Morgunblaðið - 13.07.1996, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 5
AUGLÝSING Budweiser-um-
boðsins í Morgunblaðinu í
fyrradag.
*
Afengisvarnaráð
Auglýsing-
ar „á mörk-
unum“
ÁFENGISVARNARÁÐ hefur að
undanförnu sent fyrirspurnir til lög-
fræðinga heilbrigðisráðuneytisins
um það hvort auglýsingar frá fram-
leiðendum og umboðsmönnum
áfengs öls standist lög um bann við
áfengisauglýsingum. I auglýsingun-
um er bjór ekki nefndur, heldur rætt
um vöruna undir rós.
Síðasta auglýsingin, sem áfengis-
varnaráð sendi fyrirspurn um til heil-
brigðisráðuneytisins, er frá Budweis-
er-umboðinu og birtist í Morgunblað-
inu í fyrradag. Jón K. Guðbergsson,
fulltrúi hjá ráðinu, 'segir að ekki hafi
borizt svör frá ráðuneytinu vegna
fyrri auglýsinga.
„Mér virðist að þessar auglýsingar
séu á mörkunum. Við viljum fyrst og
fremst geta svarað almenningi, sem
til okkar leitar, og viljum frá svör frá
þeim, sem lögin setja og eiga að
kunna þau, um það hvar auglýsing
af þessu tagi stendur," segir Jón.
Ibúar í nágrenni Efstaleitis senda mótmæli við byggingaráf ormum
Vilja grænt útivistarsvæði
í stað fjögurra stórhýsa
ÍBÚAR við Hvassaleiti, Miðleiti,
Neðstaleiti og Ofanleiti hafa skorað
á borgaryfirvöld að hætta við fyrir-
huguð áform um að byggja heilsu-
gæslustöð og þrjú önnur stórhýsi við
Efstaleiti 3, 5, 7 og 9. Þess í stað
verði þar komið upp vistvænu grænu
útivistarsvæði.
í erindi íbúanna til borgaryfirvalda
er lýst áhyggjum yfir aukinni umferð
sem óhjákvæmilega fylgi starfsemi
þeirra aðila sem fengið hafa vilyrði
fyrir byggingu húsanna.
Umferðarteppa fyrir
stórhátíðar
í bréfi til byggingarfulltrúa er
bent á að umferð um Listabraut og
Efstaleiti valdi nú þegar miklum
umferðarhávaða og mengun íbúum
hverfisins til ama og óþæginda við
að komast til og frá heimilum sínum.
Þá segir: „Þá er ástæða til að benda
á að þegar stórhátíðir fara í hönd
myndast oft miklar umferðarteppur á
þessu svæði sem afmarkast af
Kringlumýrarbraut, Miklubraut, Háa-
leitisbraut og Bústaðavegi. Þijár stór-
ar verslunar- og þjónustumiðstöðvar
eru á svæðinu, Kringlan, Borgar-
kringlan og Austurver, og fylgir þeim
öllum mikill umferðarþungi í íbúðar-
hverfinu. Þá er ótalin önnur umfangs-
mikil starfsemi svo sem Verslunar-
skólinn, Borgarleikhúsið og Ríkisút-
varpið og einnig er fyrirhugað kvik-
myndahús í hverfinu. Gatnamót
Listabrautar og Efstaleitis eru mjög
þröng og við teljum að það liggi í
Morgunblaðið/Golli
FYRIRHUGAÐ byggingarsvæði afmarkast af Útvarpshúsinu, Efstaleiti, Listabraut og Háaleitisbraut.
augum uppi að sú gríðarlega umferð-
araukning sem óhjákvæmilega mundi
fylgja þeini starfsemi sem yrði í fyrir-
huguðum byggingum myndi leiða til
óþæginda og slysahættu sem umferð-
aryfirvöld hljóta að telja óviðunandi
og eru óþolandi fyrir okkur sem búum
á þessu svæði.“
Þá er bent á að gatnamót Bústað-
arvegar og Efstaleitis hafi reynst
bílstjórum erfið vegna lélegrar yfir-
sýnar til austurs.
Nánast engin leiksvæði
Þá segir að nánast engin leik-
svæði séu í hverfinu, leikskóli hverf-
isins sé við hliðina á Grensáskirkju
og eldri börnin sæki Hvassaleitis-
skóla og þurfi því oft á dag að fara
yfir mjög erfiðar umferðargötur.
