Morgunblaðið - 30.08.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1996 21
BRYNDÍS Schram, fráfarandi
framkvæmdastjóri Kvikmynda-
sjóðs, efndi til móttöku á heimili
sínu á miðvikudagskvöld_ þar sem
hún afhenti Þorfinni Ómarssyni
formlega stjórnartauma fram-
kvæmdastjórnar sjóðsins. Óskaði
Bryndís Þorfinni alls hins besta og
sagði að hún hefði ekki getað feng-
ið betri eftirmann. „Hann er gjör-
kunnugur þessari veröld og tími til
kominn að nýr maður fái að spreyta
sig,“ sagði Bryndís.
„Ég gleðst yfir því að byrja í
þessu starfi á þessum mikilvægu
tímum þar sem kvikmyndin er ný-
búin að halda upp á aldarafmælið
og við erum líka að sigla inn í 21.
öldina. Það er ljóst að myndmiðillinn
er miðill framtíðarinnar og kvik-
myndin er listgrein 20. aldarinnar,“
sagði Þorfinnur. „Kvikmyndalist
með aðstoð annarra miðla verður
örugglega listgrein og -form 21.
aldarinnar þannig að það er mikil-
vægt að búa vel í haginn fyrir fram-
tíðina.“
Við þetta tækifæri færði Sveinn
Einarsson Kvikmyndasafni íslands
nótnasafn móður sinnar, Kristjönu
Þorsteinsdóttur, en hún hafði það
verk í höndum að leika á píanó
undir þöglu myndunum í Gamla
bíói á 3. og 4. áratug aldarinnar.
Böðvar Bjarki Pétursson fulltrúi í
framkvæmdanefnd nýstofnaðs
kvikmyndafræðafélags, Hins ís-
lenska kvikmyndafræðafélags,
sagði að frá kvikmyndasögulegu
sjónarmiði á íslandi væri nótnasafn-
ið gríðarlega merkilegt safn. „Við
eigum örfáar bækur og að fá svona
heillegt safn er mjög mikilvægt,"
sagði Böðvar Bjarki. I nótnasafninu
er allt frá píanóútsetningum á Beet-
hovensinfóníum, verkum eftir Schu-
mann, Brahms, Liszt, Mendelsohn,
Chopin og Schubert til skoskra
stúdentasöngva, sænskra og nor-
skra þjóðvísna, pólskra þjóðdansa,
franskra og austurrískra marsa,
laga úr óperum og söngleikjum,
dægurlögum og stöku íslenskum
lögum.
Lulu í fullri
lengd í Kaup-
mannahöfn
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ÓPERA Alban Bergs, Lulu, er
nú sýnd í Kaupmannahöfn og
er sýningin sú fyrsta á Norður-
löndum á óperunni í fullri
lengd.
Titilhlutverkið er sungið af
hinni bandarísku Constance
Hauman. Schigolch er sunginn
af þýska bassanum Theo Ad-
ams, sem er ekki aðeins í
stjörnuliði söngsins eftir 45 ára
feril heldur hefur einnig skrifað
bækur um söngtækni. Peter
Straka syngur Alwa, en hann
er ungur tékkneskur tenór, sem
nú syngur á öllum helstu óperu-
sviðum heims. Bandaríski te-
nórinn Monte Jaffe syngur
Schön með eftirminnilegum
hætti.
Þessi uppsetning er í einu
orði sagt stórglæsileg, því bæði
Á MÁLÞINGI sem fram fer í Nor-
ræna húsinu á morgun, laugardag,
um íslenska þjóðernisstefnu verður
leitað svara við spurningum eins
og þeim hvað íslenskt þjóðerni sé?
Hvenær íslensk sjálfsmynd varð til
og við hvaða aðstæður? Hvað felist
í sjálfsmynd íslenskrar þjóðernis-
hyggju og hvaða eiginleika, dyggð-
ir og markmið hún hefji upp? Og
hver séu áhrif þjóðernisstefnu á
okkar dögum?
Fyrirlesarar verða átta. Fjórir
tala fyrir hlé, kl. 13.00 til 14.45.
Ragnheiður Kristjánsdóttir, sagn-
fræðingur, heldur fyrirlestur sem
hún nefnir „Þjóðleg" endurreisn og
endurreisn „þjóðar", hugmyndir um
endurreisn alþingis og rætur ís-
lenskrar þjóðernisstefnu. Jón Karl
Helgason, bókmenntafræðingur,
flytur erindi sem nefnist „Fögur er
hlíðin": mýta um íslenskt þjóðerni.
