Morgunblaðið - 13.07.1996, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 13.07.1996, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ ÞÚ HEYRIR MUNINN JIM CARREY MATTHEW BRODERICK A.l mbl gamanmyjr Tengdu þig við THE CABLE GUY á Ainetinu: http://www.vortex.is/cable guy oq fáðu geggjaðar uppiýsinar veint í aéo!! Aliir fá tiiboðsmiða sem veitir frían internet aðgang í einn mánuð hjá Hringiðunni. Sjáið Jim Carrey og Matthew Broderick í geggjuðustu grínmynd ársins. Aðalhlutverk: Jim Carrey (Dumb - Dumber, Ace Ventura 1-2, The Mask) og Matthew Broderick (Glory, The Freshman, Ferris Bueller’s Day Off). Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11 . Bönnuð innan 12. ára. Sýnd kl.4.45, 9.05 og 11.05. VONIR OG VÆNTINGAR Sími 551 6500 Sfmi FRUMSVlUIIUG: ALGJÖR PLÁGA! 551 6500 EINUM OF MIKIÐ 7 tilnefningar til Óskars-verðlauna Synd kl. 6.45. STJÖRNUBÍÓLÍNAN - SPENNANDI KVIKMYNDAGETRAUN. VERÐLAUN: BlÓMIÐAR 0G HRÓA HATTAR PIZZUR. CABLE GUY JAKKAR, ÚTVÖRP, KLUKKUR 0G GEISLAPLÖTUR. SÍMI904-1065 Reuter Tónlistarmenn verðlaunaðir ÞEIM tónlistarmönnum sem selt hafa yfir eina milljón platna í Evrópu voru veittar platínu- plötur á sérstakri athöfn í Briissel á fimmtudag. Lista- mennirnir stilltu sér upp til myndatöku fyrir athöfnina ásamt Jacques Santer. Á meðal listamannanna voru hljómsveit- irnar Ace of Base, Pur og INXS, auk frönsku söngkonunnar Patricia Kaas. Vegur Russels vaxandi FERILL leikarans Kurts Russel hefur verið á stöðugri uppleið undanfarin misseri, eftir mörg mögur ár. Þar til nýlega kostaði vinna hans við eina mynd 3 milijónir dollara, en núna tekur hann heilar 15 milljónir dollara á mynd. Mikla athygli vakti þegar Kurt fékk 7 milljónir dollara fyrir hlutverk sitt í „Stargate“ árið 1994. Efasemdamenn þögnuðu þó þegar myndin sló óvænt í gegn og síðan hafa laun Kurts farið hækkandi með hveiju verkefninu sem hann hefur tekið sér fyrir hendur. Hann fékk 10,5 milljónir fyrir „Executive Decision“ og væntanlega svipaða upp- hæð fyrir leik sinn í myndinni „Escape from LA“ sem frumsýnd verður vestra 9. ágúst. Nú hefur hann samið um að leika í myndinni „Soldier" og fyrir vinnu sína fær hann 15 milljónir dollara. Sömu upphæð fær hann fyrir hlutverk sitt í myndinni „Breakdown“. „Soldier“ bygg- ist á vísindaskáldsögu og ráðgert er að tökur hefjist í september á næsta ári. Leikstjóri er Paul Anderson. RUSSEL í hlutverkl sínu í myndinni „Stargate“. SNORRABRAUT 37, SÍMI 552 5211 OG 551 1384 ★★★ A.I. Mbl. ;rðinni sumarafþreying eins og hún bragðs skemmtiefni. Það ætti engw frekar en venjulega i Alcatraz.,, DIGITAL Ein stærsta kvikmynd sumarsins er komin til fslands. Óskarsverðlaunahafarnir Scan Connery og Nicholas Cage fara á kostum í magnaðri spennumynd ásamt fjölda annara heimsþekktra leikara. Alcatrazkletturinn hefur verið hertekinn og hótað er sprengjuárás á San Fransisco. Á meðan klukkan tifar er árás á Klettinn skipulögð og til aðstoðar er fenginn eini maðurinn sem nokkru sinni hefur fiúið Klettinn... lifandi. Sýnd kl. 5, 9 og 11.30. b.í ie í THX DIGITAL Kjarkaður Kanadamaður EKKIÞARF alltaf að komast á mála hjá stórfyrirtækjum til að ná eyrum almennings, að minnsta kosti ekki ef menn hafa kjark. Svo er því farið með kanadíska tónlistarmanninn og lagasmiðinn Hayden sem beið ekki eftir frægðinni en gaf sjálf- ur út sína fyrstu breiðskífu. Hayden er kanadískur og segist hafa heillast af tónlist þegar foreldrar hans gáfu hon- um kassagítar í afmælisgjöf. Ekki leið á löngu þar til hann var farinn að leika á rafgítar í rokksveit, en entist ekki lengi þar því hann vildi semja eigin tónlist. „Þegar ég útskrifaðist úr skóla fór ég að semja af kappi,“ segir hann, „keypti mér segulband og fór að troða upp á tónleikum. Mér leiddist skvaldrið í fólki þegar ég var að spila svo ég hækkaði smám saman í gítarnum þangað til fólkið fór að taka eftir mér.“ Það bar þann árangur að hann fékk það verk að hita upp fyrir ýmsar vinsælar sveitir á líku tónlistarróli; Grant Lee Buffalo, G Love og Weezer. Ekki fannst honum það nóg, því sívaxandi lagasafn kallaði á útgáfu og á endanum gaf hann sjálfur út breiðskífuna Every- thing I Long For, þar sem hann lék á öll hljóðfæri og stýrði upptökum. Platan kom aðeins út í Kanada og Hayden lagðist í ferðalög til að kynna hana. Smám saman náði platan inn í Hayden kanadískt útvarp og tók að selj- ast og þegar upp var staðið sat hún í efsta sæti á lista yfir sölu- hæstu óháðu útgáfur ársins og á topp tíu kanadíska breiðskífu- listans. Stórfyrirtækin sperrtu eyrun og ekki er langt síðan skífan var gefin út um heim allan. Gagnrýendur hafa tekið Ha- yden fagnandi og bera hann saman við tónlistarmenn eins og Bob Dylan og Leonard Co- hen, en aðrir undirstrika að hann hefur sinn sérstaka stil og stemmningu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.