Morgunblaðið - 26.07.1996, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Umræða um öryggismál á Kennedy-flugvelli
Mínni viðbúnaður í Bandaríkj-
unum en víða annars staðar
Reuter
RANNSÓKNARMENN ganga frá svörtu kössunum svonefndu úr
flaki TWA-breiðþotunnar, sem fórst fyrir viku. Flugritinn og hljóð-
ritinn fundust í fyrrinótt og voru þeir geymdir í vatni til þess að
böndin þornuðu ekki og eyðilegðust á leið til rannsóknarstofunnar.
ÖRYGGI á flugvöllum hefur verið
mikið til umræðu eftir að breiðþota
flugfélagsins TWA af gerðinni Bo-
eing 747-100 fórst fyrir rúmri viku
þótt enn sé ekki vitað hvort um
hermdarverk var að ræða og hefur
komið fram gagnrýni á ástandið á
John F. Kennedy-flugvelli í New
York. Sigurður Stefánsson, stöðv-
arstjóri Flugleiða á Kennedy-flug-
velli, sagði í gær að öryggiseftirlit
á flugvellinum hefði verið hert og
gripið yrði til enn frekari aðgerða
kæmi í ljós að vélinni hefði verið
grandað með sprengju.
Fjögur öryggisþrep
„Bandaríska loftferðaeftirlitið og
yfirvöld á Kennedy-flugvelli hafa
sett öryggisreglur, sem farið er eftir
í einu og öllu,“ sagði Sigurður þegar
hann var spurður um öryggismál á
flugvellinum. „Það eru fjögur örygg-
isþrep og nú erum við á þriðja þrepi.
Ef kemur í ljós að hér er um ódæðis-
verk að ræða, sem hægt hefði verið
að koma í veg fyrir með aukinni
öryggisgæslu, er ljóst að eitthvað
verður gert í málinu. Þangað til segja
þeir að öryggisgæsla á Kennedy-
flugvelli sé í lagi.“
Sigurður sagði að reglur um ör-
yggismál á flugvöllum væru þær
sömu í Bandaríkjunum hvort sem
borgin héti New York eða Chicago.
í grein í tímaritinu Time er sagt
að Bandaríkjamenn séu eftirbátar
annarra þjóða í eflingu öryggis.
Á Hellenikon-flugvelli í Aþenu
þurfi farþegar meira að segja að
fara í gegnum tvöfalt öryggiskerfi,
fyrst hjá flugvallarstarfsmönnum og
síðan hjá flugfélagi. Bandarísk flug-
málayfirvöld gagnrýndu Hellenikon-
flugvöll fyrr á þessu ári vegna skorts
á öryggi og flugvélin, sem fórst, var
að koma þaðan áður en hún lagði
af stað frá New York til Parísar.
í greininni segir að á stórum flug-
völlum í Asíu og Evrópu hafi verið
keyptur fullkominn leitar- og gegn-
umlýsingarbúnaður, en áhuginn sé
sýnu minni í Bandaríkjunum.
Átak var gert í öryggismálum á
bandarískum flugvöllum eftir að
þotu Pan Am var grandað yfir
Lockerbie á Skotlandi árið 1988.
Síðan hefur hins vegar að einhvetju
leyti verið slakað á, ef marka má
Thomas Capowski, fyrrverandi toll-
vörð og núverandi stjórnanda örygg-
isþjónustufyrirtækis á Kennedy-
flugvelli. Að hans sögn komast
óbreyttir starfsmenn einkafyrir-
tækja, sem sjá um sorphirðu, við-
gerðir og veitingar, auðveldlega inn
í vélar á flugbrautum.
Hætt að rannsaka fingraför
Capowsky sagði í samtali við dag-
blaðið The Boston Globe að það hefði
verið regla að senda fingraför þess-
ara starfsmanna ávallt til bandarísku
alríkislögreglunnar, FBI, en því hefði
verið hætt fyrir nokkru. Ástæðan
væri sú að FBI tæki ekki lengur
endurgjaldslaust við fíngraförunum
og hvorki flugfélög, né flugvallarlög-
reglan vildu borga 3.000 krónur fyr-
ir hver fíngraför. Því væri engin leið
að vita hvort glæpamenn léku lausum
hala á flugbrautunum.
Beth Randolph, talsmaður TWA,
sagði að aðeins starfsmenn flugfé-
lagsins kæmu nálægt vélum þess,
ekki verktakar.
Svörtu kassarnir
fundust lítt skemmdir
New York. París. Reuter.
