Morgunblaðið - 02.07.1996, Qupperneq 62
.62 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
r..».•;----^
HÁSKOLABÍÓ
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
Heimasíða Barb Wire
http://vortex.is/pamela
EKKI SEGJA VINAN"!!
FRUMSÝNING: DRAKÚLA: DAUÐUR OG í GÓÐUM GÍR!
DEAD^LöVliGi;
Leslie Nielsen fer á kostum í hlutverki sínu sim Drakúla greifi í
sprenghlægilegri gamanmynd frá gríngreifanum Mel Brooks. Nielsen og
Brooks gera hér stólpagrín að þjóðsögunni um blóðsuguna ógurlegu. Þú
munt aldrei líta blóðsugur sömu augum eftir þessa mynd!!!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i 12 ára.
IAN
HART
ART
LiiLLr
QD
Nýr kennari í skóla fyrir vandræðaunglinga fær eldskírn í því að takast á við
vandræðaunglinga sem eru eins og eimreiðar á fullri ferð til glötunar. Allar
venjulegar leiðir til að ná til krakkana eru fánýtar og þá er um að gera að reyna
eitthvað nýtt. Aðalhlutverk: lan Hart (Backbeat) og Art Malik (True Lies).
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
ANTHONY Quinn.
Á spítala
► LEIKARINN góðkunni,
Anthony Quinn, hefur verið á
spítala á Rhode Island síðan
á sunnudag. Ekki var gefið
upp hvað angraði leikarann,
sem er orðinn 81 árs. Quinn
fór í hjartaþræðingu fyrir sex
árum en þá sögðu læknarnir
að hjarta hans væri sterkt og
sú aðgerð ætti ekki að hamla
honum á neinn hátt. Talsmenn
sjúkrahússins gáfu til kynna
að ekki væri neitt alvarlegt á
seyði með leikarann.
Anthony Quinn hefur tvisv-
ar hlotið Oskarsverðlaun, fyr-
ir hlutverk sitt í „Viva Zap-
ata“ sem frumsýnd var árið
1952 og síðan fjórum árum
síðar fyrir myndina „Lust for
Life“. Flestir þekkja þó Quinn
fyrir frábæra túlkun hans á
Grikkjanum Zorba.
VARORTALISTI
Dags. 2.7. ’96. NR. 207
5414 8300 2954 3104
5414 8300 3045 5108
5414 8300 3225 9102
5413 0312 3386 5018
5414 8300 3236 9109
Ofangreind kort eru vákort,
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocard.
KREDITKORT HF.,
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 568 5499
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4000 0000 3741
Erlend kort:
4581 0981 2741 8138
4925 6550 0001 1408
AfareWslufólk.
vintamlegasl takiO
ofangniind korl úr utnferS og
sondl&VIBA lalandl aundurfclippt.
VERÐ LAJN KR. 5000,-
fyrlr »0 klófaata kort og vfnn 4 vágnt
J Vaktþjónusta VISA mr opin allart j
I BÓiartirinninn. Þangaö bar nö (
itilkynna um oltttuð og atolln kort
I SfMI: 667 1700
j i visa
Alfabnkkn 16 - 109 Rnykjnvfk
> --------- ----------- -----------
Stjömumáltíðir
bíða þín....
...hvenær
kemur þú?
Austurstræti 20, Veitingastofa og næturlúga
Veitingastofa og Beint-í-Bílinn, Suðurlandsbraut 56
Morgunblaðið/Þorkell
SÓLSTRANDARGÆJARNIR, Jónas Sigurðsson, Unnsteinn Guðjónsson, Stefán Þórhallsson, Stef-
án Jónsson og Ester Jökulsdóttir.
Geimverur
og stjörnufræði
TONLIST
Gcisladiskur
„KÚ-TÍVÍ“
„Kú-tíví“, breiðskífa Sólstrand-
argæjanna. Sólstrandargæjarnir
eru Jónas Sigurðsson söngvari og
gítarleikari, aukinheldur sem hann
leikur á ýmis hjjóðfæri önnur, og
Unnsteinn Guðjónsson, sem leikur
á ýmsa gítara og sérkennileg hljóð-
færi. Þeim til aðstoðar á plötunni
eru m.a. Stefán Þórhallson slag-
verksleikari og Páll Sveinsson
tromuleikari, en Ester Jökulsdóttir
syngur bakraddir í flestum lag-
anna. A.Þ. gefur út, Skífan dreifir.
50,24 mín., 1.999 kr.
SENNILEGA hafa engir orðið
eins hissa á vinsældum lagsins
Rangur maður á síðasta ári og
höfundar þess, Sólstrandargæj-
amir Jónas Sigurðsson og Unn-
steinn Guðjónsson. Fyrsta breið-
skífa þeirra, sem lagið var af, bar
þess merki að vera gefin út fyrst
og fremst þeim til gamans, en
vegna gríðarlegrar hylli lagsins
urðu þeir að bregaðst við með
tónleikahaldi og tilheyrandi
útstáelsi. Þessi fyrsta plata sveit-
arinnar var skemmtileg fyrir það
hve fjölbreytt hún var, en næsta
skífa á eftir, Uglujól, var ekki
eins vel heppnuð, kannski vegna
þess að geggjunin var ekki eins
mikil og sveitin farin að taka
sjálfa sig fullalvarlega. Álíka
vandi hrjáir Sólstrandargæjana á
„Kú-tíví“, sem kom út fyrir
stuttu. Þar er vissulega að finna
prýðis lög, eins og Partý á Rass-
götu 3, Þá var gaman að lifa,
Furður veraldar, Skrítið og Opn-
um á okkur hausinn; vel samin
popplög, frumleg og grípandi, en
á milli eru slöpp lög eins og titil-
lagið, Vandamál á erótíska svið-
inu og Raggiska, stefnulaust
reggí sem verður aldrei að neinu.
Geimverur og stjörnufræði
ýmiss konar eru rauður þráður á
plötunni og umslag hennar dreg-
ur dám af því, en í textagerð eru
þeim félögum mjög mislagðar
hendur. Áðurnefndur Rangur
maður og Misheppnaður, sem er
einskonar aukalag á disknum,
var bráðsmellinn texti, en á „Kú-
tíví“ teygja þeir félagar sig iðu-
lega fulllangt til að reyna að
vera fyndnir, eins og til að mynda
í titillagi plötunnar og Roswell,
þó viðlagið sé ágætt innleg í
unglingaangist: „Hvernig ætli
það sé að vera geimvera sextán
ára / og brotlenda á jörðinni?"
Unnsteinn er glettilega góður
gítarleikari og víða má heyra hve
hann hefur næmt eyra fyrir tóna-
lit og útsetningum. Að slepptum
fíflaganginum á „Kú-tíví“, sem
er reyndar eitt helsta vörumerki
Sólstrandargæjanna, er í henni
efniviður í fyrirtaks poppsveit,
ekki síst ef þeir félagar herða á
gæðaeftirlitinu. Ástæða er til að
geta bakraddasöngkonunnar
Esterar, sem mætti gjarnan fá
að spreyta sig meira.
Árni Matthíasson