im | £
>
i\ ii fi K-
ILJaJJ ™3
Hallveigarstíg 1 • sími 561 4330
Dagsferð 7. júlí
ki. 9.00 Fjallasyrpan, 5. áfangi,
Hekla.
Helgarferðir 5.-7. júlí:
1. Kl. 20.00 Mýrdalsjökull. Gist
í húsi á Emstrum og gengið á
skiðum yfir Mýrdalsjökul. I Bása
á sunnudag. Verð 8.400/9.100.
2. Kl. 20.00 Básar í Goðalandi.
Það er alltaf jafn gaman i Þórs-
mörkinni og nágrenni. Verð
4.900/4.300, tjaldgisting.
3. Kl. 20.00 Lakagigar, ferð um
stórkostlegt svæði, austan
Skaftár, í fylgd heimamanna.
Helgarferðir 6.-7. júlí
kl. 08.00 Jurtum safnað í Þjórs-
árdal. Fræðst um lækningajurtir
og matjurtir í fallegu umhverfi.
Laugardagur 6. júlí
kl. 09.00 Fimmvöröuháls frá
Básum. Ferð fyrir alla sem vilja
ganga niður af hálsi í Bása og
njóta stórbrotins útsýnis.
Uppselt í helgarferðir á Fimm-
vörðuháls. Miðar óskast sóttir
eigi síðar en á þriðjudag.
Netslóð:
http://wwww.centrum.is/utivist
Útivist.
Mannræktin,
Sogavegi 108,
(fyrir ofan
Garðsapótek),
sfmi 588 2722.
Skyggnilýsing
Lesið í spil
í kvöld, þriðjudagskvöldið 2. júlí,
kl. 20.30 á Sogavegi 108 fyrir
ofan Garðsapótek. Einnig verður
lesið úr dýraspilum (Medicine
cards) o.fl.
Aðgangseyrir kr. 1.000.
Uppl. í síma 588 2722.
Ingibjörg Þengilsdóttir, miðill,
Jón Jóhann, seiðmaður.
7
Z
o
*-v
JÓGASTÖÐIN
HEIMSLJOS
Ármúla 15,
sími 588 4200
Vellíðunarnámskeið
10.-19. júlímið./
fös. kl. 18.15-
20.15.
Vöðvabólga,
höfuðverkir
og orkuleysi.
Kanntu að lesa úr skilaboðum
líkamans?
Jóga, hugleiðslur, öndunar-
æf ingar og slökun.
Leiðbeinandi: Helga Mogensen.
Upplýsingar og skráning í síma
588 4200 kl. 17-19 í Jógastöð-
inni Heimsljósi, Ármúla 15.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANOS
MORKINNI 6 - SlMI 568-2533
Dagsferðir
Ferðafélagsins:
Miðvikudagur 3. júlí:
Kl. 08.00 Þórsmörk - dagsferð.
Kynnið ykkur hagstætt verð á
sumarleyfi í Þórsmörk.
Kl. 20.00 Gullkistugjá - Kaldársel
(kvöldganga).
Helgarferðir 5.-7 .júlf:
1. Landmannalaugar - Hrafn-
tinnusker - Torfajökull, skíða- og
gönguferð. Gist í Laugum og
Hrafntinnuskeri.
2. Landmannalaugar - Veiði-
vötn. Gist í Landmannalaugum.
3. Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs-
skála.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu F.í.
Ferðafélag íslands.