KAFARAR fundu í fyrrinótt svörtu
kassana úr breiðþotu TWA-flugfé-
lagsins, sem fórst fyrir viku undan
strönd Long Island. Að sögn tals-
manna bandarísku öryggis- og
samgöngustofnunarinnar (NSTB)
eru flug- og hljóðritarnir lítið
skemmdir.
Svörtu kassarnir lágu á um 30
metra dýpi og fundu kafarar þá er
þeir leituðu að líkum úr vélinni.
Kassarnir eru beyglaðir og endi
annars þeirra hefur rifnað af, en
að sögn talsmanna NTSB virtust
böndin, sem geyma upptökurnar,
vera í lagi. Sá hluti kassanna sem
sendir frá sér hljóðmerki, til að
auðvelda leit að þeim, hafði rifnað
af hljóðritanum. Hljóðmerki bárust
hins vegar frá flugritunum og
kunna rannsóknarmenn engar skýr-
ingar á því hvers vegna leitartæki
námu þau ekki.
Geymir upptökur
Hljóðritinn hefur að geyma upp-
tökur af síðustu samtölunum í
stjórnklefa vélarinnar, svo og hljóð,
sem kunna að gefa vísbendingar um
hver orsök sprengingarinnar var.
Flugritinn geymir tæknilegar upp-
lýsingar um flugið, svo sem flug-
stefnu, hæð, hraða og nákvæma
tímasetningu sprengingarinnar.
Að sögn talsmannsins, er óvíst
hvort að upplýsingarnar úr svörtu
kössunum veiti nægar upplýsingar
til að hægt sé að segja til um orsök
slyssins.
Franski samgöngumálaráðherr-
ann hélt í gær til New York til fund-
ar við aðstandendur þeirra Frakka
sem fórust með flugvélinni. Gætir
vaxandi reiði á meðal fólksins vegna
þess hve hægt leitin gengur. Kröfð-
ust nokkrir Frakkanna þess að
frönsk yfirvöld tækju þátt í leitinni.
Er aðstoðarsamgönguráðherra
Frakka, Bernard Pons, var spurður
hvort slíkt stæði til, neitaði hann en
kvaðst telja að leitin hefði nú þegar
tekið mjög langan tíma. Bætti Pons
því við að franskar kafbátaleitarvél-
ar hefðu fundið flakið mun fyrr.
★★★★★
EVRÓPA^.
London. The Daily Telegraph.
HÆGRISINNAÐIR ráðherrar í
ríkisstjórn Johns Majors í Bret-
landi eru komnir á þá skoðun að
sú stefna forsætisráðherrans að
„bíða og sjá“ varðandi þátttöku
Breta í hinum peningalega sam-
runa Evrópuríkja (EMU) sé óvið-
unandi stefna. Telja þeir að gefa
beri hana upp á bátinn fyrir næstu
þingkosningar.
Nokkurs konar vopnahlé hefur
verið í gildi í Evrópumálum milli
ráðherra í bresku stjórninni upp
á síðkastið, en þessir ráðherrar
munu hafa í hyggju að binda enda
á það fyrir árslok. Kenneth
Ciarke fjármálaráðherra hefur til
þessa komið í veg fyrir að sam-
þykkt verði stefnuyfirlýsing um
að íhaldsmenn hafni þátttöku í
EMU.
Það er ekki síst afsögn David
Heathcoat-Amory, ráðherra í
fjármálaráðuneytinu, fyrr í vik-
unni, sem hefur knúið fram þessa
stefnubreytingu. Heathcoat-
Amery lýsti því yfir að næsta rík-
issljórn landsins yrði að biðja
þingið um að taka grundvallar-
ákvarðanir varðandi peningalega
samrunann einungis nokkrum
mánuðum eftir kosningar, eigi
Bretar að eiga þess kost að taka
Þrýstingrir á Major
að taka afstöðu til EMU
Reuter
ÚRSLIT í samkeppni framkvæmdastjórnarinnar um útlit hinnar nýju Evró-myntar liggja nú fyrir.
Þýski hönnuðurinn Andreas Karl hlaut fyrstu verðlaun fyrir bestu tillögu að mynt en fyrirtækið
Codina og Fontanals í Barcelona hlaut fyrstu verðlaun fyrir bestu tillögu að Evró-seðli.
þátt frá upphafi í EMU, eða frá
og með 1. janúar 1999.
