Morgunblaðið - 26.07.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1996 13
VIÐSKIPTI
Hlutafjárútboði Útgerðarfélags Akureyringa lokið
Hluthafar vildu þriðj-
ungi meira en íboði var
FORKAUPSRÉTTARTÍMABILI
vegna hlutafjárútboðs Útgerðarfé-
lags Akureyringa lauk á miðvikudag
og óskuðu hluthafar eftir því að
kaupa öll hlutabréf sem í boði voru,
þrátt fyrir að Akureyrarbær hefði
afsaiað sér forkaupsrétti sínum .
Alls var um að ræða 150 milljónir
króna að nafnvirði og voru þau boð-
in hluthöfum til kaups á genginu
4,5. Söluverðmæti hlutabréfaútboðs-
ins er því 675 milljónir króna.
Tæplega fimm hundruð hluthafar
skráðu sig samtals fyrir hlutabréfum
að nafnvirði um 200 milljónir króna,
eða rúmlega 900 milljónir að sölu-
virði. Það er um þriðjungi hærri fjár-
hæð en í boði var. Því er ljóst að
engin bréf úr hlutafjárútboðinu
verða boðin á almennum markaði.
Ekki verður heldur hægt að verða
við ýtrustu óskum hluthafa um kaup
umfram forkaupsrétt, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá ÚA
og Kaupþingi Norðurlands, sem var
umsjónaraðili útboðsins.
Eins og fyrr-segir ákvað Akur-
eyrarbær, sem átti 53% hlut í ÚA
fyrir hlutafjárútboðið, á sínum tíma
að afsala sér forkaupsrétti enda lá
fyrir ákvörðun um að selja hlutabréf
bæjarins í fyrirtækinu. Eftir þessa
hlutaíjáraukningu er bænnn því orð-
inn minnihiutaeigandi í ÚA með 44%
hlut. Nafnvirði hlutafjár í fyrirtækinu
eftir breytingu er 917 milljónir króna.
Brejrtt skuldasamsetning skilar sér
í bættri afkomu hjá Landsvirkjun
Hagstæð vaxtakjör
og gengishagnaður
Menn og mýs hf.
Nýr hug-
búnaður
hlýtur lof
erlendis
HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ
Menn og mýs setur nýja útgáfu af
QuickDNS Pro nafnamiðlaranum í
dreifingu þann 30. ágúst n.k. Forrit-
ið tengir fyrirtæki við alnetið og
leggur til grunnþjónustu við miðlun
upplýsinga á alnetinu.
Pétur Pétursson, framkvæmda-
stjóri, segir að QuickDNS Pro 1.1.
sé fyrsti fullbúni nafnamiðlarinn fyr-
ir Macintosh tölvur. „í febrúar sl.
kom út fyrsta útgáfan, QuickDNS
Pro 1.0, en sú nýja er mun fullkomn-
ari. Okkar búnaður hefur það fram
yfir aðra nafnamiðlara Macintosh
tölva að hafa mun meiri afkastagetu
og svipar því til þeirra sem eru hann-
aðir fyrir Unix vélar.“
Greinarhöfundurinn Don Crabb
ber QuickDNS Pro 1.1 vel söguna í
tímaritinu Mac WEEK, sem er gefið
út í 130 þúsund eintökum vikulega.
Greinin birtist í gær á alnetinu, en
þar mælir Don Crabb með
QuickDNS Pro fyrir Macintosh-tölv-
ur því forritið sé allt að 16 sinnum
hraðvirkara en önnur.
LANDSVIRKJUN hefur á þessu
ári notið verulegrar lækkunar á
beinum vaxtagreiðslum vegna
betri kjara á lántökum fyrirtækis-
ins á sama tíma og vaxtatekjur
hafa heldur aukist. Vaxtagreiðslur
hafa lækkað m.a. vegna þess að
vaxtakjör á alþjóðamörkuðum hafa
verið mjög hagstæð í ár.
