Morgunblaðið - 02.07.1996, Side 60

Morgunblaðið - 02.07.1996, Side 60
 60 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FOLKI FRETTUM Útgáfutónleikar Super 5 ÚTGÁFUTÓNLEIKAR voru haldnir í Tunglinu, sl. fimmtudagskvöld þar sem fangað var útgáfu geisladisksins Super 5. Fimm hljómsveitir eiga lög á disknum og léku Spoon, SSSól, Funckstrase og Botnleðja 3-5 lög á tónleikunum sem stóðu frá kl. 23 um kvöldið til 1 á mið- nætti. Damon Albarn söngvari Blur fylgdist með tónleikunum. Morgunblaðið/Jon Svavarsson HLJÓMSVEITIN Funckstrase lék nokkur lög á útgáfutónleikum Super 5. LIÐSMENN Botnleðju asamt Damon Albam, söngvara Blur HELGI Geir Arnarson, Halldór Gunnlaugs- son og Brynjar Örn Sveinjónsson hlýddu á tónlistina með athygli. SPOON lék með miklum tilþrifum. mm í Los Angeles fyrir skömmu. Dáðst var aðþví hvernig hún setti peysuna frjólslega um axlirnar þrátt fyrir íburðarmikinn I Skíðaskólinn í Kerlingar- fjöllum 35 ára HALDIÐ var upp á 35 ára afmæli skíðaskólans í Kerlingarfjöllum á laugardaginn á Hótel Sögu. Var tækifærið notað til þess að heiðra nokkra stuðningsmenn skólans fyrir ómetanlega aðstoð þeirra við hann á undanförnum árum. Heiðurs- Fannborgarar voru gerðir: Þorsteinn L. Hjaltason, Gunnar G. Kvaran, Guðmundur Kr. Guðmundsson, Ólaf- ur Þorsteinsson, Þorvarður Guðjóns- son og Rafn Jensson. Morgunblaðið/Jón Svavarsson sfmi 551 1200 # TAKTU LAGíÐ LÓA eftir Jim Cartwright Á Blönduósi kl. 20.00: Mið. 3/7. Miðasala á staðnum. Á Egilsstöðum kl. 21.00: Fös. 5/7 og lau. 6/7. Miðasala á staðnum. Á Stóra sviöi Borgarleikhússins Frumsýning fös, 12.júlí kl.20 örfá sæti laus 2. sýninp sun, 14,júlí kl, 20 örfásæti laus 3. sýning fim, 18.júlí kl, 20 örfá sæti laus 4. sýning fös, 19,júlí kl, 20 örfá sæti laus 5. sýning lau. 20.júli ki. 20 Forsala aðgönpumiða er hafin • Miðapantanir í síma 568 8000 Ljósmynd/Haraldur Jóhannsson FRÚ Carolina Schubrig, ræð- ismaður íslands í Vín við stjórnvölinn á M.S. Austria, sem fæstum fer betur úr hendi. Niður Dóná með íslenska fánann við hún AÐALRÆÐISMAÐUR íslands í Vín, frú Carolina Schubrig, bauð Islendingum í Austurríki og ná- grenni í siglingu með M.S. Austria þann 15. júní sl., en frúin stendur að slíkum boðum árlega. Fljótabáturinn heldur daglega áætlun milli Krems og Melk í Wach- au en utan áætlunartíma stendur til boða að leigja það til einkasam- kvæma. Báturinn lagði úr höfn í Krems með íslenska fánann við hún og tók siglingin eftir dalnum til Melk þijá tíma. Wachaudalur er sögufrægur og ríkur af fornum mannvirkjum. Þegar til Melk kom var hópurinn fluttur til veitinga- staðarins Knoli í Unter Lagen í litlu þorpi í útjaðri Durnstein. Með í för voru m.a. Þorsteinn Pálsson dóms- og kirkjumálaráð- herra og kona hans Ingibjörg Rafn- ar, Ingimundur Sigfússon, sendi- herra íslands í Austurríki með aðset- ur í Bonn, og Vala Valsdóttir eigin- kona hans svo og séra Hreinn Hjart- arson og Sigrún Halldórsdóttir. Um miðnætti lauk ferðinni fyrir framan Ríkisóperuna í Vín og þaðan dreifð- ust rúmlega fimmtíu manns á öllum aldri til sinna heima eftir ánægjuleg- an og eftirminnilegan dag. 'ó'ú'V-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.