Morgunblaðið - 13.07.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 11
LANDIÐ
FJÖLBREYTT hátíðarhöld verða á
Þórshöfn á Langanesi helgina
19.-21. júlí í tilefni 150 ára
verslunarafmælis.
íbúar Þórshafnar og nágrennis
minnast þessarar merku sögu í
hátíðarhöldunum, sem margir góð-
ir gestir munu sækja. Forseti ís-
lands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
mun opna hátíðina, en fulltrúar
erlendra sendiráða og þingmenn
verða meðal viðstaddra, auk
heimamanna og brottfluttra Lang-
nesinga. í hátíðarhöldunum koma
einnig fram listamenn, sem ættað-
ir eru frá Þórshöfn, auk fjölda
heimamanna.
Opnaðar verða myndlistarsýn-
ingar á verkum brottfluttra Lang-
nesinga, listamannanna Sveins
Björnssonar, Rutar Rebekku Sigur-
jónsdóttur og Arnar Karlssonar
auk Freyju Önundardóttur. Sýndar
verða gamlar ljósmyndir, gamalt
og nýtt handverk og minjasýning
verður opnuð í samvinnu við
Byggðasafnið á Kópaskeri, þar sem
gamlir verslunarhættir verða
kynntir. M.a. verður boðið upp á
tívolí, bryggjuveiði, sjóferðir, skoð-
unarferðir.
Hátíðin verður formlega sett kl.
13 laugardaginn 20. júlí á útisviði
við höfnina, en þar verða m.a. flutt
ávörp auk þess sem kór heima-
manna syngur, jassveitin Blús-
bræður spilar, Súrheyssystur taka
lagið og rifjaðar verða upp gamlar
stökur frá svæðinu. Eftir útidag-
skrána verður boðið til matarveislu
við höfnina, þar sem fyrirtæki
bjóða gestum að bragða á ýmsum
nýjungum í matvælaframleiðslu.
Kl. 18 hefst hátíðardagskrá í
Félagsheimilinu Þórsveri. Þar koma
fram íjölmargir listamenn, sem
eiga ættir að rekja til Þórshafnar.
Auk þess syngur Samkór Þórshafn-
ar í hátíðardagskránni.
Gamalt leikrit frumsýnt
Þá koma félagar í Leikfélagi
Þórshafnar fram og flytja leikritið
„Ambrið“ eftir Aðalbjörn Arn-
grímsson, en hann var afkastamik-
ið leikskáld á Þórshöfn fyrr á öld-
inni. Þetta leikrit hefur þó aldrei
verið leikið fyrr svo að vitað sé.
Stjórnandi hátíðardagskrár er Þór-
unn Sigurðardóttir leikstjóri.
Þá verður dansleikur við höfnina
þar sem stórsveitin Tinan leikur,
flugeldasýning og hátíðinni lýkur
síðan á sunnudag með flautublástri
skipa og báta.
Gamla prestsetið á Sauðanesi
verður opið sunnudaginn 21. júlí.
Aðalsteinn Maríusson hefur að
undanförnu unnið að endurbygg-
ingu hússins sem er í umsjá Þjóð-
minjasafnsins og mun hann sýna
það gestum.
Gert er ráð fyrir miklum fjölda
gesta og eru menn beðnir að huga
að gistingu í tíma. Tjaldstæði verður
opnað á staðnum og aðrir gisti-
möguleikar eru á bændagistingu og
á Hótel Jórvík. Framkvæmdastjóri
afmælishátíðarinnar er Már Guð-
laugsson, auglýsingateiknari, en
formaður afmælisnefndar er Freyja
Önundardóttir myndlistarmaður.
Bj örgunarvestin
athuguð
Húsavík - Að tillilutan Slysa-
varnafélags Islands og fleiri að-
ila fór fram á 12 stöðum á land-
inu skoðun á björgunarbeltum
sem börn eiga og eiga að nota
þegar þau eru á bryggjum, sjó
eða vötnum.
Á Húsavík sá formaður Björg-
unarsveitarinnar Garðar, Jón
Friðrik Einarsson, um skoðunina
og sagðist hann nokkuð ánægður
með þátttökuna og ástand belt-
anna.
Staðið hefur yfir leikjanám-
skeið á vegum Völsunga og Húsa-
víkurbæjar fyrir börn á aldrinum
5-8 ára undir stjóm Ingólfs
Freyssonar. Einn þáttur í nám-
skeiðinu var sjóferð á skemmti-
siglingabát Amars Sigurðssonar.