Major og aðrir Evrópusinnaðir
ráðherrar reynt að gefa í skyn
að ekki sé brýnt að taka ákvörðun
í málinu á næstu þremur árum
og því þurfi Bretar ekki að gera
upp hug sinn enn.
Forsætisráðherrann ítrekaði á
miðvikudag að hann vilji halda
öllum dyrum opnum og að Bretar
hafi ekki efni á að útiloka sig frá
umræðum innan ESB, líkt og ger-
ast mundi, ef ákvörðun yrði tekin
nú um að hafna þátttöku í EMU.
Tilræðið á Sri Lanka
Lögreglan
yfirheyrir
27 tamíla
Colombo. Reuter.
LÖGREGLAN á Sri Lanka yfír-
heyrði í gær 27 tamíla sem hún
handtók vegna gruns um að þeir
ættu aðild að sprengjutilræði í far-
þegalest í Colombo sem varð að
minnsta kosti 78 manns að bana og
særði 450 í fyrradag.
Lögreglan rannsakaði einnig vís-
bendingar um að sprengjum hefði
verið komið fyrir í lestinni í þremur
skjalatöskum.
Stjórnvöld á Sri Lanka sökuðu
skæruliðasamtök, sem berjast fyrir
sjálfstjórn tamíla í norður- og aust-
urhluta eyjunnar, um að hafa staðið
fyrir tilræðinu til að egna tamíla og
sinhala, sem eru þorri íbúanna. Sam-
tökin vísuðu þessu á bug og sögðu
stjórnina vilja magna hatur sinhala
í garð tamíla með því að kenna tam-
ílsku skæruliðunum um tilræðið.
Stórsókn sögð í undirbúningi
Alþjóðanefnd Rauða krossins
(ICRC) sagðist veita aðstoð við að
bjarga lífi tuga manna sem særðust
alvarlega í tilræðinu. ICRC hefur
einnig sent hjálpargögn til norðaust-
urhluta landsins þar sem margir
óbreyttir borgarar biðu bana í
mannskæðum bardögum stjórnar-
hersins og skæruliða. Hundruð her-
manna og skæruliða féllu í bardög-
unum, en ekki er vitað hversu marg-
ir óbreyttir borgarar týndu lífi.
----------*-------
Flugræningi
yfirbugaður
París. Reuter.
ALSÍRSKIR öryggislögreglumenn
handtóku í gær óvopnaðan mann sem
rændi Boeing 767 flugvél alsírska
ríkisflugfélagsins Air Algerie á flug-
vellinum í borginni Oran. Um borð
voru 232 farþegar og sakaði engan.
Hvorki var vitað hvað fyrir flug-
ræningjanum vakti né hverrar þjóðar
hann er. Vélin var að leggja upp í
ferð til Algeirsborgar þegar ræning-
inn lét til skarar skríða og kom í
veg fyrir að vélin færi í loftið.
Kenneth Clarke var fyrr á
þessu ári nær búinn að segja af
sér er Major lofaði því að haldin
yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um
EMU. Innan stjórnarinnar er talið
að hann muni hugsanlega láta
verða af afsögn ef samþykkt verð-
ur að taka ekki þátt í EMU.
Sú skoðun er hins vegar ríkj-
andi innan stjórnarinnar að um-
ræðan í kringum afsögn Heathco-
ats-Amorys hafi undirstrikað
hversu erfitt er fyrir sfjórnina að
viðhalda núverandi stefnu.
Þar sem að flest bendir til að
Major hyggist ekki halda kosning-
ar fyrr en í maí á næsta ári yrði
það eitt fyrsta verk næstu stjórn-
ar að taka ákvörðun um EMU-
þátttöku.
Að matri hægrisinnaðra ráð-
herra er óhugsandi að Major kom-
ist í gegnum kosningabaráttuna
án þess að taka afstöðu til þessa
máls. Einn valkostur, sem nú er
til umræðu innan flokksins, er að
íhaldsmenn muni hafna þátttöku
Breta í fyrstu umferð en fylgjast
grannt með þróun hinnar sameig-
inlegu myntar.
Stöðugt fleiri þingmenn og ráð-
herrar íhaldsflokksins eru hins
vegar sagðir vera komnir á þá
skoðun að ekki komi til greina
að ríkisstjórn íhaldsflokksins
muni leggja niður pundið, hvorki
fyrir né eftir kosningar. Segja
margir þeirra að það eina sem
komi í veg fyrir að íhaldsmenn
hafni EMU sé óttinn við afsögn
Clarkes og hugsanlega einnig
Michaels Heseltines, aðstoðarfor-
sætisráðherra.