Morgunblaðið - 26.07.1996, Side 7

Morgunblaðið - 26.07.1996, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Grein 1 kanadísku náttúrulífstímariti um sjávarútveg á Islandi Getur verið fyrir- mynd annarra þjóða í GREIN sinni veltir höfundurinn, Randall Nyman, því fyrir sér hvort íslendingar geti viðhaldið fiskvernd- arstefnu sinni eða leiðist út í ofveiði að gömlum sið. GETA íslendingar verið fyr- irmynd annarra þjóða á al- þjóðavettvangi í vemdun fískistofna á síðustu og verstu tímum ofveiði og rá- nyrkju í heimsins höfum? Greinarhöfundur kanadíska náttúrulífstímaritsins, Cana- dian Wildlife, Randall Hy- man, leitar svara við þessari spumingu í nýjasta tölublaði tímaritsins, maí/júní 1996, í grein sem hann nefnir Gnægtabrannur Islands. Randall kemst að þeirri niðurstöðu eftir að hafa veg- ið og metið kosti og galla kvótakerfisins að íslendingar séu í góðri aðstöðu til að vera fyrir- mynd annarra þjóða. Það sé þó bund- ið þeim skilyrðum að þeir einbeiti sér að vísindalegri uppbyggingu fiski- stofna innan eigin landhelgi og freist- ist ekki til að taka upp fyrri ósiði og nýti stjórnlaust mikilvæga auðlind. Greinarhöfundur minnir á í upp- hafi greinar sinnar að ekki sé langt síðan að íslendingar deildu hafsvæð- inu umhverfis landið með fiskiskipa- flotum annarra þjóða. Eftir þijú ár- angursrík þorskastríð hafi Island náð yfirráðum yfir auðlindum í 200_ mílna landhelgi sinni. En vandræði íslend- inga hafí ekki verið úti. Hann lýsir því hvemig íslendingar þurftu á síðari hluta áttunda áratugarins að beijast við yfírvofandi hran fískistofna sem hafí leitt til þess að stjómvöld settu á fót kvótakerfi og gerðu kröfur um að þorskveiði yrði minnkuð um helming. Randall upplýsir lesendur sína um að á kvótaárunum hafi tekist að bjarga og viðhalda þorskstofninum og að kvótakerfið hafi orðið fyrir- mynd í fiskistjórnun víða um heim. Hann kemst aftur á móti að því að íslendingar eru ekki á eitt sáttir um ágæti kerfisins. Farið í kringum kerfið í greininni er rætt við trillukarl, skipstjóra og veiðieftirlitsmenn á varðskipi um kvótakerfið. Þessir aðil- ar segja að frelsi til sjósóknar sé að nokkra skert og að með kvótakerfinu sé nýtingu auðlinda hafsins misskipt. Hjálmar Jónsson trillukarl segir að kvótasvindl sé slæmt en kerfið sé einfaldlega ömurlegt. Hann lýsir því hvernig algengast er að farið sé í kringum kerfið í þeim tilvikum þeg- ar skip veiða of mikið. Það sé með þeim hætti að afli sé færður milli skipa, einkum af stórum togurum yfir í minni skip. Greinarhöfundur greinir frá því hvernig viðskipti með kvóta hafa sums staðar haft þær afleiðingar að byggðarlög hafa misst togara úr plássinu með tilheyrandi atvinnu- leysi. Á móti komi að íslendingar hafa smám saman uppgötvað hvern- ig unnt er að nýta hráefnið betur. Áhersla sé lögð á að þróa nýjar vör- ur og leita nýrra markaða. Áð þessu leyti telur greinarhöfundur Islend- inga standa sig velv Randall segir að Íslendingar hafí, líkt og margar aðrar þjóðir, leitað út fyrir landhelgina og rekur Smugu-mál- ið í því samhengi. Hann minnir á að víða geysi „þorskastríð" um auðlindir hafsins, Rússar beijist við Japani, Kanadamenn við Spánveija o.s.frv. Hann telur að þegar öilu er á botn- inn hvolft sé farsælast að efla vís- indaiegar rannsóknir og byggja upp markvisst upp fiskistofnana. Þannig hafí íslendingar náð árangri og þeir eigi ekki að kasta því á glæ fyrir skammtímaávinning. Haldi þeir áfram á braut vísindalegrar fisk- vemdarstefnu verði ísland fyrirmynd annarra þjóða. FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1996 7 Bjóðum nokkra tvöfalda ameríska ísskápa með klakavél og rennandi vatni á aðeins kr. r NOATUN Veisla fyrip lítið SÖÚWBOB* '£SSS*+ •& k. MEÐAN BIRGÐIR ENBAST Svínarifjur (Spareribs) 9Kfl| pr.kg. MVl Tl Verslanir Nóatúns eru opnartil kl. 21, öll kvöld NOATUN NÓATÚN117 • ROFABÆ 3? • LAUGAVEG1116 • HAMRABORG 14 KÓP. • FURUBORG 3, KÓP. ÞVERHOLTI 6, MOS. • JL-HUSI VESTURI BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HAALEITISBRAUT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.