Klæddi hann alla þátttakendur í
björgunarvesti áður en lagt var
úr höfn og brýndi fyrir bömum
notkun þeirra. Sjóferðin var farin
þann dag sem Slysavamarfélagið
var að minna á og athuga ástand
belta þeirra sem í notkun era.
ÖLL björgunarvesti vom vel athuguð áður en lagt var frá landi.
Hátíðarhöld
vegna 150 ára af-
mælis Þórshafnar
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Hreinsað til í
kirkjugarði
Flateyri - Miklar framkvæmdir
eiga sér stað á Flateyri um þess-
ar mundir. Ein af þessum fram-
kvæmdum er hreinsunarstarf í
kirkjugarðinum, en hann varð
fyrir miklum skemmdum í flóð-
inu.
Víða liggja legsteinar og brot
úr þeim og múrnum í kring eins
og hráviði. Einnig liggja trén á
sveig í eina átt og sýna þau ljós-
lega stefnu og kraft flóðsins.
Krakkarnir í unglingavinn-
unni lágu ekki á liði sínu við
að slá grasið í kringum leiðin,
og um leið að kippa burt hrísl-
um og öðru lauslegu.
Morgunblaðið/J6n Sigurðsson
KRISTINN Ólafsson, ungur
veiðimaður, nýbúinn að ianda
2-3 punda sjóbleikju en þetta
var jafnframt fyrsti silungurinn
sem hann hefur veitt. Með hon-
um á niyndinni er áhugasainur
veiðimaður, Hjalti Jónsson.
Blönduós
Rífandi silungs-
veiði í sjónum
Blönduósi - Að undanförnu hafa
ungir sem aldnir farið með veiði-
stöngina sína niður í fjöru fyrir
neðan hafnarvogina og fengið fal-
legan silung. Um er að ræða sjó-
bleikju frá tveimur pundum allt upp
í 6 pund.
Töluverðar umræður hafa verið
manna á milli að undanförnu um
það hvort þessar veiðar séu leyfileg-
ar vegna nálægðar við laxveiðiána
Blöndu. Að sögn lögregluyfirvalda
á Blönduósi eru veiðar á stöng
heimilar allt að 250 metrum frá ósi
árinnar þannig að þeir sem þarna
eru að veiðum hafa lögin sín megin.
FASTEIGN Efí FfíAMTID
FASTEIGNA
Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík,
fax 568 7072
MIÐLUN
Selvogsgata 21 — Hf. v. Hamarinn
5 herb. 112 fm efri sérhæð auk rislofts í þríb. ásamt 35 fm
bílskúr. Ibúðin er meðal annars 2 stofur og 3 svefnherb.
Verð 7,8 millj. Áhv. 1,1 millj. byggsj. Gott mál.
Espigerði 2 — „penthouse"
Opið hús frá kl. 14 — 16
Nk. laugardag tekur Ruth á móti ykkur og sýnir íbúðina
sem er falleg og björt 5 herb. íbúð á 8. og 9. hæð í mjög
eftir sóttu lyftuhúsi rétt við Borgarspítalann. Tvennar svalir.
Stór kostlegt útsýni. íbúðin er laus.
5521150-5521370
Til sýnis og sölu - meðal annarra eigna:
Innst við Kleppsveg - gott verð
Góð, sólrík 3ja herb. íb. á 1. hæð, 80,6 fm, í 3ja hæða fjölbýlishúsi.
Parket. Rúmg. geymsla í kj. Stór ræktuð lóð. Laus strax.
Nýleg suðuríb. - lækkað verð
Glæsil. 3ja herb. íb. 82,8 fm við Víkurás á 3. hæð. Sólsvalir. Parket.
40 ára húsnlán kr. 2,5 millj. Útsýni. Laus fljótl.
Einstaklingsíb. - öll eins og ný
í gamla góða austurbænum nýendurbyggð lítil 2ja herb. íb. á 1. hæð
á vinsælum stað. Sérinng. Langtlán kr. 3,0 millj. Tilboð óskast.
Á besta stað við Dalsel
Mjög góð 4ra herb. íb. á 1. hæð rúmir 100 fm. Gott bílhýsi. Öll sam-
eign eins og ný. Vinsaml. leitið nánari uppl.
Á vinsælum stað í vesturbænum
Sólrík einstaklib. v. Meistaravelli. Laus fljótl. Mjög gott verð.
Smáíbúðahverfi - Fossvogur - nágr.
Leitum að 3ja-4ra herb. íb. Má þarfn. endurbóta. Traustur kaupandi.
• • •
Opið í dag kl. 10-14.
Einbhús á einni hæð 100-150
fm óskast í Kópavogi.
ALMEIMIMA
FflSTEIGNASALAN
UII6IVEBI1B S. 552 1150-552 1371