Morgunblaðið - 13.07.1996, Side 15

Morgunblaðið - 13.07.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 15 ERLENT Sprengjutilræðin í Moskvu Aðgerðir gegn aðfluttum Kákasusbúum Moskvu. Reuter. EKKERT er vitað með vissu um það hveijir stóðu að baki tilræðunum í Moskvu í gær og fyrradag en einn fórst í gær og tugir manna slösuð- ust. „Við erum að kljást við skipu- lögð og samræmd hryðjuverk," sagði Júrí Lúzhkov, borgarstjóri Moskvu, er hann heimsótti tilræðisstaðinn á Prospekt Míra-götunni, sem er í norðausturhluta Moskvu. Borgarstjórinn sagði að tvær skýringar væru líklegastar á því hvetjir væru að verki. Annaðhvort væri um að ræða flugumenn Tsjetsj- ena en hart er barist í Kákasushérað- inu þessa dagana, eða tilræðismenn á vegum glæpasamtaka sem væru að svara áætlunum stjórnvalda um herferð gegn skipulagðri glæpa- starfsemi. Verður áætlunin undir stjórn Alexanders Lebeds, hins nýja yfirmanns öryggisráðs iandsins og þykir ljóst að tilræðin séu ógnun við völd hans. „Við ætlum að iosa Moskvu við heimilislausa flækinga og einnig þá einstaklinga sem við álítum hættu- lega“, sagði Lúzhkov. Itar-Tass- fréttastofan sagði að ljóst væri af ummælum borgarstjórans að gripa ætti til aðgerða gegn „gestum frá suðri“ en þetta orðalag er oft notað um Tsjetsjena og annað fólk frá héruðunum í norðurhluta Kákasus sem sest hafa að í höfuðborginni. Margir Rússar kenna Tsjetsjenum um giæpafárið í borgunum en nokk- ur af öflugustu samtökum glæpa- manna í Rússlandi eru undir stjórn Tsjetsjena. Aðrir embættismenn iögðu áherslu á að ekki væru neinar traust- ar vísbendingar um þátt Tsjetsjena í tilræðunum en talsmenn aðskilnað- arsinna í Tsjetsjníju hafa oft hótað að beita sprengjutilræðum gegn rússneskum almenningi. Fjórir létust í tilræði í jarðlest í Moskvu 11. júní og margir særðust en ekki er vitað hveijir stóðu að baki. Sergej Gontsjarov, sem er sér- fræðingur í baráttu gegn hryðju- verkum, varaði menn við því að of- túlka það sem gerst hefði. Hann sagði útilokað að fullyrða nokkuð um það hvort þjálfaðir hryðjuverka- menn hefðu verið að verki. „Miðað við þær upplýsingar sem við höfum fengið var þetta sprengja af hefð- bundinni gerð sem sérfræðingur í flugeldum hefði getað búið til án mikillar kunnáttu". Gontsjarov sagð- ist efast um að aukinn viðbúnaður myndi hafa mikil áhrif, nær ómögu- legt væri að veita fullkomna vernd fyrir þeim sem einbeittu sér að því að valda ótta og glundroða í borg- inni. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti kynnir nýjan yfirmann öryggislög- reglunnar, Níkolaj Kovaljov (t.v.), á blaðamannafundi í gær. For- setinn sagði að grípa yrði til harkalegri aðgerða gegn hryðjuverk- um í Moskvu. Til hægri er Alexander Lebed, yfirmaður öryggis- ráðsins, en hann stjórnar herferð gegpi giæpum og spillingu. 27 bjargað á Ermarsundi London. Reuter. TUTTUGU og sjö sjómönnum, flest- um indverskum, var bjargað heilum á húfí þegar eldur kom upp í flutn- ingaskipi á Ermarsundi í gær. Einn áhafnarmeðlimanna var fluttur á sjúkrahús vegna minnihátt- ar meiðsla, að sögn strandgæslu á Suður-Englandi. í áhöfn voru 24 Indveijar, tveir Úkraínumenn og einn maður frá Búrma. Þeir fóru í björgunarbáta þegar eldurinn kom upp, skömmu eftir miðnætti. Þeim var bjargað um borð í fiskiskip. Flutningaskipið var skráð á Kýp- ur, og flutti kopar og gámavaming. Eldur logaði enn í skipinu í gærmorg- un, en þrír dráttarbátar voru á staðn- um, einn þeirra búinn slökkvibúnaði. Mandela segir óþarft að rifja upp fyrri orð London. Rcuter. NELSON MANDELA, forseti Suð- ur-Afríku, hefur fyrirgefið margt um dagana, og í gær bætti hann um betur, og átti fund með Marg- aret Thatcher, fyrrum forsætisráð- herra Bretlands, en hún sagði einu sinni að Mandela væri félagi í „dæ- migerðum hryðjuverkasamtök- um.