Þá hefur Landsvirkjun á mark-
vissan hátt reynt að lágmarka
vaxtagreiðslur með breytingum á
einstökum lánum og samsetningu
heildarskulda án þess að auka á
gengisáhættu fyrirtækisins. Jafn-
framt hefur umtalsverður gengis-
hagnaður orðið af lánum á árinu.að
sögn Stefáns Péturssonar, deildar-
stjóra fjármála- og markaðsdeildar
Landsvirkjunar.
Þessi atriði skýra að stærstum
hluta þá 775 milljóna lækkun sem
varð á nettófjármagnskostnaði
Landsvirkjunar fyrstu sex mánuði
ársins frá sama tímabili í fyrra,
Lækkunin átti stærstan þátt í mikl-
um umskiptum á afkomu fyrirtæk-
isins til hins betra á tímabilinu, en
eins og fram kom í Morgunblaðinu
í gær var um 970 milljóna hagnað-
ur á fyrri helmingi ársins.
Skuldir um 49 milljarðar
Stefán segir að gengishagnaður
fyrirtækisins hafi verið verulegur
það sem af er árinu vegna betri
stýringar á lánasamsetningunni en
áður. „Skuldir Landsvirkjunar eru
um 49 milljarðar króna og um 90%
af þeim eru í erlendri mynt, þann-
ig að gengisþróunin vegur þungt,“
sagði hann. „Við höfum á undan-
förnum árum verið að reyna að
lágmarka áhættu af gengissveifl-
um á erlendum myntum og notum
til þess ákveðin tæki. Því er þó
ekkert að leyna að aðstæður hafa
verið okkur hagstæðari í ár en á
síðasta ári. Stöðugt raungengi hef-
ur mikla þýðingu fyrir okkur ásamt
fleiri þáttum.
Við höfum einnig haft meiri
vaxtatekjur en í fyrra þrátt fyrir
að vextir hafí farið lækkandi.“
Sementssala jókst um 13% á fyrri árshelmingi
Meiri aukning en
reiknað var með
SEMENTSSALA fyrstu sex mán-
uði þessa árs jókst um tæp 13%
miðað við sama tíma í fyrra. Þetta
er aðeins meiri aukning en gert
var ráð fyrir í áætlunum Sements-
verksmiðju ríkisins, en þar var
reiknað með að sementssala myndi
aukast um 11,5% á þessu ári.
Að sögn Tómasar Runólfssonar,
fjármálastjóra Sementsverksmiðj-
unnar, nam sementssala fyrstu sex
mánuða þessa árs ríflega 36 þús-
und tonnum samanborið við rúm
32 þúsund tonn á sama tímabili í
fyrra. „Hins vegar er sala fyrstu
sex mánuðina í ár nánast hin sama
og hún var fyrstu sex mánuði árs-
ins 1994.“
Tómas segist vera þokkalega
bjartsýnn vegna síðari hluta árs-
ins. „Júlímánuður virðist ætla að
standast áætlanir og gott betur.
Áætlun okkar gerir ráð fyrir því
að heildarsala ársins muni nema
um 85 þúsund tonnum og við erum
því þokkalega bjartsýnir á að hún
standist. Það yrði smávægileg
aukning frá því sem var árið
1994.“
Litil aukning í
íbúðarbyggingum
Tómas segir þessa aukningu
hins vegar fyrst og fremst liggja
í álversframkvæmdum og virkj-
anaframkvæmdum. Sáralítil aukn-
ing hafi orðið í sementssölu vegna
íbúðarbygginga enn sem komið er.
því besta!
5 manna hústjald 33.240 kr.
4 manna hústjald 28.49(3 kr. stgr.
Tjaldborð og 4 stólar 3.990 kr. stgr.
s
BlÐjlÐ UM
MVNDALIS iAl
RAÐCREIÐSLUR
( E) Raðgreiðslur • Póstsendum sarndægurs.
rSMWK fWMPfK
Sími 561 2045