Erindi Jóns Yngva Jóhannssonar,
bókmenntafræðings, heitir Hvað
CONSTANCE Haumann sem
Lulu og Monte Jaffe í hlut-
verki dr. Schön.
er sjálft leikhúsið, Ridehuset við
Kristjánsborgarhöll, heillandi
umgerð og þá ekki síður sviðs-
mynd, búningar og lýsing. Það
er því áhrifamikil reynsla fyrir
tónlistarunnendur að eiga þess
kost að sjá Lulu. Síðasta sýning-
in er 7. september. Það er út-
varpshljómsveitin sem spilar
undir stjórn aðalstjórnandans
Ulf Schiermers, sem stjórnar
jafnt hér, í Vín og öðrum nöflum
tónlistarinnar.
eru íslensk fornrit? Um þjóðernis-
hyggju Sigurðar Nordals og útgáfu
Egils sögu. Davíð Logi Sigurðsson,
sagnfræðingur, spyr hver sé Lífæð
þjóðernisins? Hvað verður um þjóð
sem tapar tungu sinni? hugleiðingar
um Islendinga og íra.
Kl. 15.00 hefst svo þingið aftur
með því að Haraldur Jónsson,
myndlistarmaður og rithöfundur,
Ijallar um „ísland í dag“. Sigríður
Matthíasdóttir, sagnfræðingur, tal-
ar svo um „Endurreisn _ lýðræðis-
ins“, þjóðernisgoðsögn íslendinga
og Tékka. Arnar Guðmundsson,
bókmenntafræðingur, varpar því
næst fram þeirri spurningu af
hvetju þjóðernishyggjan þijóskist
við? Um „ekta“ og „falskar" sjálfs-
myndir á tímum alþjóðavæðingar.
Að lokum tekur Guðmundur Hálf-
danarson, dósent í sagnfræði, sam-
an það helsta úr ofantöldum fyrir-
lestrum. Fundarstjóri verður Gísli
Sigurðsson, íslenskufræðingur.
Mbl/Árni Sæberg
ÞORFINNUR Ómarsson, nýráðinn framkvæmdasljóri Kvikmynda-
sjóðs, Sveinn Einarsson og Bryndís Schram virða fyrir sér nótur
úr safni móður Sveins, en nótnasafnið hefur Sveinn gefið Kvik-
myndasafni Islands til varðveislu og rannsóknar.
Þorfinnur Ómarsson nýr fram-
kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs
„Kvikmyndin er list- , .
grein 20. aldarinnar“ Malþing um íslenska
þjoðermsstefnu
Caput
heldur
verkstæð-
istónleika
CAPUT-hópurinn heldur verk-
stæðistónleika í Norræna hús-
inu á morgun laugardag og
hefjast þeir kl. 18.
„Caput vinnur nú að upptök-
um á nýjum geisladiski með
verkum eftir danska tónskáldið
Lars Graugaard, undir stjórn
norska hljómsveitarstjórans
Christian Eggen. Lars Grauga-
ard er af yngri kynslóð danskra
tónskálda og hefur á síðustu
árin verið mjög afkastamikill,
sérstaklega við smíði kammer-
verka. CAPUT-hópurinn hljóð-
ritar þessa dagana verk fyrir
litla kammersveit og Sinfóní-
ettu eftir Lars en einleikarar
eru Lionel Party semballeikari,
sem jafnframt er prófessor í
semballeik við Juliard tónlistar-
háskólann í New York og
Zbigniew Dubik sem er íslend-
ingum af góðu kunnur og einn
af fiðluleikurum CAPUT-hóps-
ins. Diskurinn er væntanlegur
á heimsmarkað í byrjun næsta
árs, gefinn út af dönsku útgáf-
unni Kontrapunkt.
Christian Eggen er einn virt-
asti hljómsveitarstjóri Norð-
manna um þessar mundir. Hann
hefur stjórnað öllum helstu
hljómsveitum Noregs og víða í
Evrópu en sérstaklega er hann
virtur fyrir starfa sitt með Osló
Sinfóníettu og Cikada hópnum
semer e.k. CAPUT Noregs.
Christian er jafnfaramt fær
píanóleikari og heldur héðan til
Ósló þar sem hann leikur ein-
leik í einum af píanókonsertum
Mozarts með Ósló Philharmon-
ik,“_ segir í kynningu.
Á tónleikunum á laugardag-
inn mun CAPUT-hópurinn m.a.
frumflytja nýtt verk, Body,
Legs, Head sem Lars Grauga-
ard samdi sérstaklega fyrir hóp-
inn og tileinkar honum en efnis-
skráin mun taka innan við
klukkutíma í flutningi.
Allir eru velkomnir, aðgang-
ur er ókeypis.
