Morgunblaðið - 26.07.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
LISTIR
FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1996 17
I-
Valdarán hersins í Búrúndí
Enn einn kaflinn í
blóði drifinni sögn
Bujumbura. Reuter.
PIERRE Buoya, sem tók við völdum
á ný í Mið-Afríkuríkinu Búrúndí í
gær, kom fyrst til valda eftir átaka-
laust valdarán
árið 1987 og sat
við völd allt fram
til ársins 1993.
Buoya er tal-
inn vera einn af
hófsamari stjórn-
málamönnum í
röðum Tútsa, er
lengst af hafa
ráðið ríkjum í
Búrúndí, þrátt fyrir að Hútúar séu
í meirihluta meðal þjóðarinnar.
Sex milljónir búa í Búrúndí og eru
85% af þjóðflokki Hútúa. Oft hefur
komið til blóðugra átaka milli þjóð-
flokkanna. Árið 1972, er Tútsar
töldu völd sín í hættu myrtu þeir
um 100 þúsund Hútúa, þar á meðal
nær alla menntamenn.
Tók við völdum 1987
Áður en Buoya tók við stjórn
landsins árið 1987 hafði herinn farið
með völd í rúm tuttugu ár, eða allt
frá því að Michel Micombero steypti
Ntare fimmta konungi af stóli árið
1966. Með valdaráni Micomberos var
bundinn endi á konungsveldi er hafði
verið við lýði allt frá sextándu öld
og lifað af nýlendustjórn Þjóðveija
og síðan Belga.
Þegar Micombero tók við völdum
rauf hann þá hefð að skipa forsætis-
ráðherra til skiptis úr röðum Tútsa
og Hútúa og kom á yfirráðum Tútsa
í stjórn landsins og her. Micombero
var steypt af stóli árið 1976 af Jean-
Baptiste Bagaza.
Bagaza breytti árið 1977 reglum
um ábúnað lands og batt þar með
enda á eins konar lénsherraveldi
Tútsa. Hann lenti hins vegar í úti-
stöðum við kaþólsku kirkjuna, bann-
aði messur á virkum dögum og þjóð-
nýtti kristna skóla.
Árið 1985 sendi hann 90 kristni-
boða úr landi og fangelsaði fjöl-
marga presta. Var markmiðið með
valdaráni Buyoyas ekki síst að binda
enda á deilur ríkis og kirkju, sem
höfðu haft slæm áhrif á þróunarað-
stoð til Búrúndí.
Fyrstu kosningarnar
Eftir að hann tók við völdum gaf
hann út tilskipun um að allir þjóð-
flokkar landsins væru jafnréttháir,
veitti Hútúm aðild að stjórninni og
árið 1993 boðaði hann til fyrstu
frjálsu kosninganna í Búrúndí. Vann
Frodebu-flokkur _ Hútúa þar yfir-
gnæfandi sigur. í október 1993, eft-
ir að Hútúar höfðu farið með völd
í ijóra mánuði, efndu Tútsar til
valdaráns og myrtu Melchior Ndaye
forsætisráðherra og fleiri háttsetta
menn í stjórn landsins. Talið er að
fimmtíu þúsund hafi fallið í átökum
í kjölfar valdaránsins.
Buyoya er 46 ára að aldri, mennt-
aður í félags- og herfræði við belg-
ísku herakademíuna í Brussel. Hann
hefur einnig stundað nám við franska
liðsforingjaskólann og í Þýskalandi.
Fj ölmiðlaráðgj afi
Díönu segir af sér
Lundúnum. Reuter.
DIANA prinsessa hélt í skyndi til
Lundúna í gær frá Frönsku rivíer-
unni til að ræða við starfslið sitt
vegna óvæntrar afsagnar fjölmiðla-
ráðgjafa síns.
Díana fór til Lundúna með eldri
syni sínum, Vilhjálmi prinsi, en yngri
sonur hennar og Karls Bretaprins,
Harry, verður áfram í orlofshúsi fjöl-
skyldunnar nálægt Cannes ásamt
hertogaynjunni af Jórvík og tveimur
dætrum hennar.
Breska dagblaðið Daily Express
sagði að Díana hefði boðað starfslið
sitt til fundar vegna skyndilegrar
afsagnar fjölmiðlaráðgjafans, Jane
Atkinson, sem er sögð hafa átt í
deilum við prinsessuna. Afsögnin er
talin enn eitt áfallið fyrir Díönu, sem
hefur m.a. verið gagnrýnd fyrir að
hætta sem verndari um hundrað
góðgerðasamtaka eftir að hafa náð
samkomulagi við Karl prins um skil-
mála lögskilnaðar þeirra. Ýmsar
uppákomur í fjölmiðlum hafa einnig
komið sér illa fyrir prinsessuna.