Oskir íbúanna standi til þess að þar
sem fyrirhuguðum byggingum sé
ætlaður staður, fái áfram að vera
gott útivistarsvæði sem nýtast muni
öllum íbúum hverfisins, bæði börnum
og eldra fólki sem mikið er af í hverf-
inu. I hugum íbúanna hafi fyrirhug-
aðar byggingarframkvæmdir ein-
göngu miðast við hugsanlega stækk-
un útvarpshússins í norður en aldrei
að svæðið allt yrði lagt undir bygg-
ingar fyrir atvinnurekstur.
Erindið hefur verið lagt fram í
borgarráði og var vísað til umsagnar
borgarskipulags og borgarverkfræð-
ings.
Héraðsdómur í máli fyrrverandi
atvinnuflugmanns
Réttindamissir
vegna áfengis-
sýki staðfestur
HÉRAÐSDÓMUR hefur sýknað
samgönguráðherra, Flugmálastjórn
og formann áfrýjunarnefndar sam-
gönguráðuneytis af kröfum fyrrver-
andi atvinnuflugmanns. Heilbrigð-
isvottorð flugmannsins var aftur-
kallað vegna áfengissýki og þar
með missti hann flugmannsréttind-
in. Maðurinn hélt því m.a. fram
fyrir dómi að hann hefði verið látinn
sæta þyngri úrlausn en almennt
hefði tíðkast um flugmenn í sömu
aðstöðu. Því mótmælti Flugmála-
stjórn og sagði getsakir einar.
Trúnaðarlæknar Flugmálastjórn-
ar drógu heilbrigðisvottorð manns-
ins til baka í desember árið 1991
vegna ofdrykkju hans. Fyrir dómi
kom fram sú viðmiðun trúnaðar-
lækna, að þótt maður falli eftir
aðra meðferð við áfengissýki sé
eðlilegt að gefa honum kost á end-
urútgáfu heilbrigðisvottorðs eftir
reynslutíma, en falli hann eftir það
sýni reynslan að takmarkaðar líkur
séu á að honum takist að halda sig
varanlega frá áfengisneyslu, þrátt
fyrir þriðju meðferðina.
Ekkert benti til varanlegs bata
Maðurinn skaut ákvörðuninni
tveimur árum síðar til áfrýjunar-
nefndar samgönguráðuneytisins.
Hún komst að þeirri niðurstöðu að
hann væri haldinn krónískri áfeng-
issýki, sem hefði verið mjög hratt
stígandi fram til 1978, en eftir það
hafi heildarneysla minnkað mjög
mikið, þó svo áhrifin yrðu mjög
alvarleg þegar hann neytti áfengis.
Sjúkrasaga hans og gangur áfeng-
issýkinnar hefði verið með þeim
hætti að ekkert benti til þess hð
varanlegur bati hefði náðst.
Þrátt fyrir þetta taldi nefndin í
úrskurði sinum í september 1994
að gefa ætti út heilbrigðisvottorð,
en með skilyrðum, því nokkuð ör-
uggt væri að maðurinn hefði ekki
neytt áfengis frá því í desember
1991. Skilyrðin voru þau, að maður-
inn gæti sýnt fram á að hann hefði
ekki neytt áfengis á þessum tíma,
að hann héldi áfram AA-fundasókn
og mætti reglulega í viðtöl hjá
meðferðaraðila á sviði áfengissýki
og loks að hann mætti á þriggja
mánaða fresti til lækna Flugmála-
stjórnar og gengist undir blóðrann-
sókn sem sýndi ástand lifrar.
Uppfyllti ekki skilyrði
í dóminum segir að ekki yrði séð
af gögnum málsins að maðurinn
hefði uppfyllt þessi skilyrði. Þar sem
hvorki trúnaðarlæknar Flugmála-
stjórnar né áfrýjunarnefndin hefðu
metið manninn hæfan til að fá flug-
mannsskírteini hefði samgöngu-
ráðuneytinu verið óheimilt að breyta
þeirri ákvörðun Flugmálastjórnar,
að synja um útgáfu skírteinisins.
Arngrímur Isberg héraðsdómari
kvað upp dóminn.