Carreras selst bezt
GEISLAPLÖTUR tenóranna
þriggja, Carreras, Domingo og Pa-
varotti, eru söluhæstu sígildu
geislaplöturnar samkvæmt brezka
tímaritinu Classic CD.
Þessar plötur, sem
byggjast á tónleikum í
tilefni heimsmeistara-
keppni í knattspyrnu,
hafa selzt í 12 milljón-
um eintaka sú fyrri og
hin í tíu. Síðan er alln-
okkurt bil í þriðju plöt-
una, sem eru Árstíðir
Vivaldis í flutningi
Nigels Kennedys. Sú
plata hefur selzt í rösk-
lega 2,3 milljónum ein-
taka, en þess skal getið
að þrjár aðrar útgáfur
af Árstíðunum eru í
hópi þeirra platna, sem
mest hafa selst og er salan samtals
á sjöttu milljón eintaka.
Classic CD bað útgáfufyrirtæki að
tilnefna sínar söluhæstu plötur og
þannig varð listinn til. Þar er í fjórða
sæti níunda sinfónía Beethovens í
flutningi Berlínarfílharmóníunnar
undir stjórn Karajans, sem hefur
selzt í tveimur milljónum eintaka.
Þriðja sinfónía Goreckis hefur selzt
í fleiri en milljón eintökum og ann-
að nútímaverk á þessum lista er
Requiem John Rutters. í sjöunda
sæti listans er geislaplatan með
tónlistinni úr kvikmyndinni Farin-
elli og af annarri kvikmyndatónlist
má nefna tónlistina úr kvikmyndun-
um Píanó og Öllum heimsins
morgnum.
Á þessum lista í Classic CD er
geislaplatan með Jan Garbarek og
Hilliard Ensemble, sem
héldu eftirminnilega
tónleika í Hallgríms-
kirkju, og annað verk,
sem nýlega var á dag-
skrá í Reykjavík,
Carmina Burana eftir
Orff, er þarna einnig.
Miðaldatónlistin á
fleiri fulltrúa á sölulist-
anum, m.a. útgáfu á
verkum eftir Hildegard
Von Bingen. Og kant-
ötur Bachs eru á 69
plötum, sem hafa selzt
í 32 þúsund eintökum
þannig að „heildarsal-
an“ nemur 2,2 milljón-
um eintaka!
Platan Passion með José Carrer-
as hefur selzt í hálfri milljón ein-
taka og þar með er hann sá ein-
staklingur sem flestar plötur seljast
með. Fyrrnefndar tenóraplötur eiga
sinn þátt þar í, en Carreras hefur
einnig sungið lög úr söngleikjum
inn á vinsælar plötur, þ. á m. með
Kiri Te Kanawa og er hún í hópi
þeirra söngkvenna, sem næst ganga
tenórunum þremur, hvað sölu á
geislaplötum varðar.
Þeir Pavarotti og Domingo koma
næst' Carreras, hvað sölu varðar,
og íjórði listamaðurinn er fiðluleik-
arinn Nigel Kennedy.
José Carreras
.Yf//’tuu/'J/i/
Jfó/mnna /t. /<n
Sföjör/cJfánit/éf/u'
fé/a n na 7. .:'//r/>u//:,(Iá//< n
Einsöngsdeild.
Hefðbundið einsöngsnám
samkvæmt viðurkenndri námsskrá.
Hverri önn lýkur með
tónleikum og/eða stigsprófum.
Auk hefðbundinna hliðargreina m.a.
ítalska/þýska/franska fyrir söngvara,
leikræn tjáning og hreyfing.
Deildarstjóri Friðrik S. Kristinsson.
Söngdeild fyrir áhugafólk.
Einsöngstímar, raddþjálfun, hliðargreinar.
Hóptímar 2 til 4 saman fyrir kórsöngvara.
Litlir hópar 6 til 12 saman, tekin fyrir létt
tónlist m.a. gospel-, söngleikja- og þjóðlagatónlist.
Unglingahópar.
Deildarstjóri Jóhanna V. Þórhallsdóttir.
Syngjandi forskóli.
Fyrir börn frá 2-5 ára. Góður undirbúningur fyrir
tónelsk böm sem miðar að því að örva þau til frekara
tónlistamáms. Bömin mæta í tíma ásamt einum eða
fleiram úr ijölskyldunni.
Deildarstjóri Margrét J. Pálmadóttir.
Innritun 2.-6. september að Ægisgötu 7. kl. 10-19
Nánari upplýsingar í síma: 5626460.
Öajjný //föny }><ni<I/./f<H
/(att/i/dur (0. ((aft/faM/óttir
t'Raíjn/eiður ,~/<nne/