Drottning sögð refsa BBC
Skýrt var frá því í fyrradag að
Elísabet Bretadrottning hefði ákveð-
ið að svipta BBCeinkarétti á útsend-
ingum á jólaávarpi hennar sem
breska ríkissjónvarpið hefur haft í
39 ár. Talið er að drottningin hafi
ákveðið þetta vegna óánægju með
umdeilt viðtal BBC við Díönu prins-
essu um hjónaband hennar og Karls
prins í nóvember.
Talsmenn drottningarinnar sögðu
þó að hún hefði tekið þessa ákvörð-
un til að stuðla að „sanngjörnu jafn-
vægi“ í samkeppni sjónvarpsstöðv-
anna og vísuðu því á bug að hún
bæri kala til BBC. Frá og með næsta
ári eiga BBC og ITV skiptast á um
að sýna ávarpið í tvö ár í senn.
Sannleiksnefnd má
náða morðingja
Jóhannesarborg. Retuer.
STJORNLAGADOMSTOLL Suður-
Afríku hafnaði í gær tilraunum fjöl-
skyldna baráttumanna gegn aðskiln-
aðarstefnunni til að koma í veg fyr-
ir að morðingjar þeirra yrðu náðaðir
ef þeir játuðu brot sín. Á meðal
þeirra sem beitt hafa sér í málinu
er fjölskylda Stephens Biko.
Stjómlagadórnstóllinn úrskurðaði
að Sannleiks- og sáttanefnd sem
Desmond Tutu erkibiskup situr í for-
sæti fyrir, geti náðað menn sem hafí
framið mannréttindabrot á tímum og
í nafni aðskilnaðarstefnunnar, ef þeir
játuðu glæpi sína og gæfu allar upp-
lýsingar um þá. Nefndin var sett á
laggimar fyrr á þessu ári og er ætl-
að að græða þau sár aðskilnaðar-
stefnan olli á þeim þremur áratugum
sem hún var við lýði.
Biko lést í varðhaldi árið 1977 en
saga hans er sögð í kvikmyndinni
„Cry Freedom". Hann var einn af
að minnsta kosti 90 leiðtogum
svartra, sem voru drepnir eða hurfu
á þeim 30 árum sem stjórnir hvitra
voru við völd. Hefur fjölskylda Biko
barist gegn áætlunum Sannleiks- og
sáttanefndarinnar um að náða menn.
Starfandi formaður nefndarinnar,
Dumisa Ntsebeza, fagnaði hins veg-
ar útskurði stjórnlagadómstólsins,
og sagði hann myndu verða til þess
að hvetja þá sem brotið hefðu mann-
réttindi, til að segja frá því hvað
raunverulega hefði gerst.
Listsýning
á bryggju-
hátíð
Drangsnesi. Morgunblaðið.
MYNDLISTARSÝNING á Drangs-
nesi er ekki daglegur viðburður.
Þegar verið var að skipuleggja
bryggjuhátíð sem haldin var 20. júlí
þótti því alveg tilvalið að reyna að
fá einhveija listamenn tii að opna
sýningu þennan dag.
Sýning listakvennanna Lilju Sig-
rúnar Jónsdóttur og dætra hennar
Hólmfríðar, Þóru og Ástu Þóris-
dætra er líklega fyrsta myndlistar-
sýningin sem haldin er á Drangs-
nesi. Þær mæðgur áttu heima á
Drangsnesi um árabil en búa í dag
í Reykjavík og þar í nágrenni.
Verk Lilju Sigrúnar tengjast
Drangsnesi. Þar er þjóðsagan, bæði
ný og gömul, í aðalhlutverki. Einnig
sýnir hún líkan af umhverfislista-
verki á hafnargarðinum í Kokkáls-
víkurhöfn. Verkið kallar hún Segl.
Hólmfríður sýnir litskyggnur bæði
af Ströndum og annarsstaðar frá.
Þar er náttúran skoðuð í gegnum
ljósop myndavélar bæði hefðbundnar
myndir af landslagi og eins nær-
Morgunblaðið/Jenný
VERK eftir Þóru Þórisdóttur.
myndir af ýmsum smágróðri og
þessháttar náttúrulistaverkum.
Verk Þóru eru trúarleg verk bæði
málverk og skúlptúr með sterkri
skírskotun til Biblíunnar.
Ásta sækir einnig efnivið til Bibl-
íunnar en hennar verk er fimm metra
hár skúlptúr sem stendur á sjávar-
bakkanum fyrir neðan skólann.
Listakonurnar voru mjög ánægð-
ar með aðsóknina fyrsta dag sýning-
arinnar því gestir á sýningunni voru
um tvö hundruð sem er mjög svo
gott á stað þar sem íbúarnir eru
rétt um hundrað. Sýningin verður
opin fram að 2. ágúst.
Nýr lista-
maður í
Listakoti
HALLA Sólveig Þorgeirsdóttir hefur
bæst í hóp listamannanna sem
standa að Galleríi Listakoti á Lauga-
vegi 70. Halla
Sólveig lauk
námi frá mynd-
listarbraut Lista-
sviðs Fjölbrauta-
skólans í Breið-
holti vorið 1990.