“ Þegar Mandela var fyrr í vik- unni inntur álits á þessum orðum Thatchers sagði hann óþarft að rifja þau upp. Mandela bauð Thatcher til Buckinghamhallar, þar sem forset- inn dvelur nú í boði drottningar, á meðan hann er í opinberri heim- sókn í Bretlandi. Ræddu þau sam- an í um 20 mínútur, að sögn tals- manns Thatcher. Thatcher var harðlega gagnrýnd á níunda áratugnum þegar hún neitaði að styðja alþjóðlegar að- gerðir sem miðuðu að því að refsa þáverandi stjórn Suður-Afríku fyr- ir aðskilnaðarstefnuna og fyrir að halda Mandela í fangelsi, þar sem hann sat í 27 ár. Sjálf gagnrýndi Thatcher flokk Mandela, Afríska þjóðarráðið (ANC), þegar flokkurinn var bann- aður og háði „vopnaða baráttu“ gegn aðskilnaðarstefnu stjóm- valda. „ANC er dæmigerð hryðju- verkasamtök ... Þeir sem halda að þau muni einhverntíma verða við stjórnvölinn í Suður-Afríku em geggjaðir," sagði Thatcher 1987. Thatcher var viðstödd þegar Mandela ávarpaði breska þingið í fyrradag. I endurminningum sín- um, sem gefnar voru út 1993, seg- ir Thatcher um Mandela að hann hafi sannarlega mannlega fram- komu. Angist afkom- endanna FÓLKIÐ erfir frægðina sem býr í nafninu og virðist hafa allt sem hugurinn gæti girnst; lífið virðist leika við það. En það sem lítur út eins og partí í paradís reynist oft vera efni í harmleik. Amschel Rothschild, sem var 41 árs stjórnarformaður eignarhalds- félags Rauðskjöldunga og langa- langa-langafabarn Nathans Meyers Rothschilds, sem árið 1804 stofnaði í London banka sem enn ber nafn hans, hengdi sig á hótelherbergi í París á mánudaginn. Fyrir tæplega hálfum mánuði lést Margaux Hemingway, afadóttir Ernests, höfundar Vopnanna kvaddra og fleiri bóka sem gerðu hann heimsfrægan. Hún var líka 41 árs, og lést á heimili sínu í Bandaríkjunum, 35 árum eftir að afi hennar skaut sig. Það er ekki alveg á hreinu hvort hún hafði neytt of mikils magns af lyfjum eða áfengi, en útlit er fyrir að svo hafi ekki verið. Hún hafði byrjað að drekka eftir að fyrirsætuferillinn, sem hófst með glæsibrag þegar hún var barnung, virtist með öllu farinn í vaskinn. Hún átti við alkóhólisma að etja og átvanda, og vinir hennar sögðu hana hafa verið orðna þunglynda vegna þess að leiklistarferill varð að engu. Hún fór í meðferð á Betty Ford-heimilinu í Kaliforníu og hjónaböndin tvö enduðu bæði með skilnaði. Þung arfleifð Afkomendur fræga fólksins eru fyrst og fremst undir álagi vegna þess að þeir þurfa að standa undir arfleifð áa sinna. Undir stanslausu eftirliti fjölmiðlunga reynir fólkið að fylla út í ættamöfnin sem það MARGAUX HEMINGWAY ásamt ömmu sinni og eldri systur, Joan. Afinn frægi, Ernest, stendur að baki fjölskyldunni. Angist virðist vera orðin svo algeng meðal af- komenda fræga fólksins og þeirra vellauðugu, að talað er um sérstök „paradísar-einkenni. “ ber, og slíkt reynist oft erfitt. Bandaríski leikarinn Paul New- man missti elsta son sinn 1978 eft- ir að strákurinn hafði borðað of margar pillur og drukkið of mikið áfengi. Mörgum árum seinna lét Newman þau orð falla að það væru um það bil „180 þúsund gallar á því að eiga mig að föður. Sá stærsti er, að það er alltaf vottur af sam- keppni milli barnanna og foreldr- anna.“ Margmilljónamæringurinn Christina Onassis, dóttir gríska skipakóngsins Aristótelesar, giftist og skildi fjórum sinnum á 16 árum, þjáðist af offitu og dó af völdum vökva í lungum þegar hún var 37 ára. Marlon Brando, leikarinn frægi, gaf syni sínum, Christian, heila eyðieyju til þess að leika sér á. En leikurinn var fljótt úti, þegar sonur- inn var dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir að myrða kærasta hálfsystur sinnar, Cheyenne. Segir sagan, að kærastinn hafi misþyrmt Cheyenne, og hún jók enn á raunir íjölskyld- unnar með því að hengja sig. Nýrnasteinn og lijartaáfall í síðasta mánuði sagði tónlistar- maðurinn Dave Stewart, sem ásamt Annie Lennox stofnaði Eurythmics, að fjárfúlgurnar hefðu ekki gert hann hamingjusaman. Reyndar væri það vegna peninganna að hann væri orðinn ímyndunarveikur. í fyr- irlestri sem Stewart kallaði Paradís- ar-einkennin, rifjaði hann upp ímyndaðan nýrnastein í Bankok, sem varð til þess að botnlanginn var tekinn úr honum, og hjarta- áfall í New York, sem reyndist vera vöðvatognun af völdum ofreynslu við tennisiðkan. Septembertilboð til Benidorm 24. september 25 dagar frá kr. 45.532 Takmarkað sætamagn — bókaðu strax Nú bjóðum við glæsilegt tilboð til Benidorm þann 24. sept. í 25 daga á ótrúlegu til boðsverði þar sem þú getur notið yndislegra daga í yndislegu veðri og tryggrar þjón- ustu fararstjóra Heimsferða á meðan á dvöl þinni stendur. Beint flug til Alicante þann 24. september og í boði.eru afbragðsgóðir gististaðir, allir með íbúðum með einu svefn- herbergi, stoíu, eldhúsi, baði og svölum. Móttaka, veitingastaðir og verslun er einnig í hótelinu. Bókaðu meðan enn er laust. 45.532 íslenskur hjúkrunarfræðingur með í ferðinni. Verð kr. m.v. hjón með 2 börn, 2-1 I ára, El Faro, 24. sept. 59.960 ISFE RÐIRJ Verð kr. M.v. 2 I íbúð, 24. sept, El Faro. Austurstræti 17,2. hæð. Sími 562 4600.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.