Hún stundaði
nám við Grafík-
deild MHÍ á ár-
unum 1990-
1992. Hún hélt
svo til Bandaríkj-
anna til náms og vorið 1992 lauk
Halla Sólveig BFA gráðu frá Hart-
ford Art School, University of Hart-
ford, og var veitt The Charles Sals-
bury Award fyrir góðan námsárang-
ur við skólann. Halla Sólveig hefur
einbeitt sér að myndskreytingum
síðustu tvö ár, en aðalfag hennar í
náminu í Bandaríkjunum var mynd-
skreytingar.
Halla Sólveig starfar sjálfstætt
sem teiknari. Hún hefur mynd-
skreytt barnabækur, námsbækur
fyrir börn og unglinga og bókakáp-
ur. Hún er um þessar mundir bú-
sett í Bandaríkjunum. Gallerí Lista-
kot var nýlega stækkað og er nú á
tveimur hæðum, með smærri list-
muni á neðri hæð og tvo sýningar-
sali á þeirri efri. Samfara þessari
stækkun var ákveðið að bæta við
nýjum félögum og eru listamennirn-
ir nú 13 talsins.
------♦ ♦ ♦
Stöðlakoti
senn skilað
HIÐ nýja „alþjóðalistasafn Stöðla-
höll“ við Bókhlöðustíg 6 mun verða
opið helgina 27. og 28. júlí. Þetta
er síðasta helgi sýningarinnar á
þessu útilistaverki og innsetningum.
Listamaðurinn Illur kaliar verkið
í draumi sérhvers kots og er það
þrískipt; framhliðin á „höllinni“ sem
hylur Stöðlakot, sýning á verkum
erlendra listamanna inni, og uppi á
lofti er innsetning í þjóðlegum anda.
Illur hvetur fólk til að mæta um
helgina á þessa sýningu sem hefur
verið kölluð bæði alvarleg og kímin
því síðan verður „höllin" rifin í næstu
viku og Stöðlakoti í sinni uppruna-
legu mynd skilað aftur til borgarbúa.
Bjartsýnisverð-
launin afhent
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
HAUKI Tómassyni tónskáldi voru á
miðvikudag afhent bjartsýnisverð-
laun Brostes, sem nú voru afhent í
sextánda skiptið. Verðlaunin nema
um 550 þúsund íslenskum krónum
og hlýtur Haukur þau fyrir tónlist
sína við Guðrúnarkviðu hina fjórðu,
sem frumsýnd var í Kaupmannahöfn
á miðvikudagskvöld.
Afhendingin fór fram í Kaup-
mannahöfn við hátíðlega athöfn í
Asbæk-galleríinu við Bredgade.
Peter Broste framkvæmdastjóri
þakkaði í ávarpi sínu Vigdísi Finn-
bogadóttur forseta, því bjartsýni
hennar hefði blásið sér í bijóst hug-
myndinni að verðlaunum. Róbert
Trausti Árnason sendiherra flutti
kveðjur frá forseta Islands og Dav-
íð Oddssyni forsætisráðherra og
Berit Mæland óperusöngkona flutti
brot úr verki Hauks.
Viðstödd athöfnina var einnig
Louise Beck, sem fyrir þremur árum
fékk hugmyndina að því að gera
sviðsverk í þurrkví úti á Hólmanum
við miðborg Kaupmannahafnar og
hefur síðan tekist að safna saman
þeim 88 milljónum íslenskra króna,
sem þurfti til að framkvæma hug-
myndina. Broste-fyrirtækið hefur
styrkt uppsetninguna, auk margra
annarra aðila.
Þetta er í sextánda skiptið, sem
verðlaunin eru afhent. Þegar Vigdís
Finnbogadóttir forseti kom í fyrstu
opinbera heimsókn sína til Danmerk-
ur fyrir sextán árum varð henni tíð-
rætt um bjartsýni. Af þeim orðum
hreifst Peter Broste og fékk um leið
hugmyndina að því að verðlauna ís-
lenska listamenn. Garðar Cortes
söngvari var fyrsti listamaðurinn,
sem heiðraður var og í fyrra hlaut
Friðrik Þór Friðriksson kvikmynda-
gerðarmaður verðlaunin.
^/^Alþjóða Verslunarfélagið ehf W er flutt í Skipholt 5
OPNUNARTILBOÐ
trrrm vax 2000 Allar aðrar vörur með
10 % staðgreiðsluafslætti
Ryksuga frá 25 júlí - 2 ágúst
Vatnssuga fííSlfh rpinc i\/ól Cyclo-Jet blástursofninn
vjvll 111 ciiiðivcl Teppahreinsivél Laura Star gufustraujárn m/gufuþrýstingi
Sérstakt tilboðsverð Trimform meðferðartæki
Kr. 19.900,- Ha-Ra umhverfisvænar
Takmarkað magn Nýtt sfmanúmer 511-4 hreinlætisvörur 100 Símbréf: 511-4101